Morgunblaðið - 10.04.2007, Blaðsíða 22
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Miða „Ég held að allir strákar hafa gaman af því að skjóta örvum af boga – það er bara spurning hvenær það vex af þeim.“ Frá Íslandsmótinu í bogfimi.
|þriðjudagur|10. 4. 2007| mbl.is
daglegtlíf
Æ
tli forvitnin hafi
ekki rekið mig út
í þetta,“ svarar
Kristmann Ein-
arsson þegar
hann er spurður að því hvernig hann
fékk áhuga á bogfimi. „Ég held að
allir strákar hafi gaman af því að
skjóta örvum af boga – það er bara
spurning hvenær það vex af þeim.“
Hið síðastnefnda hefur ekki gerst
í Kristmanns tilfelli því undanfarin
sjö ár hefur hann stundað íþróttina
af kappi og er í dag í fremstu röð
bogmanna hérlendis. Íþróttafélag
fatlaðra er eina félagið þar sem
hægt er að æfa bogfimi en hann seg-
ir þá sem stunda íþróttina núorðið í
minnihluta fatlaðir. „Þetta eru um
20, 30 manns í það heila. Sem betur
fer eru það ekki bara karlar en kon-
urnar eru þó í minnihluta, eins og
kannski í svo mörgu öðru.“
Kristmann áætlar að um 15 tímar
fari í sportið hjá sér vikulega þegar
mest er, fyrir utan þrekæfingar. „Í
raun þarf engan sérstakan styrk
heldur miklu fremur almennt úthald
og þol til að halda einbeitingu og
hjartslættinum niðri. Maður þarf að
geta útilokað allt áreiti og truflanir í
kring. Það gengur náttúrlega mis-
jafnlega og krefst æfingar. Ætli þol-
inmæði sé ekki númer eitt, tvö og
þrjú vilji maður ná árangri í þessu
því það tekur tíma að verða góður.“
Með þjálfara í Hollandi
Sjálfur getur Kristmann ekki
kvartað undan eigin árangri því
hann hefur unnið til fjölda verð-
launa, síðast á Íslandsmótinu í bog-
fimi sem fór fram í mars þar sem
hann varð í fyrsta sæti í sínum
flokki. Ekkert vantar heldur upp á
metnaðinn því Kristmann hefur
fengið aðstoð hollensks þjálfara við
æfingar og sækir reglulega tíma til
hans ytra. „Þetta er eiginlega stein-
hætt að vera bara hobbý,“ segir
hann. „Ég fer svona sex, átta sinnum
út á ári til æfinga og keppni en flest-
ir sem eru í þessu sporti láta nægja
að keppa á mótum hér heima. Í raun
er bara einn bogfimimaður sem fer
stundum með mér út þannig að við
erum tveir sem erum á einhverju
flandri.“
Boginn sem Kristmann keppir
með kallast compound-bogi en einn-
ig eru notaðir svokallaðir recurve-
bogar við sportið. „Þetta eru svolítið
háþróuð verkfæri og mikil smíði,“
segir hann. „Compound-boginn er
með trissur og hjól sem tvöfalda
kraftinn svo þeir eru sterkari en rec-
urve-bogarnir, sem eru einfaldari að
gerð. Annars er þetta að miklu leyti
sama sportið, hvor boginn sem er.“
Æfingaaðstaða er í íþróttahúsi
fatlaðra við Hátún en að auki hefur
Kristmann aðgang að æfingaplássi á
heldur óvenjulegum stað. „Ég fæ að
skjóta í vinnunni hjá Marel þar sem
ég vinn sem rennismiður. Þar er
dekrað við mig svo ég hef fengið að
vera með aðstöðu niðri í lagnakjall-
ara sem er 120 metra langur. Þetta
nýti ég mér svolítið eftir vinnu enda
verður maður að stunda þetta til að
ná einhverjum árangri.“
Og árangurinn er mikilvægur,
a.m.k. að mati Kristmanns. „Þetta er
mikil vinna og það gefur mikið að
finna þegar hún fer loksins að skila
sér. Ég held að stærsta atriðið í
þessu sé einmitt að sjá árangur erf-
iðisins.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg
Einbeittur „Maður þarf að geta útilokað allt áreiti og truflanir í kring,“
segir Kristmann Einarsson sem notar svokallaðan compound boga.
Að sjá
árangur
erfiðisins
Ekki vaxa allir strákar upp úr því að vilja skjóta örv-
um af boga. Þeirra á meðal er Kristmann Einarsson
sem sagði Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur allt um
áhugamál sem er löngu hætt að vera bara hobbý.
ben@mbl.is
Nú býðst karlmönnum, sem
beita ofbeldi, meðferðarúrræði
undir yfirskriftinni „Karlar til
ábyrgðar“. »24
daglegt líf