Morgunblaðið - 13.02.2007, Page 52

Morgunblaðið - 13.02.2007, Page 52
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 44. DAGUR ÁRSINS 2007 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is  Austan- og norðaustan 5–10 m/s en 10–15 m/s á SA-landi. Slydda eða snjókoma fyrir austan og sunnan. » 8 Heitast Kaldast 0°C -7°C ÍSLENSK stjórnvöld eru í nýrri skýrslu Evrópunefndar gegn kyn- þáttafordómum og skorti á um- burðarlyndi, ECRI, m.a. hvött til að taka á miklu brottfalli nemenda sem eru af erlendu bergi brotnir úr framhaldsskólum. Þá er mælt með að börnum sem aðhyllast aðra trú en kristna trú verði gefinn kostur á annars konar trúfræðslu í skólum. Angi af sama meiði er að eindregið er mælst til þess að um- sókn um byggingu mosku og ísl- amskrar menningarmiðstöðvar verði tekin til athugunar „án frek- ari tafa“. Starfsréttindi og aðbúnaður er- lends vinnuafls hafa verið mikið til umræðu að undanförnu og hvetja sérfræðingar ECRI stjórnvöld til að veita erlendum ríkisborgurum atvinnuréttindi milliliðalaust en ekki í gegnum vinnuveitendur þeirra. Töluverð áhersla er lögð á ís- lenskukennslu og bent á mikilvægi þess að stjórnvöld fylgist með gæð- um hennar í skólum. Er jafnvel lagt til að slík tunugmálanámskeið séu innflytjendum að kostn- aðarlausu og á skrifstofutíma. | 6 Kennsla í ís- lensku verði ókeypis SÓL hækkar á lofti með degi hverjum og stutt er í að þorrinn kveðji með góukomu. Víst er að á sunnudag mun margur hugsa um spúsu sína, því þá rennur upp sjálfur konu- dagurinn. Þeir sem geta ekki beðið eftir að eiga gæðastund með sinni heittelskuðu geta boðið henni út á Gróttu annað kvöld því þá er Valentínusardagur, dagur elskenda. Fátt er betra fyrir ástina á köldum febrúardegi en að skima út á Faxaflóann þar sem hinn virðulegi Snæfellsjökull blessar leyndardóma ást- arinnar með víðfrægu orkuútstreymi sínu. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Bjart yfir jökli elskenda Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is JÓN Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs Group, var yfirheyrður í hátt í sex klukkustundir í gær, á fyrsta degi aðalmeðferðar í Baugsmálinu, þ.e. vegna þeirra 18 ákæruliða sem eftir eru. Hann var yfirleitt fljótur til svars og oft gætti töluverðrar spennu í samskiptum hans og Sigurðar Tóm- asar Magnússonar, setts ríkissak- sóknara. Við þinghaldið í gær var Jón Ás- geir spurður út í átta ákæruliði sem allir varða meintar ólögmætar lán- veitingar, fimm til Gaums sem var á þessum tíma fjárfestingarfélag í 90% meirihlutaeigu Jóns Ásgeirs og Jó- hannesar Jónssonar föður hans, tvær til Fjárfars sem óljóst er hver átti á þessu tímabili og ein til Kristínar Jó- hannesdóttur, systur Jóns Ásgeirs. Sigurður Tómas spurði ítrekað hvaða einstaklingar hefðu tekið til- teknar ákvarðanir sem varða meint ólögleg lán Baugs til Gaums en oft svaraði Jón Ásgeir því til að hann hefði ekki vitneskju um það eða yrði í öllu falli að sjá gögn um hvert og eitt mál áður en hann gæti svarað. Þá gerði Gestur Jónsson margar athuga- semdir við spurningar Sigurðar þeg- ar hann taldi spurningar saksóknar- ans víðsfjarri málinu. Aðalmeðferðin mun halda áfram næstu sjö vikurnar og hefst á því að Gestur Jónsson mun bera gögn undir Jón Ásgeir í þeim til- gangi að varpa nánara ljósi á atburði. Jón Ásgeir hefur ávallt haldið fram sakleysi sínu og hann hvikaði hvergi frá því í gær. Sigurður Tómas lagði mikla áherslu á að fá fram upplýsingar um tengsl Jóns Ásgeirs við Fjárfar sem fékk samtals lánaðar um 150 milljónir hjá Baugi á árunum 2000 og 2001 og sagði Jón Ásgeir að hann hefði þá ekki átt Fjárfar. Gestur Jónsson hrl., verjandi Jóns Ásgeirs, gerði ítrekað athugasemdir við spurningarnar og sagði þær ekki koma ákæruefninu við, verið væri að reyna að draga hluti inn í málið sem dómstólar hefðu þeg- ar vísað frá. Búist er við að yfirheyrslu yfir Jóni Ásgeiri ljúki seinnipartinn á miðviku- dag.  Ólögmætar | 12–13 Spurði ítrekað hverjir tóku ákvarðanir um lánveitingar Spenna í réttarsalnum á fyrsta degi aðalmeðferðar í Baugsmálinu  Saksóknari og verjandi tókust á um réttmæti spurninga og þýðingu þeirra fyrir málið Morgunblaðið/ÞÖK Byrjað Jón Ásgeir Jóhannesson mætti með skjalamöppur í Bónuspoka við upphaf aðalmeðferðarinnar. Gestur Jónsson t.v. og Jakob Möller t.h. Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is TÆPAR fjórar vikur eru liðnar frá því að 13 manna hópur kennara í Laugarnesskóla ákvað að kaupa ekkert annað nýtt en nauðsynjar. Átakið hófst á bóndadaginn og stendur yfir í tvo mánuði, þorrann og góuna. Fyrirmyndin er hinn bandaríski Compact-hópur sem nýlega komst í fréttirnar fyrir að kaupa ekkert nýtt í eitt ár. „Okkur fannst tveir mánuðir hæfi- lega langur tími en svo kemur í ljós hvort við hættum í átakinu eða höld- um áfram með þetta sem lífsstíl,“ segja kennararnir Rúna Björg Garð- arsdóttir og Helen Símonardóttir. Helen viðurkennir þó að gjafamálin séu svolítið erfið og til dæmis hafi hún komist í bobba þegar gefa átti nýfæddum snáða gjöf. „Það endaði með því að ég leyfði þriggja ára syni mínum að velja leik- föng úr gamla dótinu sínu til að færa þeim litla. Hann hefur aldrei verið eins ánægður að gefa nokkra gjöf enda var hann að gefa meira af sjálf- um sér en venjulega.“ Þær segja talsverðar umræður hafa skapast á kennarastofunni und- anfarna mánuði um þá ofgnótt hluta sem flestir hafa í kringum sig. Rúna Björg bendir þó á að átakið snúist ekki eingöngu um að sneiða hjá því að kaupa. „Við erum að draga úr eft- irspurn með þessu. Það er stöðugt verið að ganga á auðlindir jarðar með því að framleiða hluti sem við þurfum kannski ekki á að halda. Fyrir mig skiptir mestu máli að hugsa þetta svolítið hnattrænt.“ | 22 Þreyja þorrann innkaupalaust Morgunblaðið/G. Rúnar Þarfaþing Aðeins eru gefnar gjafir sem ekki er hægt að henda. Hópur kennara í Laugarnesskóla kaupir ekkert nema nauðsynjar á góu og þorra Í HNOTSKURN » Samkvæmt samningi hópsinsmá hann ekki kaupa neina nýja hluti nema þá sem flokkast undir mat, hreinlætisvörur, lyf og öryggisvörur þessa tvo mánuði. » Hins vegar er leyfilegt aðkaupa notaða hluti sem og ýmiss konar þjónustu sem m.a. hefur komið sér vel þegar gefa á gjafir. SVEITARSTJÓRNIR landsins bregðast á ýmsan hátt við rekstr- arerfiðleikum sveitarfélaganna. Á Djúpavogi er nú í skoðun hvernig hægt er að hagræða í rekstri; beita á niðurskurði og ganga hart eftir því að íbúar sem sann- anlega hafa atvinnu, starfsstöð og/eða aðsetur á Djúpavogi hafi lögheimili þar. Á þetta m.a. við um Sjöfn Jóhannesdóttur sókn- arprest sem hefur haft lögheimili og aðsetur í Heydölum í Breiðdal sl. 16 ár, en það kemur til af því að hún er gift sóknarpresti Hey- dalaprestakalls. Heimildir Morgunblaðsins herma að Sjöfn sé ekki fráhverf því að flytja til Djúpavogs fáist fram breyting á lögheimili henn- ar hjá þjóðskrá en slíks munu fá ef nokkur dæmi. | 20 Sambúðar- eða kirkjulög? ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.