Morgunblaðið - 13.02.2007, Qupperneq 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Áhugaverð
framtíðarstörf
Húsasmiðjan hvetur
alla, á hvaða aldri, sem
vilja starfa hjá traustu
og góðu fyrirtæki til að
sækja um.
Fyrir alla
Viljum ráða áhugasama og þjónustulundaða
einstaklinga í eftirtalin störf í verslun okkar í
Borgarnesi.
Umsóknir berist til starfsmannastjóra Húsasmiðjunnar, Guðrúnar Kristinsdóttir, gudrunk@husa.is,
fyrir 20. febrúar. Einnig er hægt að sækja um á heimasíðu Húsasmiðjunnar www.husa.is
Húsasmiðjuskólinn
Við rekum skóla þar
sem starfsmenn sækja
námskeið. Haldin eru um
100 námskeið á ári og
námsvísir er gefinn út vor
og haust.
Starfsmannafélag
Hjá okkur er öflugt starfs-
mannafélag sem sér m.a.
um skemmtanir fyrir
starfsmenn og fjölskyldur
fleirra, íþróttaviðburði og
útleigu sumarhúsa.
Heilsuefling
Fyrirtækið og starfs-
mannafélagið styðja við
heilsurækt starfsmanna.
Viðskiptakjör
Vi› bjó›um starfs-
mönnum gó› kjör.
Ábyrgðarsvið
Sala, afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini
Pantanir, ráðgjöf og tilboðsgjöf
Önnur tilfallandi störf
Hæfniskröfur
Þekking á timbri og byggingavörum nauðsynleg
Grunn tölvukunnátta kostur en ekki skilyrði
Sjálfstæði og frumkvæði
Samskiptahæfni
Sölumaður í timbursölu
Ábyrgðarsvið
Sala, afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini
Pantanir, ráðgjöf og tilboðsgerð
Önnur tilfallandi störf
Hæfniskröfur
Iðnmenntun eða góð þekking á pípulagnaefni
Tölvukunnátta kostur
Samskiptahæfni
Sjálfstæði og frumkvæði
Deildarstjóri pípulagningardeildar
Ábyrgðarsvið
Sala, afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini
Pantanir og ráðgjöf til viðskiptavina
Önnur tilfallandi störf
Hæfniskröfur
Þekking á byggingavörum kostur
Tölvukunnátta kostur
Samskiptahæfni
Sjálfstæði og frumkvæði
Sölu- afgreiðslumaður í verslun
Bjóðum upp á gott starfsumhverfi hjá traustu fyrirtæki
Tilkynningar
Auglýsing
um breytingu á aðalskipulagi Bæjar-
hrepps 1995-2015
Hreppsnefnd Bæjarhrepps samþykkti á fundi
sínum 7. febrúar 2007 að auglýsa eftirfarandi
breytingar á aðalskipulagi Bæjarhrepps 1995-
2015 samkvæmt 1. málsgrein 18. gr. skipulags-
og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breyt-
ingum.
Aðalskipulagsbreyting þessi tekur til breyttrar
legu stofnvegar nr. 1, Hringvegar, í Hrútafjarð-
arbotni á 5,4 km kafla og á stofnvegi nr. 61,
Djúpvegi, sem er ný tenging við Hringveg, á
1,8 km vegkafla. Landnotkun hefur verið
breytt þar sem Brúarskáli og fyrrum símstöð
eru staðsett.
Skipulagsuppdrátturinn mun liggja frammi til
kynningar á skrifstofu Bæjarhrepps á Borðeyri
frá 13. febrúar 2007 til 29. mars 2007. Ennfrem-
ur er tillagan til kynningar hjá Skipulagsstofn-
un, Laugavegi 166, Reykjavík.
Þeim, sem telja sig eiga hagsmuna að gæta, er
hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir
við breytingartillöguna. Athugasemdum skal
skila eigi síðar en 29. mars 2007 til skrifstofu
Bæjarhrepps og skulu þær vera skriflegar. Þeir
sem ekki gera athugasemdir við tillöguna inn-
an tilskilins frests teljast samþykkir henni.
F.h. Bæjarhrepps,
Þorgerður Sigurjónsdóttir oddviti.
Félagslíf
HLÍN 6007021319 VI
I.O.O.F. Rb.1 1562138 - 9.0*
HAMAR 6007021319 I
FJÖLNIR 6007021319 III
EDDA 6007021319 I
Raðauglýsingar 569 1100
Fáðu
sms-fréttir
í símann
þinn af
mbl.is
MINNINGAR
✝ Hjörleifur H. Jó-hannsson fædd-
ist á Hánefsstöðum í
Svarfaðardal 13.
júní 1929. Hann lést
á Fjórðungssjúkra-
húsinu á Akureyri
laugardaginn 3.
febrúar síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Jóhann Guðlaugur
Kristjánsson, f. 29.
október 1900, d. 27.
febrúar 1991 og
Kristín Sigurhanna
Sigtryggsdóttir, f.
30. júlí 1904, d. 31. janúar 1992.
Systkini Hjörleifs eru: 1) Arnfríður
Jóhanna, f. 1927, gift Sigþóri
Björnssyni, f. 1927, d. 1997, 2)
Kristján Loftur, f. 1933, 3) Marinó
Jóhann, f. 1936, d. 1988, 4) Sigrún
Rósa, f. 1941, gift Einari Arnþórs-
syni, f. 1934, og 5) Sigtryggur El-
ínór, f. 1946, kvæntur Sólveigu
Jónu Kristjánsdóttur, f. 1951. Árið
1931 flutti Hjörleifur með for-
eldrum sínum út í Hólkot í Ólafs-
firði þar sem fjölskyldan bjó til árs-
ins 1939 en þá flutti hún til
Dalvíkur þar sem Hjörleifur ólst
upp og bjó þar síðan alla sína tíð.
Khamsa-Ing og Ronnachai Kamsa-
Ing. 4) Arnþór, f. 1961, kvæntur Ás-
rúnu Ingvadóttur, f. 1961, börn
þeirra eru Snæþór, unnusta Aníta
Guðbrandsdóttir, Bergþór og
Vaka. 5) Sigurbjörn, f. 1963, kvænt-
ur Kanokwan Srichaimun, f. 1970,
sonur þeirra er Fannar Nataphum.
6) Einar, f. 1968, kvæntur Lilju
Guðnadóttur, f. 1968, börn þeirra
eru Hjörleifur, Ólöf María og Guðni
Berg. 7) Hjördís Hanna, f. 1970, gift
Sigursteini Magnússyni, f. 1963,
börn þeirra eru Bergdís Helga,
Marinó Jóhann og Sigurbjörn Al-
bert. Börn Sigursteins frá fyrri
sambúð eru Ingibjörg Theodóra og
Magnús Þorsteinn.
Hjörleifur lauk hefðbundinni
skólagöngu á Dalvík og fór síðan
ungur til sjós þar sem hann vann
mestan hluta starfsævi sinnar,
lengst af hjá útgerð Aðalsteins
Loftssonar. Þegar hann hætti til
sjós um 1970 vann hann fyrst ýmis
störf tengd húsbyggingum en
starfaði síðan í Salthúsi KEA, sem
Samherji síðar keypti, þar til hann
lét af störfum í lok árs 2000.
Útför Hjörleifs verður gerð frá
Dalvíkurkirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
Eiginkona Hjör-
leifs er Þorgerður
Sveinbjarnardóttir, f.
20. júlí 1937. For-
eldrar hennar voru
Sveinbjörn Jóhanns-
son, f. 12. apríl 1914,
d. 26. júní 2002 og
Kristín Sigurbjörg
Jóhannsdóttir, f. 14.
maí 1916, d. 21. mars
1999. Þau bjuggu á
Hauganesi á Árskógs-
strönd. Börn Hjörleifs
og Þorgerðar eru: 1)
Helga Guðlaug, f.
1954, dóttir hennar og Jóns Þóris
Baldvinssonar, f. 1954, er Bergdís.
2) Sveinbjörn Jóhann, f. 1956,
kvæntur Elínu Unnarsdóttur, f.
1963, börn þeirra eru Þorgerður
Jóhanna, Unnar Már, Jóhann Ólaf-
ur og Hjörleifur Helgi. Sonur
Sveinbjörns og Evu Jónínu Ás-
mundsdóttur, f. 1961, fyrrum sam-
býliskonu, er Reynir Svan, unnusta
Signa Hrönn Stefánsdóttir. 3)
Björgvin, f. 1959, kvæntur Preeyu
Kempornyib, f. 1969. Sonur Björg-
vins og Aðalsteinu Tryggvadóttur,
f. 1962, er Birgir Örn. Synir Preeyu
frá fyrri sambúð eru Rittichai
Handtakið var hlýtt og þétt,
svipurinn bjartur og augun glett-
in. Hann var fyrsti tengdason-
urinn í Steinnesi. Okkur yngri
systkinunum fannst spennandi
tímar fara í hönd. Stóra systir
var búin að stofna fjölskyldu!
Hann var heldur enginn aukvisi
þessi nýi. Bílarnir sem fastir
voru í snjónum flugu upp ef hann
lagði hönd á þá. Hann sveiflaði
stórum línustömpum í kringum
sig eins og fisi og golþorskarnir
svifu upp á bryggjuna á stingn-
um hjá honum. Hann fór með
okkur á sjó á árabátnum, gekk
með okkur til kinda og lék við
okkur.
En auðvitað var lífsbaráttan
hafin og heimilið var stofnað á
Dalvík. Börnin komu í heiminn
eitt af öðru. Það var þröngt uppi
á hanabjálka í Bergþórshvoli
þegar þau voru orðin þrjú. En
þeim átti eftir að fjölga og fljót-
lega flutti fjölskyldan í Stórhóls-
veg 3, sem þau hjónin byggðu, og
áttu þar heima síðan.
Þegar horft er til baka er
margra ánægju- og samveru-
stunda að minnast. Veiðiferðirnar
í Mýrarkvísl voru skemmtilegar
og lærdómsríkar og gaman að sjá
hvað þessi þrekvaxni maður tipl-
aði fimlega í grjótskriðum og
klettum og eljan og veiðibjart-
sýnin óbilandi. Í útilegum var
stöngin gjarnan höfð með og
hent í sjó eða vatn. Þjóðmálin
voru rædd og Hjörleifur var
verkalýðssinni og vildi hag hinna
stritandi stétta sem mestan. Um
tíma var Þjóðviljinn lesinn
spjaldanna á milli. Hjörleifur var
handlaginn og allt lék í höndum
hans, hvort sem um var að ræða
múrverk eða málun og þótt hann
sæist lítið hreyfast miðaði betur
hjá honum en mörgum. Hann var
hjálpsamur og bóngóður. Flestar
samverustundirnar tengjast þó
Steinnesi, fjölskyldumótum með-
an pabbi og mamma bjuggu þar
og síðar framkvæmdum og end-
urbótum eftir að við systkinin
tókum við húsinu. Ef eitthvað
slíkt þurfti að gera var Hjörleifur
fyrstur á staðinn. Þá sakaði ekki
að grípa í spil að loknu dagsverki
og var þá ekki horft til klukku ef
fjör var í spilamennskunni.
Að leiðarlokum þökkum við
mági okkar samverustundirnar
og vitum að minningin um góðan
dreng mun ylja okkur um ókomn-
ar stundir.
Elsku Gerða systir.
Við sendum þér og allri fjöl-
skyldunni innilegar samúðar-
kveðjur.
Systkinin í Steinnesi
og makar.
Hjörleifur H. Jóhannsson