Morgunblaðið - 24.12.2006, Síða 40

Morgunblaðið - 24.12.2006, Síða 40
40 SUNNUDAGUR 24. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ 24. desember 1976: „Kirkjan og kristnin hafa mótað líf þjóðarinnar í ríkari mæli en flestir gera sér grein fyrir. Þjóðararfleifð okkar er sam- ofin kristnum boðskap og sið- fræði. Kristinn dómur er fyrir löngu óaðskiljanlegur hluti af þessari þjóð. Engu að síður hefur mannlegur breyskleiki sagt til sín með öllum kyn- slóðum Íslendinga, sem naumast er orð á gerandi, en því miður einnig hugs- unarháttur og hegðan, sem er fordæmanleg. Þessa sjáum við ekki sízt merki í samtíð okkar. Afbrot, sem ekki eiga rætur í neyð og fátækt, heldur ágirnd og fyrirlitningu á landsins lögum, eru með öllu óafsakanleg. Í þeim efnum þarf að grafast fyrir rætur meina. Það verður ekki gert með neinni einni lækn- isaðgerð. Strangari löggæzla sem að er stefnt, er óhjá- kvæmileg.“ . . . . . . . . . . 21. desember 1986: „Sam- skipti ríkissjóðs og borg- arsjóðs hafa verið mikið til umræðu á lokastigum fjár- lagaafgreiðslunnar vegna þeirra álitaefna, sem hafa ris- ið við þá ákvörðun að setja Borgarspítalann á föst fjár- lög. Borgarstjóri setti fram þá ósk af þessu tilefni, að ríkið tæki alfarið að sér rekstur spítalans, ef hann yrði tekinn af svonefndu daggjaldakerfi, og ríkið eignaðist hlut borg- arinnar í spítalanum. Helstu rök hans eru þau, að saman fari framkvæmd og fjár- hagsleg ábyrgð þannig að sá aðili, sem greiðir allan rekstr- arkostnað, beri einnig ábyrgð á stjórn spítalans og komi fram sem samningsaðili við starfsfólk hans.“ . . . . . . . . . . 22. desember 1996: „Frá því að staðgreiðsla skatta var tek- in upp fyrir tæplega áratug hefur hún hækkað úr 35,2% í 41,98%. Skattleysismörk eru nú rúmlega 60 þúsund krónur á mánuði en væru rúmlega 78 þúsund krónur, ef þau hefðu verið látin fylgja lánskjara- vísitölu. Þar að auki hefur sér- stakur hátekjuskattur verið lagður á í nokkur ár. Ekki er við öðru að búast en að á því samdráttarskeiði, sem hófst á miðju ári 1988 og reyndist hið lengsta í hagsögu okkar á þessari öld, mundu fylgja umtalsverðar skatta- hækkanir. Það var einfaldlega ekki hægt að ráða við rík- isfjármálin með öðrum hætti, þótt hart væri gengið fram í niðurskurði. Ríkisstjórnin hefur líka gert rétt í því, að ráðast ekki í skattalækkanir um leið og betur árar. Sú ákvörðun að framlengja hátekjuskattinn var eðlileg, ekki sízt í ljósi vax- andi tekjumunar, og það er líka rétt stefna að hefja skattabreytingar með lækkun jaðarskatta, sem mjög hafa verið til umræðu undanfarin ár.“ Fory s tugre inar Morgunb laðs ins Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. TIL HVERS VAR HANN SENDUR? Um sexleytið í kvöld ættu lands-menn flestir að verða komnir ímark í kapphlaupi sínu í jóla- gjafainnkaupum, skreytingum, innan- hússumbótum, hreingerningum og eldamennsku. Þá ætti líka flestum að gefast stund til að fara í kirkjuna sína eða setjast niður við útvarpið og heyra hinn raunverulega jólaboðskap. Af prédikunarstólnum í kirkjum landsins hljómar fagnaðarerindið, sem engillinn flutti fjárhirðunum á Betle- hemsvöllum: „Verið óhræddir, því sjá, ég boða yð- ur mikinn fögnuð, sem veitast mun öll- um lýðnum: Yður er í dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drottinn, í borg Davíðs. Og hafið þetta til marks: Þér munuð finna ungbarn reifað og lagt í jötu.“ Frelsari fæddur. Drottinn sendi lítið barn í heiminn til að frelsa mannkynið. Frelsa það frá hverju? Verk og orð Jesú sem fulltíða manns segja okkur það. Við getum öðlazt frelsi frá ófriði og ofbeldi, hatri og fordómum. Við get- um orðið frjáls af eigingirni og efn- ishyggju. Við getum losnað við ábyrgð- arleysi og skeytingarleysi gagnvart náunganum. Við getum orðið frjáls af þeirri tilfinningu að við séum ein og smá í glímu okkar við viðfangsefni lífs- ins. Hvað fáum við í staðinn? Frið, kær- leika og samhjálp. Skilning og um- burðarlyndi. Ábyrgð og hluttekningu. Stuðning æðri krafts í verkefnum dagsins. Hvernig öðlumst við þetta frelsi? Með því að hlýða á boðskap Krists, opna hug okkar og hjarta fyrir honum. Og ekki síður með því að fylgja for- dæmi hans. Við getum velt því fyrir okkur hvernig ýmis þau viðfangsefni og vandamál, sem íslenzka þjóðin hefur fengizt við á árinu, sem er að líða, horfa við í þessu samhengi. Felst til dæmis náungakærleikur og umburðarlyndi í þeirri afstöðu og hegðun, sem við sýnum í umferðinni? Í ofsaakstri, óþolinmæði og frekju? Hversu mörg mannslíf töpuðust vegna þess að fólk lét undir höfuð leggjast að sýna þá aðgát gagnvart samferða- mönnunum, sem kristinn maður á að gera? Hversu margir óku eða gengu framhjá vettvangi slyss án þess að hjálpa, eins og þeir, sem komu á undan miskunnsama Samverjanum? Slík dæmi færast því miður í vöxt. Hversu mörg ungmenni hefðu lifað og hversu mörgum fjölskyldum hefði verið bjargað ef óprúttnir menn reyndu ekki að hagnast á því að selja ungu fólki fíkniefni? Hvernig getur nokkur þeirra, sem hafa verið viðriðnir fíkniefnasmygl og -sölu, horfzt í augu við eigin samvizku? Hversu mörg börn og konur hafa mátt líða fyrir ólýsanlegt ofbeldi, sem hlýzt af því að heimilisfeður leiða ekki einu sinni hugann að þeirri ábyrgð, sem þeir bera gagnvart sínum nán- ustu? Eru þær umræður, sem hafa farið fram um útlendinga í samfélagi okkar, til marks um umburðarlyndi og skiln- ing? Hvernig hefði Kristur brugðizt við útlendingum í landi sínu? Og hvað með þá, sem ekki náðu í mark í kapphlaupinu fyrir jólin og halda ekki jól í hlýjunni og birtunni með sínum nánustu? Höfum við gert nóg til að styðja þá og hjálpa þeim, eins og Kristur býður okkur? Við leitum oft að samfélagslegum eða pólitískum lausnum á þeim vanda- málum, sem eru efst á baugi. En oft er lausnin aðeins spurning um hugarfar – kristilegt hugarfar. Þetta er það, sem litli drengurinn í jötunni hefur að segja okkur. Til þess var hann sendur. Og fagnaðarerindið stendur öllum til boða, eins og engill- inn sagði fjárhirðunum. Allir eiga þann kost að opna hjarta sitt fyrir jólaboð- skapnum og vera með í því að búa til betri heim. Morgunblaðið óskar lesendum sín- um og landsmönnum öllum gleðilegra jóla. Á aðfangadag, í upphafi þeirrar há- tíðar, sem oft er kölluð hátíð barnanna, hefur Morgunblaðinu stundum þótt við hæfi að helga jólaleiðara blaðsins kjörum og stöðu barna í samfélaginu. Ástæð- an er sú að blaðinu hefur oft þótt sem þessi þjóð, sem eignast ennþá fleiri börn en flestar vestrænar þjóðir, tæki ekki á móti þeim eins og vera bæri, í þeim anda sem afmælisbarn dagsins bauð fylgj- endum sínum að gera. Í leiðara blaðsins á aðfanga- dag fyrir réttu ári sagði til að mynda: „Þótt flestir geti gert vel við börnin sín á efnislega sviðinu, eru alltof margar vísbendingar um að við vanrækjum andlegu hliðina; umhyggjuna, uppeldið, sam- veruna og samræðurnar. Hjá þeim, sem hafa nóg að bíta og brenna, er tíminn, sem ekki fer í vinnu, því miður oft af skornum skammti. Alltof mörg ís- lenzk börn sjá ekki nóg af foreldrum sínum.“ Blaðið hefur nú frá því í september birt sex greina flokk um þá áleitnu spurningu, hvort Ís- land sé barnvænt samfélag. Síðasta greinin birtist síðastliðinn sunnudag. Viðbrögð lesenda blaðsins benda óneitanlega til þess að málið brenni á fólki. Bæði blaðið sjálft og viðmælendur þess hafa fengið óvenjulega mikil viðbrögð við þessum greinum. Eins og fram kom í blaðinu um síðustu helgi, koma þessi viðbrögð að langmestu leyti frá konum. Það er umhugsunar- efni, sem verður vikið að síðar. Tími og peningar S varið við spurningunni hvort Ísland sé barnvænt samfélag er ekki ein- falt; hvorki já né nei. Að sumu leyti eru börnum búnar betri aðstæður á Íslandi en víðast hvar annars staðar, til dæmis hvað varðar heilbrigðis- þjónustu og heilsugæzlu. Við búum að mörgu leyti við ágætt skólakerfi, þar sem þörfum barna er vel sinnt. Og ekki fer á milli mála að efnaleg velmegun er meiri á Íslandi en nokkru sinni áður. Hún er líka meiri en í flestum öðrum löndum í heiminum. Langflesta íslenzka foreldra vantar ekki peninga til að geta veitt börnum sínum það sem þau van- hagar um. En fæstir eiga nógan tíma. Kannanir sýna að sífellt fleiri foreldrum finnst þeir vinna of mikið, eiga of lítinn tíma fyrir fjölskylduna, eiga í vandræðum með að samræma starfið og fjöl- skyldulífið. Umræður um það hvort Ísland sé barnvænt eð- ur ei, snúast þannig að miklu leyti um tvær grund- vallarstærðir, tíma og peninga. Í einstaka tilfell- um – þó kannski fleiri en margir halda – eru til svo litlir peningar að börn líða fyrir fátækt. Það er auðvitað smánarblettur á samfélagi okkar. En þeir, sem eiga mesta peninga hafa oft næstum því engan tíma handa börnunum sínum. Er það ekki líka þjóðfélagsmeinsemd? Í úttekt Morgunblaðsins kemur sömuleiðis skýrt fram að sá félagslegi grundvöllur, sem börn standa á í uppvextinum, hefur hjá mörgum tekið miklum breytingum. Hjónaskilnaðir og sambúð- arslit eru alltof algeng á Íslandi. Þótt foreldrar reyni stundum að telja sér trú um annað, kemur slíkt nánast alltaf niður á börnunum og tilfinn- ingalífi þeirra. Börnum gengur iðulega illa að að- lagast nýju fjölskyldumynztri, þar sem við bætast nýir makar og stjúpsystkini. Allt hangir þetta saman í flóknu samspili; eft- irsóknin eftir peningum, neyzluæðið, tímaskort- urinn og tengslarofið, sem fylgir undanhaldi hinn- ar hefðbundnu fjölskyldu. Þetta er ekki æskileg þróun, þótt að sjálfsögðu beri að forðast „heims- ósómakenningar um að nýjustu tímarnir séu alltaf þeir verstu,“ eins og Gísli Hrafn Atlason mann- fræðingur orðaði það í samtali við Morgunblaðið 12. nóvember. Lenging fæðingarorlofs E n hvað er þá hægt að gera til að Ís- land verði barnvænna samfélag? Ótal tillögur hafa komið fram í umfjöllun Morgunblaðsins. Flestir viðmælendur blaðsins eru þeirrar skoðunar að ný lög um fæðingarorlof hafi verið mikið framfaraspor. Börnum eru tryggðar samvistir við báða foreldra sína fyrstu níu mánuðina, á viðkvæmasta ævi- skeiðinu þegar þau þurfa mesta umönnun. Og fæðingarorlofsgreiðslurnar þýða að tekjumissir fjölskyldunnar verður ekki óbærilegur. Hins veg- ar lenda margir foreldrar í vandræðum þegar fæð- ingarorlofinu lýkur. Skortur er á dagforeldrum og margir útivinnandi foreldrar eru í stökustu vand- ræðum í níu til fimmtán mánuði, áður en leik- skólavist stendur börnunum til boða. Fjölskyldu- nefnd forsætisráðherra hefur meðal annars verið að skoða leiðir til að brúa þetta bil. Tvö sveit- arfélög að minnsta kosti, Kópavogur og Reykja- nesbær, hafa riðið á vaðið og greiða foreldrum, sem kjósa að vera áfram heima hjá börnunum, eða þá nákomnum ættingjum sem vilja taka að sér að hugsa um þau, 30 þúsund krónur á mánuði, sem er svipuð upphæð og sveitarfélögin nota til að nið- urgreiða pláss hjá dagforeldrum. Og auðvitað eru börnin betur komin hjá foreldrum sínum, ef þeir geta komið því við að vera heima hjá þeim. Spurningin er annars vegar hvort hægt er að lengja fæðingarorlofið, þannig að foreldrar geti gengið að starfi sínu vísu á ný eftir lengri fjarveru af vinnumarkaðnum en sex mánuði. Ef fæðing- arorlof væri átján mánuðir og foreldrar skiptu því jafnt á milli sín, væri hvort um sig níu mánuði frá vinnu vegna barnaumönnunar. Er það langur tími þegar horft er á starfsævi fólks? Hins vegar er spurningin um fjárstuðning í lengdu fæðingarorlofi. Núverandi kerfi hefur orð- ið dýrara en fyrirfram var gert ráð fyrir, m.a. vegna launahækkana á vinnumarkaðnum og vegna þess að feður hafa verið duglegri að nýta sér rétt sinn til orlofs en menn sáu fyrir. Það er auðvitað ákaflega jákvæð þróun. Hins vegar er ólíklegt að á næstunni finnist peningar til að fram- lengja fullar greiðslur í lengra fæðingarorlofi. Einhvers konar fyrirkomulag á borð við það, sem Kópavogur og Reykjanesbær hafa tekið upp, má hins vegar útfæra á landsvísu. Í annarri grein Morgunblaðsins um þessi efni í byrjun október var viðtal við Evu Maríu Jóns- dóttur sjónvarpskonu. Hún sagði eftir á að hún hefði aldrei fengið jafnmikil viðbrögð við neinu, sem hún hefði látið frá sér fara á opinberum vett- vangi. Þar á meðal voru eftirfarandi ummæli: „Sumir virðast óttast að ef foreldrum stendur til boða að fá smávegis fjárstuðning til þess að vera heima hjá börnum á aldrinum 9-24 mánaða geti komið alvarlegt bakslag í jafnréttisbaráttuna. En þá segi ég, mér finnst eins og við séum komin yfir þann kafla að konur ráði ekki yfir sjálfum sér og taki ekki sjálfstæðar ákvarðanir. Þær geta fullvel ákveðið sjálfar hvort þær velja að vera heima hjá ungum börnum, eða vinna úti allan daginn eða hluta úr degi.“ Þessi sjónarmið eiga auðvitað ekki síður við um karla en konur. Feður eiga að vera komnir yfir þann kafla að láta þrýsting vinnuveitenda eða samfélagsleg viðhorf ráða því hvort þeir annast um börnin sín eða ekki. Það, sem helzt stendur í vegi, er launamunur kynjanna; enn er það svo að í flestum samböndum og hjónaböndum er karlinn með hærri laun en konan og heimilið missir meiri tekjur ef hann ákveður að vera heimavinnandi. En þeim körlum fer reyndar fjölgandi, sem eru svo stálheppnir að konan þeirra hefur hærri laun en þeir sjálfir. Þeir eru fyrir vikið frjálsari að því að velja það að vera heimavinnandi, sé það niðurstað- an á annað borð að annað foreldrið eigi að taka sér frí frá vinnumarkaðnum til að hugsa um börn og heimili. Með því eru þeir líka góðar fyrirmyndir og stuðla að því til lengri tíma að draga úr launamun- inum. Fæðingarorlofsmálið þarf að leysa á vettvangi stjórnmálanna. Ríki og sveitarfélög geta einnig með öðrum hætti létt barnafjölskyldum róðurinn. Það gerist t.d. með greiðslu barnabóta. Þær eru enn að stórum hluta tekjutengdar og eins og flest- ar aðrar velferðargreiðslur byrja þær að skerðast við tiltölulega lágar tekjur. Það myndi sömuleiðis muna barnafjölskyldur miklu, ef það skref yrði stigið að gera leikskólann gjaldfrjálsan. Sú stefna á vaxandi fylgi að fagna. En rétt eins og lenging fæðingarorlofs kostar hún peninga. Stytting vinnutíma Á vettvangi vinnumarkaðarins er stærsta hagsmunamál barna stytt- ing vinnutíma foreldra þeirra. Ís- lendingar vinna enn lengstan vinnudag í Vestur-Evrópu. Karlar vinna um 50 stundir á viku að með- altali og konur um 40. Undanfarin ár hefur vinnu- dagur karlanna heldur stytzt, en kvennanna lengzt. Eftir sem áður höfum við meira fyrir tekjum okkar en flestar nágrannaþjóðirnar. Framleiðni á vinnustund er með öðrum orðum minni hér á landi. Þetta þýðir að það er eitthvað að skipulagi vinnunnar hjá okkur. Kannski er það agaleysið; öll „skreppin“, reykingapásurnar og óstundvísin. Svo mikið er víst að tækifærin til að stytta vinnutímann eru fyrir hendi. Okkur þykja frændur okkar Danir stundum rólegir í tíðinni, en staðreyndin er sú að framleiðni á dönskum vinnu- stöðum er miklu meiri en á Íslandi. Verkalýðshreyfingin þarf að hlusta eftir óskum og hugmyndum félagsmanna sinna í þessu efni. Er Laugardagur 23. desember Reykjavíkur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.