Morgunblaðið - 29.03.2007, Síða 35

Morgunblaðið - 29.03.2007, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MARS 2007 35 Félagsstarf Aflagrandi 40 | Vinnustofan opnuð kl. 9. Jóga kl. 9. Boccia kl. 10. Útskurður kl. 13. Myndlist kl. 13. Vídeó- stund kl. 13.30. Árskógar 4 | Kl. 9.30 bað. Kl. 8–16.30 handav. kl. 9– 16.30 smíði/útskurður. Kl. 9.30 Boccia. Kl. 10.30 helgistund. Kl. 11 leikfimi. Kl. 13.30 myndlist. Bólstaðarhlíð 43 | Fræðsluerindi hjúkrunarfræði- nema kl. 14–14.30 um byltur og byltuvarnir, svefn og svefnvandamál, þvagleka og meðferðarúrræði. Allir velkomnir. Félagsvist á morgun kl. 13.30. Hár- greiðsla, böðun, leikfimi, myndlist, handavinna, dag- blöð, fótaaðgerð, hádegisverður, bókband, kaffi. Uppl. s. 535-2760. Bústaðakirkja | Foreldramorgunn kl. 10. Boðið upp á hressingu á mjög vægu verði í vinalegu og eflandi umhverfi kirkjunnar. Dalbraut 18–20 | Fjölbreytt félagsstarf alla daga. Fimmtudaga söngur með harmonikkuundirleik. Heitt á könnunni og meðlæti. Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids í dag kl. 13. Félag kennara á eftirlaunum | Bókmenntaklúbbur í KÍ-húsi kl. 14–16. EKKÓ-kórinn æfir í KHÍ kl. 17–19. Félagsheimilið Gjábakki | Leikfimi kl. 9.05 og kl. 9.55. Rammavefnaður kl. 9.15. Málm- og silfursmíði kl. 9.30. Bókband kl. 13. Myndlistarhópur kl. 16.30. Stólajóga kl. 17.15. Stólajóga kl. 18. Félagsmiðstöðin, Gullsmára 13 | Kl. 9 handavinna, kl. 10 ganga, kl. 11.40 hádegisverður, kl. 13 handa- vinna og brids, kl. 18.15 jóga. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Gler- og leirsmiðja kl. 13 í Kirkjuhvoli. Karlaleikfimi kl. 13 og boccia kl. 14 í Ásgarði. Vatnsleikfimi kl. 13 í Mýri. Handavinnuhorn eftir hádegi í Garðabergi. Tölvur kl. 17 í Garðaskóla. Vorfagnaður Oddfellow og FAG kl. 19.30 í Kirkjuhvoli. Félagsstarf eldri borgara í Mosfellsbæ | Handa- vinnustofan í Hlaðhömrum er opin alla virka daga eftir hádegi. Fjölbreytt föndur. Félagsstarf Gerðubergs | Helgistund fellur niður, guðsþjónusta í Fella- og Hólakirkju kl. 14 á vegum Ellimálaráðs Reykjavíkurprófastdæma, m.a. syngur Gerðubergskórinn. Frá hádegi vinnustofur opnar, leiðsögn í myndlist fellur niður vegna veikinda. Uppl. á staðnum og s. 575-7720. Hraunbær 105 | Kl. 9–12.30 postulín III. Kl. 10–11 boccia. Kl. 11–12 leikfimi, (frítt). Kl. 12–13 hádeg- ismatur. Kl. 14–16 félagsvist. Kl. 15 kaffi. Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi kl. 9. Leikfimi kl. 11.20. Glerbræðsla kl. 13. Bingó kl. 13.30. Hvassaleiti 56–58 | Hannyrðir hjá Þorbjörgu kl. 9– 16. Boccia kl. 10–11. Félagsvist kl. 13.30, páskaegg í vinning, allir velkomnir. Böðun fyrir hádegi. Fótaað- gerðir s. 588-2320. Hársnyrting s. 517-3005. Hæðargarður 31 | Hefurðu heyrt um leikfimina, ferðina að Hala, skapandi skrif, myndlistina, fram- sögnina, tölvufræðsluna, bútasauminn og Dísirnar og Draumaprinsana sem ætla að hittast í dag kl. 13.30? Páll Bergþórsson kemur í Sparikaffi kl. 14 á föstudag og ræðir um hafísinn o.fl. S. 568-3132. Korpúlfar, Grafarvogi | Á morgun föstudag er sund- leikfimi í Grafarvogssundlaug kl. 9.30 og listasmiðja á Korpúlfsstöðum kl. 13. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Sögustund kl. 10.30. Boccia kl. 10.30. Handavinnustofur kl. 13. Boccia kl. 13.30. Kaffiveitingar kl. 14.30. Uppl. í s. 552–4161. Norðurbrún 1 | Kl. 9 smíði, kl. 9–12 leirnámskeið, kl. 10 boccia, kl. 9–16.30 opin vinnustofa, kl. 13 upp- lestur, kl. 13–16 leirnámskeið. Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir. Kl. 9–10 boccia. Kl. 9.15–14 aðstoð v/böðun. Kl. 9.15– 15.30 handavinna. Kl. 10.15–11.45 spænska. Kl. 11.45– 12.45 hádegisverður. Kl. 13–14 leikfimi. Kl. 12.30– 14.30 kóræfing. Kl. 13–16 glerbræðsla. Kl. 14.30– 15.45 kaffiveitingar. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 8.30–12, bók- band kl. 9–13, hárgreiðslu- og fótaaðgerðarstofur opnar frá kl. 9, morgunstund kl. 9.30, boccia kl. 10–11, handavinnustofan opin allan daginn og allir velkomn- ir, glerskurður kl. 13–17, frjáls spilamennska. Þórðarsveigur 3 | Kl. 10 bænastund og samvera. Kl. 13 opinn salurinn. Kl. 13.15–14 leikfimi, (frítt). Kl. 14.30 bingó/félagsvist. Kirkjustarf Akureyrarkirkja | Kyrrðar- og fyrirbænastund kl. 12. Léttur hádegisverður á eftir. Emmaus-námskeið kl. 20. Krossinn sem sigurtákn yfir illsku í mannlegu samfélagi. Áskirkja | Kl. 10–12 foreldramorgunn. Tónlistar- kennsla með Suzuki-aðferð. Gyða og Berglind tón- listarkennarar. Kl. 14 Kári Þormar organisti með samsöng. Kaffi á eftir. Kl. 17 8–9 ára klúbbur, kl. 18 TTT-starf: páskaeggjaleit. Breiðholtskirkja | Biblíulestur kl. 20. Biblían, stjórn- mál og staðleysur. Kennari: Dr. Sigurjón Árni Eyjólfs- son. Textar sem fjalla um hugmyndir um samskipti trúar og stjórnmála, veraldlegs og andlegs valds teknir fyrir. Sérstaklega fjallað um útópíur eða stað- leysur í tengslum við trú og stjórnmál. Digraneskirkja | Leikfimi ÍAK kl. 11.15. Foreldra- morgnar kl. 10 í fræðslusal. Bænastund kl. 12. Barna- starf 6–9 ára kl. 17.15. Unglingastarf fyrir 13 ára kl. 19.30–21.30. www.digraneskirkja.is Dómkirkjan | Kvöldkirkjan opin kl. 20–22. Bæna- stundir kl. 21 og 22. Komið í kyrrðina og takið þátt í bænastund eða kveikið á bænakerti. Allir velkomnir. Grafarvogskirkja | Foreldramorgunn kl. 10–12. Ýmiss konar fyrirlestrar. Heitt á könnunni, djús og brauð fyrir börnin. TTT fyrir 10–12 ára í Víkurskóla kl. 17–18. Lesið úr Passíusálmum séra Hallgríms Péturssonar. Í dag kl. 18 les Dagný Jónsdóttir. Hjallakirkja | Opið hús fyrir eldri borgara í dag kl. 12– 14. Farið verður í heimsókn í kirkju á höfuðborg- arsvæðinu. Lagt af stað með rútu frá Hjallakirkju kl. 12. Allir velkomnir. Kirkjuprakkarar, 6–9 ára starf, kl. 16.30–17.30. KFUM og KFUK | Holtavegi 28. Fundur í AD KFUM í kvöld kl. 20. Fallnir stofnar – Magnús Runólfsson. Þorgeir Arason sér um fundarefnið. Kaffi eftir fund- inn. Allir karlmenn eru velkomnir. Laugarneskirkja | Engin samvera eldri borgara í Laugarneskirkju í dag, en minnt er á sameiginlega guðsþjónustu eldri borgara í Fella- og Hólakirkju kl. 14 í dag. Minnum einnig á ferð okkar að Gljúfrasteini – húsi skáldsins hinn 12. apríl kl. 14. Skráning hjá kirkjuverði eða framkvæmdastjóra. Kyrrðarstund kl. 12. Gunnar Gunnarsson leikur ljúfa tóna á orgelið og Sigurbjörn Þorkelsson les upp úr Biblíunni, hugleiðir textann og leiðir bænir. Að stundinni lokinni er hægt að fá máltíð á 500 kr. Allir velkomnir. Kl. 17 Adrenalín gegn rasisma, unglingastarf. Umsjón: Sr. Hildur Eir Bolladóttir. Gospelskvöld í Hátúni 10 kl. 20.30. Fram koma Þorvaldur Halldórsson, Guðrún K. Þórsdóttir djákni o.fl. AA-fundur í safnaðarheimilinu kl. 21. Vídalínskirkja, Garðasókn | Kyrrðar- og fyrirbæna- stund í kvöld kl. 21. Tekið við bænarefnum af prest- um og djákna. Boðið upp á kaffi í lok stundarinnar. 80ára afmæli. Í dag, 29.mars, verður áttræður Jón Hnefill Aðalsteinsson, próf. emeritus, Einarsnesi 32. Af því tilefni tekur hann á móti gestum í Norræna hús- inu í Reykjavík, laugardaginn 31. mars, milli kl. 14 og 17. 70og 75 ára afmæli. Syst-urnar Helga Sigríður og Ása Árnadætur verða sjö- tíu ára og sjötíu og fimm ára 31. mars. Í tilefni tímamót- anna bjóða þær ættingjum og vinum í miðdagskaffi sunnu- daginn 1. apríl kl. 15 til 18 í Tjarnarsal Stóru-Vogaskóla. Orð dagsins: Vaknið því, þér vitið eigi, hvaða dag Drottinn yðar kemur. (Matth. 24, 42.) Tónlist DOMO Bar | Ómar Guðjóns-tríó í kvöld kl. 21. Tríóið skipa þeir Ómar Guðjónsson á gítar, Valdimar Kol- beinn Sigurjónsson á rafbassa og Snorri Páll Jónsson á trommur. Leikið verður nýtt efni gítarleik- arans. Salurinn, Kópavogi | Sjaldheyrð- ar ljóðaperlur: Jónas Guðmunds- son tenórsöngvari og Anna Guðný píanóleikari kl. 20. Á efnis- skrá eru verk eftir Beethoven, Liszt, Respighi og Rachmaninoff. Miðaverð: 2.000/1.600 kr. á sal- urinn.is og í s. 570-0400 Nánar á www.salurinn.is Söfn Landsbókasafn Íslands, Há- skólabókasafn | Garðurinn – Jar- din er bóklistaverk með listaverk- um eftir franska myndlistarmanninn Bernard Allig- and og ljóðum eftir Sigurð Páls- son. Aðeins voru prentuð sjötíu eintök og engin tvö eins. Sam- kvæmt hefð árita skáldið og myndlistarmaðurinn öll verkin. Einnig sýnir Bernard Alligand 43 málverk. Sölusýning. Uppákomur Bókasafn Kópavogs | Í dag kl. 17.15 verður síðasta erindið um Furður. Þá talar Hermundur Rós- inkrans um talnaspeki og spá- dóma tengda henni. Missið ekki af þessum fróðleik. Allir velkomnir, enginn aðgangseyrir, heitt á könn- unni. Fyrirlestrar og fundir Bústaðakirkja | Fyrirlestur um unglingamenningu í kvöld kl. 20. Kjartan Þór Ragnarsson mennta- skólakennari og Ólafur Jóhann Borgþórsson prestur og æsku- lýðsfulltrúi flytja fyrirlestur og innlegg. Allir velkomnir. Háskóli Íslands, VRII, Hjarð- arhaga 2–6, stofa 157 | Málstofa á vegum verkfræðideildar HÍ kl. 16.45. Fjallað um forðafræði há- hitasvæða, innri gerð há- hitasvæða og hvernig rannsóknir á yfirborði og með borunum leiða í ljós sérkenni og nýtingarmögu- leika. Sérstaklega fjallað um rann- sóknir í megineldstöð Hengils, virkjanirnar á Nesjavöllum og Hellisheiði. Sögufélag, Fischersundi 3 | Á rannsóknarkvöldi Félags íslenskra fræða í kvöld kl. 20, flytur Mar- teinn H. Sigurðsson erindið: Ein- hendr áss: Um goðið Tý og sam- nefnda rún. Þar verður fjallað um guðinn Tý og helstu heimildir um hann. Reynt verður að varpa ljósi á söguna um handarmissi Týs í tengslum við samnefnda rún. Fréttir og tilkynningar Ættfræðifélagið | Fundur í kvöld kl. 20.30 í sal Þjóðskjalasafnsins, Laugavegi 162. Fyrirlesari er Árni Indriðason sagnfræðingur og menntaskólakennari, fyrirlest- urinn er um Reynistaðarbræður – Hjátrú sem tengist fólki af Reyni- staðarætt og tengsl við örlög bræðranna. Auglýstu atburði á þínum vegum hjá okkur Hafðu samband við auglýsingadeild Morgunblaðsins í síma 569 1100 • Tónleika • Myndlistar- sýningar • Leiksýningar • Fundi • Námskeið • Fyrirlestra • Félagsstarf • Aðra mann- fagnaði árnað heilla ritstjorn@mbl.isdagbók Í dag er fimmtudagur 29. mars, 88. dagur ársins 2007 Rannsóknastofa í kvenna- ogkynjafræðum við Háskóla Ís-lands hefur staðið fyrir fyr-irlestraröð í vetur. Í dag, fimmtudag, kl. 12:15 í stofu 132 í Öskju, munu Andrea Ólafsdóttir nemi í uppeld- isfræði og Hjálmar Sigmarsson mann- fræðingur flytja fyrirlesturinn Þetta er út um allt. Upplifun og viðhorf unglinga til kláms. „Við munum kynna rannsóknarverk- efni sem unnið var í fyrrasumar, og hlaut styrk úr Nýsköpunarsjóði, þar sem skoðað var viðhorf unglinga til kláms, hvernig þeir upplifa og túlka klám í umhverfi sínu,“ segir Andrea en rætt var við kynjaskipta hópa 14 og 16 ára unglinga og blandaðan hóp 17–18 ára ungmenna. „Samræðurnar voru opnar og fengu unglingarnir að tjá skoðanir sínar ótrufl- að og skilgreina klám á eigin forsendum, en ýmislegt áhugavert kom í ljós,“ segir Andrea. „Áberandi var að þeim fannst klám birtast mjög víða, bæði í fjöl- miðlum, auglýsingum, tónlistar- myndböndum og kvikmyndum. Netið var sérstaklega nefnt sem miðill þar sem ekki var hægt að komast hjá því að sjá klám, og því beinlínis þröngvað upp á þau, því allskyns sakleysislegir tenglar og „popp-upp“-gluggar vísa á klámefni. Auk þess nefndu þau strippstaði í al- menningsrýminu sem þeim fannst óþægilega nálægt þeim.“ Andrea segir ungmennin almennt hafa litið á klám sem óraunverulegt: „Unglingunum þótti flestum klám vera niðurlægjandi, þá sérstaklega fyrir konur, og mörgum þeirra fannst klám jafnvel ógeðslegt. Viðhorf stelpnanna var meira afgerandi, en strákarnir voru þó vel meðvitaðir um valdamismuninn milli kynjanna sem birtist í klámi, þar sem konan er iðulega sýnd í þjónustu- eða þrælshlutverki við karlinn,“ segir Andrea. „Mátti greina áhyggjur af því að þetta fordæmi smit- aðist út í samfélagið, hefði áhrif á sjálfs- mynd unglinga, samskipti kynjanna og jafnréttismál.“ Áberandi var sú skoðun ungmenn- anna að þörf væri á aukinni fræðslu: „Þá ekki með þeim hætti sem nú er í skólum, þar sem aðaláherslan er á líffræði kyn- færanna og getnaðarvarnir, heldur fræðslu um kynlíf og samskipti kynjanna, þar sem nemendur fá að tjá upplifanir sínar og viðhorf og eiga al- vöru samræður um kynlíf.“ Samfélag| Fyrirlestur um upplifun og viðhorf unglinga til kláms í dag Vilja alvöru samræður  Andrea Ólafs- dóttir fæddist á Húsavík 1972. Hún lauk stúdentsprófi frá Framhalds- skólanum í Húsa- vík 1993 og leggur nú stund á nám í uppeldisfræði við Háskóla Íslands. Andrea hefur m.a. starfað við bók- haldsstörf og er sjálfboðaliði hjá Rauða krossi Íslands og situr í stjórn RKÍ. Andrea er í framboði fyrir VG í SV-kjördæmi Hún á einn son. KRÓNIKUR dags og nætur er yf- irskrift á sýningu til heiðurs franska höfundinum Xavier Durr- inger. Sýningin er byggð á bók Durringers, Les chroniques des jours entiers et des nuits entiéres, og inniheldur fjölmarga stutta prósatexta og samtöl. Flytjendur eru: Ásta Ingibjartsdóttir, kenn- ari í frönsku við háskólann, Gunn- ar Gunnsteinsson leikari, Jóhann Meunier leikari og Margrét Ósk- arsdóttir, leikari og frönskunem- andi, en hún þýddi verkið ásamt Ástu. Leikstjóri er Ingi- björg Þórisdóttir. Frumsýningin er í kvöld Borgarleikhúsinu klukkan 20:00. Næstu sýningar eru á morgun og laugardag kl. 20. Aðeins þessar þrjár sýningar. Sýningin er samstarfsverk- efni menningarhátíðarinnar Franskt vor á Íslandi og Há- skóla Íslands. Frönsk leiksýning í Borgarleikhúsinu Krónikur dags og nætur Xavier Durringer

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.