Morgunblaðið - 13.02.2007, Side 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
fólk
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
EN SPENNANDI! ÉG HEF
ALDREI KOMIÐ Á FYRIRLESTUR
UM DÝRALÆKNINGAR ÁÐUR
LANGAR
ÞIG Í
POPPKORN
NEI TAKK
ELSKAN
ÉG ÞURFTI
AÐ FARA Í
SPRAUTU
Í DAG
ER ÞAÐ? ÉG
ÞOLI EKKI AÐ LÁTA
SPRAUTA MIG!
ÞEGAR ÉG VERÐ ORÐINN
LÆKNIR SJÁLFUR ÞÁ
VERÐUR ÞAÐ ÖRÐUVÍSI...
Í FYRSTA SKIPTI
Á ÆVINNI VERÐ ÉG RÉTTU
MEGINN VIÐ NÁLINA!
SJÁIÐ!
APAR!
SJÁÐU HVERNIG ÞEIR
NOTA BÆÐI FÆTURNA OG
HALANN TIL AÐ KLIFRA
HÉRNA GETUR MAÐUR
SÉÐ HVERNIG DÝRIN HAGA
SÉR Í NÁTTÚRUNNI
SJÁIÐ HVAÐ APINN ER
AÐ GERA! FYRIR FRAMAN
ALLA! ÞETTA ER ÓGEÐSLEGT!
AF HVERJU MÁ ÉG ALDREI
GERA ÞETTA?
KOMDU
AÐ SKOÐA
FUGLANA
KALVIN!
KOMDU!
HVAR KVARTA ÉG YFIR ÞVÍ HVERNIG FARIÐ ER MEÐ SKATTPENINGINN MINN?
ELTU BARA
ÞETTA FÓLK
ÞARNA
SPÁÐU Í ÞAÐ!
SYNGJANDI
OSTRA!
VIÐ EIGUM
EFTIR AÐ VERÐA
FRÆGIR!
FYRIRTÆKIÐ MITT ER AÐ
MISSA STÆRSTA SAMNINGINN
SINN. ÉG VEIT EKKI HVAÐ
VIÐ EIGUM AÐ GERA
ÉG VERÐA AÐ PASSA MIG
AÐ SEGJA EKKERT VIÐ ÖDDU.
HÚN Á EFTIR AÐ HAFA
ÁHYGGJUR EF AÐ HÚN HELDUR
AÐ ÞAÐ SÉ EITTHVAÐ AÐ
HVERNIG
VAR Í
VINNUNNI?
ÞAÐ VAR ALVEG
YNDISLEGT!
ÞAÐ ER BÚIÐ AÐ TAKA GRÍMUNA AF
KAKKALAKKANUM... OG RÚMLEGA ÞAÐ
VÖVARNIR VORU MEIRA AÐ SEGJA
GERVI. ÞETTA ERU BARA PÚÐAR
ÞAÐ MÁTTI
REYNA
ÞETTA
EF ÞIÐ
HEFÐUÐ
HLAUPIÐ ÞÁ
HEFÐI ÉG
KOMIST Í BURTU
MEÐ PENINGINN
MEIRA AÐ SEGJA
GLÆPAMENNIRNIR
ERU Á HRAÐRI
NIÐURLEIÐ
Fimmtudaginn 15. febrúarverður haldinn fundur íRegnbogasal Samtakanna’78 þar sem stofnuð verður
nefnd til undirbúnings transgender-
baráttuhópi.
„Transgender er besta orðið sem
við höfum í dag, og er regnhlíf-
arhugtak yfir fólk sem á einhvern
hátt er í óhefðbundinni stöðu með
kyn sitt,“ segir Anna Jonna Ár-
mannsdóttir, einn af aðstandendum
fundarins. „Við viljum ekki nota orðið
kynskiptingur sem því miður hefur
náð nokkurri útbreiðslu í íslensku.
Við lítum á orðið kynskiptingur sem
skammaryrði, og teljum það gefa
ranga mynd af transgender-
einstaklingum.“
Anna segir mikla þörf á að stofna
baráttuhóp um transgender-málefni:
„Of lengi hefur það fengið að viðgang-
ast að ríki og samfélag meini trans-
gender-fólki að lifa eins og því er eðli-
legt og að eðlileg mannréttindi þess
fólks séu virt,“ segir hún. „Allt kerfið,
bæði yfirvöld og heilbrigðiskerfið,
virðist einblína mjög á kynskiptiað-
gerðina, en aðgerðin er ekki aðal-
málið, heldur að fólk fái að ráða sér
sjálft, og að yfirvöld og heilbrigð-
iskerfið séu ekki að reyna að haf vit
fyrir fólki.“
Anna getur nefnt mörg dæmi um
þær hindranir sem mæta transsexúal
einstaklingum á Íslandi: „Nefna má
dæmi konu, sem fæðist sem karl-
maður. Hún hefur lifað sem kona í
áratug, en fær ekki að taka sér kven-
mannsnafn lagalega. Til þess gerir
hið opinbera þá kröfu að hún sé búin
að gangast undir kynskiptiaðgerð,“
segir Anna. „Þá er heilmikil tregða
hjá heilbrigðisyfirvöldum að leyfa
einstaklingum að gangast undir kyn-
skiptiaðgerð. Virðist stefnan vera sú
að aðgerðaleysi sé besta leiðin til að
forðast mistök.“
Þá nefnir Anna það vandamál að
ekki sé lengur hægt að gangast undir
kynskiptiaðgerð á Íslandi: „Sá skurð-
læknir sem hefur annast aðgerðirnar
hér á landi hefur látið eftir sér hafa að
hann treysti sér ekki lengur til að
framkvæma fleiri aðgerðir að svo
stöddu. Aðgerðirnar séu svo fáar að
ekki sé hægt að viðhalda færni, en til
samanburðar má nefna að til að halda
færni í hjartaskurðaðgerðum er mið-
að við að læknir framkvæmi ekki
færri en 50 aðgerðir á ári,“ segir
Anna.
Þá þurfa transsexúal einstaklingar
og ættingjar þeirra að þola undarlega
meðferð heilbrigðiskerfisins: „Ég get
nefnt reynslu vinar míns sem þykir
hann notaður sem sýningargripur
þegar hann kemur inn á sjúkrahús,“
segir Anna. „Honum þykir virtur að
vettugi réttur hans til að neita lækna-
nemum og öðrum starfsmönnum um
skoðunarferðir og réttur hans til
einkalífs orðinn að litlu. Þá hef ég séð
heimildir um að kona hans er sér-
staklega merkt í sjúkraskrám sem
kona kynskiptings, og leikur grunur á
að það sama gildi um sjúkraskrár
annarra fjölskyldumeðlima.“
Allir eru velkomnir á fundinn á
fimmtudag. Nánari upplýsingar má
finna á slóðinn www.samtokin78.is.
Innan Samtakanna ’78 starfar Trans-
hópur sem hittist fyrsta miðvikudag í
hverjum mánuði.
Samtökin ’78 eru til húsa á Lauga-
vegi 3, 4. hæð.
Anna Jonna bloggar um transsex-
úal málefni á http://annajonna.blogs-
pot.com.
Mannréttindi | Undirbúningsnefnd um trans-
gender-réttindi stofnuð á fimmtudag
Mikil þörf
á baráttuhópi
Anna Jonna
Ármannsdóttir
fæddist á
Drangsnesi við
Steingrímsfjörð
1961. Hún lauk
stúdentspr. frá
Tækniskóla Ís-
lands 1985, BS-
prófi í raf-
eindaverkfr. frá Álaborgarháskóla
1989 og stundaði framhaldsnám við
sama skóla í hljómburðarfr. Þá
lauk hún námi í tölvukerfisfr. árið
2000. Anna hóf störf sem kerf-
isstjóri hjá RHÍ 2005. Sambýlis-
maður Önnu er Kári Andreassen
húsasm. og á hún eina dóttur.
STARFSMAÐUR uppboðshúss Christie’s sýnir hér 7.5 karata, fjólubláan
demantshring á blaðamannafundi í Genf í Sviss. Reiknað er með að hring-
urinn muni fara á um 2.5 - 3 milljónir Bandaríkjadala.
Reuters
Augnayndi