Morgunblaðið - 13.02.2007, Qupperneq 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson
gretar@mbl.is
VÍSITALA neysluverðs, sem Hag-
stofa Íslands reiknar út, hækkaði um
0,41% á milli janúar og febrúar.
Þetta er um tvöfalt meiri hækkun en
greiningardeildir viðskiptabankanna
höfðu spáð. Kostnaður vegna eigin
húsnæðis hafði mest áhrif til hækk-
unar vísitölunnar.
Síðastliðna tólf mánuði hækkaði
vísitala neysluverðs um 7,4%. Í jan-
úar mældist tólf mánaða verðbólgan
6,9%. Án húsnæðisliðar vísitölunnar
var hækkunin nú 6,2%. Undanfarna
þrjá mánuði hækkaði vísitala neyslu-
verðs um 0,7%, sem svarar til 2,9%
verðbólgu á ári.
Úrtölur hafa áhrif
Fram kemur í tilkynningu frá
Hagstofunni að kostnaður vegna eig-
in húsnæðis hafi hækkað um 1,8% á
milli janúar og febrúar, og að vísitö-
luáhrif þeirrar hækkunar hafi verið
0,41%. Þar af hafi áhrif af hækkun
markaðsverðs verið 0,27%, áhrifin
hafi verið 0,06% af hækkun vaxta og
0,08% vegna hækkunar á viðhaldsl-
iðnum. Hins vegar kemur fram í til-
kynningunni að áhrifa vetrarútsalna
gæti enn. Verð á fötum og skóm hafi
lækkað um 4,1% á milli janúar og
febrúar, en vísitöluáhrif þeirrar
lækkunar hafi verið -0,17%.
Verð á mat og drykkjarvörum var
nánast óbreytt á milli mánaða,
hækkaði um 0,2% (vísitöluáhrif
0,02%).
Fram kemur í vefritum greining-
ardeilda viðskiptabankanna, Glitnis,
Kaupþings og Landsbankans, að
hækkun á vísitölu neysluverðs komi
þeim nokkuð á óvart. Deildirnar hafi
ekki gert ráð fyrir eins miklum
hækkunum á markaðsverði á hús-
næði og raun varð á. Þá hafi áhrifin
af útsölum á fötum og skóm ekki
reynst eins mikil og þær hafi gert
ráð fyrir, en hins vegar hafi verð-
hækkun á matvöru verið nokkuð
undir spám.
Tólf mánaða verð-
bólga mælist 7,4%
Húsnæðisverð hefur áhrif til aukningar verðbólgunnar
6
7
6
#
"%
#
8
!
!
"
" #
"#
$%
$#
%
#
&%
" " '
ÍSLENSK-spænska lyfjafyrirtækið
Invent Farma og indverski lyfja-
framleiðandinn Strides Arcolab Ltd.
hafa stofnað tvö ný samstarfsfyrir-
tæki sem eru í jafnri eigu félaganna
tveggja. Invent Farma er í aðaleigu
íslenskra fjárfesta en spænskir fjár-
festar eiga um 13% hlut.
Helstu íslensku hluthafarnir eru
Friðrik Steinn Kristjánsson, sem er
stjórnarformaður, en hann stofnaði
Omega Farma á sínum tíma, Jón
Árni Ágústsson, sem var með Frið-
riki í Omega, Ingi Guðjónsson, fv.
forstjóri Lyfju, Frosti Bergsson,
stofnandi Opinna kerfa með meiru,
Daníel Helgason fjárfestir og Ingi-
mundur Sveinsson arkitekt.
Miklir vaxtarmöguleikar
Samstarfsfyrirtækin sem um ræð-
ir eru annars vegar Domac Labor-
atories, sem fyrst um sinn mun
leggja áherslu á að þróa og selja lyf
til sjúkrastofnana á Spáni og í Portú-
gal. Hins vegar er það eignarhalds-
félagið Plus Farma á Íslandi, sem
nýlega festi kaup á lyfjafyrirtækinu
Farma Plus með aðsetur í Osló í
Noregi.
Friðrik Steinn sagði við Morgun-
blaðið að samstarfið við Strides
Arcolab fæli í sér mikla möguleika til
vaxtar, sér í lagi vegna sölu á lyfjum
fyrir sjúkrahús í Evrópu og víðar.
Ekki standi til að fara inn á lyfja-
markaðinn á Indlandi að svo stöddu,
heldur einblínt á Evrópu.
Fyrirtækin telja að með kaupun-
um á Farma Plus í Noregi skapist
mikilvægt tækifæri til að ná sterkri
stöðu á markaði fyrir lyf fyrir
sjúkrahús á Norðurlöndunum.
Invent Farma framleiðir lyf í
Barcelona á Spáni og starfa um 300
manns hjá fyrirtækinu, allt meira og
minna Spánverjar. Á félagið í dag yf-
ir 70 framleiðslueinkaleyfi en það
rekur lyfjaþróunarsetur í Barcelona,
Bombei á Indlandi og í Reykjavík,
auk lyfjaefnaverksmiðju og lyfja-
verksmiðju í Barcelona. Þá er Invent
Farma meirihlutaeigandi í Lyfjaveri
ehf. hér á landi.
Strides með 14 verksmiðjur
Strides Arcolab Ltd. er meðal
stærstu útflytjenda á skráðum sam-
heitalyfjum og efnum til lyfjagerðar
á Indlandi og einn af fimm stærstu
framleiðendum í heiminum á mjúk-
um hylkjum til lyfjagerðar. Fyrir-
tækið rekur 14 lyfjaverksmiðjur í
Bandaríkjunum, Brasilíu, Mexíkó,
Ítalíu, Póllandi, Singapore og á Ind-
landi og er með skráð lyf í 37 löndum
víðsvegar um heiminn. Um 1.700
manns starfa hjá Strides á heims-
vísu.
Íslenskt lyfjafyrirtæki
í samstarf með Strides
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
HLUTHAFAFUNDUR Actavis
Group hefur veitt stjórn fyrirtæk-
isins heimild til að færa A-hluta
hlutafjár Actavis úr íslenskum
krónum í evrur. Var tillaga þessa
efnis samþykkt samhljóða á fund-
inum, sem fór fram síðdegis sl.
föstudag.
Skal stjórn Actavis heimilt að
gera nauðsynlegar breytingar á
samþykktum félagsins sem leiða af
útgáfu hlutafjár, m.a. breyttum
fjárhæðum. Verði breytingin fram-
kvæmd af stjórn félagsins skal nafn-
verð hvers hlutar vera 0,01 evra.
Einnig var samþykkt að hækka
hlutafé félagsins um 1.200 milljónir
króna vegna fjármögnunar Actavis
á hlutum í öðrum félögum. Skal fé-
lagsstjórn heimilt að ákveða að
greiða megi fyrir hina nýju hluti
með öðru en reiðufé. Í samþykkt
segir einnig að hluthafar skuli ekki
hafa forgangsrétt til áskriftar að
hinum nýju hlutum.
Morgunblaðið/Jim Smart
Hlutafé Acta-
vis í evrur
9:
;<
$#
$#
8
8
=*
>?
$#
$#
8
8
@@
A/?#"4
$#
%#
8
8
A/?+43%
9
$#
#
8
8
B@*? >"CD"
%#
$#
8
8
$ %&'
(
"%&' )"*+,"- .
/ '
%
() *+, +* 4%
E#!F "G4%
% E4%
# #E< # " <
#" F "G4%
H!3 F "G4%
0F "G4%
F# ' 4%
6%
*G%5
+G& ' 4%
0 ' 4%
/ 4%
/"E4" 4%
# 2H $$ %
'
4%
I 4%
- )./0
*J#4%
F "G4%
BE F "G6" 4%
BE EF "G4%
9K4 4%
A/?H
= L4%
= L #3 4%
M #3 4%
1 00 $# %5 !%
(2.3
6HF 4%
6G 4%
40
#
#
#
6 2
! G#
='" 1" 7
+G
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
M G#1 .
=6
N#4 # 3
! G#
2
2
2
2
2
1 #
!
!
SAMTÖK verslunar og þjónustu
efna til morgunfundar á fimmtudag
um ný tækifæri í íslenskri þjónustu.
Samtökin benda á að árlegur kostn-
aður ríkisins vegna þjónustukaupa
sé 70 milljarðar króna og þar af
kaupi ríkið þjónustu af fyrirtækjum
á almennum markaði fyrir um 16
milljarða. Þar af leiðandi séu 54
milljarðar króna af kökunni ónýttir
möguleikar íslenskra þjónustufyrir-
tækja á að selja ríkinu sína þjónustu.
Benda SVÞ jafnframt á að ríkið
hafi sett sér þau markmið að spara
1.600 milljónir króna á næstu fjórum
árum með útvistun þjónustuverk-
efna.
Í stuttu máli felst útvistunarstefna
í því að með skipulögðum hætti feli
ríkið öðrum þau verkefni sem leiða
til betri þjónustu og meiri hag-
kvæmni í rekstri en nú er. Á þetta
jafnt við um þjónustu sem ríkið
tryggir almenningi og atvinnulífi
sem og þjónustu sem ríkið styðst við
í sínum rekstri.
Fyrirlesarar á morgunfundinum
eru Stefán Jón Friðriksson, við-
skiptafræðingur í fjármálaráðuneyt-
inu, og Sigfún Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Nýsis. Fundurinn er á
Nordica hóteli og hefst kl. 8.30 á
fimmtudaginn.
54 milljarðar króna ónýttir
af þjónustuköku ríkisins
BJÖRN Þorri
Viktorsson, for-
maður Félags
fasteignasala,
segir að mælingar
Fasteignamatsins
hafi ýmist gefið til
kynna hækkanir
eða örlitlar lækk-
anir á verði íbúð-
arhúsnæðis á milli
mánaða. Það sé
auðvitað merki um að markaðurinn
sé að ná jafnvægi.
„Það er mikil hreyfing og mikil eft-
irspurn og góðu heilli hafa bankarnir
verið að koma aftur inn á markaðinn
sem alvöru þátttakendur. Það hefur
auðvitað haft jákvæð áhrif.“
Hann segir að í mati greining-
ardeildar Félags fasteignasala, sem
birt var í lok síðasta mánaðar, sé því
spáð að fasteignaverð muni hækka á
þessu ári nokkuð umfram verð-
lagsþróun.
„Það er gríðarlega ör fólksfjölgun í
landinu sem gerir að verkum að það
vantar íbúðir. Svo ætti fyrirhuguð
lækkun virðisaukaskatts á matvæli
að hafa áhrif á kaupmátt. Við sjáum
því fyrir okkur góða hreyfingu áfram
á fasteignamarkaðinum.“
Mikil
hreyfing á
fasteigna-
markaði
Björn Þorri
Viktorsson
Tryggðu
þér áskrift!