Morgunblaðið - 13.02.2007, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 2007 21
SUÐURNES
Version 3, 07Feb2007
Ert þú með sveppi á milli tánna?
Við leitum að sjálfboðaliðum á aldrinum 18-75 ára, með sveppasýkingu á milli tánna, til að
taka þátt í klínískri rannsókn á verkun abafungin krems. Rannsóknin hefur fengið leyfi
Vísindasiðanefndar, Persónuverndar og Lyfjastofnunar. Rannsóknin mun fara fram á
rannsóknarsetri Íslenskra lyfjarannsókna - Encode, Krókhálsi 5d, Reykjavík. Aðalrannsakandi er
Bárður Sigurgeirsson, sérfræðingur í húðlækningum.
Megintilgangur rannsóknarinnar er að meta verkun abafungin krems við meðhöndlun sveppasýkingar á milli tánna.
Kremið verður borið saman við lyfleysu (krem sem inniheldur ekkert virkt efni) og annað krem Canesten® sem notað er
við fótsvepp og er nú þegar á markaði.
Um 40-50 einstaklingum með sveppasýkingu á milli tánna verður
boðið að taka þátt í rannsókninni. Rannsóknin tekur yfir 8 vikna
tímabil og er gert ráð fyrir 5 heimsóknum á rannsóknarsetur.
Áhætta af þátttöku felst í mögulegum aukaverkunum af notkun
rannsóknarlyfsins, bæði þekktum og ófyrirséðum. Ekki er tryggt
að þátttakendur fái bata af meðferð með rannsóknarlyfinu en
niðurstöður rannsóknarinnar geta leitt til framfara í meðferð á
sveppasýkingum á milli tánna.
Ef þú hefur áhuga á að fá frekari upplýsingar, vinsamlega hafðu
samband bréflega, með því að senda tölvupóst á
encode@encode.is, eða með því að hringja í hjúkrunarfræðing
rannsóknarinnar í síma 510 9911.
Tekið skal fram að þeir sem svara auglýsingunni hafa á engan
hátt skuldbundið sig til að taka þátt í rannsókninni. Taki þeir
þátt, geta þeir dregið sig út úr rannsókninni hvenær sem er, án
þess að gefa sérstaka ástæðu fyrir ákvörðun sinni.
Þjáist þú af einu eða fleiri af
eftirfarandi einkennum á milli tánna?
Roði?
Sprungur?
Hreistrun?
Kláði?
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
FLUTNINGSMANNVIRKI raforku vegna ál-
vers við Helguvík þurfa að fara um land allra
sveitarfélaganna á Suðurnesjum. Sveitarfélög
sem ekki eiga aðild að sjálfri álversuppbygging-
unni virðast geta stöðvað framkvæmdina.
Landsnet sem annast flutning raforkunnar í
Helguvík frá væntanlegum virkjunum Hita-
veitu Suðurnesja og Orkuveitu Reykjavíkur
vinnur að undirbúningi umhverfismats vegna
flutningslína. Sagt var frá hugmyndum þeirra
um lagningu tvöfaldrar háspennulínu vestur
fyrir Keflavíkurflugvöll hér í blaðinu sl. föstu-
dag og höfnun Sandgerðisbæjar á þeim.
Hugmyndir um nýja línu
Þórður Guðmundsson, framkvæmdastjóri
Landsnets, segir að það valdi erfiðleikum við
þennan undirbúning að ekki sé vitað fyrir víst
hvar á Suðurnesjum verði virkjað, í hvaða röð
og hvað virkjanirnar verði stórar. Fyrirtækið
hefur kynnt fyrir sveitarfélögunum vissar hug-
myndir sem starfsmenn þess setja þó mikla fyr-
irvara við vegna óvissunnar.
Ef virkjað verður á háhitasvæðunum í Trölla-
dyngju, Sandfelli og Seltúni er gert ráð fyrir því
sem fyrsta kosti að lögð sé 220 kílóvolta lína frá
spennistöðinni á Rauðamel, suður fyrir Keili og
að Trölladyngju og þaðan í nýja spennistöð við
álverið í Straumsvík. Jafnframt verði ný 220 kV
lína lögð við hliðina á núverandi Suðurnesjalínu
sem liggur meðfram Reykjanesbrautinni, frá
Fitjum í Hafnarfjörð. Þá er gert ráð fyrir því að
virkjanirnar við Sandfell og Seltún verði tengd-
ar við Trölladyngju með jarðstrengjum með
minni spennu til að draga úr röskun í Reykja-
nesfólkvangi. Loks þarf að tvöfalda línuna frá
Rauðamel til Reykjanesvirkjunar og flytja
orkuna frá Rauðamel til Helguvíkur.
Heildarkostnaður við flutningsmannvirki raf-
orku vegna álversins í Helguvík er áætlaður af
stærðargráðunni 10 milljarðar kr.
Starfsmenn Landsnets hafa einnig sett niður
á blað hugmynd um annan valkost. Það er að
tengja Trölladyngju og nálægar virkjanir með
línum beint niður á Suðurnesjalínu sem þá
þyrfti að þrefalda. Það segir Þórður að sé mun
dýrari kostur og ekki eins góður tæknilega.
Með honum þurfi að setja upp fleiri háspennu-
möstur vegna þess að tengja þurfi Tröllatungu í
báðar áttir. Hugsanlegt er að hægt verði að
fjarlægja núverandi Suðurnesjalínu þegar tvær
220 kV línur verða komnar.
Fagna afstöðu Sandgerðisbæjar
„Landvernd fagnar af heilum hug ákvörðun
Sandgerðisbæjar um að hafna þessari línu um
land bæjarins. Að sama skapi hljóta önnur
sveitarfélög, ég vísa sérstaklega til Voga og
Grindavíkurbæjar, að standa vörð um sína
hagsmuni og hafna þessum línum,“ segir Berg-
ur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Land-
verndar, þegar álits hans var leitað á hug-
myndum Landsnets. Hann bætir því við að
öllum áformum um orkuflutninga úr Seltúni í
hendingaröryggi álver afar miklu máli. Slík fyr-
irtæki þoli ekki nema nokkurra klukkutíma
straumrof og gríðarlegir hagsmunir séu í húfi.
Þannig öryggi sé ekki unnt að tryggja nema
með loftlínum. Það taki nokkra daga og upp
undir hálfan mánuð að finna bilanir og gera við
jarðstreng og vikur eða mánuði að finna bilanir
og gera við sæstreng.
Þórður bætir því við að hvergi í heiminum
hafi verið farið út á þá braut að leggja flutnings-
kerfi alfarið í jörðu eins og kröfur hafi komið um
hér. Nefnir hann sem dæmi að mikil umræða
hafi farið fram um þetta í norska Stórþinginu á
árinu 2000 og niðurstaðan orðið sú að halda
áfram með loftlínur, nema þar sem mjög sér-
stakar aðstæður krefðust annars. Þórður segir
að miklu muni á kostnaði, þannig sé jarð-
strengur almennt 8 til 9 sinnum dýrari en há-
spennulína á möstrum og auk þess sé spennu-
stýring mun erfiðari á jarðstreng, sérstaklega í
spennuhærri línum.
Spurður um lausn veltir Þórður því fyrir sér
hvort unnt sé að draga úr umfangi línunnar í
Sandgerðisbæ, til dæmis með því að hafa hana
einfalda og fara aðra leið með hinn strenginn.
Með því mætti ef til vill tryggja lágmarks af-
hendingaröryggi fyrir álverið. En ef Sandgerð-
isbær leggist gegn allri línulögn í sínu landi
verði að ræða við orkukaupandann, Norðurál,
um það hvort hann geti sætt sig við aðra lausn.
mundsson segir að rætt verði við fulltrúa Sand-
gerðisbæjar og annarra sveitarfélaga til að
reyna að finna lausn á málinu. Landsnet mun
áfram leggja áherslu á að útvega álverinu teng-
ingu með loftlínu. Að sögn Þórðar skiptir af-
Trölladyngju fylgi óhjákvæmilega verulegt rask
á stórbrotinni náttúru og skilji eftir ör í hjarta
Reykjanesfólkvangs.
Landsnet hefur kynnt hugmyndir sínar
óformlega fyrir bæjarstjórum og þeim sem
vinna að skipulagsmálum í sveitarfélögunum.
Bæjarstjórnir Voga og Grindavíkurbæjar hafa
ekki fengið formlegt erindi frá Landsneti og því
ekki tekið málið fyrir, að sögn bæjarstjóranna.
Spurður um persónulega afstöðu sína segir Ró-
bert Reynisson, bæjarstjóri í Vogum, að hann
telji það sjónmengun ef ný lína á háum möstrum
komi meðfram Reykjanesbrautinni því hún
skyggi meðal annars á útsýnið til Keilis.
Reykjanesbær og Sveitarfélagið Garður eru
að ganga frá skipulagi álverslóðar við Helguvík,
á mörkum sveitarfélaganna, þar sem meðal
annars er gert ráð fyrir þeirri loftlínu sem
Sandgerðisbær hefur hafnað. Minnihlutinn í
bæjarstjórn Garðs benti á þann ókost að lagðar
verði háspennulínur með tilheyrandi möstrum
þvert yfir Mánagrund sem er hesthúsasvæði
Keflvíkinga. Samþykkti minnihlutinn skipulagið
í trausti þess að betri kostur yrði fyrir valinu.
Áfram lögð áhersla á loftlínu
Um leið og bæjarstjórn Sandgerðisbæjar
hafnaði hugmyndum Landsnets um loftlínu
vestur og norður fyrir Keflavíkurflugvöll óskaði
hún eftir viðræðum við fyrirtækið. Þórður Guð-
Aðeins loftlínur sagðar tryggja
fullt afhendingaröryggi fyrir álver
Í HNOTSKURN
» Landsnet vinnur með tvær hug-myndir um tengingu virkjana á
Suðurnesjum og álvers í Helguvík
við raforkukerfi landsins.
» Fyrsti kosturinn er tvöföldunSuðurnesjalínu og önnur lína
með fjöllunum sem tengi Trölla-
dyngju við Reykjanes og Hafn-
arfjörð.
» Annar valkostur gerir ráð fyrirþreföldun Suðurnesjalínu og til
viðbótar tvöfaldri línu stystu leið úr
Trölladyngju.
» Nýjar línur munu fara um öllsveitarfélögin á Suðurnesjum og
er framkvæmdin háð samþykki
þeirra.
» Landvernd hvetur sveitarfélögintil að hafna línulögnum.
1 .
:
+
$ '
1&!
#%
5 6* 7
08
H$.
=
=
F
!"#
: +0*02/1:
O L 'P
5 +
F"%!3
*
!
"
#
!
$%
!
+ * #3
260+
+
2
$%
&
%'
3
3 * !
9+
"%!3
4 -(!
*5
1
4
)
.
< .
'
'"4
)
46 2,
(+0
2, + $<" ""# >## (+0 + $<" ""# >## (+060 $<" ""# 1
2,
(+0
/ * +0 +
""# ?*)
TVEIR fundir verða haldnir á Suð-
urnesjum í dag og á morgun um ál-
ver í Helguvík, virkjanir og há-
spennulínur.
Samtökin Sól á Suðurnesjum, sem
meðal annars berjast fyrir atkvæða-
greiðslu um álverið, efna til fundar í
Saltfisksetrinu í Grindavík í kvöld
kl. 20. Samtökin kynna starfsemi
sína. Þá mun Bergur Sigurðsson,
framkvæmdastjóri Landverndar,
segja frá umhverfisáhrifum álvers
og Börkur Karlsson leiðsögumaður
fjalla um útivist á Reykjanesskag-
anum.
Ungir jafnaðarmenn halda opinn
fund um álverið á veitingastaðnum
Ránni í Keflavík kl. 20.30 á morgun,
miðvikudag. Tilgangurinn er að
hvetja til opinnar og almennrar um-
ræðu um fyrirhugað álver í Helgu-
vík.
Ragnar Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri hjá Norðuráli, kynnir
fyrirhugað álver, Bergur Sigurðs-
son frá Landvernd segir frá um-
hverfisáhrifum þess og Guðný
Hrund Karlsdóttir, frambjóðandi
Samfylkingarinnar í Suður-
kjördæmi, segir frá stefnu Samfylk-
ingarinnar, Fagra Ísland.
Suðurnesjamenn
keppa við Íra
HNEFALEIKAFÉLAG Reykjaness
tekur á móti hópi frá hnefaleika-
félagi í Dublin á Írlandi næstkom-
andi laugardag. Keppt er í nýju
hnefaleikahöllinni í Reykjanesbæ
þar sem menn munu skiptast á
höggum fram eftir kvöldi, segir í
fréttatilkynningu frá félaginu.
Fjöldi bardaga mun fara fram að
deginum á unglingamóti og byrjar
keppnin klukkan 14. Frítt er inn á
unglingakeppnina og allir velkomn-
ir. Klukkan 20 hefst svo hnefa-
leikakvöld þar sem kraftmiklir box-
arar takast á.
Nýja hnefaleikahöllin sem nefnd
er Boxhöllin í Reykjanesbæ er kynnt
almenningi á þessum degi. Hún er í
gömlu sundhöllinni í Keflavík.
Forsala á hnefaleikakvöldið er á
Kaffi Duus.
Tveir fundir
um álver