Morgunblaðið - 13.02.2007, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 2007 15
Hugsaðu umheilsuna!
Svalandi,
próteinríkur
og fitulaus
Frískandi, hollur
og léttur drykkur í dós
Gamla góða
Óskajógúrtin
– bara léttari
Silkimjúkt,
próteinríkt
og fitulaust
Fitusnauðar
og mildar ab-vörur
– dagleg neysla stuðlar að bættri
heilsu og vellíðan
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● VELTA í dagvöruverslun var 4,3%
meiri í janúar síðastliðnum en í
sama mánuði í fyrra, miðað við fast
verðlag. Á breytilegu verðlagi var
hækkunin hins vegar 13,2% milli
ára. Sala á áfengi jókst einnig á
milli janúarmánaða 2006 og 2007,
um 5,6% á föstu verðlagi og 10,5%
á breytilegu verðlagi. Þetta kemur
fram í tilkynningu frá Rannsókn-
arsetri verslunarinnar.
Segir í tilkynningunni að velta
dagvöruverslunar hafi aukist nokk-
uð jafnt á milli mánaða að und-
anförnu, að desember und-
anskildum. Ástæðuna megi
væntanlega að nokkru leyti rekja til
verðhækkana.
Dagvöruverslun eykst
● Eignarhalds-
félagið Stofn,
sem að stórum
hluta er í eigu
Boga Pálssonar,
stjórnarformanns
Flögu og fv. for-
stjóra Toyota á
Íslandi, hefur
keypt 178 millj-
ónir hluta í Ex-
ista fyrir um 4,8 milljarða króna.
Eftir kaupin eiga Stofn og tengdir
aðilar ríflega 185 milljónir hluta í
Exista, eða um 1,7% af heildar-
hlutafé.
Félagið Háuklettar, sem er í
eigu Erlendar Hjaltasonar, for-
stjóra Exista, hefur keypt sjö millj-
ónir hluta í Exista með framvirkum
samningi upp á 189 milljónir
króna, með gjalddaga í mars nk.
Kaupir í Exista fyrir
4,8 milljarða
Bogi Pálsson
● POLIMOON, dótturfyrirtæki Pro-
mens, hefur selt og endurleigt þrjár
fasteignir í Noregi og eina í Dan-
mörku til fasteignasjóðs í eigu Orkla
Finans. Heildarfjárhæð viðskiptanna
er 270 milljónir norskra króna og er
söluhagnaður Polimoon 180 millj-
ónir norskra króna fyrir skatta og
endurmat eigna.
Í tilkynningu frá Promens segir, að
jákvæð áhrif viðskiptanna á sjóð-
streymi félagsins sé 240 milljónir
norskra króna að teknu tilliti til
skatta. Leigusamningarnir séu til 15
ára og greiði fyrirtækið samkvæmt
þeim 19 milljónir norskra króna á ári
sem hækka um 2% árlega. Polimoon
á enn 17 fasteignir sem eru rúmlega
140 þúsund fermetrar.
Ragnhildur Geirsdóttir, forstjóri
Promens, segir að samningurinn
sýni það tækifæri sem félagið hafi til
að nýta betur til vaxtar þau verðmæti
sem liggja í Polimoon og auka með
því arðsemi hlutafjár í félaginu.
Dótturfyrirtæki
Promens semur
um sölu fasteigna
SAMKVÆMT fregnum dagblaðsins
The Scotsman frá í gær er Baugur
þátttakandi í yfirtökutilboði skoska
auðjöfursins Sir Toms Hunters á
blóma- og garðyrkjukeðjunni
Blooms of Bressingham, sem er
skráð á markaði. Hljóðar yfirtöku-
tilboðið upp á 30 milljónir punda, eða
nærri fjóra milljarða króna, að því er
heimildir blaðsins herma.
Með Hunter og Baugi í tilboðinu
eru einnig sagðir HBOS og skoskur
fasteignamógull að nafni Nick Les-
lau. Komu sömu fjárfestar að yfir-
töku á verslanakeðjunni Wyevale á
síðasta ári upp á 311 milljónir punda,
eða fyrir rúma 40 milljarða króna, og
hafa verið orðaðir við fleiri verkefni.
Baugur og Tom Hunter hafa oft
áður verið í samstarfi, m.a. í kaupum
á House of Fraser. The Scotsman
segir Sir Tom Hunter vera ríkasta
mann Skotlands og auður hans sé
metinn á 780 milljónir punda, um 103
milljarða króna. Meðal góðra vina
hans er sagður breski milljarðamær-
ingurinn Philip Green, sem keypti á
sínum tíma hlut Baugs í Arcadia.
Baugur í skoskum
blómabúðakaupum
Morgunblaðið/Kristinn
Blómakaup Baugur er orðaður við
yfirtökutilboð í blómakeðjuna
Blooms of Bressingham.
● FJANDSAMLEG yfirtökutilraun
bandaríska verðbréfamarkaðarins
Nasdaq á kauphöllinni í London,
London Stock Exchange (LSE), fór
út um þúfur. Frá þessu er greint í
frétt á fréttavef BBC.
Markaðsvirði LSE samkvæmt yf-
irtökutilboði Nasdaq, sem á um
29% hlut í LSE, er um 2,7 milljarðar
punda. Stjórn LSE lagðist eindregið
gegn tilboði Nasdaq og það virðast
hluthafar einnig hafa gert, því þeir
sem samþykktu yfirtökutilboðið fara
einungis með um 0,4% hlut í LSE.
Í kjölfar þessarar niðurstöðu hefur
LSE tekið upp viðræður við kaup-
höllina í Tókýó í Japan um hugs-
anlegt samstarf kauphallanna
tveggja.
Ekkert verður af yfir-
töku Nasdaq á LSE
● ÚRVALSVÍSITALA aðallista kaup-
hallarinnar, OMX á Íslandi, hækkaði
lítillega í gær, eða um 0,1%, og er
lokagildi hennar 7. 240 stig. Hefur
vísitalan aldrei verið hærri. Mest
hækkun varð í gær á hlutabréfum
Glitnis, en gengi þeirra hækkaði um
1,2%, og þá hækkaði gengi bréfa
Bakkavarar um 1,1%. Hins vegar
lækkaði gengi bréfa 365 hf. um
1,5% og bréfa Alfesca um 1,3%.
Krónan veiktist í gær um 0,35%,
en velta á millibankamarkaði var
ekki mikil, eða um 10 milljarðar.
Gengi dollars er 68,18 krónur, gengi
punds 132,79 krónur og gengi evru
88,36 krónur.
Úrvalsvísitalan í kaup-
höllinni hækkar enn