Morgunblaðið - 10.04.2007, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2007 41
Auglýstu
atburði
á þínum
vegum
hjá okkur
Hafðu samband við
auglýsingadeild
Morgunblaðsins
í síma 569 1100
• Tónleika
• Myndlistar-
sýningar
• Leiksýn-
ingar
• Fundi
• Námskeið
• Fyrirlestra
• Félagsstarf
• Aðra mann-
fagnaði
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Vinnustofan opin kl. 9-
16.30. Jóga kl. 9. Postulínsmálun kl. 13.
Leshópur kl. 13.30.
Árskógar 4 | Kl. 9.30 bað. Kl. 8-16
handav. Kl. 9-16.30 smíði/útskurður. Kl.
9 leikfimi. Kl. 9.45 boccia.
FEBÁ, Álftanesi | Gönguhópurinn hitt-
ist þriðjudags- og föstudagsmorgna kl.
10 við Litlakot. Gengið í u.þ.b. klst. á
hraða sem hentar öllum. Kaffi í Litlakoti
eftir gönguna. Nýtt fólk velkomið. Nán-
ar í s. 565-0952.
Félagsheimilið Gjábakki | Leikfimi kl.
9.05 og kl. 9.55. Gler- og postulíns-
málun kl. 9.30. Handavinna kl. 10, leið-
beinandi verður til kl. 17. Jóga kl. 10.50.
Tréskurður kl. 13. Bossía kl. 13. Alkort kl.
13.30. Stólajóga kl. 17.15. Jóga á dýnum
kl. 18. Sölusýning myndlistarhópsins á
vatnslitamyndum stendur til 20. apríl.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Línu-
dans frh. kl. 12, byrjendur kl. 13, spilað í
Kirkjuhvoli kl. 13, karlaleikfimi 13, Boccia
kl. 14. Lokað í Garðabergi.
Félagsstarf Gerðubergs | Í dag kl. 9-
16.30 vinnustofur opnar, m.a. perlu-
saumur fyrir hádegi og leiðsögn við ull-
arþæfingu eftir hádegi, (ýmsir nytja-
hlutir). Kl. 10.30 létt ganga um
nágrennið. Fimmtud. 10. maí er leik-
húsferð, leikritið Ást í Borgarleikhúsinu,
skráning hafin á staðnum og s. 575-
7720.
Hraunbær 105 | Kl. 9-16.30 handa-
vinna. Kl. 9-12 glerlist. Kl. 9 hjúkr-
unarfræðingur. Kl. 10-11 boccia. Kl. 11-12
leikfimi. Kl. 12-12.30 hádegismatur. Kl.
12.15 verslunarferð (Bónus). Kl. 13-16
myndlist. Kl. 15 kaffi.
Hvassaleiti 56-58 | Bútasaumur kl. 9-
13 hjá Sigrúnu. Jóga kl. 9-12.15, Björg F.
Helgistund kl.13.30 í umsjón séra Ólafs
Jóhannssonar. Námskeið í myndlist kl.
13.30-16.30 hjá Ágústu. Böðun fyrir há-
degi. Fótaaðgerðir, hársnyrting.
Hjallakirkja | Prédikunarklúbbur presta
kl. 9.15-11 í umsjá sr. Sigurjóns Árna Eyj-
ólfssonar, héraðsprests. Bæna- og
kyrrðarstund kl. 18.
KFUM og KFUK | Enginn fundur í AD
KFUK í kvöld 10. apríl. Þriðjudaginn 17.
apríl er sameiginleg vorferð með AD
KFUM. Farið verður í Reykjanesbæ og
lagt af stað kl. 18. Skráning í Þjónustu-
miðstöð KFUM og KFUK í s. 588-8899
til 16. apríl.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
8.30-12, handavinnustofan opin kl. 9-
16.30. Morgunstund kl. 9.30, hár-
greiðslu og fótaaðgerðastofur opnar
allan daginn, leikfimi kl. 10-11, Félagsvist
kl. 14.
Vídalínskirkja Garðasókn | Opið hús í
Kirkjuhvoli kl. 13-16. Við púttum, spilum
lomber, vist og brids. Röbbum saman
og njótum þess að eiga samfélag við
aðra. Kaffi og meðlæti kl. 14.30. Helgi-
stund í kirkjunni kl. 16. Akstur fyrir þá
sem vilja, uppl. s. 895-0169. Allir vel-
komnir.
Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun, mið-
vikudag, er gaman saman á Korpúlfs-
stöðum kl. 13.30.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Morg-
unstund kl. 10.30. Handavinnustofur kl.
13. Kaffiveitingar kl. 14.30 Hárgreiðslu-
stofa. Uppl. í s. 552-4161.
Sjálfsbjörg félag fatlaðra á höfuðborg-
arsvæðinu | Hátúni 12. UNO spilað í
kvöld kl. 19.30. Allir velkomnir.
Þórðarsveigur 3 | Kl. 10 bænastund og
samvera. Kl. 12 Bónusbíllinn. Kl. 16.45
bókabíllinn.
Kirkjustarf
Digraneskirkja | Starf KFUM & KFUK
10-12 ára kl. 17. Opið frá 16.30. Æsku-
lýðsstarf Meme fyrir 14-15 ára kl. 19.30-
21.30.
Grafarvogskirkja | „Opið hús“ fyrir
eldri borgara, kl. 13.30-16. Helgistund,
handavinna, spil og spjall. Kaffiveitingar
og alltaf eitthvað gott með kaffinu. TTT
fyrir 10-12 ára í Engjaskóla kl. 17-18, TTT
fyrir 10-12 ára í Borgaskóla kl. 17-18.
50ára afmæli. Í dag,þriðjudaginn 10. apríl,
er fimmtugur Sigurjón Jó-
hann Sigurðsson, ritstjóri
fréttablaðsins Bæjarins besta
og fréttavefsins bb.is á Ísa-
firði.
Hlutavelta | Jasmín Krist-
jánsdóttir er dugleg átta ára
stelpa frá Kólóradó í Banda-
ríkjunum. Hún var í fríi á Ís-
landi og notaði tímann til að
teikna og mála myndir sem
hún seldi í húsum í Trölla-
borgum og heshúsunum í
Hafnarfirði. Ágóðann 1908
krónur færði hún Rauða
krossinum og vill með því
styrkja fátæk börn í Afríku.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir til kynningar um
afmæli, brúðkaup, ætt-
armót og fleira les-
endum sínum að kostn-
aðarlausu. Tilkynningar
þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara
virka daga og þriggja
daga fyrirvara fyrir
sunnudags- og mánu-
dagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmæl-
istilkynningum og/ eða
nafn ábyrgðarmanns og
símanúmer.
Hægt er að hringja í
síma 569-1100, senda til-
kynningu og mynd á net-
fangið ritstjorn@mbl.is,
eða senda tilkynningu og
mynd í gegnum vefsíðu
Morgunblaðsins,
www.mbl.is, og velja lið-
inn „Senda inn efni“.
Einnig er hægt að senda
vélritaða tilkynningu og
mynd í pósti. Bréfið skal
stíla á
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Hádegismóum 2
110 Reykjavík.
dagbók
Í dag er þriðjudagur 10. apríl, 100. dagur ársins 2007
Orð dagsins: Biðjið og yður mun gefast, leitið og þér munuð finna, knýið á, og fyrir yður mun upplokið verða. (Matt. 7, 7.)
FSS – félag STK-stúdenta(samkynhneigðra, tvíkyn-hneigðra og trans) er gest-gjafi fundar ANSO í Reykja-
vík næstu helgi. ANSO eru samtök
norrænna félaga STK-stúdenta.
Auður Halldórsdóttir er formaður
FSS: „Fundir helgarinnar eru loka-
hnykkurinn í verkefni um gerð gagna-
grunns þar sem safnað er á einn stað
lokaverkefnum háskólanemenda á
Norðurlöndunum sem fást við kynmál-
efni sam- og tvíkynhneigðra og trans-
fólks,“ segir Auður. „Stúdentar eru
rannsóknarmenn framtíðarinnar og eru
mörg frambærileg lokaverkefni unnin í
norrænum háskólum þar sem fjallað er
um kynhneigð á einn eða annan hátt.
Hins vegar eru þessar rannsóknir unnar
innan ólíkra fræðasviða, enda hægt að
finna marga áhugaverða kynhneigðar-
rannsóknarvinkla í jafnólíkum greinum
og lögfræði og bókmenntafræði, fé-
lagsfræði og kvikmyndafræði.“
Með gagnagrunni ANSO verður þess-
um verkefnum safnað á einn stað: „Það
mun gera kleift að deila þekkingu milli
fræðasviða, stuðla að aukinni samvinnu
og bæta til muna aðgengi að þessum
sérstaka þverfaglega rannsókn-
arflokki,“ segir Auður og bætir við að
gagnagrunnurinn sé líklega sá fyrsti
sinnar tegundar.
FSS var stofnað 1999 og er markmið
félagsins m.a. að veita samkyn-
hneigðum, tvíkynhneigðum og trans
stúdentum vettvang til að hittast í góðra
vina hópi og taka virkan þátt í barátt-
unni fyrir mannréttindum þessara hópa.
„Félagið er einnig mjög virkt í al-
þjóðlegu samstarfi, m.a. á vegum ANSO
og IGLYO – Alþjóðasamtaka æskulýðs-
hópa samkynhneigðra,“ segir Auður.
„Félagið er mjög opið, ætlað öllum
námsmönnum og utan náms á aldrinum
18–30 ára sem og starfsmönnum
menntastofnana. Við stöndum fyrir fjöl-
breyttu félagsstarfi, gerum okkur daga-
mun með t.d. leikhús- og bíóferðum og
íþróttaviðburðum, og miðvikudaginn 18.
apríl næstkomandi höldum við Gay-day,
hitting á léttum nótum og gerum okkur
glaðan dag.“
Finna má nánari upplýsingar um
starf FSS á slóðinni www.gaystudent.is.
Þar má skrá ókeypis áskrift að póstlista
FSS, en árleg félagsgjöld eru kr. 500 og
veita veglega afslætti að viðburðum og
ýmis fríðindi.
Fræði | FSS, félag STK-stúdenta, tekur þátt í gerð norræns gagnagrunns
STK-rannsóknir á einn stað
Auður Halldórs-
dóttir fæddist á
Akureyri 1982.
Hún lauk stúdents-
prófi frá Mennta-
skólanum við
Hamrahlíð 2002 og
BA-námi í bók-
menntafræði og
frönsku frá Há-
skóla Íslands 2007. Auður var kosin
ritari FSS – félags STK-stúdenta 2006
og formaður 2007. Foreldrar Auðar
eru Margrét Snorradóttir og Halldór
Baldursson.
Í DAG kl. 12:10 eys Arndís S. Árnadóttir
listsagnfræðingur úr viskubrunnum í
Þjóðminjasafni Íslands. Hún mun þræða
slóð timbursmíða og handverks um
grunnsýninguna og lesa í nokkra nytja-
hluti á biskupstólum, höfðingjasetrum
og í lágreistum húsakosti þorra fólks á
Íslandi. Allt frá landnámsöld var það hið
veglegasta starf að vera smiður, þrátt
fyrir að hér hafi lengst af ekki verið
lærðir handverksmenn var víða um land
listfengt fólk sem smíðaði nytjahluti úr járni, kopar, silfri, beini, horni og tré.
Hádegisleiðsögn í Þjóðminjasafni Íslands í dag
Bekkir, kistur og sæti:
Snikkaraverk fyrri alda
MAGNÚS Már Guðmundsson, for-
maður Ungra jafnaðarmanna, ung-
liðahreyfingar Samfylkingarinnar,
býður sig fram í framkvæmdastjórn
Samfylkingarinnar á landsfundi
flokksins sem haldinn verður dagana
13.–14. apríl í Egilshöll, að því er
fram kemur í fréttatilkynningu.
Magnús Már er 24 ára stjórnmála-
og sagnfræðinemi við Háskóla Ís-
lands. Magnús hefur verið fé-
lagsmaður í Samfylkingunni frá
stofnun flokksins og gegnt ýmsum
trúnaðarstörfum undanfarin ár.
Um tveggja ára skeið ritstýrði
Magnús Már Pólitík.is, vefriti Ungra
jafnaðarmanna, og á fjögurra ára
tímabili sat hann í stjórn Ungra jafn-
aðarmanna í Reykjavík. Magnús var
framkvæmdastjóri Ungra jafnaðar-
manna fyrri hluta árs 2004 og á nýj-
an leik í aðdraganda sveitarstjórn-
arkosninganna sl. vor, segir m.a. í
tilkynningunni.
Magnús Már býður
sig fram til fram-
kvæmdastjórnar
LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæð-
inu lýsir eftir vitni að árekstri sem
varð á bifreiðastæði verslunar Bón-
uss í Spönginni í Grafarvogi um
klukkan 16.30 sl. laugardag. Árekst-
urinn varð með þeim hætti að lítilli
rauðri Opel-bifreið var ekið utan í
ljósgræna Ford Focus-bifreið sem
var kyrrstæð og síðan af vettvangi.
Lögreglan hefur upplýsingar um að
kona hafi rætt við ökumanninn á
rauðu Opel-bifreiðinni eftir árekst-
urinn og áður en bifreiðinni var ekið
af vettvangi.
Lögreglan biður konuna vinsam-
legast að hafa samband við umferð-
ardeild lögreglunnar í síma 444 1000.
Lýst eftir
vitni
LÖGREGLAN á
höfuðborgarsvæð-
inu lýsir eftir 30
ára gamalli konu,
Guðríði Björgu
Gunnarsdóttur.
Hún sást síðast
laust eftir hádegi
8. apríl sl. við
Hafnarbraut í Kópavogi. Guðríður
er þéttvaxin, um 1,70 sm á hæð með
stutt dökkt hár. Hún er klædd í tví-
litan jakka (ljósblár/milliblár), bláar
gallabuxur og í brúna uppháa skó.
Ef einhver hefur upplýsingar um
ferðir hennar er hann beðinn að hafa
samband við lögreglu í s. 444 1000.
Lýst eftir
konu