Morgunblaðið - 13.02.2007, Síða 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Sigrún BjörkSteinsdóttir
fæddist á Ísafirði
19. nóvember 1938.
Hún lést á líkn-
ardeild Landspít-
alans í Kópavogi
föstudaginn 2. febr-
úar síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru hjónin Að-
alheiður Hannibals-
dóttir húsmóðir og
Steinn Guðmunds-
son, sjómaður á Ísa-
firði. Sigrún var
elst í hópi fimm systra, auk einn-
ar fóstursystur, þær eru: 1) Elva
Bryndís, f. 23. nóvember 1941.
Hún á eina dóttur. 2) Bára Guð-
munda, f. 1943. Hún á tvo syni. 3)
Lilja Guðrún, f. 1948. Hún á fjög-
ur börn. Eiginmaður hennar er
Ásgeir Erling Gunnarsson. 4) Að-
alheiður Steina, f. 1952. Hún á
tvo syni. Fóstursystir Sigrúnar er
Guðrún Hansína Jónsdóttir, f. 8.
september 1938. Hún á þrjú börn.
Eiginmaður hennar er Bern-
harður Guðmundsson.
Sigrún giftist 13. apríl 1963
Hauki Harðarsyni, f. í Víðikeri í
Bárðardal 3. maí 1936. Þau eiga
þrjú börn, þau eru: 1) Dagrún
Helga, f. 24. nóvember 1962, d.
þar sem Haukur gegndi starfi
bæjarstjóra fram til haustsins
1978 en þá fluttu þau aftur til
Reykjavíkur og hafa búið þar síð-
an. Á Húsavík vann Sigrún við af-
greiðslustörf samhliða húsmóð-
urstarfinu. Þar var hún einnig
virkur félagi í Slysavarnafélagi
kvenna og Bridgefélagi Húsavík-
ur, en í báðum þessum félögum
gegndi hún stjórnarstörfum. Í
Reykjavík starfaði Sigrún um
árabil sem sölumaður í Af-
urðasölu SÍS, er síðar hlaut nafn-
ið Goði. Þar næst tók við 8 ára
starf á skrifstofu Lionshreyfing-
arinnar á Íslandi. Síðustu 7 árin
var hún móttökuritari á Barna-
og unglingadeild Landspítalans,
BUGL þar sem hún hætti störfum
vorið 2006. Sigrún átti sér fjöl-
mörg áhugamál. Hún starfaði af
eldmóði í Lionshreyfingunni. Þá
var hún verðugur andstæðingur
við spilaborðið en hún spilaði
bæði í heimahúsum og tók líka
þátt í félagsmótum og alþjóð-
legum bridgemótum á Hótel Loft-
leiðum um árabil. Hún var list-
feng og afkastamikil
hannyrðakona sem féll sjaldan
verk úr hendi. Þau hjónin stund-
uðu bæði lax- og silungsveiði. Eitt
hennar mesta yndi var að koma
saman með vinum og syngja og
stóð hún að mörgum söngs-
amkomum þar sem hún naut að-
stoðar eiginmannsins við undir-
leik á harmonikku eða píanó.
Útför Sigrúnar verður gerð frá
Langholtskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.
24. september 1997,
maki Bergþór
Bjarnason pípulagn-
ingameistari, f. 16.
nóvember 1961. Son-
ur þeirra er Andri
Már, f. 17. desember
1984. 2) Vignir
Bragi, f. 13. janúar
1964, sambýliskona
Þóra Valgerður
Jónsdóttir, f. 3. apríl
1962. Dóttir Vignis
og Katrínar Sifjar
Ragnarsdóttur er
Lilja, f. 2. janúar
1990. Dóttir Þóru er Anna Kol-
brún Jensen, f. 1. janúar 1986,
sonur hennar er Mikael Freyr
Friðriksson, f. 21. október 2003.
3) Hafþór Már, f. 4. desember
1966, d. 20. janúar 1985.
Sigrún ólst upp á Ísafirði til 15
ára aldurs er hún hleypti heim-
draganum. Hún stundaði kaupa-
vinnu víðsvegar um land næstu
sumur en afgreiðslustörf í
Reykjavík á vetrum. Sigrún og
Haukur hófu búskap á Húsavík
sumarið 1962 en stofnuðu síðan
heimili í Reykjavík veturinn 1963.
Í Reykjavík bjuggu þau til 1972.
Á þeim tíma stundaði Sigrún að-
allega húsmóðurstörf. Árið 1972
fluttu þau hjónin til Húsavíkur
Það var 11. október sl. sem Sig-
rún sagði okkur frá því að hún hefði
greinst með krabbamein. Þessi
fregn kom auðvitað eins og þruma
úr heiðskíru lofti því í endaðan
september höfðum við verið saman
í vinnuferð í sumarbústað fjölskyld-
unnar í Tunguskógi á Ísafirði, þar
sem Sigrún gaf okkur hinum ekkert
eftir í vinnu og úthaldi. Sjúkdóms-
sagan varð því ekki löng og hún
háði þetta hinsta stríð, sem stóð að-
eins í rúma 100 daga, að mestu á
heimili sínu með hjálp eiginmanns
síns Hauks Harðarsonar.
Sigrún var sterk kona og í minn-
ingunni er hún allt í senn; leiðtogi í
fjölskyldu og á opinberum vett-
vangi, tók beinan þátt í umönnun
aldraðra ættingja, kallaði okkur
saman á Fjarðarási 28 til skrafs og
skemmtunar, stóð fyrir einstökum
söngkvöldum þar sem Haukur sá
um undirleikinn, hin hvetjandi
„Sigrún frænka“ sem börnin í fjöl-
skyldunni litu öll upp til og virtu, og
síðast en ekki síst kletturinn sem
við öll lögðum traust okkar á.
Þegar við Lilja fluttum suður og
ég hóf nám í Háskóla Íslands
kynntist ég svo Sigrúnu fyrst. Sig-
rún og Haukur reyndust okkur ein-
staklega vel þegar við vorum að
byrja okkar búskap.
En nokkru áður en námsárunum
lauk fluttu Haukur og Sigrún til
Húsavíkur þar sem Haukur tók við
bæjarstjórastarfi og við Lilja flutt-
um svo til Akraness og síðar til Ísa-
fjarðar. Vissulega fækkaði sam-
verustundunum, en sönn vinatengsl
standast fjarveru og fyrir okkur
urðu Sigrún og Haukur ávallt okk-
ar bestu vinir.
Þegar við Lilja fluttum frá Ísa-
firði 1990 hafði ég vegna nýrrar at-
vinnu búið á heimili Hauks og Sig-
rúnar í hálft ár áður en við fengum
húsið okkar í Mosfellsbænum. Fyr-
irfram hélt ég að þetta yrðu
kannski nokkrar vikur, en þau sátu
uppi með mig í 6 mánuði. Ég fæ
aldrei fullþakkað þennan greiða og
mörg kvöldin sátum við saman og
spjölluðum og rifjuðum upp gamla
tíma og lopapeysurnar streymdu
fram af prjónunum hjá Sigrúnu
hver af annarri.
Sigrún var reyndar ótrúleg
handavinnumanneskja og var ekki
hrædd við að ráðast í erfið verkefni.
Hún lagði t.d. stund á „kúnst-bró-
derí“ og í stofunni þeirra á Fjarð-
arásnum er stórt slíkt verk sem ég
veit að tók nokkur ár að vinna.
Sigrún var mikil félagsvera og
sennilega lík pabba sínum að því
leyti. Hún var í bridge, hún var í
Lions, hún elskaði að syngja og láta
aðra syngja með sér og hún var bú-
in að koma sér upp safni af söng-
heftum til að við hin hefðum enga
afsökun til að syngja ekki með.
Og svo voru það ferðalögin, sem
voru þeirra sameiginlega áhuga-
mál. Ferðir um Evrópu og Banda-
ríkin voru þeirra ær og kýr um
tíma, en þá kom húsbíllinn „KOT“
til sögunnar og ferðir um Ísland
tóku völdin.
Sigrún okkar, kletturinn í fjöl-
skyldunni, tekur ekki lengur upp
tólið og hringir í okkur, en hún er
hér og verður með okkur áfram um
öll okkar ár.
Elsku Haukur, Vignir Bragi,
Þóra, Andri Már, Lilja, Anna Kol-
brún og Michael, Bergþór og fjöl-
skylda, við stöndum við hlið ykkar í
sorginni.
Erling og Lilja og fjölskylda.
Meðan sumarkyrrðin
kvæðum stafar
holt og tún
syngur engin dýrðin
dægrum saman
nema hún.
(Friðrik G. Þórleifsson)
Frjálsa glaða lóa,
ljóð þín eiga töframátt,
burt þú syngur sorgir mínar,
svífur glöð um loftið blátt.
Ó hvað lóa áttu mikið,
eiga svona fagran róm,
mega saklaus alla ævi
una þér við söng og blóm.
(Halldóra B. Björnsson)
Með þessum ljóðlínum viljum við
þakka Sigrúnu samfylgdina. Þau
hjónin voru ómissandi á gestalista
hjá okkur systkinunum við öll tæki-
færi. Sigrún var einstaklega söng-
elsk og kunni ótal lög, m.a. lög sem
voru fágæt og skemmtileg. Sér-
staklega var gaman að koma til
þeirra á söngkvöld. Við munum
minnast Sigrúnar með söknuði,
drifkrafts hennar og hjálpsemi, og
sendum Hauki frænda og fjöl-
skyldu hans okkar innilegustu sam-
úðarkveðjur.
Eyjólfur, Margrét,
Gunnhildur og fjölskyldur.
Gott er sjúkum að sofna,
meðan sólin er aftanrjóð,
og mjallhvítir svanir syngja
sorgblíð vögguljóð.
Gott er sjúkum að sofa,
meðan sólin í djúpinu er,
og ef til vill dreymir þá eitthvað,
sem enginn í vöku sér.
(Davíð Stefánsson.)
Nú er hún Sigrún okkar látin eft-
ir nokkurra mánaða erfið veikindi.
Það kom öllum á óvart þegar þessi
dugmikla kjarnakona var orðin
svona veik og ekki óraði nokkurn
fyrir því þegar þau hjónin héldu
rausnarlega upp á síðbúið afmæli
Hauks frænda í ágúst sl. Haukur
hefur alla tíð verið okkur systrum
nákominn, nánast sem bróðir enda
ólumst við upp saman og við höfum
alltaf verið ánægðar yfir því hvað
Sigrún hefur fallið vel inn í fjöl-
skylduna.
Þau hjónin hafa ekki farið var-
hluta af sorg og missi, en þau hafa
misst tvö uppkomin börn af þrem-
ur. Það hefur verið aðdáunarvert
að sjá þau takast á við þá miklu
sorg, finna sér ótal verkefni í þágu
samfélagsins s.s. starfa af fullum
krafti í Lions hreyfingunni og sinna
öðrum af reisn og umhyggju. Vign-
ir sonur þeirra og Þóra og barna-
börnin hafa verið þeim allt í öllu
þessi árin og tengdasonurinn Berg-
þór og fjölskylda hans notið vænt-
umþykju þeirra.
Þau hjónin hafa alla tíð haft mjög
gaman af músík og spilar Haukur
bæði á píanó og harmónikku auk
þess sem hann semur lög og þá
gjarnan við ljóð föðurbróður síns
sem er pabbi okkar. Eru þær ófáar
söngveislurnar sem þau hafa haldið
á heimili sínu þar sem hvert sæti
hefur verið skipað af fjölskyldu og
vinum og sungið hefur verið af
hjartans list og ekki hefur veiting-
arnar vantað. Sigrún hafði einstak-
lega gaman af að syngja og hafði
fallega altrödd og kunni ógrynni af
ljóðum og lögum. Það var alltaf svo
gaman að sjá hvað hún naut þess að
syngja.
Ættarmót var í Bárðardal í sum-
ar, en á ættarmótum þar er jafnan
mikið um söng og hljóðfæraleik og
Haukur ásamt fleirum ómissandi
með harmónikkuna. Haukur og
Sigrún voru þar með húsbílinn sinn
og þar sem endranær var fullt út úr
dyrum hjá hinum gestrisnu hjón-
um. Þegar kvöldaði vorum við farin
að sakna þeirra í sönginn í stóra
tjaldið er Haukur loks birtist með
harmónikkuna. Er við spurðum
hann um Sigrúnu sagði hann að hún
kæmi rétt bráðum, enn væru gestir
þó hann hefði ekki alveg séð hvað
þeir voru margir fyrir móðu í bíln-
um. Þetta var Sigrúnu líkt, gest-
risnin alltaf í fyrirrúmi og ávallt
rausnarleg, glöð og veitul.
Sigrún var mikil handavinnukona
– prjónaði mikið af lopafatnaði auk
þess sem hún saumaði út af mikilli
list myndir sem prýða heimili fjöl-
skyldunnar.
Sigrún var foreldrum okkar sér-
staklega góð og umhyggjusöm.
Hún heimsótti þau oftast einu sinni
í viku og tók þá gjarnan prjónana
sína með. Eftir að móðir okkar fór á
Hjúkrunarheimilið í Sunnuhlíð
heimsótti Sigrún hana reglulega
einu sinni í viku meðan heilsan
leyfði. Þessar heimsóknir voru for-
eldrum okkar ómetanlegar og töl-
uðum við gjarnan um að Sigrún
okkar væri fimmta systirin.
Við og fjölskyldur okkar kveðjum
Sigrúnu með söknuði og þakklæti
fyrir allt og vottum Hauki, Vigni og
fjölskyldu og öðrum aðstandendum
dýpstu samúð.
Hildur, Sigrún og
Rannveig Káradætur.
Í dag kveðjum við Sigrúnu, en
henni kynntist ég fyrir 23 árum,
þegar ég 17 ára stelpukjáni. Ég
fluttist inn á heimili þeirra Hauks
til að búa með syni þeirra Vigni.
Þegar ég lít til baka yfir þessi sjö ár
sem ég bjó á heimili þeirra Sigrún-
ar og Hauks er mér efst í huga um-
burðarlyndið og þolinmæðin sem
hún sýndi mér og börnum sínum.
Hún var mér sem móðir og þegar
ég svo steig fyrstu skrefin í móð-
urhlutverkinu í litlu íbúðinni sem
þau Haukur og Sigrún útbjuggu
handa okkur Vigni var hún ávallt
innan seilingar til að aðstoða mig.
Hún var einstaklega barngóð og
hafði gott lag á börnum.
Lífið hefur ekki farið mjúkum
höndum um fjölskylduna í Fjarð-
arásnum. Þegar þau misstu Hafþór
í blóma lífsins fannst mér þau vera
búin að fá sinn skammt af missi og
sorg. En þau áttu eftir að missa
dóttur sína Dagrúnu líka í blóma
lífsins. En það sem situr eftir eru
góðar minningar um Sigrúnu og
hennar stóru fjölskyldu.
Það var yndislegt að sjá hversu
frændrækin og vinamörg þau hjón
voru. Það voru ófáar veislurnar þar
sem Sigrún snaraði fram kræsing-
um og lauk þeim oftar en ekki með
því að Haukur spilaði á píanóið og
gestirnir sungu með Sigrúnu sem
forsöngvara. Það var unun að heyra
hana syngja því hún söng svo vel og
gaf sig alla í það. Mikið var spilað á
heimilinu og þá aðallega bridge. Ef
það vantaði fjórða mann, fékk ég að
vera með. Hún vílaði það ekki fyrir
sér að halda skírnarveislu fyrir
Lilju dóttur okkar Vignis á heimili
þeirra Hauks. Þau hjón eiga bæði
stórar fjölskyldur sem þau eru í
miklum og góðum samskiptum við.
Sigrún kenndi mér allt sem ég kann
í prjónamennsku og sátum við þá
saman prjónandi og spjölluðum um
allt og ekkert. Hvorki fyrr né síðar
hef ég kynnst eins mikilli hann-
yrðakonu. Minningin um hana lifir í
hjarta mínu að eilífu.
Elsku Haukur, Vignir og fjöl-
skylda, ég votta ykkur mína dýpstu
samúð á þessari stundu.
Katrín Sif Ragnarsdóttir.
Með þungum trega og eftirsjá
kveðjum við okkar góðu vinkonu
sem fallin er frá eftir skammvinn
en erfið veikindi. Þegar Sigrún
greindist með krabbamein í okt. sl.
tók hún þeim úrskurði með kjarki
og reisn sem hennar var von og
vísa.
Síst verður sagt að þau Haukur
hafi farið varhluta af áföllum á lífs-
leiðinni, því þau máttu axla þá
miklu sorg að sjá á bak börnum sín-
um, Dagrúnu Helgu og Hafþóri Má
í blóma lífsins, og er ekki annað
hægt en undrast hversu mikið er
stundum á suma lagt.
Kunningsskapur okkar hófst fyr-
ir alvöru fyrir rúmum 40 árum þeg-
ar við byggðum saman og fluttum
inn í okkar eigin íbúðir að Klepps-
vegi 138, og hefur sú vinátta haldist
óslitið síðan.
Sigrún var mjög félagslynd að
eðlisfari sem sýndi sig m.a. í því að
hún var ein af stofnendum Lions-
klúbbsins Eir, og voru málefni
Lionshreyfingarinnar henni mikið
hjartans mál. Þar gegndi hún oft
formennsku og var óþreytandi í
nefnda- og fjáröflunarstörfum til
góðgerðarmála. Hlaut hún og
margar heiðursviðurkenningar frá
Lionshreyfingunni fyrir framúr-
skarandi störf.
Aðdáunarvert er hversu Sigrún
og Haukur jafnan lögðu sig fram
við að rækta tengslin við eldri með-
limi fjölskyldunnar og stóð heimili
þeirra öllum opið, enda húsbændur
með afbrigðum gestrisnir og fjöl-
mennur hópur ættingja og vina oft
þar saman kominn.
Margra ánægjustunda er þaðan
að minnast þar sem léttleikinn var í
fyrirrúmi, enda húsbóndinn jafnan
meira en fús til að setjast við píanó-
ið eða grípa í harmonikkuna. Sig-
rún var tónelsk og driffjöðrin í því
að koma af stað fjöldasöng, hvort
sem það var heima fyrir eða ann-
arsstaðar.
Þar á bæ var viðurgjörningur
heldur ekki af verri endanum.
Toppurinn var þó brauðið með
reykta silungnum frá Svartárkoti,
borið fram í bakkavís.
Sigrún hafði mjög sterkar taugar
til sinna upprunaheimkynna vestur
á Ísafirði og dvöldu þau þar oft
hluta af sínum sumarfríum, í bú-
staðnum góða í Tungudal.
Snerting við náttúru landsins og
innanlandsferðir voru meðal helstu
áhugamála. Húsbíllinn þeirra
glæsilegi sem þau voru svo stolt af
opnaði þeim nýjar víddir til ferða-
laga, og seint mun okkur úr minni
líða helgin sem við áttum með þeim
austur á Laugarvatni sl. sumar.
Vissulega höfðum við væntingar
um framhald þar á, en eigi má
sköpum renna.
Sigrún var mjög góður bridsspil-
ari og tók stundum þátt í opinber-
um mótum, enda bæði Haukur og
Sigrún Björk
Steinsdóttir
LEGSTEINAR
Tilboðsdagar
Allt að 50% afsláttur
af legsteinum og fylgihlutum
Sendum myndalista
MOSAIK Hamarshöfða 4 110 Rvk
sími 587 1960 www.mosaik.is
15-50% afsláttur