Morgunblaðið - 27.12.2006, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 27.12.2006, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 27. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns- son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Morgunblaðið í dag Yf i r l i t Í dag Sigmund 8 Minningar 35/37 Staksteinar 8 Menning 40/49 Veður 8 Leikhús 42 Úr verinu 11 Myndasögur 44 Erlent 14/15 Bíó 46/49 Menning 18 Staður og stund 46 Vesturland 19 Víkverji 48 Daglegt líf 20/25 Velvakandi 48 Forystugrein 26 Stjörnuspá 48 Umræðan 28/34 Ljósvakamiðlar 50 * * * Innlent  Snúningur á slöngu og ýmis önn- ur vandkvæði urðu til þess að ekki reyndist unnt að hefja dælingu olíu úr Wilson Muuga í gærkvöldi eins og vonir stóðu til. Hlé var gert á að- gerðum í gærkvöldi. Talið er að um 100 tonn af olíu séu um borð í skip- inu. Davíð Egilsson, forstjóri Um- hverfisstofnunar, segir að það sé á ábyrgð eigandans og býst við að skipið verði hlutað í sundur á strand- stað og flutt í burtu líkt og gert var við Víkartind eftir að hann strandaði árið 1997. »Forsíða og 6  Tilkynnt var í gær að FL Group hefði keypt samtals 5,98% hlutafjár í AMR Corporation sem er móð- urfélag American Airlines og fleiri flugfélaga. Fjárfestingin nemur um 400 milljónum Bandaríkjadala, um 28 milljörðum íslenskra króna. For- stjóri FL Group telur að félagið eigi mikið inni. » Baksíða  Verð á sjávarafurðum hækkað enn í nóvember eða um 1% mælt í erlendri mynt (SDR) og hefur verðið nú hækkað sjö mánuði í röð. Á síð- ustu 12 mánuðum hefur það hækkað um 12% og hefur ekki áður verið jafnhátt. Í íslenskum krónum hefur verðið hækkað um 30% sl. ár. Hagur sjávarútvegsfyrirtækja hefur vænk- ast mjög á þessu ári með lækkun á gengi krónunnar og hækkun á af- urðarverði. »11  Um áramótin verður til nýtt lög- regluembætti; lögregla höfuðborg- arsvæðisins þegar lögregluliðin þrjú á svæðinu renna saman í eitt. Þetta verður langstærsta lögregluembætti landins og umdæmi þess nær til um 63% þjóðarinnar. Lögreglustjórinn ætlar sjálfur að auka sýnileika lög- reglu með því að taka virkan þátt í göngueftirliti. Það fyrsta hefst 2. janúar klukkan 13.30. » Baksíða og miðopna Erlent  Eldur í bensínleiðslu kostaði að minnsta kosti 260 manns lífið í fá- tækrahverfi í Lagos í Nígeríu í gær- morgun. Hópur þjófa hafði borað gat á leiðsluna til að stela bensíni og hundruð manna hafði drifið að til að verða sér úti um eldsneyti þegar eld- urinn gaus upp. » Forsíða  Forsætisráðherra Eþíópíu, Mel- es Zenawi, sagði í gær að yfir þús- und manns lægju í valnum í Sómalíu eftir átök milli hersveita bráða- birgðastjórnar landsins og vopn- aðrar hreyfingar íslamista. Hreyf- ingin viðurkenndi að liðsmenn hennar hefðu þurft að hörfa frá mörgum vígstöðvum. » 14  Forsetakosningar eiga að fara fram í Túrkmenistan 11. febrúar og kosið verður þá á milli sex forseta- efna sem ráð æðstu embættismanna landsins valdi í gær. » 15  Mikill fjöldi manna minntist þess víða um heim í gær að tvö ár eru lið- in frá því að risaflóðbylgja skall á ströndum nokkurra landa við Ind- landshaf og varð um 220.000 manns að bana. » 26 ELDUR kom upp í einbýlishúsi við Gilsbakka á Hvolsvelli aðfaranótt Þorláksmessu. Einstæð móðir, Guðný Guðnadóttir, komst ásamt þremur ungum börnum sínum út úr húsinu undan eldinum og þykkum reykjarmekki. Þau sluppu án meiðsla en í samtali við fréttavef Morgunblaðsins skömmu eftir at- burði næturinnar sagði Guðný eng- an vafa leika á því að reykskynjari hefði bjargað. Hún hefði þurft að fara inn í þrjú herbergi til að sækja börnin en þeim hefði reynst nauð- synlegt að skríða út þar sem mikill reykur var í húsinu. „Ég var milli svefns og vöku inni í stofu þegar ég heyrði í reykskynjaranum, ég fór þá að herberginu sem reykurinn kom úr, sem var svefnherbergið, svo sótti ég bara börnin og við hlupum út.“ Börn Guðnýjar sem voru í húsinu eru 5, 7 og 9 ára gömul og sagði hún að þeim hefði eðlilega orðið mjög hverft við, þau væru enn að jafna sig en tækju atburðinum vel miðað við aðstæður og stæðu sig í raun eins og hetjur. Hún sagðist þó mjög fegin því að yngsta barn hennar hefði ver- ið hjá föður sínum umrædda nótt. Lögreglan á Hvolsvelli segir ljóst að litlu hafi mátt muna að illa færi en húsið er timburhús. Slökkviliðs- menn Brunavarna Rangárþings hafi brugðist skjótt við og trúlega komið í veg fyrir stórbruna. Að sögn lög- reglu er óljóst um eldsupptök. Söfnun fyrir fjölskylduna Guðný missti allt sitt í eldsvoð- anum en hún er ótryggð og hafði fyrir skömmu flust til Hvolsvallar og komið sér fyrir í húsnæðinu ásamt börnum sínum. Þannig urðu allir hennar innanstokksmunir sótinu að bráð svo sem föt og per- sónulegir munir. Fjölskylda og vinir Guðnýjar hafa komið af stað söfnun fyrir hana og börn hennar en þeim sem vilja leggja henni lið er bent á banka- reikninginn: 1152-26-1277, kt. 3003- 77-5569. Reykskynjarinn varð til bjargar á Hvolsvelli  Einstæð fjögurra barna móðir missti allt sitt í eldsvoða á Þorláksmessu  Engum tryggingum var til að dreifa Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Í SKÝRSLU ríkislögreglustjóra um afbrotatölfræði fyrir árið 2005 kemur m.a. fram að tilkynningum vegna nauðgana fjölgaði um rúmlega 43% milli 2004 og 2005 og um tæplega 30% þegar litið er til meðalfjölda tilkynn- inga næstu fimm árin á undan. Í heild voru þó mun færri hegning- arlagabrot skráð á síðasta ári en árið á undan og er þar bæði um að ræða fækkun brota en einnig fækkun vegna þess að lögregla tók í notkun nýtt skráningarkerfi. Vegna breyt- inga á skráningu er í skýrslunni einn- ig miðað við meðaltal áranna 2001– 2004. Í skýrslunni segir að fækkun hegn- ingarlagabrota komi ekki á óvart enda hafi brotum verið að fækka hér á landi líkt og annars staðar í Evrópu og í Bandaríkjunum. Um tilkynntar nauðganir segir m.a. að ekki sé víst að um raunverulega fjölgun sé að ræða því svo virðist sem óvenju mikið af eldri afbrotum hafi verið tilkynnt til lögreglu á síðasta ári. Umferðarlagabrotum fækkar tölu- vert á milli ára eða um tæplega 22% og auðgunarbrotum fækkar verulega árið 2005 samanborið við 2004 eða um 42%. Skýrsluhöfundar telja líklegt að að hluta til sé um að ræða raunveru- lega fækkun brota en einnig verði að telja líklegt að breytingar á skrán- ingu hafi eitthvað að segja. Fjársvik- um með greiðslukortum fjölgar sem og gripdeildum og ránum. Fíkniefna- brotum fjölgaði um 46% og hefur þeim fjölgað stöðugt frá árinu 2001. Ofbeldisbrot sem tilkynnt voru til lögreglu voru 1.299 árið 2005 sem er svipaður fjöldi og á síðustu árum. Þrjú manndráp voru skráð hjá lög- reglu sem er sami fjöldi og árið 2004. Tilraunir til manndráps voru á hinn bóginn fleiri, eða sex, en tvö árið 2004. Tilkynningum vegna nauðgana fjölgaði um 43% Í HNOTSKURN » Færri hegningarlagabrotvoru skráð á Íslandi árið 2005 en árið 2004 eða rúmlega 12.000 í stað um 16.500. » Var þar bæði um að ræðafækkun afbrota en einnig fækkun vegna tilkomu nýs skráningarkerfis lögreglu. » Umferðarlagabrotumfækkaði um tæplega 22% og auðgunarbrotum fækkaði um 42%. GRÍSKI harmleikurinn Bakkynjur var frumsýndur í Þjóðleikhúsinu í gær, en verkið var skrifað fyrir um 2.400 árum af einu lykilskálda gullaldar grískrar leik- ritunar, Evripídes. Eins og venjan er um jólafrumsýn- ingar leikhússins var mikil tilhlökkun í húsinu áður en tjöldin voru dregin frá og gestir í sannkölluðu hátíð- arskapi. Þeirra á meðal voru mæðgurnar Herdís Þor- valdsdóttir leikkona og Tinna Gunnlaugsdóttir þjóð- leikhússtjóri ásamt eiginmanni Tinnu, tónlistar- manninum Agli Ólafssyni. | 45 Morgunblaðið/Ómar Bakkynjur frumsýndar SÝSLUMAÐURINN á Akureyri fór í gær fram á gæsluvarðhald yfir fimm ungmennum sem grunuð eru um innbrot og þjófnaði úr tveimur fyrirtækjum á Akureyri. Eftir yfir- heyrslur í gærkvöldi var ákveðið að sleppa þremur úr haldi en halda gæsluvarðhaldsbeiðni yfir tveimur til streitu. Að sögn lögreglu var fyrst brotist inn í verslun sem selur snjóbretti og búnað þeim tengdan aðfaranótt jóla- dags og í fyrrinótt var aftur brotist inn á sama stað og meiru stolið af sama tagi. Þá var brotist inn í veit- ingahús og þaðan stolið töluverðu magni af áfengi, sjóðsvél og pening- um. Talið er að sömu aðilar hafi verið að verki. Megnið af þýfinu er komið í leitirnar. Fólkið er í kringum tvítugt, sá yngsti í hópnum er 17 ára. Að sögn lögreglu er bæði um að ræða ung- menni sem áður hafa komið við sögu lögreglu sem ný andlit. Stálu snjó- brettum ÞRÍR voru fluttir með sjúkrabíl eft- ir harðan árekstur á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Borgar- túns um hálfellefuleytið í gærkvöldi. Fimm sjúkrabílar og tveir slökkvi- liðsbílar voru kallaðir út og þurfti að nota klippur til að ná fólki út úr bílunum, sem voru mikið skemmdir. Í öðrum bílnum var einn ökumað- ur sem fótbrotnaði en í hinum öku- maður og farþegi og slösuðust þeir minna. Enginn var talinn í lífs- hættu. Ökumenn greinir á um stöðu um- ferðarljósa á þeim tíma sem slysið varð. Öðrum bílnum var ekið norður Kringlumýrarbraut en hinum var ekið austur Borgartún. Lögreglan lýsir því eftir vitnum að atburðinum og eru þeir sem hafa upplýsingar um málið beðnir um að hafa samband við lögregluna í Reykjavík í síma 444 1130. Lýst eftir vitnum að árekstri

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.