Morgunblaðið - 13.02.2007, Síða 22
Sjálf segist hún þó ekki geta var-
ist þeirri hugsun að hún eigi eftir að
gefa þeim nýfædda eitthvað nýtt.
„Mér finnst það svolítið erfitt. Hins
vegar á ég fullt af garni og hef alltaf
ætlað mér að prjóna á litla barnið.
Það sýnir kannski í hnotskurn að
það krefst meiri fyrirhyggju að gefa
gjafir án þess að kaupa nýja hluti
því þá er ekki hægt að hlaupa út í
næstu búð á síðustu stundu.“
Á bloggsíðu hópsins má lesa um
hvernig átakið hefur gengið. Þótt
engin meiriháttar vandræði hafi
skapast hefur hópurinn þó þurft að
hyggja að einu og öðru, eins og t.d.
hvernig bjarga á lykkjuföllum á
nælonsokkabuxum eða rifum á
ballkjólum þegar árshátíð stendur
fyrir dyrum, hvernig nauðsyn brýt-
ur lög þegar tíundubekkingurinn er
á leiðinni í stærðfræðipróf og vas-
areiknirinn er týndur eða hvernig
hægt er að sauma innkaupapoka úr
gömlum gardínum til að komast hjá
plastpokakaupum í matvörubúðinni.
Hvað sem öðru líður hefur átakið
hrint af stað fjörugum umhverf-
isumræðum á kennarastofunni í
Laugarnesskóla og jafnvel víðar því
tveir utan skólans hafa bæst í hóp-
inn frá því á bóndadag. Og öllum er
frjálst að bætast í lestina að sögn
þeirra Rúnu Bjargar og Helenar.
„Reyndar hafa margir sagt okkur að
þeir hafi ekkert keypt þennan tíma
eða dregið verulega úr innkaupum
þótt þeir séu ekki „opinberlega“
með. Þannig að kannski erum við
miklu fleiri en við höldum.“
V
ið erum búin að vera að
ræða á kennarastofunni
hvers vegna við sitjum
alltaf uppi með alla
þessa hluti,“ segir Hel-
en Símonardóttir, ein þrettán kenn-
ara við Laugarnesskóla sem hófu
átakið „Þreyjum þorrann og góuna“
á bóndadag. Hópurinn hefur strengt
þess heit að kaupa enga hluti aðra
en mat, hreinlætisvörur, lyf og ör-
yggisvörur þessa tvo mánuði. Sam-
kennari Helenar, Rúna Björg Garð-
arsdóttir, útskýrir að hugmyndin
hafi komið frá Compact-hópnum
svokallaða í Bandaríkjunum sem
keypti ekkert annað en ofantalið í
heilt ár eins og frægt er orðið.
Þær segja tveggja mánaða tak-
markið hafa ráðist af tilviljun. „Við
ákváðum þetta rétt fyrir bóndadag
og fannst góð hugmynd að þreyja
þorrann og góuna. Það er líka hæfi-
lega langur tími en svo kemur í ljós
hvort við hættum í átakinu eða höld-
um áfram með þetta sem lífsstíl.“
Þær vísa því á bug að kennarar í
Laugarnesskóla séu nægjusamari
en aðrir. „Ég held að við séum
ósköp venjulegt fólk sem er ekki
með kaupæði en ekkert sérstaklega
sparsamt heldur,“ segir Helen.
Rúna Björg kinkar kolli. „Einn vin-
ur minn vildi meina að við værum
góðærishippar. Enginn gerir þetta
nema sá sem á allt af öllu.“
Ósjálfráð viðbrögð að kaupa
Þótt nýir hlutir séu bannvara
þessa tvo mánuði gildir annað um
notaða hluti. „Við erum búin að
kíkja í Góða hirðinn og ég fór í
Fríðu frænku á dögunum. Það eru
margar fínar búðir sem selja notaða
hluti,“ segir Rúna Björg. Aðspurðar
segja þær erfitt að segja hversu
lengi væri hægt að halda svona átak
út. „Sennilega er þó hægt að komast
ansi langt ef maður má kaupa hluti
til að laga eldri hluti með, s.s. stop-
pugarn eða bætur á buxur,“ segir
Helen og vísar í bloggsíðu Compact-
hópsins þar sem bætur voru flokk-
aðar með nýjum hlutum. „En í raun
held ég að þetta snúist frekar um að
hugsa og forgangsraða áður en hlut-
irnir eru keyptir,“ bætir Rúna
Björg við.
Að mati þeirra stallna er hug-
arfarið grundvallaratriði. „Þetta
gengur ekki bara út á að kaupa ekk-
ert,“ segir Rúna Björg. „Við erum
að draga úr eftirspurn með þessu.
Það er stöðugt verið að ganga á auð-
lindir jarðar með því að framleiða
hluti sem við þurfum kannski ekki á
að halda. Fyrir mig skiptir mestu
máli að hugsa þetta svolítið hnatt-
rænt.“
„Svo sakar það ekki ef þetta fer
að hafa jákvæð áhrif á budduna
manns,“ segir Helen. „Besta tilfinn-
ingin er þó að vera laus við að finn-
ast ég þurfa að kaupa eitthvað. Að
fletta ekki lengur bæklingum þegar
þeir koma til að sjá hvort mann
vanti eitthvað eða finnast maður
verða að fara á skipulagsdaga í
Ikea því þeir séu núna.“
Rúna grípur orðið. „Það var dá-
lítið merkilegt í byrjun að það að
fara út að kaupa eru ósjálfráð við-
brögð. Hvað tilfinningin að kom-
ast í einhverja verslun er uppá-
Morgunblaðið/Sverrir
Léttir að vera laus við innkaup
Hátt í fjórar vikur eru
síðan hópur kennara
við Laugarnesskóla
ákvað að kaupa enga
nýja hluti í tvo mánuði.
Bergþóra Njála
Guðmundsdóttir
hleraði hvernig gengi
að þreyja þorrann
og góuna.
Leikhúsmiðar
Tíu ára barn hef-
ur kannski
miklu meira
gaman af
leiksýningu
en nýjum
flatskjá fyr-
ir Barbí.
„Einn vinur minn vildi
meina að við værum
góðærishippar.“
Nægjusöm Ellefu af þeim þrettán kennurum í Laugarnesskóla sem þreyja Þorrann og Góuna með því að sneiða hjá að kaupa allan óþarfa.
þrengjandi. Og uppgötva svo að það
er ekkert í henni sem mann vantar
því maður á allt. Svo fór ég að hugsa
um allt sem ég hef efni á að gera í
staðinn, fara oftar í bíó og á kaffihús
og njóta lífsins meira.“
Poki úr gömlum gardínum
Þar með er ekki sagt að hópurinn
hafi ekki rekist á hindranir. „Mér
finnst gjafamálin erfiðust,“ við-
urkennir Helen sem m.a. hefur gefið
ungri frænku sinni leikhúsferð í af-
mælisgjöf og í öðrum pakka frá
henni leyndist gjafabréf í nudd.
Mestu vandræðin fylgdu þó því að
finna viðeigandi gjöf fyrir nýfæddan
snáða. „Það endaði með því að ég
leyfði þriggja ára syni mínum að
velja leikföng úr gamla dótinu sínu
til að færa þeim litla. Hann hefur
aldrei verið eins ánægður að gefa
nokkra gjöf enda var hann að gefa
meira af sjálfum sér en venjulega.“Morgunblaðið/Ómar
http://thorrioggoa.blogspot.com
Bækur Rúna Björg og Helen segja einhverja í hópnum eiga erfitt með að sneiða hjá bókaútsölunum.
ben@mbl.is
daglegtlíf
Andrea Björk Pétursdóttir er
ellefu ára ballettdansmær sem
æfir hjá Klassíska listdansskól-
anum. » 25
tómstundir
Þegar Guðrún Dögg Guðmunds-
dóttir var á ferðalagi um eyjuna
Lamu keypti hún forláta stól
sem hún tók með heim. » 24
uppáhald
Ralph Lauren er þekktur fyrir
klassískan stíl. Sýning hans á
haust- og vetrartísku fór ný-
lega fram í New York. » 24
tíska
ÞESSI níu mánaða
hvolpur tók þátt í
sýningunni Gæludýr
í blóma um helgina
en hún er hluti af
mikilli blómasýningu
sem stendur í heilan
mánuð í Baguio sem
er rétt fyrir norðan
Manila á Filipps-
eyjum.
Sólskins-
hundur
Reuters
|þriðjudagur|13. 2. 2007| mbl.is