Morgunblaðið - 13.02.2007, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 2007 33
✝ Högni Jónssonfæddist í
Reykjavík 2. júlí
1921. Hann lést á
heimili sínu mið-
vikudaginn 31. jan-
úar síðastliðinn.
Foreldrar hans
voru Jón Högnason,
f. í Eystri-
Sólheimum í Mýr-
dal 13. febrúar
1891, d. 1. maí 1989
og Stefanía Vilborg
Grímsdóttir, f. á
Nikhól í Mýrdal 20.
ágúst 1889, d. 16. febrúar 1942.
Högni kvæntist 6. janúar 1950
Árnýju Guðmundsdóttur, f. á Sæ-
bóli á Ingjaldssandi 31. desember
Jón V., f. 10. júní 1952, kvæntur
Þórunni E. Baldvinsdóttur, f. 16.
maí 1951. Börn þeirra eru Guðný
Steinunn, f. 17. nóvember 1974,
gift Arnari Hallssyni, f. 28. sept-
ember 1972, börn þeirra eru Val-
dís Birta, f. 3. ágúst 1993 og
Hilmir Vilberg, f. 31. október
2002, b) Högni Baldvin, f. 12.
október 1979, í sambúð með Birg-
ittu Bjarnadóttur, f. 24. nóvember
1979, og c) Þorsteinn Baldvin, f.
7. janúar 1993. 3) Gunnar, f. 18.
desember 1957. 4) Sveinbjörn, f.
26. maí 1960, kvæntur Sigríði
Jónsdóttur, f. 17. janúar 1966,
börn þeirra eru Íris Ósk Ingadótt-
ir, f. 2. október 1988, Reynir Við-
ar Ingason, f. 9. september 1990,
og Árný Stella Sveinbjörnsdóttir,
f. 16. maí 2000.
Útför Högna verður gerð frá
Neskirkju við Hagatorg í dag og
hefst athöfnin klukkan 13.
1924, d. á Landspít-
alanum í Fossvogi
11. desember síðast-
liðinn. Foreldrar
hennar voru Guð-
mundur Guðmunds-
son frá Sæbóli á
Ingjaldssandi, f. á
Kleifum í Seyðisfirði
við Djúp 12. febrúar
1889, d. 15. október
1969 og Ingibjörg
Guðmundsdóttir, f. á
Arnarstapa á Snæ-
fellsnesi 15. desem-
ber 1890, d. 22. sept-
ember 1965. Árný var fimmta í
röðinni af átta systkinum. Börn
Högna og Árnýjar eru: 1) Vilborg,
f. 1. júlí 1950, d. 23. apríl 1951. 2)
Hann Högni tengdafaðir minn er
nú skyndilega horfinn úr þessari
jarðvist, rúmlega áttatíu og fimm
ára gamall. Ekki saddur lífdaga, en
sáttur við að hafa skilað sínu hlut-
verki í þessu lífi. Nú nýlega búinn
að missa eiginkonu sína til fimmtíu
og sjö ára, eftir löng og ströng veik-
indi hennar. Enginn mátti hugsa
um hana síðustu mánuðina nema
hann og var hann því í fullu starfi
við að sinna henni, bæði nótt og
dag. Var því orðinn langþreyttur
þegar hún kvaddi, en ánægður yfir
að hafa uppfyllt óskir hennar um að
vera heima en ekki á sjúkrahúsi.
Eftir svo mikið álag og langa sam-
veru myndast skyndilega mikið
tómarúm, þó fjölskylda sé nærri og
til staðar. Við blasir einmanaleiki og
dagar verða langir og erfiðir. Fram
á síðasta dag var hann þó hress, ný-
lega búinn að kaupa sér bíl og til í
að takast á við breytta lífsháttu. Við
ráðum ekki miklu í þessum heimi og
kallið kom óvænt og skyndilega.
Hann tengdafaðir minn hefur samt
verið tilbúinn að horfast í augu við
örlög sín og mætt skapara sínum
óhræddur og tilbúinn að segja sína
meiningu um þennan heim og ann-
an. Alltaf traustur og áreiðanlegur.
Það sem hann tók sér fyrir hendur
var alltaf í góðum höndum og stóð
sem stafur á bók. Hann hafði mjög
ákveðnar skoðanir og alltaf tilbúinn
til rökræðna. Stundum tók hann þó
málstað sem ekki var hans eigin, ef
til þurfti, til að koma umræðum af
stað. Gagnrýninn á menn og mál-
efni, tískustefnur og sjónvarpsefni.
Hikaði ekki við að koma skoðunum
sínum til skila á rétta staði, en var
ekki fyrir að auglýsa skoðanir sínar
í fjölmiðlum. Meinstríðinn var hann
frá unga aldri og stutt í glens, þó
hann væri alvarlegur þegar þess
þurfti og hvass þegar honum mislík-
aði eitthvað. Mættur í sumarbústað-
inn með sína möndluköku sem var
ómissandi þáttur í tilveru þeirra
hjóna. Prakkarasögur úr æsku af
honum og Þormóði Torfasyni, besta
vini sínum frá blautu barnsbeini af
Ránargötunni. Sögur af sjónum,
móður sinni sem hann var nátengd-
ur, en hann sætti sig aldrei við
ótímabært fráfall hennar, og sögur
úr sveitinni undir Pétursey. Frænd-
rækinn var hann með afbrigðum.
Systurnar Adda og Lilla og fjöl-
skyldur þeirra ásamt Grími bróður
voru stór hluti af tilverunni þegar
hann var í landi. Við fjölskyldan
kveðjum nú á stuttum tíma eigin-
konu og móður, sem stóð keik með
manni sínum gegnum sætt og súrt,
og eiginmann og föður sem skilaði
sínu til sjós og lands. Mega þau
bæði vera stolt af sínu framlagi í
dagsláttu Drottins. Ég er sannfærð
um að þau lífga bæði uppá sinn nýja
íverustað, en þeirra er sárt saknað
af þeim sem eftir lifa.
Þórunn E. Baldvinsdóttir.
Því að hvað er það að deyja annað en að
standa nakinn í blænum og hverfa inn í
sólskinið?
Og hvað er að hætta að draga andann
annað en að frelsa hann frá friðlausum
öldum lífsins,
svo að hann geti risið upp í mætti sínum
og ófjötraður leitað á fund guðs síns?
Og þegar þú hefur náð ævitindinum, þá
fyrst munt þú hefja fjallgönguna.
Og þegar jörðin krefst líkama þíns,
muntu dansa í fyrsta sinn.
(Úr Spámanninum.)
Elsku Högni og Addý, á ótrúlega
skömmum tíma hafið þið bæði kvatt
þennan heim. Þið eruð bæði farin og
stórt skarð er höggvið í litla fjöl-
skyldu.
Ég trúi því að í dag dansið þið
saman í sólskininu eins og Spámað-
urinn lýsir. Þið eruð frjáls og líður
vel. Addý svingar sér til og sveiflar
pilsinu og Högni fylgir henni raul-
andi eftir og brosir.
Mig langar að þakka ykkur fyrir
þann tíma sem við áttum saman.
Þakka ykkur fyrir allan stuðninginn
í gegnum árin og þakka fyrir allt
sem þið kennduð mér. Þakka ykkur
fyrir hvað þið tókuð vel á móti mér
og börnunum mínum þegar við
fylgdum yngsta syni ykkar inn í
fjölskylduna. Þið tókuð Írisi Ósk og
Reyni eins og ykkar frá fyrsta degi.
Ég óska ykkur góðrar ferðar og
farsældar á nýjum stað, stað þar
sem við hittumst á ný.
Minning ykkar mun lifa.
Ykkar
Sigríður.
Með þessum orðum langar okkur
systkinin að minnast afa okkar,
Högna Jónssonar.
Afi í Heiðó var ákveðinn maður
sem aldrei lá á skoðunum sínum og
því voru oft fjörlegar umræður í
fjölskylduboðum um hin ýmsu dæg-
urmál. Hann gaf sér alltaf tíma til
að spjalla við okkur barnabörnin
þegar við heimsóttum hann og
ömmu, og átti alltaf skemmtilegar
sögur að segja okkur, enda var
hann góður sögumaður og laginn
við að finna áhugaverða fleti á mál-
unum. Afi átti mörg áhugamál sem
hann hafði ákaflega gaman af því að
deila með okkur. Hann safnaði frí-
merkjum, smíðaði módelskip og
grúskaði í ættfræði. Afi hafði alltaf
gaman af því að grínast við okkur
krakkana og vakti það alltaf jafn-
mikla lukku þegar hann blakaði eyr-
unum.
Í minningunni lifa fjölskylduboðin
í Heiðarbænum. Þá voru afi og
amma í essinu sínu og elduðu kálfa-
steik og alltaf var ís í desert. Sér-
staklega er minnistætt þegar afi
bauð uppá soðna fýlsunga eins og
siður var í heimasveit hans, og þótti
honum þeir mikið lostæti, okkur
börnunum til mikillar furðu.
Eftir að afi missti ömmu í desem-
ber, lífsförunaut sinn til næstum 60
ára, var hann ekki sami maðurinn.
Hann hafði hugsað vel um hana í
gegnum erfið veikindi síðustu árin
og þegar hún var farin var eins og
úr honum væri allur vindur. Við
munum sakna þeirra beggja ákaf-
lega mikið. En eins og afi sagði við
mig þegar amma dó, þá lifir maður
áfram í minningu þeirra sem þykir
vænt um mann.
Þau munu bæði lifa áfram í minn-
ingum okkar.
Guðný Steinunn, Högni Baldvin
og Þorsteinn Baldvin.
Í fjölskyldu okkar hefur verið
skammt stórra högga í milli. Í dag
kveðjum við móðurbróður okkar,
Högna, sem var við ágæta heilsu en
varð bráðkvaddur. Kona hans,
Addý, lést fyrir um sjö vikum eftir
nokkurra ára heilsubrest.
Fyrir rúmu ári lést pabbi, en þeir
pabbi voru góðir félagar, voru í
sömu Oddfellowstúkunni og fóru
gjarnan saman á fundi og áttu það
sameiginlegt að hafa sótt sjóinn.
Högni kom nánast daglega í kaffi
til mömmu og pabba. Þau rifjuðu
upp gamla tíma, sögðu sögur, töluðu
um þjóðmálin og afar oft um sjáv-
arútvegsmál. Það var mikið hlegið
við eldhúsborðið og sagði Högni
mömmu síðar hvað þetta hefði verið
honum kært. Þetta voru dýrmætar
stundir sem þau áttu saman.
Eftir að pabbi lést ræktaði Högni
sambandið við systur sína vel og
hélt uppteknum hætti að hringja í
hana eða koma daglega. Auðséð var
að honum þótti mjög vænt um
mömmu og sú væntumþykja var
gagnkvæm. Það var sterkur þráður
sem hélt systkinunum saman en
móður sína misstu þau ung.
Högni var sérstæður og eftir-
minnilegur maður. Hann var heill
og hispurslaus, reglufastur, skoð-
anafastur jafnvel dómharður, skap-
stór, glettinn en einnig stríðinn.
Inni fyrir sló stórt hjarta sem ég
fékk að njóta þegar við fjölskylda
mín áttum um sárt að binda.
Vegir skiptast. – Allt fer ýmsar leiðir
inn á fyrirheitsins lönd.
Einum lífið arma breiðir,
öðrum dauðinn réttir hönd.
Einum flutt er árdagskveðja,
öðrum sungið dánarlag,
allt þó saman knýtt sem keðja,
krossför ein, með sama brag.
Veikt og sterkt í streng er undið,
stórt og smátt er saman bundið.
(Einar Ben.)
Við kveðjum kæran frænda og
sendum sonum hans og frændum
okkar og fjölskyldum þeirra inni-
legar samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning hans.
Stefanía V. Sigurjónsdóttir.
Högni Jónsson
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
ALFONS GUÐMUNDSSON
vélstjóri,
sem andaðist á Sólvangi í Hafnarfirði sunnudaginn
4. febrúar verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju
fimmtudaginn 15. febrúar kl. 15.00.
Anna Þorleifsdóttir,
Gunnar Jón Alfonsson,
Guðmundur Rúnar Alfonsson, Hildur Kristín Hilmarsdóttir,
Þorleifur Kristinn Alfonsson, Lovísa Agnes Jónsdóttir
og barnabörn.
✝
Ástkær sonur minn, faðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
BERGÞÓR NJÁLL GUÐMUNDSSON,
lést að morgni föstudagsins 9. febrúar.
Útförin auglýst síðar.
María Magnúsdóttir,
María Bergþórsdóttir, Guðmundur Hjálmarsson,
Helgi Bergþórsson,
Kristín Bergþórsdóttir, Pétur Þór Lárusson,
Ingibjörg H. Bergþórsdóttir, Guðmundur Kr. Ragnarsson,
Guðmundur Örvar Bergþórsson, Aðalheiður Gísladóttir,
Rúnar Þór Bergþórsson,
Albert Valur Albertsson,
Brynjar Bergþórsson, Apríl Eik Stefánsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Eiginkona mín og móðir okkar,
ÞORBJÖRG GUÐRÍÐUR VILHJÁLMSDÓTTIR,
Miðgarði 3,
Neskaupstað,
lést laugardaginn 10. febrúar.
Jón S. Einarsson,
Kristín Björg Jónsdóttir,
Margrét Jónsdóttir.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
SIGRÍÐUR STEINSDÓTTIR,
dvalarheimilinu Höfða,
Akranesi,
lést á Sjúkrahúsi Akraness föstudaginn 9. febrúar.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju þriðjudaginn
20. febrúar kl. 14.00.
Eysteinn Jónsson, Jóna Þorgeirsdóttir,
Unnur Jónsdóttir,
Björn Jónsson, Sigríður Ketilsdóttir,
Steinn Þór Jónsson, Eva Þorkelsdóttir,
Elsa Jónsdóttir, Jón Haukur Bjarnason,
Guðmundur Jónsson, Þorbjörg Björnsdóttir,
Ólafur Jónsson, Kristín Sigurðardóttir,
Sigurjón Jónsson,
Erla Sigurðardóttir, Hannes Óli Jóhannsson
og ömmubörn.
✝
Okkar ástkæra,
MARÍA PÉTURSDÓTTIR,
Suðurbraut 2,
Hafnarfirði,
lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Kumbaravogi
föstudaginn 9. febrúar.
Jarðarförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtu-
daginn 15. febrúar kl. 11.00.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim, sem vilja minnast hinnar látnu er
bent á Kristniboðsfélagið eða Gideonfélagið.
Jens A. Pétursson,
Oddgeir Jensson, Finnbjörg Holm,
Agnes Jensdóttir, Óttar Guðlaugsson,
Hjalti S. Jensson, Hildur Gunnarsdóttir,
Pétur Jensson, Bjarnheiður Ástgeirsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar og tengda-
faðir,
KOLBEINN ÞORGEIRSSON
múrari,
Höfn, Hornafirði,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjólgarði, Höfn, sunnu-
daginn 11. febrúar.
Útför verður auglýst síðar.
Jóhanna D. Magnúsdóttir,
Elín Kolbeinsdóttir, Guðbjörn Ásgeirsson,
Þorgeir Kolbeinsson, Hrönn Hjörleifsdóttir
og aðrir aðstandendur.