Morgunblaðið - 24.12.2006, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 24.12.2006, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. DESEMBER 2006 55 Kæru viðskiptavinir! Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða Dögg Pálsdóttir hrl. lögg. fast.sali ● Þýri Steingrímsdóttir lögg. fast.sali Andri Sigurðsson sölustjói ● Ólafur Finnbogas sölumaður Fasteignasala Ármúla 21 - Reykjavík - Sími 533 4040 - Fax 533 4041 - Netfang: kjoreign@kjoreign.is - Heimasíða: www.kjoreign.is Starfsfólk Kjöreignar óskar viðskiptavinum sínum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla. Við þökkum fyrir viðskiptin á árinu sem er að líða og liðnum árum.                   ! " !        !# !!                 ! $! %! & ' !  (  )# %!                   ! $   $ !# *!+ #   ,! - * .! #   '  + Skólavörðustíg 13 Sími 510 3800 Fax 510 3801 www.husavik.net Reynir Björnsson lögg. faste ignasal i Markarflöt Tvöfaldur skúr Húsavík – þar sem gott orðspor skiptir máli Mjög fallegt 267 fm einbýli á einni hæð og hálfur kjallari. Sex til sjö herbergi. Góðar stofur ásamt sólstofu. Bílskúr er tvöfaldur með rafmagni, hita og fjarstýrðum hurðaopn- urum. Sunnan við húsið er timburlögð sólverönd. Lóðin, sem er 1.200 fm, er vel gróin og í góðri rækt. Húsið er í góðu ástandi búið að klæða með steniklæðningu. Laust strax Verð 68,0 millj. FYRIR gamlan kennara er það mikið gleðiefni að finna þegar ljós skilnings kviknar hjá nemendum. Á grein Njáls Gunnlaugssonar í Morgunblaðinu 21. desember sl. sem er svar númer tvö við greinum undirritaðs má merkja að ljóstýra skilnings hefur kvikn- að. Njáll dregur nú mjög í land frá fyrri fullyrðingum um meintan háska af víra- vegriðum og segir fullum fetum að nafn- giftin „ostaskeri“ um þau sé ekki réttnefni og lýsi ekki vel þeim hættum sem víravegr- ið skapi mótorhjólafólki. Það er athyglisvert að Njáll er hættur að tala um váleg víravegrið heldur um vegrið almennt og vitnar nú til 23 rannsókna sem færi sönn- ur á hættur vegriða gagnvart mót- orhjólafólki og að rauði þráðurinn í þeim öllum sé að vegrið með óvarða staura skapi mesta hættu. Þetta var nú einmitt það sem ég tók fram í mínum greinum sem Njáll var svo ósammála í grein sinni í Morg- unblaðinu 12. desember sl. Atlaga að öryggismáli Kveikjan að mínum skrifum sem vöktu reiði Njáls í upphafi var hin mjög svo gagnrýniverða undir- skriftasöfnun mótorhjólasamtak- anna Snigla undir mótmæli gegn víravegriðunum í Svínahrauni og kröfu á hendur ráðherra að láta fjarlægja þau. Ekkert var minnst á að eitthvað ætti að koma í staðinn fyrir víravegriðin, einungis að þau skyldi fjarlægja. Ekkert var heldur minnst á staurana undir vegr- iðunum að skipta ætti þeim út vegna þess að þeir væru hættulegir bifhjólafólki. Óhætt er að fullyrða að vegriðin umræddu eru fyrsta markvissa að- gerðin til að aðskilja umferð úr gagnstæðum áttum í þjóðvegakerf- inu og draga úr hættu á framanáá- rekstrum og ægilegum afleiðingum þeirra. Samgönguráðherra á mik- inn heiður skilið fyrir að hafa tekið af skarið með að vegriðin voru sett upp. Sömu sögu er að segja um Kjartan Magnússon borgarfulltrúa sem flutti tillögu um uppsetningu vegriðs milli gagnstæðra aksturs- stefna í Ártúnsbrekku og barðist fyrir samþykkt hennar. Báðar þessar aðgerðir má skoða sem fyrstu róttæku aðgerðirnar í því að fækka dauðaslysum í umferðinni. Krafa Snigla um að rífa upp vegr- iðin í Svínahrauni án þess að benda á nokkurn skapaðan hlut í þeirra stað var því gróf niðurrifsstarfsemi og ómögulegt annað en að gera alvarlegar athugasemdir við hana. Blekkingar? Miðað við það sem Njáll nú segir virðist hann átta sig á þessum kjarna málsins. Hann finnur sig þó knúinn til að reyna áfram að lumbra á undirrit- uðum og í sjálfu sér má hann reyna það ef það þjónar lund hans. En það er greinilega að renna upp smáljós fyrir manninum því að nú eru það staurarnir undir vegriðum almennt sem eru hættulegir mót- orhjólafólki. Meginhættan stafar ekki lengur frá vírunum. Þá vaknar sú spurning: Var fólk þá blekkt til að leggja nafn sitt við þessa marg- nefndu undirskriftasöfnun sem Njáli var áður svo umhugað um að taka til varna fyrir? Njáll virðist vera ansi tvöfaldur í roðinu og af greinum hans er ómögulegt að ráða hvað hann eig- inlega vill og hver sýn hans til öruggari umferðar er. Þrátt fyrir þá hættu af vegriðum fyrir bif- hjólafólk sem hann gerir mikið úr segir Njáll: „Enginn sem ég veit um á bifhjóli setur sig heldur upp á móti því að aðgreina aksturs- stefnur með þessum hætti, enda keyrum við líka bíla.“ Til hvers var þá farið af stað með þessa vanhugs- uðu undirskriftasöfnun? Öryggi – fyrir alla Sem bifhjólamaður veit Njáll og félagar hans mætavel að það er ekkert auðvelt að samræma örygg- ishagsmuni bílaumferðar og mót- orhjóla-. Að að því er þó unnið. Þannig er t.d. sænska vegagerðin, TRL í Bretlandi og fleiri aðilar í náinni samvinnu við ACEM sem eru samtök framleiðenda mót- orhjóla í Evrópu að vinna að þess- um málum og því alveg óþarfi fyrir hann að tala í lítilsvirðingartóni um Svía sem hafi … „lengst allra Evr- ópuþjóða þrjóskast við að leggja þau (víravegriðin) niður“. Svíar hafa lagt þjóða mest í slysarann- sóknir og umferðarslysavarnir og náð meiri árangri en flestir aðrir. Maður sem, eins og Njáll lýsir sér sjálfur – … „hefur tekið þátt í fjölda verkefna með öruggari um- ferð bifhjóla að leiðarljósi,“ hlýtur líka að vita að flestallt í umhverfi vega er hættulegra mótorhjólafólki en öðrum vegfarendum – hlutir eins og vegstikur, gangbraut- argirðingar, tengibox, ljósastaurar, umferðarmerki, strætóskýli. Allt er þetta hættulegt bifhjólafólki og það er verið að leita lausna. Þær lausnir eru flestar ófundnar ennþá, en hvort heldur sem þær finnast ein- hvern tímann eða ekki, þá verða all- ir að haga akstri sínum í samræmi við áhættuna á hverjum tíma og við sérhverjar aðstæður. Þegar vegriðin í Svínahrauni voru sett upp þá var einmitt leitast við að taka tillit til öryggis mót- orhjólafólks með því að velja sér- staklega staura sem gefa eftir ef mótorhjól eða bifhjólamaður lendir á þeim. Þá var ennfremur haft lengra bil milli stauranna undir vír- unum. Algengt bil milli þeirra í Sví- þjóð er 2,70 m en í Svínahrauni er bilið 3,20. Að lokum þetta: Örugg umferð hlýtur að vera sameiginlegt mark- mið okkar allra og keppikefli. Um- ferðaröryggi hlýtur að eiga að ná til allra vegfarenda, ekki bara sumra. Skilningsljós kviknar Stefán Ásgrímsson skrifar lokasvar til Njáls Gunnlaugssonar » Örugg umferð hlýturað vera sameiginlegt markmið okkar allra og keppikefli. Umferðarör- yggi hlýtur að eiga að ná til allra vegfarenda, ekki bara sumra. Stefán Ásgrímsson Höfundur er ritstjóri og bif- hjólamaður og starfar hjá FÍB.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.