Morgunblaðið - 27.12.2006, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. DESEMBER 2006 29
Fjölbýli
Klapparhlíð - Lúxusíbúð f. 50
ára og eldri
Glæsileg 119,3 fm lúxusíbúð í 4ra hæða lyftuhúsi
fyrir 50 ára og eldri. Íbúðin er glæsileg í alla staði,
innréttingar spónlagðar með liggjandi hnotu,
hvítar flísar á gólfum með marmaraáferð, baðher-
bergi með sturtuklefa og mjög stór og björt stofa
og borðstofa. Íbúðinni fylgir bílastæði í bílakjallara.
Þetta er eign fyrir vandláta. Verð kr. 36,9 m.
Blikahöfði - 77 fm Flott 2ja herbergja
íbúð á efstu hæð í mjög góðu 3ja hæða fjölbýli
með opnum stigagangi. Íbúðin er sérstaklega
rúmgóð og fallegt útsýni er til suðv. Mahogny inn-
réttingar og parket á gólfum. Verð kr. 19,2 m.
Hjallahlíð - 4ra herb.
Falleg 94 fm, 4ra herbergja íbúð á 2. hæð í litlu
fjórbýli með sérinngangi af svalagangi. Baðher-
bergi er flísalagt í hólf og gólf m. sturtu, eldhús
með góðum borðkrók og flísum á gólfi, fallegt
teppi á stofu og gangi, 3 svefnherbergi með linol-
eum dúk á gólfi og vinnukrókur. Mjög stutt er í
nýjan grunnskóla, leikskóla og glæsilega sund-
laug. Verð kr. 21,9 m.
SÉRBÝLI Í MOSFELLSBÆ
Lindarbyggð
Glæsilegt parhús
Til sölu mjög glæsilegt 177,1 fm parhús á einni
hæð á fallegum stað í lokuðum botnlanga í Lind-
arbyggð í Mosfellsbæ. Húsið er teiknað af Ingi-
mundi Sveinssyni, arkitekt og mjög bjart og rúm-
gott. Stór stofa með góðri lofthæð og borðstofa
við hlið eldhúss. 4 góð svefnherbergi, sjónvarps-
hol og glæsilegt baðherbergi. Bílskýli hefur verið
lokað af og gæti vel nýst sem t.d. unglingaher-
bergi. Fallegur suðurgarður og hellulagt bílaplan.
Þessar eignir eru sjaldséðar á fasteignasölum.
Verð kr. 41,8 m.
Barrholt - 225 m2 einbýlishús
*NÝTT Á SKRÁ* Vorum að fá fallegt 224,7 fm ein-
býlishús á einni hæð með bílskúr og vinnustofu
við Barrholt í Mosfellsbæ. Um er að ræða „hefð-
bundið“ 174 fm einbýlishús í Mosfellsbæ, en á
síðasta ári var byggt við húsið 50 fm vinnustofa
sem eftir er að fullklára. Hún gæti einnig vel nýst
sem stór bílskúr, unglingaherbergi eða aukaíbúð-
arrými. Frábær staðsetning, rétt við alla þjónustu
og skóla. Verð kr. 49,5 m.
Víðiteigur - raðhús
*NÝTT Á SKRÁ* Vorum að fá 82,1 fm raðhús á
einni hæð með möguleika á allt að 28,6 fm stækk-
un, við Víðiteig 4 í Mosfellsbæ. 2 góð svefnher-
bergi, baðherbergi, geymsla/þvottahús, stofa og
eldhús með borðkrók. Stór sérgarður í suðurátt.
Möguleiki að stækka upp í ris og byggja sólstofu
við húsið. Stutt í þjónustu í miðbæ Mosfellsbæjar.
Verð kr. 21,5 m.
Asparteigur - 216 m2 parhús í byggingu
*NÝTT Á SKRÁ* Vorum að fá tvö glæsileg 216,3
fm parhús við Asparteig í Mosfellsbæ á sölu.
Húsin eru staðsteypt á tveimur hæðum með mjög
stórum suðurgörðum. Þetta eru metnaðafullar og
glæsilegar teikningar. Húsin eru afhent fokheld
með grófjafnaðri lóð - og eru tilbúin til afhendingar
við kaupsamning. Verð kr. 35,0 m.
Þrastarhöfði 1-3 — 116 m2 íbúð m/bílakj.
*NÝTT Á SKRÁ* Vorum að fá mjög fallega 116,1
m2, 4ra herbergja íbúð á jarðhæð í nýju fjölbýli
með bílastæði í bílakjallara. Íbúðin er mjög
rúmgóð, með 3 góðum svefnherbergjum, baði
með sturtuklefa, sér þvottahúsi og fallegu eldhúsi.
Parket og flísar á gólfum og mahony innréttingar.
Ný sundlaug, leikskóli og grunnskóli hinum megin
við götuna. Verð kr. 29,8 m.
Miðholt - 3ja herb.
82,4 fm, 3ja herbergja endaíbúð í 11 íbúða fjölbýli
í miðbæ Mosfellsbæjar. Íbúðin er mjög björt og
vel um gengin - baðherbergi m. kari, 2 fín svefn-
herbergi, stór stofa/borðstofa og eldhús inn af
stofu. Svalir í suðurátt og stutt í alla þjónustu.
Þetta er björt og rúmgóð íbúð á hagstæðu verði.
Verð kr. 17,8 m.
Óskum viðskiptavinum okkar
og landsmönnum öllum
gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári
Tröllateigur - 167,1 fm enda-
raðhús
167,1 fm endaraðhús á tveimur hæðum í ný-
byggðu hverfi við miðbæ Mosfellsbæjar. Á jarð-
hæð eru stofa, borðstofa, eldhús, gestasalerni og
bílskúr, en á 2. hæð eru 3 góð svefnherbergi,
vinnuherbergi, þvottahús og stórt baðherbergi.
Flísar og bambusparket á gólfi og fallegar innrétt-
ingar í eldhúsi og baði. Áhvílandi kr. 27,0 milljónir
með 4,15-4,2% vöxtum. **Verð nú kr. 39,9 m.**
Fellsás - 312,3 fm einbýlishús
312,3 fm tvílyft einbýlishús á fallegum útsýnisstað
í hlíðum Helgafells í Mosfellsbæ. Á jarðhæð er bú-
ið að innrétta tvö 2ja herbergja íbúðarrými sem nú
eru í útleigu. Á efri hæðinni er rúmgóð íbúð með
stóru alrými og stóru eldhúsi, tvö svefnherbergi,
baðherbergi og í risi er verið að innrétta herbergi.
Þetta er stór og mikil eign með góða tekjumögu-
leika. Húsið stendur á eignarlóð með miklu útsýni
til Esjunnar og út á Leirvoginn. Verðtilboð
Tröllateigur 141-150 fm íbúðir
Til sölu fjórar 141-150 fm íbúðir í nýju fjórbýlishúsi
í byggingu við Tröllateig 41 í Mosfellsbæ. Húsið
er eitt síðustu húsa í nýju hverfi sem er að rísa við
miðbæ Mosfellsbæjar. Stutt er í alla þjónustu,
skóla og íþróttasvæði. Íbúðirnar eru 4ra - 5 her-
bergja og afhendast fullbúnar með innréttingum,
en án gólfefna, þó verður baðherbergi og þvotta-
hús flísalagt. Íbúðirnar verða afhentar í apríl 2007.
Verð frá kr. 28,5 - 32,5 m.
Þrastarhöfði 13, 17 og 19
*NÝTT Á SKRÁ* Vorum að fá þrjú 186 fm raðhús
á tveimur hæðum með bílskúr við Þrastarhöfða
13, 17 og 19. Húsin eru á besta stað, með golf-
völl, spánýja sundlaug, grunnskóla og leikskóla í
4 mínútna gönguradíus. Húsin verða afhent full-
búin að utan með þökulagðri lóð og sólpalli, en
tilbúin til innréttinga, spörsluð og grunnmáluð að
innan. Gólfhiti og fullkomið loftræsikerfi verður
fullfrágengið. Afhending nú í desember. Verð kr.
37,9 - 38,4 m.
Einar Páll Kjærnested
löggiltur fasteignasali
Sími: 586 8080
Fax: 586 8081
www.fastmos.is
ATVINNUHÚSNÆÐI
Flugumýri - 250 fm atvinnu-
húsn. Snyrtilegt og gott atvinnuhúsnæði við
Flugumýri í Mosfellsbæ. Um er að ræða 174 fm flí-
salagðan vinnslusal með tveimur innkeyrsluhurð-
um auk millilofts. Þar er kaffistofa, 2 skrifstofur og
lagerrými. Verð kr. 26,5 m.
Urðarholt - 150 fm atvinnu-
húsnæði Erum með 150 fm atvinnuhúsnæði
á jarðhæð í miðbæ Mosfellsbæjar. Gott verslunar-
pláss og inn af því hefur verið innréttuð íbúðarað-
staða. Gott gluggapláss er út á bílastæðið og gott
aðgengi. Rýmið stendur við Mosfellsbakarí sem er
eitt besta bakarí á landinu. Rýmið er til sölu eða
leigu og getur verið laust til afhendingar fljótlega.
LÓÐIR OG LÖND
Smábýli 5 - Kjalarnesi Erum með
ca 5,5 hektara lóð undir einbýlishús á fallegum út-
sýnisstað í jaðri Esjunnar. Þetta er frábært tæki-
færi fyrir þá sem vilja hafa rúmt í kringum sig, en
þó í aðeins 10 mínútna fjarlægð frá allri þjónustu.
Verð kr. 27,0 m.
REYKJAVÍK
Þorláksgeisli - 3ja m. bílsk -
RVK
Erum með mjög fallega 93,2 fm, 3ja herbergja
íbúð 3. hæð í nýlegu lyftuhúsi ásamt bílastæði í
bílageymslu í Grafarholti. Íbúðin er rúmgóð og
björt, eikarparket á gólfum en innihurðir og inn-
réttingar eru spónlagðar með eik. Baðherbergi,
forstofa og þvottahús eru flísalagt. Flott hús, innst
í botnlanga. Áhv. 14,1 milljón frá Glitni m. 4,15%
vöxtum.Verð kr. 21,9 m.
Hverafold - 2ja herb + bíla-
geymsla 56 fm, 2ja herbergja íbúð á jarð-
hæð í 4ra hæða fjölbýli við Hverafold í Grafarvogi
ásamt bílastæði í upphitaðri bílageymslu. Íbúðin,
sem er nýmáluð, skiptist í rúmgott hjónaherbergi,
bjarta stofu, eldhúskrók, þvottahús/geymslu og
baðherbergi m. kari. Úr stofu er gengið út á hellu-
lagða verönd. Verð kr. 16,4 m.
KÓPAVOGUR
Heiðarhjalli - 4ra herb. + bíl-
skúr
Glæsileg 117,8 fm íbúð á efstu hæð ásamt 21,9
fm bílskúr við Heiðarhjalla í Kópavogi. Stofa, borð-
stofa, hjónaherbergi, tvö barnaherbergi, eldhús,
baðherbergi, þvottahús/geymsla og svefnloft
(óskráð). Fallegar sérsmíðaðar innréttingar í eld-
húsi, baðherbergi og svefnherbergjum. Þetta er
glæsileg eign með miklu útsýni. Íbúðin er laus til
afh. við kaupsamning. **Verð kr. 33,9 m.**
Erum að taka á móti tilboðum í lóðir undir einbýlishús og raðhús á svæði 3A við Laxat-
ungu í Mosfellsbæ - TILBOÐUM ER SVARAÐ INNAN 24 KLST. Þetta er eitt af falleg-
ustu byggingarlöndum á höfuðborgarsvæðinu, með Leirvogsá og Köldukvísl á sitt hvora
hönd. Á svæðinu verða eingöngu byggð einbýlis-, rað- og parhús. Kynntu þér málið á
www.leirvogstunga.is eða hafðu samband við okkur hjá Fasteignasölu Mosfellsbæjar.
Byggingarlóðir í Leirvogstungu
*NÝJAR LÓÐIR Á SVÆÐI 3*
LOKS hafa orðið tíðindi í pólitík í
landinu. Jónas frá Hriflu hefur nú
endurfæðst í stráklingi, Birni Inga
Hrafnssyni, semi-borgarstjóra í
Reykjavík, helstu vonarstjörnu
Framsóknar.
Þessi merka endurfæðing varð lýð-
um ljós í síðustu viku í Kastljósþætti
þar sem þeir tókust á Björn Ingi og
„faðir Hringbrautarslyssins“, Dagur
B. Eggertsson.
Allur málflutningur
unga framsókn-
armannsins minnir á að-
ferðir Jónasar í stjórn-
málabaráttunni, þ.e. að
svara aldrei því sem
maður er spurður um
eða svara með útúrsnún-
ingi, hafa öll rök ,,ad
hominem“, þ.e. leita að
snöggum bletti í líferni andstæðings-
ins, finna hliðstæður hjá öðrum varð-
andi það sem maður er
sjálfur ásakaður um,
ganga fram af fullkomnu
purrkunarleysi og
hvítþvo svo sjálfan sig.
Munurinn á drengnum
og Jónasi er þó sá, að
Jónas var framan af ævi
hugsjónamaður en
drengurinn er í forystu í
flokki sem hefur enga
hugsjón aðra en þá að
komast í valdastólana.
Góðmennið Vil-
hjálmur Þ. hefur ótakmarkaða með-
aumkun með lítilmagnanum eins og
sást best þegar honum lá sem mest á
að mynda meirihluta í Reykjavík og
lyfti þá framsóknarstráknum til
slíkra metorða að engu er nú ráðið til
lykta innan borgarinnar svo að Björn
þessi Ingi komi ekki þar að málum og
hefur veldisvísi upp á heil 35% í borg-
armálum en 6,5% í kjörfylgi! Það er
því ekki skrýtið að flokkur, sem
mælist við pilsnermörk í styrkleika
(eins og Sólrún komst að orði um dag-
inn), verði að úthluta bitlingum til
dyggra flokksmanna þótt arftakinn
fullyrði að hann hafi engan veginn
komið nálægt ráðningum á flokks-
bræðum og -systrum! Eins og fyrri
daginn sér Framsókn betur um sína
en aðrir flokkar í landinu. Það hlýtur
að vekja hroll meðal gamalla vamm-
lausra framsóknarmanna að grein-
ingin á flokknum og stefnu hans sé í
daglegri umræðu afbökun á út-
jöskuðu orðfæri landbúnaðarráðherr-
ans: „Þar sem koma saman tveir
framsóknarmenn, þar er spilling.“
Nýr Jónas frá Hriflu!
Árni Hermannsson skrifar um
Framsóknarflokkinn
Árni Hermannsson
»Eins og fyrri daginnsér Framsókn betur
um sína en aðrir flokkar...
Höfundur er kennari við VÍ.