Morgunblaðið - 13.02.2007, Síða 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Halldóra Sig-rún Ólafsdóttir
kennari fæddist að
Lambavatni á
Rauðasandi 14.
maí 1926 og ólst
þar upp. Hún lést á
Landspítalanum
við Hringbraut að
morgni 6. febrúar
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Ólafur Sveinsson
bóndi að Lamba-
vatni, f. 4.7. 1882,
d. 28.8. 1969, og
Halldóra Guðbjört
Torfadóttir, f. 3.9. 1884, d. 31.8.
1928. Börn þeirra voru þrjú og
var Halldóra þeirra yngst.
Bræður hennar eru Magnús
Torfi þingmaður og ráðherra, f.
5.5. 1923, d. 3.11. 1998, og
Sveinn myndskurðarmeistari, f.
27.4. 1925. Þau Ólafur og Hall-
dóra Guðbjört bjuggu að
Lambavatni ásamt Eyjólfi bróð-
ur Ólafs, f. 14.10. 1885, d. 8.2.
1941, og konu hans Vilborgu
systur Halldóru Guðbjartar, f.
5.6. 1896, d. 12.9. 1987. Synir
þeirra eru Tryggvi, f. 19.9.
1927, Valtýr, f. 11.6. 1930, og
Gunnar, f. 23.9. 1936. Við frá-
fall þeirra Halldóru Guðbjartar
og Eyjólfs héldu þau Ólafur og
Vilborg heimili fyrir börnin sex.
Árið 1930 fjölgaði þeim í sjö
þegar tekinn var í fóstur syst-
ursonur Halldóru Guðbjartar og
1983, Áróra, f. 8.8. 1990, og
Bergrós Halla, f. 27.10. 1995. 4)
Sigrún Halla, f. 13.2. 1965,
hennar sambýlismaður Þorri
Hringsson, f. 9.9. 1966, þau
skildu, þeirra dóttir Iða, f. 17.5.
1991. 5) Pétur Már, f. 20.4.
1966, kvæntur Sigurlínu Mar-
gréti Magnúsdóttur, f. 11.5.
1965, þeirra börn eru Magnús
Andri, f. 12.10. 1992, Halldór
Gauti, f. 30.8. 1999, og Tómas
Orri, f. 23.5. 2001.
Halldóra Sigrún gekk í far-
skóla, sem rekinn var mánuð og
mánuð í senn í ungmennafélags-
húsinu á Rauðasandi. Þar
kenndi föðurbróðir hennar Eyj-
ólfur börnunum í sveitinni und-
irstöðuatriðin sem öll önnur
menntun þeirra byggðist á. Sem
ung stúlka var Halldóra virkur
meðlimur í Ungmennafélaginu
Von. Veturinn 1943–1944 stund-
aði hún nám við Húsmæðraskól-
ann á Staðarfelli í Dalasýslu.
1948 hélt hún til náms í Kenn-
araskóla Íslands og lauk þaðan
kennaraprófi 1950.Hún kenndi
við Barnaskólann á Bíldudal
1950– 1952 og 1976–1978
kenndi hún við Kópavogsskóla.
Annars var húsmóðurstarfið að-
alstarf Halldóru og uppeldi
barna og barnabarna sinnti hún
af alúð.
Þau Halldóra og Halldór hófu
sinn búskap 1952 við Lindargöt-
una (63A) í Reykjavík, fluttu
þaðan 1957 að Lynghaga 14 og
bjuggu þar fram til 1967 þegar
þau fluttu að Lyngbrekku 18 í
Kópavogi. Síðustu árin hafa þau
búið að Gullsmára 8 í Kópavogi.
Útför Halldóru verður gerð
frá Kópavogskirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 15.
Vilborgar, Ólafur
Guðmundsson frá
Breiðavík, f. 4.11.
1923, sonur Maríu
Torfadóttur, f.
2.7. 1893, d. 9.3.
1930, og Guð-
mundar Bjarna
Ólafssonar, f.
23.12. 1889, d.
9.1. 1926.
Eiginmaður
Halldóru Sigrún-
ar er Halldór Við-
ar Pétursson mat-
sveinn, f. 29.9.
1928, þau gengu í
hjónaband 21. mars 1953. For-
eldrar hans voru Pétur Sigurðs-
son tónskáld og söngstjóri frá
Geirmundarstöðum í Sæmund-
arhlíð, f. 14.4. 1899, d. 25.8.
1931, og Kristjana Sigfúsdóttir
frá Brekku í Svarfaðardal, f.
28.6. 1897, d. 28.9. 1955. Sonur
Halldórs og Jónínu Kristínar
Vilhjálmsdóttur, f. 29.5. 1929,
er Vilhjálmur Örn Halldórsson,
f. 8.8. 1951. Börn þeirra Hall-
dóru og Halldórs eru: 1) dreng-
ur fæddur andvana 28.6. 1953.
2) Kolbrún Kristjana, f. 31.7.
1955, gift Ágústi Péturssyni, f.
12.5. 1953, börn þeirra eru Orri
Huginn, f. 25.5. 1980, og Alma,
f. 26.4. 1995. 3) Elín Huld, f.
7.2. 1961, hennar sambýlis-
maður er Gunnar Theodór Þor-
steinsson, f. 2.6. 1957, þeirra
börn eru Arnar Þór, f. 15.6.
Hún mamma var ein af þessum
einstöku íslensku sjómannskonum,
sem af miklum dugnaði stýrðu
stórum heimilum í fjarveru eig-
inmanna sinna. Þær voru nokkuð
fjölmenn stétt stærstan hluta síð-
ustu aldar. Slíkar konur þurftu
sjálfstraust í ómældu magni, and-
legan og líkamlegan styrk, yfirsýn
og skipulagsgáfur. Þær þurftu að
vera útsjónarsamar og snjallar við
að finna lausnir í flóknustu málum.
Heimilið var miðja alheimsins á
þessum árum og þessar sterku
konur stýrðu heimilishaldinu
styrkri hendi. Svona kona var hún
mamma.
Hún mamma var einstök kona.
Hún leysti öll sín verk af hendi af
mikilli vandvirkni og lagði sig æv-
inlega alla fram. Aldrei var nein
hálfvelgja í hennar athöfnum. Sam-
viskusemin og eljusemin var henni
í blóð borin. Hún átti stóran og
kærleiksríkan faðm. Fann allt það
góða í hverjum manni og kenndi
okkur að lifa samkvæmt gullnu
reglunni „Það sem þér viljið að
aðrir menn gjöri yður, það skuluð
þér og þeim gjöra“. Okkar vega-
nesti út í lífið var byggt á trú, von
og kærleika. Við lærðum að meta
og elska lífið, og að í lífinu er ekk-
ert sjálfsagt.
Hún var greind kona og vel les-
in. Hún drakk í sig allan fróðleik
sem tiltækur var. Hún kunni utan-
bókar kynstrin öll af ljóðum og
sögum, sem hún fór svo fallega
með. Hún skrifaði upp fágæt ljóð
með sinn einstöku rithönd og sendi
okkur börnunum og barnabörnum
þegar tækifæri gafst. Fáir hafa
hlustað meira á útvarp um ævina
en hún mamma, hún hafði útvarp í
hverju herbergi og fylgdist grannt
með þjóðmálaumræðunni. Vissi
alltaf hvað efst var á baugi og tók
afstöðu í flóknustu málum. Svo
elskaði hún að hlusta á tónlist og
hafði breiðan tónlistarsmekk.
Hún mamma var glæsileg kona,
hafði næmt auga fyrir litum og
klæddi sig fallega. Fallega þykka
hárið hennar glansaði og gljáði.
Hendurnar vel snyrtar og mjúkar.
Hún var líka frábær amma og
barnabörnin elskuðu að fara til
ömmu, sem las fyrir þau, teiknaði
með þeim, púslaði með þeim,
horfði með þeim á sjónvarpið, bak-
aði fyrir þau og hlustaði á þau
segja frá. Hún fylgdist vel með
hverju og einu þeirra og í hennar
augum var hvert og eitt þeirra ein-
stakt.
Hún valdi sér einn af þessum
köldu, friðsælu, sólríku vetrardög-
um til að kveðja þetta jarðlíf. Slíkir
dagar voru í sérstöku uppáhaldi
hjá henni.
Það er sárt að þurfa að kveðja
þig svona óvænt, elsku mamma.
Það var svo margt sem við áttum
eftir að gera. Við ætluðum alltaf að
fara saman vestur, manstu …
Huga að leiðunum þeirra afa og
ömmu og Borgu. Okkur langaði til
að fara með þér upp í urðirnar of-
an við Lambavatnsbæinn til að sjá
búið þitt og fjögurra laufa smár-
ann. Hlusta á niðinn í læknum.
Ganga með þér út að Skaufhól og
láta taka af okkur mynd við „kall-
inn“. Horfa til eyjanna yfir Breiða-
fjörðinn. Dásama litbrigðin í sand-
inum og leita að hörpuskel. Hlusta
á þig segja okkur frá bæjunum á
Rauðasandi og fólkinu. Frá Manga
og Ellu gömlu, þeim í „hærri-bæn-
um“ og frá smíðisgripunum hans
afa, sem hann dundaði sér við að
skapa úti í smiðju.
Þú varst nú ekki alltaf upplögð
til ferðalaga, elskuleg, hefðir
sennilega ferðast miklu meira ef
ekki hefði verið fyrir heilsubrest-
inn, sem trúlega hefur háð þér
meira en við fengum nokkru sinni
að finna. En nú ertu aftur létt og
lipur orðin, getur svifið um ómæl-
isvíddirnar eins og þig lystir. Þeg-
ar við komum saman við dánarbeð
þinn og þú varst horfin á braut, þá
vissum við hvar þú varst …Þú
varst komin vestur, í fangið á
pabba þínum, með litla drenginn
þinn í fanginu … Elsku mamma,
far þú í friði.
Kolbrún Kristjana, Elín Huld,
Sigrún Halla og Pétur Már.
Fyrir rúmum 30 árum kynntist
ég ungri konu sem seinna varð
konan mín. Fljótlega var ég kynnt-
ur fyrir foreldrum hennar, Hall-
dóru og Halldóri. Það var strax
tekið vel á móti mér á Lyngbrekk-
unni þar sem fjölskyldan bjó. Hall-
dóra var mjög áhugasöm um fólk
og vildi vita tengsl manna á milli.
Hún hafði einlægan áhuga á ætt-
fræði og fylgdist vel með öllum
ættboganum, jafnt sínum eigin
sem Halldórs. Á þessum tíma var
Halldór lengstum á sjó og Hall-
dóra sá um heimilið af myndarskap
og hlýju. Börnin voru fjögur, þrjú
á heimilinu, og kötturinn Snúlli,
sem var eins og fjórða barnið.
Halldóra var kennari að mennt
en kaus að lifa sínu lífi fyrir börnin
sín. Hún kenndi þeim góða siði,
frábæra íslensku og vakti með
þeim áhuga fyrir menningu og list-
um. Hún fylgdist með og sýndi því
áhuga sem þau voru að gera hvert
og eitt og studdi þau í hverju því
sem þau tóku sér fyrir hendur.
Hún hafði einstakt lag á að vera
hvetjandi og láta alla finna að þeir
voru sérstakir og áhugaverðir.
Áhugi hennar á afrekum þeirra,
stórum sem smáum, varð þeim
hvatning til frekari sigra í lífinu.
Þegar barnabörnin tóku að bæt-
ast við var sama upp á teningnum
gagnvart þeim. Orri Huginn var
mikið hjá ömmu og fannst alltaf
jafn gott að koma þangað. Hann
var umvafinn sömu ást og lifandi
áhuga og hennar eigin börn. Metn-
aður hennar fyrir hans hönd var
honum alltaf skjól. Gleði hennar og
stolt yfir hverjum áfanga var hon-
um mikils virði og okkur foreldr-
unum gleðigjafi. Það var alltaf
gaman að koma til ömmu með ein-
kunnir og umsagnir. Bjóða henni
og afa á leikritin sem verið var að
sýna eða bara sitja á svölunum hjá
henni í sólinni og hitanum á Lyng-
brekkunni og þiggja svaladrykk.
Ég veit að öll hin börnin sem á
eftir komu hafa sömu sögu að
segja þó heimilið hafi skipt um
heimilisfang. Í Gullsmáranum er
minna pláss, en samt er þar lítið
herbergi þar sem barn gat fengið
gistingu og þau voru alltaf velkom-
in. Þó þrekið hafi auðvitað minnk-
að með árunum breyttist það aldr-
ei hvað hún hafði gott lag á að láta
stóru fjölskylduna sína upplifa sig
velkomna og sérstaka. Alma okkar
var minna hjá ömmu en stóri bróð-
ir en hvert afrek sem hún vann
varð raunverulegra þegar hún var
búin að deila því með afa og ömmu.
Takk fyrir samveruna, kæra
Halldóra og alla hjálpina.
Ágúst.
Það er með djúpum trega sem
ég kveð hana Halldóru mágkonu
mína.
Við höfum átt samleið um 55 ára
skeið sem nálgast að vera heill
mannsaldur og aldrei borið nokk-
urn skugga á. Ég vissi að það var
mikil gæfa þegar hana bar að garði
í okkar fjölskyldu og þau bróðir
minn rugluðu saman reytum.
Halldóra var fróð og vel lesin
kona, stálminnug á menn og mál-
efni, vinföst og ættrækin. Hún var
einstaklega hlý og yndisleg heim
að sækja og alltaf tilbúin að hjálpa
ef eitthvað bjátaði á. Þess naut ég
og börnin mín.
Þegar þau Halldór kynntust þá
hafði hún lokið kennaramenntun
og starfað stutt sem kennari, en
eftir að börnin komu í heiminn, eitt
af öðru, valdi hún að vera heima og
gefa fjölskyldunni allan sinn tíma.
Þegar eiginmaðurinn var löngum
stundum í starfi fjarri heimili var
ýmsu fleira að sinna en venjuleg-
um húsmóðurstörfum. Og víst er
um það að þau áttu miklu barna-
láni að fagna.
Eftir að Halldór bróðir minn
varð fyrir áfalli sem hefur bagað
heilsu hans um nokkurra ára skeið
hefur verið einstakt að fylgjast
með þeirri umhyggju og alúð sem
hún hefur umvafið hann. Hans er
missirinn mestur. Ég sendi honum
og börnunum, Kollu, Elínu, Sig-
rúnu og Pétri, ásamt tengdabörn-
um og barnabörnum mínar einlæg-
ustu samúðarkveðjur.
Sigrún Pétursdóttir.
Nú ertu farin frá okkur, elsku
amma, og fyrr en nokkurn hefði
grunað. Það er sárt að sjá á eftir
þér og víst er að veröldin verður
aldrei söm á ný. En það er með ást
og þakklæti í hjarta sem við kveðj-
um þig. Þakklæti fyrir allt sem þú
gafst okkur og allt sem þú kenndir
okkur. Án þín og þinnar leiðsagnar
væri ég ekki sá maður sem ég er í
dag. Það er svo margt sem minnir
mig á þig og það verður erfitt að
sætta sig við að þú sért farin. Þú
fékkst þó að fara í friði. Við hin
sem eftir erum höldum áfram með
stritið en það er hughreysting fólg-
in í því að vita að þú vakir yfir
okkur.
Við sjáum, að dýrð á djúpið slær,
þó degi sé tekið að halla.
Það er eins og festingin færist nær
og faðmi jörðina alla.
Svo djúp er þögnin við þína sæng,
að þar heyrast englar tala,
og einn þeirra blakar bleikum væng,
svo brjóstið þitt fái svala.
Nú strýkur hann barm þinn blítt og hljótt,
svo blaktir síðasti loginn.
En svo kemur dagur og sumarnótt
og svanur á bláan voginn.
(Davíð Stefánsson)
Ég elska þig og sakna þín. Guð
geymi þig, amma mín. Ég mun
ávallt geyma þig í hjartanu.
Orri Huginn.
Lítill drengur lófa strýkur
létt um vota móðurkinn,
augun spyrja eins og myrkvuð
ótta og grun í fyrsta sinn:
Hvar er amma, hvar er amma,
hún sem gaf mér brosið sitt
yndislega og alltaf skildi
ófullkomna hjalið mitt?
Lítill sveinn á leyndardómum
lífs og dauða kann ei skil:
hann vill bara eins og áður
ömmu sinnar komast til,
hann vill fá að hjúfra sig að
hennar brjósti sætt og rótt.
Amma er dáin - amma finnur
augasteininn sinn í nótt.
Lítill drengur leggst á koddann
lokar sinni þreyttu brá,
uns í draumi er hann staddur
ömmu sinni góðu hjá.
Amma brosir - amma kyssir
undurblítt á kollinn hans.
Breiðist ást af öðrum heimi
yfir beð hins litla manns.
(Jóhannes úr Kötlum)
Elsku besta amma, við söknum
þín svo mikið en allar góðu minn-
ingarnar um þig geymum við á
besta stað í hjörtum okkar og vit-
um að þú munt áfram vaka yfir
okkur, gæta okkar og elska eins og
þú hefur alltaf gert. Í kvöld mun-
um við hittast á ný í draumaland-
inu, þú munt taka okkur í faðminn
og umvefja okkur ástúð og hlýju.
Magnús Andri, Halldór Gauti
og Tómas Orri.
Af þér er ég kominn undursamlega jörð:
eins og ljós skína augu mín á blóm þín
eins og snjór lykja hendur mínar um grjót
þitt
eins og blær leikur andardráttur minn um
gras þitt
eins og fiskur syndi ég í vatni þínu
eins og fugl syng ég í skógi þínum
eins og lamb sef ég í þínum mó.
Að þér mun ég verða undursamlega jörð:
eins og sveipur mun ég hverfast í stormi
þínum
eins og dropi mun ég falla í regni þínu
eins og næfur mun ég loga í eldi þínum
eins og duft mun ég sáldrast í þína mold.
Og við munum upp rísa undursamlega jörð.
(Jóhannes úr Kötlum)
Elsku amma, ég þakka þér allar
þær góðu stundir sem við áttum
saman og alla þá umhyggju og
hlýju sem þú sýndir mér, til þín
var alltaf gott að koma. Þú varst
einstök, hlý og góð og í hjarta
mínu mun ég varðveita minn-
inguna um þig. Ég vona að ég
verði eins góð amma og þú varst.
Þín
Iða.
Vertu alltaf hress í huga
hvað sem kann að mæta þér.
Lát ei sorg né böl þig buga.
Baggi margra þungur er.
Treystu því að þér á herðar
þyngri byrði ei varpað er
en þú hefur afl að bera.
Orka blundar næg í þér.
Þerrðu kinnar þess er grætur
þvoðu kaun hins særða manns
sendu inn í sérhvert hjarta
sólargeisla sannleikans.
Vertu sanngjarn, vertu mildur.
Vægðu þeim er mót þér braut.
Beiddu Guð um hreinna hjarta
hjálp í lífsins vanda og þraut.
(Erla/Guðfinna Þ. frá Hömrum)
Þakka þér fyrir þau heilræði
sem þú kenndir okkur – fyrir góð-
mennsku þína, hlýju og ást, fyrir
minningar sem aldrei mást. Sofðu
rótt, elsku amma og Guð varðveiti
þig.
Arnar, Áróra og Bergrós.
Elsku amma mín.
Hver minning, dýrmæt perla, að liðnum lífs-
ins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleym-
ist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast
þér.
(Ingibj. Sig.)
Á meðan amma var á lífi var hún
þekkt fyrir að vera alltaf svo góð,
hún æsti sig aldrei (nema kannski
yfir Alþingi …). Hún var alltaf svo
brosmild. Ég minnist hennar einn
sumardaginn þar sem hún stóð í
eldhúsinu, brosandi og nýbúin að
leggja fullt af kökum á borðið, hún
stóð þarna í gula bolnum sínum og
hvítu buxunum brosandi og kallaði
á okkur. Þetta er alltaf það fyrsta
sem ég sé fyrir mér þegar ég
hugsa um hana. Þegar ég hugsa
um ömmu er einfalt fyrir mig að
gráta en það er líka alltaf stutt í
brosið vegna þess hve amma var
góð. Pabbi segir að sorgin komi í
bylgjum, eins og öldur, sem skella
á manni, það er satt. Ég sakna þín,
amma mín, og ég mun aldrei
gleyma þér, en vonandi ertu komin
á ennþá betri stað núna. Haltu
áfram að vera svona góð í næsta
lífi. Ég mun alltaf elska þig,
mundu það.
Þín
Alma.
Halldóra Sigrún
Ólafsdóttir
Fleiri minningargreinar
um Halldóru Sigrúnu Ólafs-
dóttur bíða birtingar og munu birt-
ast í blaðinu næstu daga. Höfundar
eru: Elín Vilmundardóttir