Morgunblaðið - 10.04.2007, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2007 47
Sími - 551 9000
* Gildir á allar sýningar
í Regnboganum merktar
með rauðu
450 KR.
Í BÍÓ
*
- Verslaðu miða á netinu
eeee
- LIB Topp5.is
STÓRLÖGGUR. SMÁBÆR.
MEÐAL OFBELDI.
eeee
„Kvikmynda-
miðillinn leikur í
höndum Gondrys!“
- H.J., Mbl
LA SCIENCE DES REVES
Sunshine kl. 5.50, 8 og 10.10 B.i. 16 ára
Úti er Ævintýri m/ísl. tali kl. 6
TMNT kl. 6 B.i. 7 ára
School for Scoundrels kl. 5.45, 8 og 10:15
Science of Sleep kl. 8 og 10.10 B.i. 7 ára
The Illusionist kl. 8 og 10.15
„FYNDNASTA
SPENNUMYND
ÁRSINS“ - GQ
eeee
- LIB Topp5.is
Sýnd kl. 6 og 8 Með ensku tali & ísl. texta
Sýnd kl. 2, 4 og 6 Með íslensku tali
-bara lúxus
Sími 553 2075
PÁSKAMYNDIN Í ÁR
ÍSLENSKT OG ENSKT TAL
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10
...Á STÆRÐ VIÐ HNETU!
ANNAR ÞESSARA TVEGGJA
HEFUR HEILA...
Sýnd kl. 10 Sýnd kl. 2 og 4 B.i. 7 ára
Sýnd kl. 8 og 10:30 B.i. 16 ára
BLEKKINGAMEISTARINN
450 KR. Í BÍÓ GILDIR Á ALLAR SÝNINGAR MERKTAR MEÐ RAUÐU
LÍKT og aðrir hefur leikkonan
Diane Keaton átt sínar upp- og nið-
ursveiflur á ferlinum. Einkum þær
síðarnefndu eftir að hún datt út úr
kjöraldursrammanum, sem er ekki
þröngur í kvikmyndabransanum.
Hagur Keaton tók óvæntan fjörkipp
eftir að hún lék mömmuna sem tók
við rosknum elskhuga dóttur sinnar
í Something’s Gotta Give. Síðan hef-
ur móðurhlutverkið reynst konunni
sannkölluð gullnáma. Sem Daphne í
Because I Said So á hún einar þrjár
dætur; Mae (Perabo), Maggie (Gra-
ham), og hin unga og efnilega Moore
leikur Milly, þá yngstu, sem er enn
ólofuð og aðaláhyggjuefni mömmu
gömlu sem reyndar vill hafa nefið of-
an í öllum málum dætranna.
Myndin snýst að mestum hluta
um óumbeðna leit Daphne að huggu-
legum manni handa Milly og nýtir
sér óspart möguleika alnetsins.
Samt er ekki að sjá að Milly þurfi,
almennt séð, á minnstu hjálp að
halda.
Þó svo að myndin eigi sín augna-
blik, vandræðaleg, rómantísk, hjart-
næm og þar fram eftir götunum, þá
eru þau öll sem eitt þannig útlítandi
að maður hefur á tilfinningunni að
hafa séð þau oft og mörgum sinnum
áður. Það er helst að hundur
mömmunnar komi með ferska vinda,
jafnvel óforskammaða.
Keaton, sem leikur Keaton betur
en nokkur önnur kona hér á jörð, og
Moore hin unga, eru alltof góðar fyr-
ir jafn tilþrifalausa meðal moðsuðu
og Because I Said So. Hún er enn
ein sönnun þess hversu lítið er að
hafa fyrir leikkonur, einkum komnar
af léttasta skeiði. Fegnar taka þær
því sem býðst, ef svo undarlega vill
til að eitthvað rekur á fjörur þeirra.
Það er óskandi að hlutirnir hafi
færst í réttlátara horf í kvenna-
myndamálum þegar Moore kemst á
sjötugsaldurinn.
Sæbjörn Valdimarsson
Móðir Díana og dæturnar þrjár
Mamman „Myndin snýst að mestum hluta um óumbeðna leit Daphne að
huggulegum manni handa Milly og nýtir sér óspart möguleika alnetsins.“
KVIKMYNDIR
Háskólabíó, Sambíóin, Smára-
bíó, Regnboginn, Laugarásbíó,
Borgarbíó Akureyri.
Leikstjóri: Michael Lehmann. Aðal-
leikkarar: Diane Keaton, Mandy Moor,
Lauren Graham, Piper Perabo. 100 mín.
Bandaríkin 2007.
Ég sagði það/Because I Said So
BRESKI leikstjórinn Danny Boyle,
sem sló í gegn með Trainspotting
um árið, sýndi snilldartilþrif er
hann reyndi sig við vísindafantasíu/
hrollvekjugeirann með zombíu-
myndinni 28 Days Later, en þar
tókst að búa til góða mynd með
litlum peningum með frumleikann
og útsjónarsemi að vopni. Með
kvikmyndinni Sólskin (Sunshine)
seilist Boyle enn lengra inn í fant-
asíugeirann enda er hér um að
ræða tilkomumikla geimferð-
armynd í anda Alien-hefðarinnar.
Myndin er byggð á frumsömdu
handriti rithöfundarins Alex Gar-
lands og segir af hópi geimferða-
langa sem freista þess að bjarga
framtíð mannkynsins á því herrans
ári 2057. Jörðin er eitt frostbitið
vetrarríki þar sem sólin er að deyja
og felst verkefni geimfaranna á Ík-
arusi II í því að reyna að end-
urræsa sólina með því að skjóta
risastórri atómbombu inn í kjarna
hennar.
Framan af virðast þeir Boyle og
Garland hafa hrist ansi góða vís-
indafantasíu fram úr erminni, og er
lítinn bilbug að finna á tæknibrell-
um og umgjörð þrátt fyrir tak-
markað framleiðslufjármagn. Enda
er meiri áhersla lögð á að byggja
upp spennu- og örlagaþrungið and-
rúmsloft meðal áhafnar leiðangurs-
ins (með þann ágæta leikara Cillian
Murphy fremstan í flokki) en að
keyra upp hrollvekjukennda fram-
vindu. Bróðurpartur myndarinnar
er því einkar vel heppnaður en þar
er unnið með allt frá heimspeki-
legum vangaveltum til sálfræðilega
og siðferðilega þrunginna álitamála
sem verða sífellt meira aðkallandi
eftir því sem aðstæður verða erf-
iðari um borð. Í lokahlutanum um-
hverfist myndin hins vegar í hroll-
vekjukenndan og ruglingslegan
hasar þar sem tæknibrellurnar
standa illa undir álaginu. En kost-
irnir vega þó þyngra en gallarnir og
er Sólskin því vel þess virði að sjá.
Sólfarar standa í ströngu
KVIKMYNDIR
Smárabíó og Regnboginn
Leikstjórn: Danny Boyle. Handrit: Alex
Garland. Aðalhlutverk: Cillian Murphy,
Chris Evans, Rose Byrne, Michelle Yeoh,
Cliff Curtis o.fl. Bretland, 107 mín.
Sólskin (Sunshine)
Sólskin „Bróðurpartur myndarinnar er því einkar vel heppnaður en þar
er unnið með allt frá heimspekilegum vangaveltum til sálfræðilega og sið-
ferðilega þrunginna álitamála sem verða sífellt meira aðkallandi eftir því
aðstæður verða erfiðari um borð.“
Heiða Jóhannsdóttir
UM páskana fóru fram úrslitin í
keppninni Fyndnasti maður Íslands
2007. Það var Þórhallur Þórhalls-
son sem hlaut þann titil, í öðru sæti
lenti Þrándur Jensson og þriðja
sætið féll í skaut Jóni Haukdal.
Þórhallur
fyndnastur
Þórhallur Þykir Fyndnasti maður
Íslands árið 2007.
VEGNA fjölda áskorana heldur
hljómsveitin GusGus tónleika á
NASA laugardagskvöldið 21. apríl
Það var uppselt á útgáfutónleika
GusGus á NASA hinn 24. mars og
mun færri komust að en vildu. Því
hefur GusGus ákveðið að blása til
nýrrar sóknar og halda aðra tón-
leika á NASA eins og áður segir.
Þetta verða síðustu tónleikar Gus-
Gus hérlendis áður en hljómsveitin
heldur á túr til Evrópu; þar sem leik-
ið verður á MayDay-hátíðinni í
Þýskalandi, Berlín, Hamborg, Münc-
hen, Zürich, Vín, Barcelona, Amst-
erdam, London, Moskvu og fleiri
borgum. Í júní mun GusGus spila á
tónlistarhátíðunum Europa Vox í
Frakklandi, Visur í Hollandi og Gla-
stonbury – og í júlí á hinni margróm-
uðu Benecassim-hátíð á Spáni.
Miðasala er hafin á tónleikana í
verslunum Skífunnar, BT Akureyri,
Egilsstöðum og Selfossi og á Midi.is.
Miðaverð er 2.500 kr. í forsölu.
Vinsæl GusGus heldur aðra tón-
leika á NASA.
Aukatón-
leikar
GusGus
BRÓÐIR leikkonunnar Angelinu
Jolie, James Haven, segir að sam-
band hennar við Brad Pitt hafi gjör-
samlega breytt lífi hennar. Haven
segist vera þess fullviss að Jolie hafi
fundið sér lífsförunaut í Pitt, en áður
hafði hún verið gift leikurunum Jo-
hnny Lee Miller og Billy Bob Thorn-
ton.
Þá er Jolie í dag fjögurra barna
móðir. Hún á eitt barn með Pitt,
stúlkuna Shiloh Nouvel, og þá hefur
hún ættleitt þrjú börn, Maddox,
Zahara Marley og Pax Thien.
„Brad hefur breytt systur minni
heilmikið. Þau tengjast afar sér-
stökum böndum sem eru ekki á
þessum venjulegu nótum,“ segir Ha-
ven, sem er 33 ára.
„Hann er frábær með henni og þá
hef ég aldrei séð annan eins barna-
hóp þar sem allir styðja við bakið
hver á öðrum,“ segir hann.
„Brad er henni mikill styrkur.
Þegar hún er berskjölduð sýnir
hann alveg ótrúlegan styrk. Hún
segir að hún hefði ekki getað ættleitt
fleiri börn eftir að hún ættleiddi
Maddox nema með honum,“ segir
Haven og heldur áfram: „Ég hef
aldrei orðið var við neina spennu á
milli þeirra og ef fram heldur sem
horfir munu þau verja ævinni sam-
an.“
Sköpuð fyrir
hvort annað
Ástfangin Brad Pitt og Angelina
Jolie eiga vel saman að mati bróður
hennar.