Morgunblaðið - 29.03.2007, Page 48
FIMMTUDAGUR 29. MARS 88. DAGUR ÁRSINS 2007
» MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Áhugaverð tillaga
Sturla Böðvarsson samgöngu-
ráðherra fagnar áhuga fjárfesta og
verktaka á að koma að vegagerð á
forsendum breyttra vegalaga. Hann
telur tillögu Ístaks og Sjóvár varð-
andi Suðurlandsveg áhugaverða. » 2
64.000 frístundahús
Dæmi er um tæplega 500 m2 frí-
stundahús með gestahúsi og bílskýli
að auki. Skipulagðar frístundabyggð-
ir á Suður- og Vesturlandi geta rúm-
að allt að því 64.000 frístundahús. »
4
Ekki hægt að refsa
Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ás-
geirs Jóhannessonar, sagði í Héraðs-
dómi Reykjavíkur að ekki væri hægt
að refsa einstaklingi fyrir brot á 104.
grein hlutafélagalaga og því ætti að
sýkna Jón Ásgeir af öllum ákæruefn-
um sem tengjast meintum ólöglegum
lánveitingum Baugs til tengdra aðila.
»12-13
Naumt tap gegn Spáni
Íslenska landsliðið í knattspyrnu
tapaði fjórða leiknum í röð í und-
ankeppni Evrópumótsins þegar það
lá fyrir Spánverjum, 1:0, í ausandi
rigningu á Mallorca. » Íþróttir
SKOÐANIR»
Ljósvaki: Amerískar uppfinningar
Staksteinar: Umhugsunarefni
Forystugreinar: Um orðhengilshátt
lögfræðinga | Börn, íþróttir og
jafnræði
UMRÆÐAN»
Fyrirkomulag og fjármögnun …
Pistill á Útvarpi Sögu veldur ólgu
Umræðan á blog.is
Hafnfirðingar kjósa
Frystitogaranum Atlas breytt …
British Airways hefur fulla trú …
Veðja á myndleigu framtíðarinnar
Erlend starfsemi í nýja byggingu …
VIÐSKIPTI»
2
$8#&
- #*
$
9
## 0#
# . . . . . .
. .
. , : 7 &
. . . .
.
;<==>?@
&AB?=@C9&DEC;
:>C>;>;<==>?@
;FC&:#:?GC>
C<?&:#:?GC>
&HC&:#:?GC>
&3@&&C0#I?>C:@
J>D>C&:A#JBC
&;?
B3?>
9BC9@&3*&@A>=>
Heitast 8 °C | Kaldast 3 °C
Vestlæg átt, 8–13
m/s, hægir síðdegis.
Skýjað en þurrt að
kalla vestanlands, létt-
skýjað austan til. » 8
Sæbjörn Valdimars-
son rifjar upp gaml-
ar bíóferðir og lýsir
yfir ánægju með
endurnýjun lífdaga
Tjarnarbíós. » 43
AF LISTUM»
Tvennir
tímar
TÓNLIST»
Blonde Redhead fær inn-
blástur á Íslandi. » 38
Ímyndunarveikin
eða þögn Moliéres
þykir leiðinleg í leik-
stjórn Nauzyciel
þrátt fyrir skemmti-
legan efnivið. » 41
LEIKHÚS»
Ekki, ekki
hlæja
KVIKMYNDIR»
Clooney er flottur í Þjóð-
verjanum góða. » 40
TÓNLIST»
Bandarísk blússveit túlk-
ar þrjú íslensk lög. » 47
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Sýknaður af ákæru fyrir að …
2. 700 miðar seldust …
3. Spánverjar sigruðu Íslendinga …
4. Ísbjarnarhúnninn sagður …
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
EINNOTA mynddiskar, sem ís-
lenska fyrirtækið Intus hefur látið
þróa og dreifa á íslenskum markaði,
eru komnir í dreifingu á vel á annað
hundrað sölustaði hér á landi. Ár er
liðið síðan þeir fóru fyrst í dreifingu.
Diskarnir eru þannig hannaðir að
efni á þeim eyðist 48 tímum eftir að
þeir eru fyrst settir í dvd-spilara,
ekki er hægt að afrita þá og ekki þarf
að skila þeim að lokinni leigu. Innan
48 tíma má horfa á efnið oftar en
einu sinni. Intus hefur gefið út um 70
kvikmyndatitla og í sumar er stefnt
að því að þeir verði komnir í um 100
talsins. Um það leyti hefst markaðs-
setning á diskunum á Norðurlönd-
unum, í samstarfi við Scanbox, fyr-
irtæki í eigu Sigurjóns Sighvats-
sonar. Samningar hafa tekist við
eigendur 1.100 myndbandaleigna um
að taka við diskunum og Scanbox
stefnir að því að gefa sínar kvik-
myndir út eingöngu á þessu formi.
Diskarnir kosta 500 krónur í leigu,
en algengt verð á nýjum hefðbundn-
um diskum á myndbandaleigum er
600–650 krónur. Að sögn eigenda
Intus, hjónanna Árna Jensen og
Karenar Lindu Eiríksdóttur, vildu
myndbandaleigur hér á landi ekki
taka við diskunum og því var gengið
til samninga við matvöruverslanir,
bensínstöðvar og söluturna. Hafa
diskarnir m.a. verið til leigu í versl-
unum 10–11, Olís, Hagkaupa, Sam-
kaupa-Strax og á völdum Select-
stöðvum Skeljungs. Áform eru uppi
um að stækka svæði í verslunum 10–
11 og Olís og setja þar upp sérstaka
veggi með 48DVD-mynddiskum eins
og Intus markaðssetur þá.
Intus hefur tekið að sér að safna
saman notuðum diskum, með það
fyrir augum að koma þeim í endur-
vinnslu. Enn sem komið er hafa end-
urvinnslustöðvar hér á landi ekki
getað endurunnið diskana, aðeins
urðað þá.
Bensínsparnaður
Árni og Karen benda á það í sam-
tali við Viðskiptablað Morgunblaðs-
ins í dag að með því að þurfa ekki að
skila diskunum að leigu lokinni, líkt
og með hefðbundna diska, sparist
töluverður bensínkostnaður. Miðað
við 45–50 milljónir skilaferða í mynd-
bandaleigurnar á Norðurlöndunum
geti sparast um 22 þúsund tonn af
bensíni. | Viðskipti
Einnota diskar slá í gegn
Íslensk fyrirtæki veðja á að einnota mynddiskar leysi af hólmi hefðbundna diska
Efni á diskunum eyðist eftir 48 tíma og þarf ekki að skila að notkun lokinni
Morgunblaðið/G. Rúnar
Ný tækni Intus hefur gefið út um 70
kvikmyndatitla og fleiri á leiðinni.
Í HNOTSKURN
»Intus var stofnað af hjón-unum Árna Jensen og Kar-
en Lindu Eiríksdóttur.
»Þau kynntust tækninnifyrst í Bandaríkjunum fyr-
ir þremur árum og létu Frakk-
ann Patrick Larroche þróa
hana áfram fyrir sig.
»Þau vildu geta leigt diskaán þess að skila þeim og
eiga sektir yfir höfði sér.
„ÞAÐ er búið að vera mjög fínt í dag, góð aðsókn og
frábærar aðstæður,“ sagði Grétar Hallur Þórisson, for-
stöðumaður skíðasvæðisins í Bláfjöllum, í gærkvöldi.
Í gær var 17. dagurinn sem opið var fyrir almenning
í Bláfjöllum það sem af er vetri.
Fimm lyftur voru opnar fyrir almenning, skíðaæf-
ingar í öðrum lyftum og lagður 10 km hringur fyrir
gönguskíðafólk. Grétar sagði snjóalög mjög örugg og
góð. Hann taldi að dagurinn í dag yrði þokkalegur en
veðurspá helgarinnar væri ekki hagstæð. Hann var
vongóður um að hægt yrði að vera á skíðum um
páskana en veðrið gæti þó breyst í báðar áttir.
Morgunblaðið/Golli
Frábærar aðstæður í Bláfjöllum í gær
Á SKÍÐUM SKEMMTI ÉG MÉR
BÓKAKÁPAN á seinustu Harry
Potter-bókinni var afhjúpuð í gær.
Þar sést hinn heimsþekkti galdra-
strákur detta um fjársjóðshrúgu.
Bestu vinir Potter, Ron Weasley og
Hermione Granger, eru með Potter á
kápunni sem er á barnaútgáfu bók-
arinnar í Bretlandi. Á útgáfunni fyrir
fullorðna sést hangandi nisti skreytt
með upphleyptu S-i.
Þetta er sjöunda og seinasta bókin
í röðinni og hefur hún fengið nafnið
Harry Potter and the Deathly Hal-
lows. Höfundurinn J.K. Rowling hef-
ur sagt að tvær persónur muni láta
lífið í lokabókinni, en textinn á bóka-
kápunni gefur ekkert upp um inni-
haldið. Á baki fullorðinsútgáfunnar
segir: „Harry hefur verið íþyngt með
myrku, hættulegu og að því virðist
óleysanlegu verkefni. Hann verður
að yfirgefa öryggi The Burrow og
fylgja, án ótta, hinni miskunnarlausu
braut sem er lögð fyrir hann.“
Bókin kemur út 21. júlí.
Potter Barna- og fullorðinsútgáfa
seinustu Harry Potter-bókarinnar.
Potter í fjár-
sjóðshrúgu