Morgunblaðið - 13.02.2007, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 2007 27
sérstakri fjáröflun, að við gerum ráð fyrir að veg-
urinn austur fyrir fjall verði tvöfaldaður. Einnig
verði vegurinn upp úr Mosfellsbæ sömuleiðis
[tvöfaldaður] og uppi á Kjalarnesi frá Sunda-
brautarmörkunum, þannig að vegurinn um Kjal-
arnes upp að jarðgöngum og upp í Borgarnes
verði í tímans rás tvöfaldaður með sama hætti og
vegurinn til Selfoss,“ svaraði hann.
Samgönguráðherra segir einnig að á árunum
2008–2010 verði ráðist í miklar framkvæmdir við
breikkun og endurbyggingu þeirra kafla á hring-
veginum milli Borgarness og Akureyrar sem eru
ekki fullbyggðir. Það verkefni er talið kosta um
fjóra milljarða kr. Auk þessa verði svo fjármunir
til fáfarnari vega (tengivega) nær tvöfaldaðir
strax á næsta ári.
Um 66 milljarðar fara í rekstrargjöld vega-
mála að því er segir í samgönguáætlun og er
meirihlutinn þjónusta á vegakerfinu, sem fer sí-
vaxandi. Þá fara rúmir 52 milljarðar króna í við-
hald vegakerfisins.
Á klukkustund til og frá þjónustukjarna
Lögð er fram stefnumótun sem miðar m.a. að
nægum hreyfanleika fyrir fólk og flutninga á öll-
um sviðum samgöngukerfisins. Skal ná því með
bættu aðgengi að samgöngum og aukinni af-
kastagetu kerfisins þar sem hún er takmörkuð.
Skulu flestir landsmenn eiga kost á að komast til
og frá þjónustukjarna á klukkustund eða minna
og til höfuðborgarsvæðsins og frá því á innan við
þriggja klukkustunda ferðatíma. Áður var miðað
við þrjá og hálfan tíma.
„Stefnt er að aukinni hagkvæmni í uppbygg-
ingu samgöngumannvirkja, leiðsögukerfa og ör-
yggisþjónustu. Nýttir verði kostir markaðsafla
við uppbyggingu og rekstur samgöngukerfisins
þar sem það á við. Rekstur þar sem ríkið kemur
að verði jafnan boðinn út. Komið verði á breyttri
skipan gjaldtöku sem miði að því að ökutæki
greiði fyrir ekna vegalengd og núverandi kerfi
sérstakra eldsneytisskatta verði lagt niður,“ seg-
ir í samantekt um helstu áherslur áætlunarinnar.
Stefna á að sjálfbærum samgöngum með því að
nýta ekki endurnýjanlegar auðlindir hraðar en
endurnýjun þeirra leyfir og að ekki verði gengið
hraðar á óendurnýjanlegar auðlindir en svo að
mögulegt sé að þróa og skipta yfir í endurnýj-
anlegar auðlindir. Til að ná því markmiði á að
stuðla að nýtingu umhverfisvænna orkugjafa.
Notkun vistvæns eldsneytis verði um 20% af
heildarnotkun við lok áætlunartímabilsins, skatt-
lagning eignarhalds og notkunar verði þannig að
sparneytnir bílar, tvinnbílar og þeir sem nota
vistvænt eldsneyti, verði fýsilegri kostur en nú.
ur fari í samgöngumál
/ + .*
4 6
90. 5 +
5*
*
B*
6* C
9 6* A 6*0 5,+
9 4C 6* *
$%$$#&#' D6,C E 0
2C0 E6*
9
.!6 0 2;
8 60 9+ 0
$%% 4 +0
<% 40 0*
$%% 90 6* F# 5 60 6
$$ G
> 9+ ; 9 % 40 0*
080"##H 8
5 / > 60+
"##J "#$#
5
90 4
K* ..(6*
,"#$$;"#$>
5 60 6
0 ,"##J
06* "##I;"#$#
2060*
0 ,"##I
Í HNOTSKURN
»Stefnt er að gerð eftirfarandi jarð-ganga á næstu árum: Héðinsfjarð-
argöng, Óshlíðargöng, Arnarfjörður –
Dýrafjörður, Norðfjarðargöng, Lónsheið-
argöng og Vaðlaheiðargöng.
»Framkvæmdir í vegamálum til 2010skiptast þannig að varið verður 37
milljörðum til verkefna á höfuðborg-
arsvæðinu og 80 milljörðum á landsbyggð-
inni.
»Á árunum 2011–2018 verður alls varið217 milljörðum til vegamála sam-
kvæmt samgönguáætluninni.
»Ráðast á í stórfellda uppbyggingu að-alvega út frá Reykjavík og gera á átak
til að koma burðarþoli aðalleiða í við-
unandi horf.
»Fjárframlög til tengivega verða nærtvöfölduð á ári frá árinu 2008.
»Unnið verði að tvennum jarðgöngum áhverju ári frá 2008.
» Í samgönguáætlun er sett það mark-mið að útrýma einbreiðum brúm á fjöl-
farnari vegum.
» Lengja á flugbrautina á Akureyr-arflugvelli um 460 metra á árunum
2008–2009.
»Verja á 15 milljörðum af söluandvirðiSímans til framkvæmda á næstu árum.
»Hringvegurinn mun styttast um 11 kmvegna framkvæmda við breytta legu
þjóðvegar og nýja brú yfir Hornafjarð-
arfljót.
»Lagt er til að gerð verði mislæg gatna-mót á mótum Kringlumýrarbrautar og
Miklubrautar á fyrsta og öðru tímabili
vegaáætlunar og hafist verði handa við
framkvæmdir árið 2009.
»Ljúka á breikkun Reykjanesbrautar ífjórar akreinar að Krísuvíkurvegi fyr-
ir 2011 og á þriðja tímabili samgönguáætl-
unar verði unnið að frekari breikkunum
og gerð undirganga.
»Á tímabilinu fram til 2010 verði gerðmislæg gatnamót við Bústaðaveg, Arn-
arnesveg, Vífilsstaðaveg og Krísuvík-
urveg.
»Gerð er tillaga um að næsti áfangi viðSuðurstrandarveg sem tekinn verður
fyrir verði vegarkaflinn milli Þorláks-
hafnar og Selvogs.
» Á Norðausturlandi á m.a. að vinna aðendurbótum á gatnamótum á Ak-
ureyri, ljúka gerð vegar um Skjöldólfs-
staðafjall, sem er síðasti malarkaflinn
milli Akureyrar og Egilsstaða, og halda
áfram endurbyggingu vegarins um Skrið-
dal.
»Endurbyggja á Álftanesveg frá Hafn-arfjarðarvegi að Bessastaðavegi á ár-
unum 2007–2008.
»Lagt er til að ný brú verði byggð áJökulsá á Fjöllum á tímabilinu 2011–
2014.
»Lagt er til að ný brú yfir Lagarfljótmilli Fellabæjar og Egilsstaða verði
byggð á árunum 2011–2014.
» Flugbrautin á Akureyrarflugvelliverður lengd um 460 metra til suðurs á
árunum 2008 og 2009 til að mæta þörfum
flugvéla sem þurfa fulllestaðar að fara í
flugtak til norðurs í meðvindi.
»Hugmyndir eru uppi um nýtt inn-heimtukerfi í stað núverandi skatt-
lagningar á eldsneyti og hefur Vegagerð-
in látið þróa miðlægan stjórnbúnað til að
ná sjálfvirkt í gögn um eknar vegalengdir
úr farartækjum.
» Í umhverfismati sem fylgir samgöngu-áætlun er vikið að hálendisvegum og
segir þar að uppbygging þeirra kunni að
hafa veruleg og neikvæð áhrif á víðerni,
landslag og ímynd hálendisins. Skort hafi
á samræmda stefnu stjórnvalda við land-
notkun á þessu svæði.
»Áfram verður haldið við hafn-arframkvæmdir á Húsavík. Lokið
verður við þekju og lagnir á Bökugarði og
Suðurgarður verður endurbyggður um
alls 210 metra á tímabilinu 2007–2010.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörns
Áætlun kynnt Sturla Böðvarsson samgönguráðherra kynnti nýja samgönguáætlun á frétta-
mannafundi í húsnæði Vegagerðarinnar á Ísafirði í gær. Meðal þess sem fram kom er að gert er
ráð fyrir að Bolungarvíkurgöngum verði lokið árið 2010.
GERÐ ferjuhafnar á Bakkafjöru og smíði nýrrar Vestmannaeyjaferju er ráðgerð í samgöngu-
áætlun fyrir árin 2007–2018. Heildarkostnaður er áætlaður 4,9 milljarðar króna. „Gert er ráð
fyrir að byggðir verði tveir 600 m langir brimvarnargarðar út frá Bakkafjöru, grafið verði út frá
skipalægi innan garðanna og byggður þar 65 m langur viðlegukantur ásamt ekjubrú. Í verkinu
felst einnig að byggja upp fyrirstöðugarða meðfram Markarfljóti, rúmlega 3 km vegur frá
Bakkaflugvelli að ferjuhöfninni og jarðvegsmanir og uppgræðsla til varnar sandfoki,“ segir í
hinni nýju samgönguáætlun. Þá kemur fram að áætlun um nýtt skip miðist við smíði bíla- og far-
þegaferju sem yrði um 60 metra löng og allr að 15 metra breið. Hún geti flutt um 250 farþega í
hverri ferð og 45 til 50 bíla. Siglingatími milli lands og Eyja verður um 35 mínútur.
2+1-vegurinn í Svínahrauni almennt talinn of mjór
Í samgönguáætluninni, sem nær til næstu fjögurra ára, segir að góð reynsla sé af svonefndum
2+1-vegi, sem lagður hafi verið hérlendis í Svínahrauni. Þó sé almennt talið að hann sé of mjór,
en hann sé gerður samkvæmt sænskum vegstaðli. Stefnt sé að því að nýir vegir af þessari gerð
verði allt að 1,5 m breiðari en sænska þversniðið.
Fram kemur að mjög víða í Evrópu hafi verið byggðir svokallaðir 2+1-vegir með mjög góðum
árangri. Þess konar vegir séu þannig, að akreinin í miðju sé notuð til framúraksturs, þannig að
til skiptis séu kaflar með tveimur akreinum í aðra áttina og tveimur akreinum í gagnstæða átt.
Megintilgangur með því að breyta hefðbundnum tveggja akreina vegum í 2+1-vegi sé að auka
umferðarrýmd og umferðaröryggi. Framúrakstur sé auðveldari og hættuminni á 2+1-vegum en
hefðbundnum vegum. Miklu skipti að vegriði sé komið fyrir til að aðskilja akstursstefnur svo um-
ferðaröryggi verði sem mest. Þá segir að full ástæða sé til að halda áfram að skoða hagkvæmni
og tæknilegar útfærslur á 2+1-vegum á Íslandi.
Ferjuhöfn og ferja 4,9 milljarðar