Morgunblaðið - 10.04.2007, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2007 11
FRÉTTIR
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
7
0
8
3
www.kaupthing.is
HUGSAÐU UM FRAMTÍÐINA!
Framtíðarbók Kaupþings er góð fermingargjöf
444 7000
HRINGDU & PANTAÐU
Framtíðarbók er verðtryggður sparireikningur sem ber hæstu vexti á
verðtryggðum reikningum bankans. Innstæðan verður laus til úttektar
við 18 ára aldur.
Fermingarbörn sem leggja 30.000 kr. eða meira inn á Framtíðarbók fá
5.000 kr. peningagjöf inn á bókina frá Kaupþingi og flottan bol.
FRJÁLSLYNDI flokkurinn hefur
kynnt framboðsliðsta sinn fyrir al-
þingiskosningarnar sem fram fara
12. maí nk. Listann skipa:
1. Sigurjón Þórðarson, Akureyri.
2. Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir, Ak-
ureyri.
3. Eiríkur Guðmundsson, Djúpa-
vogi.
4. Axel Yngvason, Húsavík.
5. Stella Sigtryggsdóttir, Neskaup-
stað.
6. Þorkell Á. Jóhannsson, Svarfað-
ardal.
7. Oddur V. Jóhannsson, Vopna-
firði.
8. Örvar Bessason, Akureyri.
9. Hanna Björk Birgisdóttir, Stöðv-
arfirði.
10. Egill Guðlaugsson, Egilsstöðum.
11. Sigurður Kristinsson, Siglufirði.
12. Sigrún Sigfúsdóttir, Akureyri.
13. Jóhannes Björnsson, Raufar-
höfn.
14. Héðinn Jónasson, Húsavík.
15. Lúðvík Ríkharð Jónsson, Akur-
eyri.
16. Albert Geirsson, Stöðvarfirði.
17. Kristján Valur Sigurðsson, Eski-
firði.
18. Þórarinn Þórarinsson, Þórshöfn.
19. Sigurlaug Stefánsdóttir, Egils-
stöðum.
20. Sigurður Pálsson, Hjalteyri.
Framboðslisti
Frjálslynda
flokksins í
NA-kjördæmi BAKPOKAFERÐALANGAR eruekki algeng sjón á þessum árstíma.
Útsendari Morgunblaðsins rakst þó
á einn slíkan um borð í Breiða-
fjarðarferjunni Baldri fyrir
skömmu. Þar var á ferðinni Carina
Juhhova frá Tallinn í Eistlandi en
hún var á leiðinni til Reykjavíkur
eftir að hafa ferðast hringinn í
kringum landið til að kynna sér
safnastarfsemi á Íslandi.
Aðspurð sagðist hún hafa mælt
sér mót við safnafólk á mörgum
ólíkum söfnum í helstu byggða-
kjörnum landsins. Ferðaðist hún
milli staða á puttanum í því skyni
að geta séð sem mest af landinu
meðal hún dveldist hér. Sagðist
hún mjög ánægð með ferðina og
sagði hana hafa verið mikið æv-
intýri.
Carina Juhhova vinnur hjá lista-
safninu Kadriorg Art Museum í
Tallinn í Eistlandi, en hefur dvalið
á Íslandi í nokkurn tíma og unnið
hjá Listasafni Íslands. Að sögn
Carina Juhhova er hún ekki óvön
að ganga mikið því hún hefur með-
al annars gengið frá Síberíu til
Japans.
Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson
Göngugarpur Carina Juhhova er
ekki óvön því að ganga mikið en
hún hefur meðal annars gengið frá
Síberíu til Japans.
Fór hringinn í því
skyni að skoða söfn
SAMFYLKINGIN stendur fyrir
opnum morgunverðarfundi um
efnahagsmál á Grand hóteli í
Reykjavík í fyrramálið milli kl. 8.30
og 10.00. Allt áhugafólk um stjórn-
mál og hagstjórn er sérlega velkom-
ið á fundinn að því er segir í til-
kynningu.
Á morgun kemur einnig út á veg-
um Samfylkingarinnar ritið „Jafn-
vægi og framfarir – ábyrg efna-
hagsstefna“ þar sem fjallað er um
ástand og horfur í íslensku efna-
hagslífi. Ritið eða greinargerðin var
samin í starfshópi um hagstjórn í
anda frjálslyndrar jafnaðarstefnu. Í
hópnum störfuðu hagfræðingar og
félagsfræðingar sem starfa við há-
skólakennslu og rannsóknir, starfa
fyrir verkalýðshreyfinguna og at-
vinnulífið eða starfa við fjármála-
þjónustu og hagrannsóknir auk
nokkurra þingmanna og starfs-
manna Samfylkingarinnar. Formað-
ur starfshópsins og ritstjóri er Jón
Sigurðsson hagfræðingur og fv. ráð-
herra Alþýðuflokksins, seðlabanka-
stjóri og forstjóri Norræna fjárfest-
ingabankans.
Á fundinum verður ritinu dreift
til viðstaddra og síðan kynnir Jón
helstu niðurstöður þess. Í framhald-
inu ræða þau Hörður Arnarson, for-
stjóri Marel, og Þóra Helgadóttir,
hagfræðingur í greiningardeild
Kaupþings, um niðurstöður ritsins.
Einnig munu þátttakendur í starfs-
hópnum sem samdi greinargerðina
og aðrir fundarmenn taka þátt í um-
ræðum eftir því sem tilefni gefast.
Inngang flytur formaður Samfylk-
ingarinnar, Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir. Fundarstjóri er Kristján
Möller alþingismaður.
Jón
Sigurðsson
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir
Morgunverðarfundur
Samfylkingarinnar
Ræða ástand
og horfur efna-
hagslífsins
Iðnaðarráðherra
hefur falið fram-
kvæmdanefnd
um einkavæðingu
að annast sölu á
16% hlut ríkisins í
Baðfélagi Mý-
vatnssveitar hf.
sem á og rekur
jarðböðin við Mý-
vatn. Nafnvirði hlutarins er 20 millj-
ónir króna. Ríkiskaup munu hafa
umsjón með útboði á hlutnum og er
ráðgert að auglýsing, þar sem óskað
er tilboða í eignarhlutinn, verði birt
fljótlega eftir páska.
Ríkið selur í
Baðfélaginu