Morgunblaðið - 24.12.2006, Síða 49

Morgunblaðið - 24.12.2006, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. DESEMBER 2006 49                             er allavega mín reynsla. Síðar smakkaði ég mun betra úlfaldakjöt hjá ungri eiginkonu Mulays, Galat, þegar ég gisti síðustu nóttina í tjaldi hans. Og kouskous-ið hennar var svo gott að betra fæst varla annars stað- ar í heiminum, ekki sakaði að á eftir bruggaði Mulay dísætt og sterkt te eftir öllum kúnstarinnar reglum. Hann var einstaklega gestrisinn eins og aðrir á staðnum. Allir voru boðnir og búnir að rétta hjálparhönd þegar þeir heyrðu að blaðamaðurinn hefði orðið fyrir því að óhappi að far- angurstaskan varð eftir í París vegna mistaka Air France. „Því mið- ur á ég ekki mikla peninga núna, annars hefði ég farið með þig á markaðinn og keypt handa þér föt og fleira sem þig vantar,“ sagði Nac- hib, miðaldra maður sem áreiðan- lega hafði ekki úr miklu að spila. Gróðursnautt einskismannsland Einstaka trjárengla berst víða í örvæntingu fyrir lífinu en aðeins ein raunveruleg vin með tjörn er á öllu búðasvæðinu, við Tamik, miðstöð hjálparstarfs fyrir fólk sem slasast hefur af völdum jarðsprengna en einnig eru þar fatlaðir hermenn. Þar eru að sjálfsögðu nokkuð grósku- miklir pálmar, ókosturinn er að moskítóflugur kunna vel við sig á slíkum stöðum. Fáein bit voru hins vegar aðeins krydd í tilveruna og ekki er malaríuhætta hér. Ahmed Hattari er yfirmaður að- stoðar við fatlaða af völdum hern- aðarátaka og jarðsprengna, mið- stöðin er í Tamik-garðinum. Hattari er lamaður fyrir neðan mitti, særðist í stríðinu við Marokkómenn. „Við fáum of litla aðstoð, að vísu nokkuð frá Rauða hálfmánanum en þyrftum miklu meira. Hér eru í allt 153 skjól- stæðingar en sumir á göngudeild. Við þyrftum miklu fleiri pláss og hér eru engin tæki til að kenna fólki smíðar eða aðra færni. Við erum að fara að reisa nýtt hjúkrunarheimili og auk þess fer mikil orka í að lagfæra það sem skemmdist í óveðrinu mikla í febr- úar. Þá gerði óskaplegt steypiregn í nokkra daga og hundruð húsa á svæðinu eyðilögðust. Jafnvel lofts- lagið er á móti okkur! Hér eru sand- stormar, ofsaregn, þurrkar, náttúr- an er skelfilega erfið hér,“ segir Hattari. Morgunblaðið/Kristján Jónsson kjon@mbl.is Örlög Sahrawi-manna eru nú sjald- an í heimsfréttum. Fáir fjölmiðlar veittu því athygli fyrr á árinu þegar hersveitir Polisario kölluðu til er- lenda fulltrúa og létu þá fylgjast með þegar eytt var öllum jarð- sprengjum sem samtökin réðu yfir, ef undanskildir eru munir á stríðs- minjasafninu. Með þessu átti að senda skilaboð um friðarvilja til heimsbyggðarinnar, en hún yppti öxlum. Marokkómenn hafa á hinn bóginn reist geysimikinn múr til að verja hernám sitt í mestum hluta Vestur- Sahara. Þeir hafa m.a. komið fyrir jarðsprengjum jafnt fyrir framan múrinn, við hliðina sem snýr að her- búðum Polisario og einnig aftan við múrinn til að hindra Vestur- Saharamenn á hernumdu svæð- unum í að laumast yfir til landa sinna. Auk þess sem mikið tjón verður á búfé vegna jarðsprengna slasast fjöldi fólks á hverju ári á svæðinu, sumir deyja. Ungir og herskáir menn í búð- unum hika ekki við að gagnrýna forystu frelsishreyfingarinnar Pol- isario fyrir aðgerðaleysi. Eina ráðið sé að hefja aftur stríð jafnvel þótt við ofurefli sé að etja. Vopnuð átök myndu vekja á ný athygli á baráttu þjóðarinnar, fjölmiðlar myndu aft- ur fara að sinna málstaðnum, segja hinir herskáu. Þetta segja þeir jafnvel í sam- tölum við blaðamann og virðast ekki óttast refsingu fyrir vikið sem bendir til að það sé rétt sem túlk- urinn minn, Mulay, fullyrðir: að al- gert málfrelsi ríki í búðunum. Lýð- ræðið sé ekki bara í orði. Hann bendir mér líka á að hvergi séu á al- mannafæri þessar hefðbundnu risa- stóru myndir af leiðtogunum sem hvarvetna má sjá í arabaríkjum. „Við þekkjum okkar leiðtoga og þurfum ekki að hampa þeim alls staðar. Þeir búa innan um okkur, við sama atlæti og við,“ segir Mulay. Hraktir í útlegð á áttunda áratugnum Í flóttamannabúðunum búa nú að minnsta kosti 170.000 Vestur- Saharamenn (öðru nafni Sahrawi- menn), fólkið sem hraktist frá heim- ilum sínum í Vestur-Sahara um miðjan áttunda áratuginn þegar Spánverjar yfirgáfu þessa nýlendu sína og ætluðu að skipta henni milli Máritaníu og Marokkó. Sahrawi- menn sættu sig ekki við ákvörðun Spánverja og gripu til vopna gegn herjum Máritaníu, unnu þá en síðan tók við margra ára blóðugt stríð við Marokkómenn, sem eru fjörutíu sinnum fleiri og njóta stuðnings stórþjóða eins og Frakka. Eftir nokkru er að slægjast fyrir Mar- okkó, í Vestur-Sahara eru miklar námur, einkum fosfat, einnig eru auðug fiskimið við ströndina og hugsanlega olía í landgrunninu. Ýmsar goðsagnakenndar frá- sagnir eru til af upphafi frelsisbar- áttunnar en ekki voru miklar hefðir fyrir vopnaburði meðal Sahrawi- manna. Þeir beittu oft slægð og nutu þess að þekkja hvern krók og kima í landi sínu, gátu gert her- mönnum Marokkó fyrirsát þar sem þeir áttu sér einskis ills von. „Við áttum fimm hermannariffla þegar við byrjuðum og tveir þeirra reyndust vera ónýtir,“ segir Walla, svarthærður maður um fertugt og dökkur á hörund. „En við notuðum þá til að ræna fleiri og fleiri vopn- um, smám saman varð til her, okkar eigin her.“ Walla stundaði nám við háskóla í Róm og talar auk ítölsku nokkra ensku. Hann er þekkt stríðs- hetja og í þéttu hárinu sést í holu í kúpunni eftir hættulegt skotsár. Margir liðsmenn Sahrawi-hersins nutu þess að hafa verið í nýlendu- her Spánverja og fengið þar þjálf- un. Reyndar er ein af helstu tekju- lindum fólksins í búðunum eftirlaunagreiðslur frá Spáni og þess má geta að tugþúsundir Sa- hrawi-manna eiga rétt á að setjast að á Spáni þar sem þeir eða feður þeirra og mæður voru á sínum tíma þegnar Spánarkonungs. Oft reyna þó spænsk stjórnvöld að beita laga- krókum til að hindra fólk í að not- færa sér þau réttindi. En á móti kemur að ýmis öflug samtök á Spáni aðstoða Sahrawimenn, oft vegna samviskubits yfir framferði Spánverja á nýlendutímanum. Polisario-menn við öllu búnir þrátt fyrir vopnahlé Vopnahlé hefur verið við lýði síð- an 1991. Sjálfstæðishreyfing Vest- ur-Saharamanna, Polisario, ræður enn yfir vesturhéruðum heima- landsins þar sem um 10.000 manns búa, fátækt er þar að sögn enn verri en í búðunum. Polisariohreyfingin er við öllu búin og þjálfar stöðugt unga menn í vopnaburði. En ráða- menn hennar segjast enn vona að þjóðir heims leyfi Vestur-Sahara- mönnum að ákveða framtíð sína í þjóðaratkvæðagreiðslu. Mar- okkómenn, sem hafa hernumið mestan hluta Vestur-Sahara, þrjóskast enn við, vilja halda her- fangi sínu. Á hverju ári er hernám þeirra fordæmt hjá Sameinuðu þjóðunum en ekkert gerist. „Við gerum okkur vonir um að afstaða Frakka breytist ef til vill þegar nýr forseti tekur við á næsta ári,“ segir Brahim Moktar, yfirmað- ur móttökustöðvarinnar í búðunum og fyrrverandi sendifulltrúi Pol- isario í London. „Stuðningur Frakka við Marokkó í þessu máli er ekki í neinu samræmi við hagsmuni þeirra, eitrar meðal annars sam- skiptin við Alsír sem styður okkur. Ástæðan fyrir þessu er að á sínum tíma lagði Hassan, þáverandi kon- ungur Marokkó, fé í kosningasjóð Jacques Chirac Frakklandsforseta. Chirac hét konunginum því á dán- arbeði hans að „annast börnin“ og þá er átt við núverandi konung, Mu- hammed og systkin hans. Muham- med var mjög ungur og lítt reyndur og Hassan óttaðist um framtíð ætt- arinnar og ríkisins í hans höndum. Stefna Frakka í málum okkar byggist því á persónulegum tengslum en engu skiptir hver vinn- ur forsetakosningarnar á næsta ári, nýr forseti ekki bundinn af loforði Chiracs. Hver veit nema eitthvað þokist þá í okkar málum.“ Njóta stuðnings Afríkuríkja Brahim segir málstað Sahrawi- manna njóta stuðnings víða um heim, ekki síst meðal Afríkulanda. Alls hafi liðlega 80 ríki viðurkennt útlagastjórn Polisario og að jafnaði sé á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna samþykkt með þorra greiddra atkvæða að fordæma her- nám Marokkómanna sem Alþjóða- dómstóllinn í Haag dæmdi ólöglegt árið 1975. Hins vegar sitji fjölmörg ríki hjá til að styggja ekki Marokkó eða Frakka en þori ekki beinlínis að mæla lögleysunni bót. „Fá arabaríki styðja okkur, þau leggja meira upp úr því að styðja Marokkómenn sem eru svo miklu öflugri þjóð en við,“ segir Brahim. „En við erum virkir þátttakendur í Afríkusambandinu og njótum við- urkenningar meirihluta Afríku- ríkja. Ekki vegna þess að leiðtogar þeirra elski okkur alveg út af lífinu heldur vegna þess að hernám Marokkómanna brýtur algerlega í bága við þær reglur sem sambandið hefur sett sér. Menn vita að landa- mærin sem dregin voru á nýlendu- tímanum í álfunni eru oft út í hött. En af tvennu illu er betra að halda fast í þau en að skilgreina ríkja- mörkin upp á nýtt. Menn sáu hvað gerðist í Nígeríu um 1970 þegar Biafra gerði upp- reisn, enginn vill stuðla að sams konar upplausn. Þess vegna er Afr- íkusambandið á móti því að Mar- okkó, sem var undir stjórn Frakka, leggi undir sig fyrrverandi spænska nýlendu og vill að fólkið á svæðinu ákveði sjálft framtíð sína. Ef Mar- okkómenn komast upp með þetta getur fordæmið orðið til þess að aðrar stórar Afríkuþjóðir hugsi sér til hreyfings og gleypi minni ná- granna sína,“ segir Brahim. Lítil þjóð gegn ofureflinu Morgunblaðið/Kristján Jónsson Húllumhæ! Frönsk kona kennir þroskaheftum á þjálfunarmiðstöð fyrir fatlaða í flóttamannabúðunum Smara. Morgunblaðið/Kristján Jónsson Alætur á ferð Sahrawi-menn eiga mikið af geitum og snögghærðum kindum, þær fyrrnefndu koma að góðu gagni við sorphirðu þar sem geitur éta allt sem tönn án festir. Hvarvetna er gómsætt drasl sem feykist um sandinn og grjótið, geiturnar eru einkar hrifnar af bláum plastpokum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.