Morgunblaðið - 27.12.2006, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. DESEMBER 2006 49
/ KRINGLUNNI
FRÁIR FÆTUR m/ísl. tali kl. 1:20 - 3:40 - 5:30 - 6 LEYFÐ DIGITAL
HAPPY FEET m/ensku tali kl. 3:20 - 5:30 - 8:10 - 10:30 LEYFÐ DIGITAL
DÉJÁ VU kl. 8 - 10:30 B.i. 12 DIGITAL
THE HOLIDAY kl. 8 - 10:40 LEYFÐ
SKOLAÐ Í BURTU m/ísl. tali kl. 1:30 - 3:40 LEYFÐ DIGITAL
BÆJARHLAÐIÐ m/ísl. tali kl. 2 LEYFÐ
/ ÁLFABAKKA
FLAGS OF OUR FATHERS kl. 2 - 5 - 8 - 10:50 B.i.16 .ára.
FLAGS OF OUR FATHERS VIP kl. 8 - 10:50
FRÁIR FÆTUR m/ísl. tali kl. 1 - 3:20 - 5:40 LEYFÐ
FRÁIR FÆTUR m/ísl. tali VIP kl. 1 - 3:20 - 5:40
HAPPY FEET m/ensku tali kl. 5:40 - 8 - 10:20 LEYFÐ
DÉJÁ VU kl. 8 - 10:50 B.i.12 .ára.
THE DEPARTED kl. 10:20 B.i. 16.ára.
DOA kl. 6 - 8 B.i.12 .ára.
SAW 3 kl. 10:50 B.i.16 .ára.
SKOLAÐ Í BURTU m/ísl. tali kl. 1:20 - 3:30 LEYFÐ
SANTA CLAUSE 3 kl. 1:20 - 3:30 - 5:40 - 8 LEYFÐ
JÓNAS : SAGA UM GRÆNMETI m/ísl. tali kl. 2 LEYFÐ
BÆJARHLAÐIÐ m/ísl. tali kl. 4 LEYFÐ
m öllum gleðilegra jóla
FRÁBÆRT GRIN
OG SKEMMTUN
FYRIR ALLA
FJÖLSKYLDUNA
TILNEFND TIL GOLDEN GLOBE SEM BESTA TEIKNIMYND ÁRSINS
FRÁIR FÆTUR
FRÁ JERRY BRUCKHEIMER
(“PIRATES OF THE CARIBBEAN”)
eeee
KVIKMYNDIR.IS
eee
H.J. MBL.
KILMER
FRÁ TONY SCOTT LEIKSTJÓRA
„CRIMSON TIDE“
FLUSHED AWAY
eeee
V.J.V. TOPP5.IS.
eeee
S.V. MBL.
BÆJARHLAÐIÐ JÓLASVEININN 3 SKOLAÐ Í BURTU
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Friðsæld er nokkuð sem hrúturinn hefur
heyrt aðra tala um að þá vanti, en hann
er ekki sannfærður um að hið sama gildi
um hann sjálfan. Það gæti verið rétt.
Eitthvað við óreiðu dagsins nærir sál
hrútsins.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Flestir sleppa því að gera áætlanir. Þeir
bregðast við veruleika sínum í stað þess
að sníða hann að sér. Í dag gefast stund-
ir þar sem allt verður kristaltært, notaðu
tækifærið til þess að rissa upp dag-
skrána fyrir næstu vikur.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Vertu sanngjarnari við sjálfan þig, en þú
ert. Ef þú lítur í kringum þig tekur þú
eftir að fólk sem gerir mun minna en þú,
veitir sjálfu sér mun meiri viðurkenn-
ingu en þú hefur vanið þig á.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Lífið virðist í endalausri endursýningu,
ef marka má vandamálin sem koma upp
aftur og aftur og aftur. Það er ekkert að
því að vilja vita hvers vegna, en tímanum
er ekkert sérstaklega vel varið þannig.
Vendu þig á að velja öðruvísi, það er
galdurinn.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það getur verið einmanalegt að bera of
mikla ábyrgð og hafa of mikla stjórn á
hlutunum. En ljónið er ekki eitt. Upp-
gjöf er mikilvægur þáttur í örlögum þín-
um, bjóddu þig fram svo einhver geti
fært sér þig í nyt.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Til er máltæki sem segir, ekki reyna að
selja það sem þegar er selt. Með öðrum
orðum, kænn sölumaður veit hvenær
hann á að draga sig í hlé. Meyjan þarf að
selja sjálfa sig og hugmyndir sínar og er
svo mikil stjarna, að nokkur vel valin orð
eru meira en nóg.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Viðhorf vogarinnar er alveg einstakt.
Þess vegna er ekkert sem hún tekur sér
fyrir hendur tímasóun. Hún safnar
þekkingu hvort sem hún er föst í um-
ferðarhnút, í biðröð, eða bíður í síman-
um. Kenndu yngra fólki hvernig þú ferð
að þessu.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdrekinn er að þroskast. Hann spá-
ir minna í það hvort aðrir elska hann og
meira í það hvernig hann elskar sína
nánustu. Þessi áherslumunur breytir lífi
hans á mun afdrifaríkari hátt en hann
hefði nokkru sinni órað fyrir.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Grundvallarmunurinn á bogmanninum
og maka hans sést allt í einu í skýru ljósi.
Hann áttar sig á hvernig hann og mak-
inn bæta hvor annan upp. Einn heldur
áfram þar sem öðrum sleppir. Frábært.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Að gengisfella sjálfan sig er glæpur.
Steingeitinni var ætlað frábært hlut-
verk, sem gengur því aðeins að hún átti
sig á hæfileikum sínum og ákveði að
leyfa þeim að njóta sín.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberinn hefur fengið hugmynd sem
vel er þess virði að markaðssetja. Vertu
óskammfeilinn. Ef maður óttast peninga
eru minni líkur á að maður eignist þá. Í
kvöld skaltu nota tækifærið og leggja
mat á heimilis- og ástarlífið.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Ef maður nálgast viðfangsefni sín af ást
ver maður minni orku í að klára þau.
Fiskurinn verður lifandi sönnun þess-
arar reglu á næstunni. Reyndar máttu
slaka á heima og horfa á dvd í kvöld, al-
veg óþarfi að vera sakbitinn.
Merkúr er kominn í merki
steingeitarinnar, nú er
kominn tími til að tala um
viðskipti. Tjáskipti fá á sig
alvarlegri blæ. Að varpa
ótímabærum hugmyndum
í kringum sem er hættulegt, maður vill
ekki skuldbinda sig með eitthvað sem er
bara reist á tilgátu.
stjörnuspá
Holiday Mathis
Hin 72 áraJudi
Dench er ein af
rómaðri leik-
konum heims-
ins, á sviði jafnt
sem á hvíta
tjaldinu. Hún
hefur engu að
síður áhyggjur
af því að fá ekkert að gera. Leik-
konan hefur sagt að hún passi sig
á því að hafa nóg að gera hverju
sinni, að hluta til vegna þess að
hún óttist hið andstæða.
Um þessar mundir má sjá
Dench í myndinni Notes on a
Scandal þar sem hún leikur ein-
mana og durtslegan kennara er
níðist á samstarfskonu sinni, leik-
inni af Kate Blanchett. Fyrir leik
sinn í myndinni fékk Dench ný-
lega tilnefningu til Golden Globe-
verðlaunanna sem besta leik-
konan.
Dench hefur verið tilnefnd til
Óskarsverðlauna fimm sinnum.
Árið 1998 vann hún styttuna eft-
irsóttu fyrir besta leik konu í
aukahlutverki, fyrir hlutverk sitt
sem Elísabet I. í hinni vinsælu
mynd Ástfanginn Shakespeare (e.
Shakespeare in Love).
Meðal annarra mynda sem hún
hefur leikið í má nefna nýjustu
James Bond-myndina, Casino Ro-
yale og Chocolat þar sem hinn
snoppufríði Johnny Depp var með-
al mótleikara hennar.
Samkvæmt slúðurveitunni An-anova hefur Ethan Hawke
loksins tjáð sig um hvað varð sam-
bandi hans og Umu Thurman að
aldurtila, en hann hefur lítið tjáð
sig um málið hingað til. Svo virðist
sem álagið sem fylgir því að vera
frægt par hafi orðið þeim ofviða.
„Ég kunni því ekki vel að vera
frægur þegar ég var einhleypur.
Það var svo mikil pressa að giftast
annarri frægri manneskju –
pressa sem ég kunni alls ekki við,“
er haft eftir Hawke og vitnað í
viðtal í vikublaðinu Parade. Um
sambandsslitin sagði hann: „Það
hafði ekkert með hana að gera.
Ekkert.“ Hann hafði svo ekkert
nema gott um sína fyrrverandi að
segja: „Hún er frábær móðir og
uppeldi barnanna hefur forgang
hjá okkur báðum. Við erum svo
heppin að geta stutt hvort annað.
Þar sem ég skrifa og leik í leik-
húsi er mun auðveldara fyrir mig
að vera í borginni. En mín fyrr-
verandi hefur staðið sig frábær-
lega sömuleiðis. Hún skipuleggur
allar kvikmyndirnar sína þannig
að þær séu teknar upp í New
York.“
Fólk folk@mbl.is
EVIL Madness er undarlegt fyr-
irbæri, samstarfsverkefni tónlist-
armanna sem víða hafa komið við
og hafa, flestir a.m.k., tengst svo-
kallaðri noise-tónlist á einhvern
hátt, þannig má eiginlega kalla
Evil Madness ofursveit, ef sveit
má kalla, þ.e.
Undirritaður sá geðveikina illu á
Airwave hátíðinni í október sl. og
varð satt að segja lítt hrifinn, þar
var eitthvað sem ekki gekk upp.
Raunin er sem betur fer önnur á
geisladiski sveitarinnar. Noise er
viðkvæmt og erfitt að blanda því
við tónlist, sennilega er því þó ætl-
að að vera erfitt, bæði í gerð og
hlustun. Stundum finnst manni
maður vera að hlusta á alfarið til-
gangslausa tilgerð, en svo er líka
hægt að detta ofan í pottinn, og þá
er þetta þess virði.
Demon Jukebox er líka þannig,
það fer reyndar lítið fyrir tilgerð-
inni, en platan er erfið og það þarf
að dunda sér við hana, dunda sér
við að hlusta og greina óhljóðin í
sundur. Reyndar er sá sem skrifar
þannig gerður að honum finnst
betra þegar taktur eða laglína á
einhvern þátt í heildinni, reipi til
að halda sér í. Sem dæmi má
nefna lögin Confused Television
Personality og Inspired by Long
Hours of Continous Repetitive
Deep Irritations and Uncontrol-
lable Agony.
Tvennt verður svo að taka fram,
platan hljómar afskaplega vel, það
er fátt mannlegra og hliðrænna en
rétt hljómandi hljóðgervlar,
hversu undarlega sem það kann að
hljóma. Svo er líka umslagið með
því betra sem sést hefur á ís-
lenskri geislaplötu.
Kannski er noise súrrealismi í
tónlist, þ.e. ekki eitthvað eins og
einhverjir halda, heldur það sem
gerist ósjálfrátt með smá tíma og
gefur kannski, eða kannski ekki,
innsýn í þann sem býr til hávað-
ann. Alla vega eru óhljóðin á De-
mon Jukebox yfirleitt frekar fal-
leg, þótt þau séu óhljóð.
Falleg óhljóð
TÓNLIST
Geisladiskur
Demon Jukebox, geislaplata Evil Mad-
ness. Evil Madness eru Jóhann Jóhanns-
son, Stilluppsteypa, BJ Nilsen, DJ Mu-
sician, Curver og Pétur Eyvindsson. 12
Tónar gefa út.
Evil Madness – Demon Jukebox
Gísli Árnason