Morgunblaðið - 24.12.2006, Síða 65
staðurstund
Árni Matthíasson fjallar um
gamla brýnið Kim Larsen sem
er hvergi nærri hættur þó kom-
inn sé á sjötugsaldurinn. » 68
tónlist
Donald Trump og Rosie O’Don-
nell keppast nú við að svívirða
hvort annað á opinberum vett-
vangi. » 68
fólk
Í sjónspegli Braga Ásgeirs-
sonar fjallar hann um ítalska
málarann Cimabue sem var
uppi á þrettándu öld. » 66
sjónspegill
Fjallað er um geisladiskinn Atl-
antshaf með samnefndri sveit.
Gagnrýnandi segir um fallegan
og vandaðan grip að ræða. » 76
tónlist
Talsmaður Mels Gibsons segir
það af og frá að stjarnan sé fað-
ir Carmel Sloane eins og sú síð-
arnefnda heldur fram. » 74
fólk
Eftir Birtu Björnsdóttur
birta@mbl.is
Jólin heldur hver með sínusniði. Hjónin Áslaug Thorla-cius og Finnur Arnar verðayfir hátíðirnar stödd í Kína
ásamt fjórum börnum sínum en þau
hafa dvalið í Xiamen undanfarna
fjóra mánuði.
„Ineke Guðmundsson, eiginkona
Sigurðar Guðmundssonar myndlist-
armanns, er með prógramm í gangi
þar sem hún leigir út íbúðir og
vinnustofur til listamanna auk þess
sem hún rekur sýningarsal í sam-
starfi við háskólann hér,“ sagði Ás-
laug í samtali við Morgunblaðið.
„Við ákváðum að það væri orðið
tímabært fyrir okkur að prófa eitt-
hvað nýtt og sóttum um og fengum.
Það er búið að vera alveg frábært
og sérstaklega gott fyrir börnin að
prófa að búa í öðru landi.“
Börnin eru sem fyrr segir fjögur
talsins, Salvör er elst eða 17 ára og
svo koma Kristján, Hallgerður og
Helga sem eru 10, 8 og 6 ára.
Litla farandakademían
Í fyrradag opnaði fjölskyldan
myndlistarsýningu í sýning-
arsalnum fyrrnefnda.
„Við köllum hana Ævintýri litlu
farandakademíunnar. Fljótlega eft-
ir að við komum hingað fórum við
að kalla okkur litlu akademíuna því
við erum búin að vera að kenna
börnunum okkar heima á hverjum
degi. Það hefði ekki haft mikið upp
á sig að setja þau í kínverskan skóla
í svona stuttan tíma. Við tókum því
allt námsefni þeirra úr skólanum
með og kennum þeim heima. Eftir
hádegið unnum við svo í myndlist
og krakkarnir líka. Það sem við
sýnum er eiginlega okkar sameig-
inlegi árangur af þeirri vinnu,“ út-
skýrir Áslaug en á sýningunni má
meðal annars sjá ljósmyndir, skúlp-
túra og málverk.
„Sýningin er undir áhrifum frá
þeirri rosalegu endurvinnslu sem er
í gangi hér út um allt. Alls staðar er
verið að safna saman alls konar
rusli, blöðum og flöskum, sem menn
binda saman mjög smekklega og
fara um með í stórum stöflum. Það
er mikið handverk í þessu hjá
þeim,“ segir Áslaug.
„Við gerðum okkur svona vagn
sem notaður er til flutninga. Sonur
minn hefur reyndar aðallega séð
um að draga systur sínar um. Við
höfum verið að safna að okkur því
skemmtilega sem við sjáum og gera
það á okkar hátt,“ bætir hún við.
Gleðileg jól 2007
Jólahaldið verður ekki með hefð-
bundnum hætt í ár hjá fjölskyld-
unni, sem þó er búin að fjárfesta í
jólatré.
„Við fundum eitt í dótabúð. Það
er reyndar mikið um jólaskraut hér
og jólalögin hljóma víða þó svo að
fáir hér haldi jól að kristnum sið.
Þeim finnst þetta greinilega bara
svona skemmtilegt,“ segir Áslaug.
„Marry Christmas 2007 stóð
Fjölskyldan Áslaug og Finnur ásamt yngstu börnum sínum þremur og handvagninum góða.
Litla farandakademían Myndir af fjölskyldumeðlimum á veggj-
um, en í kínverskum fyrirtækjum má sjá myndir af starfsfólkinu.
Hjónin Áslaug Thorlacius og Finnur Arnar opnuðu myndlistarsýningu í Kína í fyrradag ásamt
fjórum börnum sínum og ætlar fjölskyldan að eyða saman jólunum þar í landi
Sýningin Hér má sjá hluta sýningarinnar sem fjölsyldan nefnir Ævintýri farandakademíunnar. Duglegur Kristján dregur Hallgerði og Helgu um í vagninum.
Undir áhrifum endurvinnslunnar
Í kvöld ætlar fjölskyldan svo út
að borða og þá verður líklega lítið
um rjúpur, rauðkál og jólaöl.
„Ætli við borðum ekki bara kín-
verskan mat á einhverju veitinga-
húsi,“ sagði Áslaug að lokum.
sókn fyrr í vikunni með skötu
„Þau höfðu meðferðis 6 kg af
skötu, dálítinn hnoðmör og hangi-
kjöt. Við elduðum úti í góða veðrinu
svo lyktin hyrfi fljótt,“ segir Ás-
laug.
reyndar stórum stöfum á einu fín-
asta hótelinu hér í borg,“ bætir hún
við og hlær.
Í gær gæddi fjölskyldan sér þó á
skötu að íslenskum sið en tengda-
foreldrar Áslaugar komu í heim-
|sunnudagur|24. 12. 2006| mbl.is