Morgunblaðið - 27.12.2006, Blaðsíða 52
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 MIÐVIKUDAGUR 27. DESEMBER 361. DAGUR ÁRSINS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
SA 8–13 m/s
vestan til, annars
hægari S-átt.
Skýjað og súld/
rigning S- og V-lands, annars
þurrt og nokkuð bjart. » 8
Heitast Kaldast
8°C -1°C
SÆNSKA kvikmyndasölufyrir-
tækið Nonstop Sales hefur keypt
söluréttinn utan Íslands á kvik-
myndinni Kaldri slóð. Myndin hefur
ekki verið frumsýnd og segir Krist-
inn Þórðarson, annar framleiðenda
myndarinnar fyrir Sagafilm, að-
standendur að vonum vera ánægða
með áhuga Svíanna.
Kristinn segir samninginn koma í
kjölfar þess að sýnishorn úr Kaldri
slóð, sem þá var enn í vinnslu, var
sýnt á Haugasunds-kvikmyndahá-
tíðinni í Noregi í ágúst sl. Í fram-
haldinu hafi nokkur fyrirtæki sett
sig í samband og lýst yfir áhuga á
að kaupa söluréttinn. Nonstop
Sales hafi hins vegar orðið fyrir
valinu enda fari af þeim gott orð-
spor auk þess sem samningar hafi
verið hagstæðir. | 18
Seld Úr kvikmyndinni Kaldri slóð.
Köld slóð
er seld
VERÐ á sjávar-
afurðum hefur
aldrei mælst
hærra en nú skv.
nýjum tölum frá
Hagstofu Ís-
lands. „Hér fer
saman að krónan
hefur gefið eftir
og að verðlagið á
sjávarafurðunum
er yfirleitt mjög
hagstætt og það skilar sér í góðu
verði á sjávarafurðum til fyrirtækj-
anna,“ segir Arnar Sigurmundsson,
formaður samtaka fiskvinnslu-
stöðva. Arnar segir markaðs-
aðstæður vera góðar og að verð á
þorski og fleiri tegundum sé mjög
gott sem og verð á mjöli og lýsi.
„Það má segja að árið í heild hafi
verið íslenskum sjávarútvegi hag-
stætt,“ segir Arnar. | 11
Afurðaverð
hagstætt
Arnar
Sigurmundsson
FLUGELDASALA á vegum björg-
unarsveita um land allt fer af stað í
dag.
Ólöf Snæhólm Baldursdóttir,
upplýsinga- og kynningarfulltrúi
Landsbjargar, segir að miklar von-
ir séu bundnar við söluna í ár.
„Það mæddi mikið á okkar fólki
dagana fyrir jól í baráttunni við
veðurofsann, flóð og aðgerðir á
strandstað í Hvalsnesi,“ segir Ólöf
og bætir við að flugeldasalan sé
helsta fjáröflunarleið björg-
unarsveitanna.
„Við höfum tekið það saman að á
bak við hverja klukkustund í útkalli
hjá okkur eru tólf vinnustundir,
þannig að björgunarsveitirnar eru
ekki bara að vinna meðan þær eru í
útkalli,“ segir Ólöf.
Flugeldasala
byrjar í dag
FL Group tilkynnti í gær að félagið
hefði eignast 5,98% hlutafjár í banda-
ríska félaginu AMR Corporation sem
er stærsta flugfélag í heimi og er m.a.
móðurfélag American Airlines. Heild-
arfjárfesting FL Group í félaginu
nemur meira en 400 milljónum
Bandaríkjadala, um 28 milljörðum ís-
lenskra króna, og er FL Group með
þessu þriðji stærsti hluthafi í félaginu.
Hannes Smárason, forstjóri FL
Group, sagði við Morgunblaðið í gær-
kvöldi að FL Group hefði byrjað að
byggja upp eignastöðu í AMR Cor-
poration í vetrarbyrjun og hefði smátt
og smátt aukið við hlut sinn. Tilkynn-
ingin í gær hefði verið send út vegna
ákvæða um tilkynningaskyldu ef
hlutafjáreign eins aðila verður meiri
en 5%.
„Við teljum að það sé margt áhuga-
vert í gangi í þessum geira í Banda-
ríkjunum,“ sagði Hannes. Komið væri
ákveðið jafnvægi á framboð á flug-
sætum og eftirspurn og því væru
tekjumöguleikar félagsins spennandi.
Þá hefði American Airlines líkt og
flest flugfélög í Bandaríkjunum þurft
að draga mjög úr rekstrarkostnaði
eftir hryðjuverkin 11. september 2001
og náð verulegum árangri í þeim efn-
um. Að lokum sagði hann flugfélögin
hafa skilað hagnaði á þriðja ársfjórð-
ungi í fyrsta skipti í langan tíma.
Hjá FL Group hefðu menn fylgst
náið með því sem greiningaraðilar
hefðu að segja um American Airlines
og mikill meirihluti mælti með kaup-
um og teldi að hlutafjárverð myndi
hækka. „Við teljum að þetta sé félag
sem gæti átt töluvert inni.“
Þetta er í fyrsta skipti sem FL
Group fjárfestir í Bandaríkjunum en
Hannes sagði að félagið hefði ekki
markað sér sérstaka stefnu um fjár-
festingar þar. Þá sagðist hann ekki
geta svarað spurningum um hvort FL
myndi enn auka hlut sinn í AMR.
FL Group eignast 5,98% í
stærsta flugfélagi í heimi
Í HNOTSKURN
» AMR Corporation erstærsta flugfélag í heimi
og fljúga vélar þess undir
merkjum American Airlines,
American Eagle og American
Connection.
» Félagið flýgur til meira en250 borga í yfir 40 löndum
og í flota félagsins eru um
1.000 flugvélar.
» Eftir kaupin eru um 25%af eignum FL Group í flug-
vélaiðnaði.
JÓLIN eru alls staðar, eins og sungið er um í
einu jólalaganna, og þau leynast líka í Bláa lón-
inu. Það brá jólalegri birtu á mæðgurnar Ragn-
heiði Runólfsdóttur og Sigurjónu Magnúsdóttur,
þriggja ára, sem nutu baðs og leirs í gærdag í
fyrrnefndu lóni, enda vel til þess fallið að hrista
af sér slenið sem óvefengjanlega fylgir hátíðum.
Nú þegar vetrarsólstöður eru að baki gefast líka
æ fleiri tækifæri til nauðsynlegrar útiveru.
Morgunblaðið/Ómar
Mæðgur í jólabirtu Bláa lónsins
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
UM áramótin verða miklar breytingar á löggæslu
úti um allt land, mestar þó á höfuðborgarsvæðinu
og á Suðurnesjum en þar verða fimm stærstu emb-
ætti landsins gerð að tveimur. Stefán Eiríksson,
lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins, segir að fólk
muni strax verða vart við breytingarnar. Sjálfur
ætlar hann að taka virkan þátt í að efla götueftirlit
lögreglu og mun fara í fyrsta göngueftirlitstúr hins
nýja embættis hinn 2. janúar klukkan 13.30.
Umdæmi embættisins nær til um 190.000 manns,
um 63% íslensku þjóðarinnar.
Hjá lögreglu höfuðborgarsvæðisins, LRH, verð-
ur lögð mikil áhersla á sýnileika lögreglu og efla
hverfis- og grenndarlöggæslu. „Hvergi verður
dregið úr löggæslu, það verður engin breyting fyrir
íbúa á höfuðborgarsvæðinu nema þá til batnaðar,“
segir Stefán.
Fleiri í búning
Ekki verður bætt við lögreglumönnum frá því
sem nú er og fjármunirnir sem embættið fær eru
þeir sömu og gömlu embættin þrjú, lögreglan í
Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði hefðu fengið.
Stefán segir að með því að breyta skipulagi og
áherslum verði hægt að gera lögreglu sýnilegri og
um leið auka getu og skilvirkni til rannsóknarstarfa.
Fleiri lögreglumenn muni klæðast búningum við
sín störf og þegar hafi verið ákveðið að merkja 7–8
lögreglubíla sem hingað til hafa verið ómerktir.
„Bara það að fólk sjái lögreglumann á gangi eykur
tilfinningu manna um að löggæsla sé á staðnum,“
segir Stefán. Það auki bæði öryggi og öryggistil-
finningu hins almenna borgara.
Meðal breytinga sem verða á rannsóknardeildum
lögreglu er að til verður sérstök kynferðisbrota-
deild sem í verða 5–6 starfsmenn. Hafa lögmenn
Neyðarmóttöku þolenda kynferðisbrota þegar lýst
yfir ánægju sinni með að þessari starfsemi hefur
verið komið fyrir á einum stað. Þá verður fíkniefna-
deild lögreglunnar framvegis í Hafnarfirði en hús-
næði þar þykir á margan hátt hentugt.
Alls munu um 450 manns starfa hjá hinu nýja
embætti, þar af um 350 lögreglumenn. Á löggæslu-
sviði starfa um 330 manns, þar af 150 í almennri
deild, á átta svæðisstöðvum starfa samtals 56
manns, 33 verða í umferðardeild, 70 manns verða í
rannsóknardeild og 23 í stoðdeildum. Á ákæru- og
lögfræðisviði verða 27 starfsmenn, 68 á stjórnsýslu-
og þjónustusviði og um 15 heyra undir yfirstjórn.
Lögregla 63% þjóðarinnar
Átta svæðisstöðvar Fíkniefnadeildin verður í Hafnarfirði 5–6 starfa
í kynferðisbrotadeild Áhersla á sýnileika og hverfislöggæslu Göngueftirlit
Fleiri löggur út á | Miðopna