Morgunblaðið - 10.04.2007, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2007 49
SKRÁÐU ÞIG Á SAMbio.is
/ ÁLFABAKKA
MR. BEAN'S HOLIDAY kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 LEYFÐ
MR. BEAN'S HOLIDAY VIP kl. 4 - 6 - 8 - 10:10
HOT FUZZ kl. 8 - 10:30 B.i.16.ára
ROBINSON FJÖLSKYLDAN m/ísl. tali kl. 3:40 - 5:50 LEYFÐ
WILD HOGS kl. 5:50 - 8 - 10:20 B.i.7.ára
300 kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.16.ára
MUSIC & LYRICS kl. 5:50 - 8 - 10:20 LEYFÐ
THE BRIDGE TO TERABITHIA kl. 3.40 LEYFÐ
/ KRINGLUNNI
ROBINSON FJÖLSKYLDAN m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ DIGITAL 3D
MEET THE ROBINSONS ótextuð m/ensku tali kl. 8:10 - 10:20 LEYFÐ DIGITAL 3D
BECAUSE I SAID SO kl. 5:50 - 8 - 10:20 B.i. 7 ára
300 kl. 8 - 10:30 B.i. 16 ára DIGITAL
NORBIT kl. 5:50 LEYFÐ
FRÁ HÖFUNDI
SIN CITY
eeee
V.J.V.
eeee
FBL
eeee
KVIKMYNDIR.IS
eeeee
FILM.IS
ANNAR ÞESSARA TVEGGJA
HEFUR HEILA... Á STÆRÐ VIÐ HNETU!
PÁSKAMYNDIN Í ÁR
HUGMYNDIN að baki teiknif-
antasíunni Happily N’Ever After,
að snúa út úr gamla góða æv-
intýraheiminum á allan hátt, er
ekki ný og hefur lukkast einna
best í Shrek af nýlegum myndum.
Persónurnar eru óaðlaðandi og
kjaftforar, í raun eru allar bann-
helgar brotnar sem dáðlausum
handritshöfundunum hefur dottið
í hug.
Fríða er stjúpan vonda sem
nær völdum í Ævintýralandi og
eyðileggur jafnskjótt allt fyrir
aumingja (Cinder-)Ellu, ösku-
buskunni hennar sem komin er á
dansiball í konungshöllina. Ella
ætlar að krækja í draumaprins-
inn, þótt hann stígi ekki í vitið og
Rikki uppvaskari sé mun álitlegri
kostur – ef grannt er skoðað.
Fríða lætur ekki þar við sitja,
hún gerir hallarbyltingu, hrekur
allar góðar vættir á dyr og kallar
á tröll, nornir og sköss sér til
fulltingis. En Rikki gefst ekki
upp.
Töfrarnir virka ekki alltaf, Úti
er ævintýri er til vitnis um það.
Fordæðuskapur Fríðu er alltof
yfirgengilegur, góðu persónurnar
eru ámóta dauðyflislegar og
aukapersónurnar eru flestar svip-
ur hjá sjón hjá öðrum beysnari í
betri myndum. Útúrsnúningar á
kunnum ævintýrum og persónum
missa oftar marks en ekki og sag-
an er dauf, ófyndin og án minn-
isstæðra kafla – þrátt fyrir ótelj-
andi mislukkaðar tilraunir til að
gera hana frakka og Shrek-lega.
Úti er ævintýri er lagleg fyrir
augað en spurning hvaða aldurs-
hópur hefur gaman af útkomunni.
Of venjuleg og óspennandi sem
fjölskyldumynd, of orðljót og and-
styggileg fyrir börn.
Ævintýri „Úti er ævintýri er lagleg fyrir augað en spurning hvaða aldurs-
hópur hefur gaman að útkomunni,“ segir Sæbjörn í dómnum.
Allt á hvolfi í
Ævintýralandi
KVIKMYNDIR
Smárabíó, Regnboginn, Laug-
arásbíó, Borgarbíó Akureyri,
Sambíóin Keflavík
Leikstjóri: Paul J. Bolger. Teiknimynd
með ísl. og enskri talsetningu. Ísl. að-
alraddir: Örn Árnason, Sigurður Sig-
urjónsson, Bjartmar Þórðarson, Rósa
Guðný Þórsdóttir o.fl. Enskar aðalraddir:
Sarah Michelle Gellar, Sigourney Weaver,
Freddie Prince Jr., George Carlin. 87 mín.
Bandaríkin/Þýskaland 2007.
Úti er ævintýri/ Happily N’Ever After
Sæbjörn Valdimarsson
Mínus Krummi er kroppur og kann
að rokka.
Gul Kazu Makino söngkona Blonde
Redhead var í páskalitnum.
Heimamenn Kristina Logos hóf hátíðina.
Gaman Tónleikagestir hittu mann og annan.
Ísafjörður Þessir ungu menn létu stuðið ekki framhjá sér fara.