Morgunblaðið - 10.04.2007, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 10.04.2007, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2007 21 LANDIÐ GRÁGÆS, sem ber einkennisstafina SLN og var fyrst merkt á Blönduósi í júlí 2000 hefur skilað sér á varpstöðvarnar á Blönduósi í átt- unda sinn ásamt maka. Ferðir þessarar gæsar hafa verið skráðar frá því hún var merkt og fer hún að því er virðist sunnar á Bretlandseyjar en margar Blönduósgæsirnar gera og velur sér dvalarstað rétt sunnan við landamæri Skot- lands, nánar tiltekið í Newton Pool í Norð- ymbralandi. Von er á fleiri merktum gæsum áður en langt um líður en þessa dagana fjölgar gæsum og öðrum farfuglum dag frá degi. Upphaflega voru um 120 gæsir merktar á Blönduósi en í gegnum tíðina hefur grisjast sá hópur og fer þeim nú fækkandi sem skila sér heim en enn eru eftir nokkrar gæsir sem hafa skilað sér yfir hafið og heim. Enn kemur „Íslandsvinurinn“ SLN Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Blönduós | Sá merki áfangi náðist í þéttbýli Blönduóss á miðvikudag að starfsmenn trésmiðjunnar Stíganda á Blönduósi luku við að gera tvær íbúðir í parhúsi fokheldar en húsið stendur við Smárabraut 6–8. Þetta mun vera í fyrsta sinn síðan árið 1991 að byggt er nýtt íbúðarhús á Blönduósi og voru menn að vonum kátir með áfangann. Bæjarstjórinn, Jóna Fanney Frið- riksdóttir, heimsótti smiði er þeir voru að leggja lokahönd á verkið og færði þeim blómvönd í tilefni dagsins. Eins og fyrr greinir er um parhús að ræða og eru íbúðirnar hvor um sig 90 fermetrar ásamt 25 fermetra bílskúr. Byrjað var að steypa upp sökkul í febrúar og daginn fyrir páskafrí var húsið fokhelt. Hafþór Örn Sigurðsson sagði í samtali við Morgunblaðið að ekki væri búið að selja íbúðirnar en mikið væri spurt um þær og afar líklegt að þær seld- ust fljótlega. Fyrsta nýja íbúðarhúsið í 16 ár Skagafjörður | Tvær útgangs- kindur fundust á föstudaginn langa á Ljótsstaðadal ofan við Hofsós. Þarna var veturgömul ær sem nú er raunar að verða tveggja vetra og hrútlamb sem hún bar í fyrravor. Brugðið var skjótt við og kallaðir til menn og fjárhundur og gekk vel að ná kindunum niður af dalnum og handsama þær. Þær reyndust vera frá bænum Vogum við Hofsós. Birgir Þorleifsson bóndi þar sagði að kindurnar hefðu verið í góðu ástandi eftir útganginn. Hann sag- ist hafa vantað tvær veturgamlar ær í fyrrahaust og alltaf gert sér vonir um að þær kæmu einhvers staðar fram í vetur. Það væri því hálfur sigur að fá aðra og ekki út- lokað að hin sé á lífi því grunur er um að einhvers staðar leynist enn kindur í fjöllunum á þessu svæði. Tvær úti- gangskindur fundust NÁMSKEIÐ var haldið á Reykhól- um á vegum Grænni skóga dagana 30. og 31. mars. Skógarbændur víðsvegar af Vestfjörðum sóttu námskeiðið eða alls um 20 manns. Í námskeiðslok var haldið í skóg- ræktina í Barmahlíð þar sem mæld voru nokkur tré sem skógarbændur telja vera hæstu tré á Vestfjörðum. Það tré sem hæst mældist reyndist vera 17,05 metrar. Trén voru gróð- ursett á árinu 1955 og hafa því vax- ið um 30 cm á ári að því er fram kemur á vefnum strandir.is. Hæstu trén Fréttir í tölvu- pósti smáauglýsingar mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.