Morgunblaðið - 24.12.2006, Side 44

Morgunblaðið - 24.12.2006, Side 44
44 SUNNUDAGUR 24. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ D rungaleg neð- anjarð- argöngin og skuggalegir rangalarnir bjóða hætt- unni heim. Maðurinn, sem myndavélin eltir, er ekki einn. Þegar hann snýr sér snögglega við er myndavélin í sporum morðingjans. Á öðrum stað hrekkur annar mað- ur upp úr svefni. Er dauði hins mar- tröð hans? Köld slóð, nýja íslenska spennu- myndin, hefst svona. Um leið hefst rannsókn Baldurs Maríusonar, blaða- manns á Síðdegisblaðinu, (Þröstur Leó Gunnarsson) þar sem hann fetar kalda slóð til eigin uppruna. Kristinn Þórðarson handritshöf- undur, sem einnig framleiðir mynd- ina í samvinnu við Magnús Viðar Sig- urðsson, og Björn Brynjúlfur Björnsson leikstjóri hafa mikla og víðtæka reynslu í íslenskum kvik- mynda- og sjónvarpsbransa, en samt er Köld slóð fyrsta leikna bíómynd þeirra í fullri lengd. „Jú, það er gamall draumur að rætast hjá mér sem handritshöf- undi,“ segir Kristinn, sem starfar við handritsgerð og framleiðslustjórn hjá Saga Film. Þar á bæ er líklegt að fleiri slíkir draumar geti ræst því fyr- irtækið hefur stofnað sérstaka kvik- myndadeild sem ætlunin er að fram- leiði eina til þrjár bíómyndir árlega. Kristinn og Magnús Viðar veita deildinni forstöðu. „Fyrir mig er þessi draumur ekki mjög gamall,“ segir Björn Brynj- úlfur. „Ég lærði grafíska hönnun og vann við auglýsingagerð, fyrst fyrir prentmiðla en síðan einnig sjónvarp; þá kviknaði áhugi á kvikmyndaform- inu og leiddi mig út í heimildamynda- gerð. Þess vegna er ekkert mjög langt síðan ég fór að hugsa um að gera leikna bíómynd. Njálumyndin mín, sem er blanda af leikinni mynd og heimildamynd, var fyrsta skrefið í þá átt.“ Kristinn: „Ég fór í nám til Los Angeles með það í huga að læra til kvikmyndaframleiðslu og vinn enn við hana. Ætli séu ekki tíu ár síðan ég svissaði náminu yfir í handritsgerð. Núna finnst mér gott að fást við hvort tveggja; við handritsskrifin er maður einn með sjálfum sér og persónum verksins, en framleiðslan er sam- vinna við fjölda fólks.“ Úr öldusogi íslensku krimmabylgjunnar Uppspretta samstarfsins um Kalda slóð var löngun til að segja sögu. „Við byrjuðum að ræða hugmyndina fyrir fimm árum,“ segir Björn, „um svipað leyti og íslenska krimmabylgjan fór að ná verulegri fótfestu. Köld slóð er í rauninni partur af þeirri þróun. Okk- ur langaði að segja í bíómynd spennu- sögu sem virkaði í íslensku samfélagi. Það var okkar verkefni.“ „Útgangspunkturinn er íslenskur raunveruleiki,“ segir Kristinn. „Það hafði ekki verið gerð slík mynd hér- lendis í mörg ár og okkur fannst hún liggja í tíðarandanum.“ „Ég er skrifaður fyrir sögunni og Kristinn fyrir handritinu,“ segir Björn, „og í grófum dráttum var það þannig. En auðvitað unnum við verk- ið í nánu samstarfi allt handritsferlið, sem stóð í fjögur ár af þessum fimm sem myndin hefur verið í smíðum.“ „Og síðasta árið kom einnig til samvinna við Sveinbjörn I. Baldvins- son, ráðgjafa hjá Kvikmyndamiðstöð Íslands,“ bætir Kristinn við. „Allt þessa manns að svörum, eins konar ódysseifsferð sem ætlað er að finna það sem hann vantar í eigin sögu,“ segir Björn. „Hann er óheill; á erfitt með að mynda tengsl, ekki síst við aðrar konur en móður sína. Hann finnur fyrir eyðu í sálarlífinu og því er hann knúinn til að leggja í þennan leiðangur. Þetta er grunnstefið í myndinni, einsog svo mörgum verk- um af þessu tagi. Mér finnst áhuga- verðara að aðalpersónur í spennu- myndum séu ekki ofurhetjur, heldur fólk sem berst við demóna í eigin sál.“ Nafn Þrastar Leós Gunnarssonar kom snemma upp í umræðum um hlutverkaskipan. „Handritið var ekki unnið með tiltekna leikara í huga,“ segir Kristinn, „en þegar það var að nálgast leiðarenda fórum við að svip- ast um og Þröstur kom strax upp. Hann sagði já og þar með var það af- greitt.“ Björn: „Við fengum óskaleikhóp og héldum ekki margar leikprufur.“ Kristinn: „Þetta var afburðahópur og náði mjög vel saman.“ Björn: „Við æfðum óvenjumikið. Hópurinn kom saman í eina viku þremur mánuðum fyrir tökur og vann í persónunum, fór heim og melti þá vinnu þar til við byrjuðum aftur sex vikum fyrir tökur og hófum æfingar samkvæmt handritinu. Þetta tókst mjög vel og hafði það í för með sér að þegar tökur byrjuðu hefðum við get- að leikið alla myndina frá upphafi til enda í einum rykk; svo vel sátu allir í hlutverkunum og handritinu. Að- stæður við tökurnar voru oft erfiðar svo þessi mikli undirbúningur skilaði sér vel.“ Kristinn: „Annað sem nýttist vel var að við læstum ekki samtalatext- Köld slóð til eigin upp Morgunblaðið/Ómar Höfundar handtaka aðalleikara Kristinn, Þröstur Leó og Björn Brynjúlfur bregða á leik eftir ánægjulegt samstarf. Dularfullt dauðsfall í afskekktri virkjun uppi á hálendi leiðir blaða- mann á vit gamalla og nýrra myrkraverka í ís- lensku spennumynd- inni Köld slóð sem frumsýnd verður 29. desember. Í samtali við Árna Þórarinsson segja höfundarnir, Kristinn Þórðarson og Björn Brynjúlfur Björnsson, „áhuga- verðara að aðalpersón- ur í spennumyndum séu ekki ofurhetjur, heldur fólk sem berst við demóna í eigin sál.“ Faðir fundinn sem liðið lík Harald G. Haralds og Þröstur Leó Gunn- arsson í hlutverkum feðga sem aldrei hittust í lifanda lífi. Sverfur til stáls uppi á hálendinu Baldur og Freyja (Elva Ósk Ólafsdóttir). Danski leikarinn Lars Brygman í bakgrunni. er fæddur árið 1956. Hann nam grafíska hönnun við Myndlistarskóla Íslands og starfaði við hana hjá aug- lýsingastofunni Góðu fólki. Árið 1988 sneri hann sér að leikstjórn sjónvarpsauglýsinga sem margar hafa unnið til verðlauna. Það hafa ýmis önnur verk hans einnig gert, t.d. Njálssaga, Sönn íslensk sakamál og 20. öldin – brot úr sögu þjóðar, sem öll hrepptu Eddu- verðlaunin. Meðal annarra heimildamynda Björns má nefna Svövu, Dópstríðið, Sex í Reykjavík og Skálda- tíma. Björn Brynjúlfur Björnsson er fæddur árið 1966. Hann nam kvikmyndafram- leiðslu við The American Film Institute og handrits- gerð við Columbia College í Los Angeles. Kristinn framleiddi íslensku bíómyndina Stuttur frakki og óháðu bandarísku myndina Missing Brendan með Ed Asner í aðalhlutverki. Síðastliðin ár hefur hann starf- að við framleiðslustjórn á sjónvarpssyrpum á borð við Svínasúpuna og Stelpurnar og stýrir nú kvik- myndadeild Saga Film ásamt Magnúsi Viðari Sig- urðssyni. Kristinn Þórðarson þetta samstarf var mjög skemmtilegt og skapandi, þótt ég væri sá sem sæti við skriftirnar. Og skrifaði aftur og aftur. Ég held að þegar upp var stað- ið hafi útprentaðar útgáfur af hand- ritinu verið um fimmtíu.“ Björn: „Og þótt margt hafi breyst milli versjóna var grunnsagan frá upphafi sú sama.“ Kristinn: „Mesta vinnan fór í þróun persónanna, að gera þær heilsteyptar og spennandi, og þéttingu atburða- rásarinnar svo allir þættir hennar gengju upp, hliðarsögur jafnt sem að- alfléttan. Það var ekki alltaf auðvelt. Svo ég taki dæmi, breyttum við aðal- persónunni úr rannsóknarlögreglu- manni í blaðamann og bara sú breyt- ing hafði í för með sér víðtækar aðrar breytingar.“ Eyða í sálarlífinu Þeir segja að tiltölulega snemma á ferlinu hafi komið upp sú hugmynd að meginþungi sögunnar gerðist í virkj- un í óbyggðum og þangað færi að- alpersónan til að grafast fyrir um eig- in uppruna. „Þetta er saga um leit Freyja og virkjunargengið Elva Ósk, Helgi Björns- son, Tómas Lemarquis og Hjalti Rögnvaldsson. kvikmyndir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.