Morgunblaðið - 10.04.2007, Blaðsíða 46
46 ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Frábær gamanmynd
frá leikstjóra
Old School með Billy
Bob Thornton
og Jon Heder úr Na-
poleon Dynamite.
PÁSKAGAMANMYNDIN 2007
Of góður?
Of heiðarlegur?
Of mikill nörd?
Bardagafimu skjaldbökurnar eru mættar aftur
í flottustu ævintýrastórmynd ársins
Sími - 564 0000Sími - 462 3500
- Miðasala í Smárabíó og Regnbogann - Engar biðraðir
Hot Fuzz kl. 8 og 10:20 B.i. 16 ára
Úti er Aævintýri m/ísl. tali kl. 6
School For Scoundrels kl. 8 og 10
TMNT kl. 6 B.i. 7 ára
Mr. Bean’s Holiday kl. 3, 5, 7, 9 og 11
Mr. Bean’s Holiday LÚXUS kl. 3, 5, 7, 9 og 11
Úti er Ævintýri m/ísl. tali kl. 4
Sunshine kl. 5.50, 8 og 10.10 B.i. 16 ára
TMNT kl. 4, 6 og 8 B.i. 7 ára
School for Scoundrels kl. 5.45, 8 og 10.15
The Hitcher kl. 10 B.i. 16 ára
Epic Movie kl. 3.50 B.i. 7 ára
ANNAR ÞESSARA TVEGGJA
HEFUR HEILA...
...Á STÆRÐ
VIÐ HNETU!
PÁSKAMYNDIN Í ÁR
FRÁ DANNY BOYLE LEIKSTJÓRA 28 DAYS LATER OG
TRAINSPOTTING KEMUR SPENNUTRYLLIR ÁRSINS!
PÁSKAMYNDIN 2007
SÓLIN ER AÐ DEYJA. ER HÆGT AÐ BJARGA HENNI?
ÍSLEN
SKT
TAL
SÍÐASTLIÐIÐ miðvikudagskvöld
hélt stórstjarna Íslands, Silvía
Nótt, útgáfutónleika vegna fyrstu
plötu sinnar Goldmine. Það var
fjölbreyttur hópur fólks sem kom
til þess að sjá dömuna syngja,
enda leynast aðdáendur Silvíu
Nætur víða.
Aðsóknin var því miður ekki eins
og við mátti búast. Þrátt fyrir að
talsvert af fólki hafi mætt væri
seint hægt að kalla staðinn fullan.
Kannski var dræm aðsókn ástæða
þess að Silvía Nótt steig ekki á
svið fyrr en um eittleytið. Hún lét
bíða eftir sér nægilega lengi til
þess að eftirvæntingin væri orðin
áþreifanleg. Það má segja eitt og
annað um persónuleika Silvíu. Mig
varðar ekkert um það. Það var
hins vegar ekki langt liðið á tón-
leikana þegar ljóst var að þeir
stæðu ekki undir væntingum. Þessi
óljósa tenging flytjanda og áhorf-
anda var hvergi nærri og þrátt fyr-
ir að sviðsframkoma Silvíu Nætur
hafi verið til fyrirmyndar náði hún
litlu sambandi við salinn. Það er
ein ástæða sem ég tel ofar öðrum
hvað þetta mál varðar. Tónlistin
hennar er einfaldlega ekki nógu
góð. Ég bæði bjóst við meiru auk
þess sem mig langaði til þess að
hún yrði miklu betri. Ég er stein-
hissa á því að ekki hafi verið eytt
meira púðri í að leggja fram gott
efni fyrir hana, þessi stelpa á að
geta sigrað heiminn. Silvía Nótt/
Ágústa Eva er mjög góð söngkona
og með fínan stíl og reynsluna
skortir hana ekki. En ég hef aldrei
áður séð hana flytja svona afkára-
lega slappt efni. Hápunktur flutn-
ings hennar var ábreiðan af lagi
Madonnu, „Material Girl“, annað
var flatt og ópersónulegt.
Þegar Trabant-menn stigu á svið
sýndu þeir tónleikagestum hvernig
á að halda tónleika. Þeir keyrðu
upp fjörið frá fyrstu mínútu og
héldu því til síðasta lags. Hvergi
var að finna veikan blett á flutningi
þeirra. Þeim fórst verkið fagmann-
lega úr hendi og tókst að halda at-
hygli þeirra sem voru komnir til að
skemmta sér. Trabant kunna
nefnilega að halda kraftmikla tón-
leika, þeir geta lagt þessa ósýni-
legu línu á milli sín og tónleika-
gesta – hvort sem áhorfendurnir
eru Trabant-aðdáendur eða ekki.
Ég hugsa að Silvía Nótt geti lært
ýmislegt af þeim. Hún hefur per-
sónuleikann og hæfileikana en í
þetta sinn var hún ekki stjarna
kvöldsins.
Stjarna í skugga Trabants
TÓNLEIKAR
Silvía Nótt og Trabant á
Nasa 4. apríl
Helga Þórey Jónsdóttir
Slöpp „Silvía Nótt/Ágústa Eva er mjög góð söngkona og með fínan stíl og
reynsluna skortir hana ekki. En ég hef aldrei áður séð hana flytja svona af-
káralega slappt efni,“ segir m.a í dómnum.
Morgunblaðið/Eggert
Stuð „Þegar Trabant stigu á svið sýndu þeir gestum hvernig á að halda
tónleika. Þeir keyrðu upp fjörið og héldu því til síðasta lags. “
HLJÓMSVEITIN Ljótu hálfvitarnir sem skipuð er níu Þingeyingum sló
rækilega í gegn fyrir norðan um páskana. Sveitin spilaði í Mývatnssveit að
kveldi föstudagsins langa og troðfyllti þá félagsheimilið Skjólbrekku. Yf-
irskrift þeirra tónleika var „Mývetningar sáttir míga hlið við hlið“ og sóttu þá
um 350 manns.
Á laugardagskvöldinu var svo komið að tónleikum á Gamla Bauk á Húsa-
vík, undir yfirskriftinni „Hálfvitar á heimavelli“. Á tónleikana, sem hefjast
áttu kl. 21, seldist upp eins og skot og var með snarræði skellt á öðrum tón-
leikum um miðnættið og seldust þeir 125 miðar einnig upp í hvelli.
Ljótu hálfvitarnir spiluðu því fyrir um 600 manns norðan heiða um
páskana en ekki þurfa Norðlendingar að örvænta þar sem þeir munu spila á
Græna hattinum á Akureyri laugardagskvöldið 14. apríl.
Hljómsveitin Ljótu Hálfvitarnir spilaði á Húsavík um páskana.
Gott gengi Ljótu hálfvit-
anna fyrir norðan
FINNSKU skrímslarokkararnir í
Lordi, sem gerðu sér lítið fyrir og
sigruðu Söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva í fyrra, hyggja nú á
landvinninga í Asíu og Norður-
Ameríku en hljómsveitin er á leið í
tónleikaferðalag um heiminn.
Lordi hóf leikinn í Japan í gær og
hinn 20. apríl munu Finnarnir óg-
urlegu taka stefnuna á Bandaríkin.
Þeir verða hinsvegar komnir aftur
til Finnlands í maí til að syngja í
Evróvisjón-keppninni sem fram fer í
Helsinki.
Finnsku rokkararnir munu síðan
halda áfram tónleikaferðalagi sínu
um Bandaríkin í júlí og ágúst. Að
auki er hljómsveitin byrjuð að gera
hryllingsmynd.
„Í fyrra eyddi ég meiri tíma með
grímuna á mér heldur en án henn-
ar,“ sagði forsprakki hljómsveit-
arinnar, herra Lordi, í nýlegu viðtali
við Reuters-fréttastofuna. Sagði
hann að hljómsveitin, sem klæðir sig
í ógnvænlega skrímslabúninga, nyti
vaxandi vinsælda um heim allan. Þar
hefði Netið hjálpað mikið til og
greitt leið þeirra að heimsfrægð. Þá
sagði herra Lordi að það væri per-
sónulegt markmið hans að brjóta sér
leið inn á bandaríska markaðinn.
Hann bætti því hinsvegar við að
það yrði ekki gert með neinum lát-
um. „Eitt skref í einu. Ég held að
þau (Bandaríkin) séu ekki mjög frá-
brugðin Evrópu. Þetta snýst um að
yfirstíga fordóma.“
Lordi stefn-
ir á heims-
frægð
Lordi Finnarnir ætla sér að sigra
allan heimsbyggðina.