Morgunblaðið - 29.03.2007, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 29.03.2007, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 29. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Andra Karl andri@mbl.is EFNT var til fundarins í tilefni af því að tíu dagar eru liðnir frá því að Framtíðarlandið lagði fram „Sátt- mála um framtíð Íslands“ en á þeim tíma hafa tæplega 8.300 ein- staklingar skrifað undir sáttmálann. Þeir fulltrúar sem mættu til að ræða málin voru Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir, formaður Samfylkingarinnar, Illugi Gunnarsson, frambjóðandi Sjálfstæðisflokks, Kolbrún Halldórs- dóttir, þingkona VG, Ómar Ragn- arsson, bráðabirgðaformaður Ís- landshreyfingarinnar, Guðjón Ólafur Jónsson, þingmaður Framsókn- arflokksins, og Kristinn H. Gunn- arsson, þingmaður Frjálslyndra. Meðal þess sem kom fram var að fulltrúar fjögurra stjórnmálaflokka af sex voru fylgjandi því að staldra ætti við í stóriðjuframkvæmdum, en voru þó ekki á eitt sáttir um hversu lengi skyldi staðnæmast. Guðjón Ólafur reifaði fyrst kostina við að staldra við sem hann sagði vera að væntanlega myndi hægja á þeirri þenslu sem verið hefði í hagkerfinu, auk þess sem það myndi að einhverju leyti koma í veg fyrir umhverf- isspjöll. Hvað galla varðaði benti Guðjón m.a. á að uppbygging í sam- félaginu yrði ekki eins mikil og hefur verið að undanförnu. „Og ég tel eðli- legt að sú orkuvinnsla sem hefur ver- ið leyfð og samþykkt gangi áfram,“ sagði Guðjón og vísaði þar m.a. á virkjun í neðri hluta Þjórsár. Illugi Gunnarsson sagði m.a. að honum þætti eðlilegt að ef Hafnfirð- ingar tækju þá ákvörðun nk. laug- ardag að samþykkja nýtt deiliskipu- lag, sem væri m.a. forsenda þess að af stækkun álversins í Straumsvík yrði, þá væri eðlilegt að halda áfram með þá framkvæmd. „Síðan næstu árin tel ég bráðnauðsynlegt að menn ræði vel og vandlega hvaða svæði það eru sem við viljum ekki virkja á, sem við viljum vernda. Ég tel að það sé fyrst og fremst spursmál sem ekki er pólitískt í eðli sínu, og við eigum að komast að niðurstöðu sem samfélag.“ Illugi sagði jafnframt að honum þætti ólíklegt að ef stækkað yrði í Straumsvík, að einnig yrði af fram- kvæmdum í Helguvík. Rannsóknir haldi áfram „Ég held að einmitt núna þurfum við að staldra við og fresta þeim áformum sem eru uppi, þeim stór- iðjuáformum og virkjanaáformum,“ sagði Ingibjörg Sólrún. Hún sagði jafnframt að þrátt fyrir að hún teldi að staldra ætti við í fram- kvæmdum væri í lagi að halda áfram rannsóknum á vatnsafli og jarð- varmavirkjunum á svæðum sem þeg- ar væri búið að fara inn á. Hún sagð- ist jafnframt enga trú á því hafa að stöðnun yrði í efnahagslífinu ef staldrað yrði við í stóriðju. Kolbrún Halldórsdóttir sagði að ekki ætti að staldra við heldur sveigja af þeirri braut sem stjórnvöld hefðu beint þjóðinni inn á. Hún sagði álver bjóða upp á einhæft atvinnulíf sem kæmi í veg fyrir fjölbreytni og um leið og hætt yrði við álver myndu hugmyndir fólksins í landinu fá víta- mínsprautu. Það væri þá stjórnvalda að sjá til þess að undirbúa jarðveg fyrir hugmyndirnar. „Nú kann að vera að ég hljómi eins og sjálfstæð- ismaður því framtak einstaklingsins hefur löngum verið merkt Sjálfstæð- isflokknum. En við erum róttækur umhverfisverndarsinnaður vinstri- flokkur að prédika þetta. Við eigum að treysta á hugmyndir fólksins í landinu.“ Kann ekki við hótanir frá Alcan Kristinn H. sagði það skyldu stjórnmálamanna að ná tökum á efnahagslífinu. „Ef ekki verður af stækkun í Straumsvík hægir á fram- kvæmdum í að minnsta kosti eitt ár. En ég óttast að þunginn fari þá á ál- ver í Helguvík og er ekki viss um að seinkunin verði nægilega mikil til að ná tökum á efnahagnum.“ Hann sagðist einnig vilja fá fram hver arðsemin af orkusölu hefði verið og vilja m.a. doka við þar sem hann hefði rökstuddan grun um að orku- verð ætti eftir að hækka. Einnig sagðist hann kunna illa við að stjórn- málamönnum væri stillt upp við vegg. „Það þarf aðeins að tala við þessa álfursta með tveimur hrúts- hornum. Ég kann ekki við hótanir frá Alcan, sem komu snemma fram í kosningabaráttunni, um að ef stækk- un yrði ekki samþykkt þá yrði ál- verinu lokað fljótlega. Það þarf að gera þeim það ljóst að jafnvel þó að menn samþykki álver fyrir tiltekið fyrirtæki þá geti það ekki stillt stjórnmálamönnum upp við vegg síð- ar og hótað að loka og flytja úr landi fái þeir ekki stækkun.“ Síðastur til að lýsa skoðun sinni var Ómar Ragnarsson, sem lýsti ferli undanfarinna ára sem hraðlest. Ál- fyrirtækin þyrftu sífellt stærri álver, annars færu þau og nú væri kominn tími til að segja stopp. Ómar vill setja fullan þunga í rannsóknir á djúpbor- un þannig að niðurstöður fáist sem fyrst. Þá sé hugsanlega hægt að ná orku með margfalt minni umhverfis- áhrifum. Fjórir af sex fulltrúum með því að staldra við í stóriðju Í HNOTSKURN »Á milli þess sem fulltrúarstjórnmálaflokkanna svör- uðu spurningum voru leikin atriði úr leikritinu Drauma- landið sem sýnt er í Hafn- arfjarðarleikhúsinu. »Óhætt er að segja að fleirigestir hefðu komist að en mættu á fundinn og var skýr- ingin m.a. sú að Ungir jafn- aðarmenn í Hafnarfirði voru einmitt með fund um fyrirhug- aðar kosningar í Flensborg á sama tíma. Framtíðarlandið hélt opinn umræðufund í Hafnarfjarðarleikhús- inu í gærkvöldi. Þar voru mættir fulltrúar stjórnmálaflokka og þeir m.a. spurðir út í hvort staldra ætti við. Morgunblaðið/ÞÖK Sáttmálinn lesinn? Kristinn H. Gunnarsson, Ómar Ragnarsson og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir mættu sem fulltrúar sinna flokka á fundinn í gær. Þau skemmtu sér vel yfir skemmtiatriðum á milli spurninga. FLEST bendir til þess að fugla- flensa dreifist ekki með villtum fugl- um, að sögn Yanns Kolbeinssonar, líffræðings hjá Náttúrustofu Suður- lands. Því óttast menn síður nú en áður að þessi sjúkdómur berist með far- fuglum hingað til lands. „Flest tilfelli fuglaflensu má rekja beint eða óbeint til alifugla sem þýðir að hún dreifist milli landa aðallega af mannavöldum,“ sagði Yann Kol- beinsson. Geta hugsanlega borið veikina skemmri leið Hann sagði að vissulega gætu villtir fuglar smitast af veikinni og borið hana skemmri leið. Margt benti þó til þess að þeir væru ekki aðalsmitberar fuglaflensu á milli landa. Þá benti Yann á að veikir fuglar ættu væntanlega erfitt með að kom- ast yfir hafið til Íslands. Því væri landið á vissan hátt í sóttkví. Í fyrravor var fylgst vel með far- fuglunum þegar þeir komu til lands- ins. Ólíklegt að villtir fugl- ar beri smit Blönduós | Grá- gæs bættist í hóp farfugla í hádeginu í gær en gæsin sú kom ekki loftleiðis heldur tók hún sér far með áætlunarbifreið sem fer milli Reykjavíkur og Akureyrar. Gæs þessi hafði verið send frá Hvammstanga á Blönduós til sumardvalar hjá Jónasi Skafta- syni en Vestur-Húnvetningar höfðu heyrt af lagni Jónasar við uppeldi þessa fugls. Jónas kom gæsinni fyrir í gerði utan við hús sitt og ræddi við hana örlitla stund og eftir þær sam- ræður tók gæsin flugið út á Blöndu. Reyndar er þessi gæs ættuð úr Mið- firðinum en hafði strokið til Hvammstanga og verið þar heldur til leiðinda og þá helst gagnvart börnum. Vestur-Húnvetningar hafa talið það heillaráð að láta Jónas Skaftason í Blöndubóli sjá um frek- ara uppeldi sem tókst svo vel að gæsin er farin frá Jónasi eftir stutta dvöl og bíður nú eftir hinum gæs- unum. Tók sér far með rútunni SAMKOMULAGI milli Landsnets og Alcan felur í sér að raflínur við Vallarhverfið í Hafnarfirði verða fjarlægðar ásamt stórum hluta spennustöðvarinnar við Hamranes. Aðrar loftlínur sem nú standa ofan við byggðina verða settar í jörð við Kaldárselsveg að spennustöðinni en stöðin mun að loknum breyt- ingum eingöngu þjónusta íbúðar- byggð á svæðinu. Sú lausn sem valin var er 800 milljónum krónum dýrari en ódýr- asta lausnin sem hægt hefði verið að fara. Kostnaðurinn liggur í jarð- strengum, tengivirki og fleiru. Ekki fengust upplýsingar frá Landsneti um heildarkostnað við framkvæmdirnar allar. Heildar- lengd nýrra háspennuloftlína, sem byggðar verða í lögsögu Hafnar- fjarðar, er samtals tæplega 21 km. Samtals verða lagðir um 9,3 km af nýjum jarðstrengjum. Aflagðir verða samtals rúmir 17 km í loft- línum. Tvær 245 kV loftlínur og ein 145 kV lína liggja í dag sunnan við Vallahverfi. Þessar línur verða teknar niður við Kaldárselsveg og settar í jörðu. Lína sem liggur á Suðurnes kemur aftur upp úr jörð- inni sunnan við álverið. Lagningu Búrfellslínu verður breytt þar sem hún tengist álverinu. Hún mun liggja í nýtt tengivirki við Hraun- tungur og þaðan í álverið. Þessi lína verður áfram loftlína. Hafnarfjarðarbær mun ekki bera kostnaðinn af breytingunum en þær eru háðar því að stækkun álversins verði að veruleika, enda eru aukin raforkukaup álversins forsenda þess að breytingin verði. Með samkomulaginu er komið mjög til móts við óskir bæjaryf- irvalda og íbúa á svæðinu um að lagðar verði raflínu í jörðu. Þær raflínur sem liggja munu að álverinu eftir breytingu verða mun fjær byggðinni en nú er. Byggð verður ný spennistöð við Hraun- tungur, á landsvæði sem ráðgert er að verði framtíðariðnaðarhverfi Hafnarfjarðar, en að hinni nýju spennustöð verður ein loftlína frá Hamranesi. Vegna aukinna raf- orkuflutninga til álversins þarf að bæta við einni raflínu í flutnings- kerfi Landsnets (Kolviðarhólslínu 2) sem liggja mun ofan af Hellis- heiði samhliða Búrfellslínu 3 að nýrri spennistöð við Hrauntungur. Flutningsgeta Búrfellslínu 3 verð- ur einnig aukin og umhverfisrask þannig lágmarkað. Kostnaður nemur 800 milljónum  Samkomulag Alcan og Landsnets um raforkuflutning til álversins í Straumsvík felur í sér að kostnaður við framkvæmdir verður 800 milljónum meiri en ef ódýrasta lausnin hefði verið valin                                                      ! "# $$% $    &!   !       ' '     ()'  *!+ "# $$% $% ,  !! "# $$% $- '               *! "# $$% $  *! "# $$% $ ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.