Morgunblaðið - 13.02.2007, Qupperneq 23
úr bæjarlífinu
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 2007 23
Sýningin „Mýramaðurinn“ í flutningi og túlkun
Gísla Einarssonar er sýnd á fimmtudags- og
sunnudagskvöldum í Landnámssetrinu. Upp-
selt hefur verið á allar sýningar hingað til og
stemning góð enda tilgangurinn fyrst og fremst
að skemmta fólki. „Áhorfendur koma víða að og
eru ekki endilega tengdir Mýrunum,“ segir
Gísli. Fréttaritari hvetur þá sem hafa gaman af
góðri skemmtun og eru í leit að sjálfum sér að
koma og upplifa Mýramanninn sem ku víst búa í
okkur öllum.
Fyrsti fræðslufundur Margmenningarfélags
Borgarfjarðar var haldinn sl. sunnudag. Þá
kom Theodór Kr. Þórðarson, yfirlögregluþjónn
í Borgarnesi, á opið hús í Safnahúsinu og hélt
fræðandi fyrirlestur um íslensk lög og reglur
fyrir erlenda íbúa. „Teddi lögga“ sagði frá um-
dæmi lögreglunnar, ræddi umferðarreglur,
punktakerfi og sektir o.fl. Hann svaraði einnig
fyrirspurnum um það sem fólki lá á hjarta.
Menn vildu t.d. vita hvort væri nauðsynlegt að
hafa íslenskt ökuskírteini og hverjar væru
sektir fyrir hrað- og ölvunarakstur. Vel var
mætt á fundinn og hefur komið í ljós að full þörf
er fyrir opið hús eins og hefur verið alla sunnu-
daga fyrir erlenda íbúa í Borgarbyggð. Nú
liggur fyrir að formleg dagskrá verður annan
hvern sunnudag til vors, en fólki er einnig
frjálst að koma með íslenskunámið sitt eða önn-
ur erindi og fá hjálp hjá Íslendingum sem
þarna eru til staðar.
Þjár helgar af sjö eru búnar af Menntasmiðju
kvenna sem haldin er á Varmalandi, en þetta er
í fjórða sinn sem menntasmiðja fyrir konur er
haldin á Vesturlandi. Fimmtán konur taka þátt í
henni og eru þær úr þremur sveitarfélögum;
Borgarbyggð, Eyja- og Miklaholtshreppi og
Reykhólahreppi. Að verkefninu stendur Sí-
menntunarmiðstöðin á Vesturlandi. Uppbygg-
ing náms í menntasmiðju er með öðrum hætti en
í hinu hefðbundna skólakerfi. Námið er mjög
einstaklingsmiðað og sniðið að þörfum nemand-
ans. Í menntasmiðjunni skapast „hlutlaus“ vett-
vangur fyrir konur á öllum aldri þar sem þær
geta skipst á skoðunum, miðlað af reynslu sinni
og dregið lærdóm af reynslu annarra. Ýmsar
greinar eru kenndar í menntasmiðjunum s.s.
lífsleikni, listgreinar, viðskiptagreinar, tungu-
mál, heilbrigðisgreinar, frumkvöðlafræði, tölvu-
greinar og almenn tómstundanámskeið. Lögð er
áhersla á skapandi og hagnýtt nám og ekki síður
að nemandinn öðlist meira sjálfstraust og þor til
að takast á við fjölbreytt verkefni í lífi og starfi.
Vægi greinanna er mismunandi því reynt er að
mæta þörfum og óskum hvers og eins nemanda.
Opið hús Teddi lögga afhendir endurskins-
merki og loftmæla á fyrsta fræðslufundi
Margmenningarfélags Borgarfjarðar.
BORGARNES
Guðrún Vala Elísdóttir fréttaritari
Friðþjófur Torfason hringdi ogvildi leiðrétta skarfavísu sem
birtist í blaðinu um helgina. Í bók
Sigfúsar Blöndal er höfundur að
skarfavísunni Björn, kallaður
daskur, ættaður af Vestfjörðum. Og
vísan er svona:
Margur ágirnist meir en þarf –
maðurinn fór að veiða skarf,
og hafði fengið fjóra,
elti þann fimmta – og í því hvarf
ofan fyrir bjargið stóra.
Kristján Eiríksson yrkir
skarfavísu undir hættinum aukin
samhenda, þar sem einu atkvæði er
aukið í hverja línu vísunnar. Það
stílbragð að endurtaka síðasta orð
línu í upphafi þeirrar næstu mætti
kalla dynklifun, en Snorri kallar
vísur sem svo eru kveðnar
dunhendar:
Margur þekkir víst skrýtinn skarf,
skarf sem ágirnist meira en þarf,
þarf sá að vinna stuldar starf,
starf sem að hlaut í lyndisarf.
Vasarnir tómir seinast samt,
samt því að dauðinn skiptir jafnt,
jafnt hlýtur hver og skorinn skammt
skammt þegar hættir lífsins mjamt.
Hjálmar Freysteinsson trúir
auðvitað því sem stendur í
auglýsingum:
Nú er ég á grænni grein
gleðst við leik og starf,
vandamálin varla nein,
„vísa er allt sem þarf.“
VÍSNAHORNIÐ
Af skarfi og
auglýsingu
pebl@mbl.is
Rakarastofan
Klapparstíg
S: 551 3010
Hair play frá
Rakarastofan
Klapparstíg
Skólavörðustíg 21, Reykjavík
sími 551 4050
Glæsileg
brúðarrúmföt
í úrvali