Morgunblaðið - 10.04.2007, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2007 51
-hágæðaheimilistæki
Ef þú kaupir Miele þvottavél eða þurrkara færðu
kaupverðið endurgreitt með betri meðferð á þvottinum
Íslenskt stjórnborð
Ný og betri tromla
Verð frá kr. 99.900
Hreinn sparnaður
vi
lb
or
ga
@
ce
nt
ru
m
.is
1.
verðlaun
í Þýskalandi
W2241WPS
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Baldursnes 6, Akureyri Sími 588 0200 | www.eirvik.is
ÞÓTT Justin Timberlake og Cameron Diaz hafi hætt saman fyrr á þessu ári,
eftir fjögurra ára samband, tala þau alltaf vel hvort um annað.
Breska tímaritið GQ spurði Timberlake út í sambandsslitin nýlega og
sagði hann erfitt fyrir sig að tala um þau því þá væri hann að tala um persónu
sem hann elskaði og bæri virðingu fyrir, þ.e. Diaz.
Timberlake er þekktur fyrir að vera þögull um persónulega hagi sína og
hefur gefið það í skyn að hann muni aldrei tala illa um Diaz og muni ekki þola
að aðrir geri það. „Ef ég heyri einhvern segja eitthvað slæmt um Cameron þá
á ég eitthvað ósagt við þá persónu.“
GQ spurði hann út í samband sitt við aðra fyrrverandi, Britney Spears, og
þá sagði Timberlake þá stöðu vera orðna sér mjög fjarlæga. Besti vinur hans,
Trace Ayala, segir Spears ekki lengur vera hluta af lífi hans.
Ástin Justin Timberlake ber enn tilfinningar til Diaz.
Elskar Diaz enn
GALLINN sem Christopher Reeve
klæðist sem Súpermann í kvikmynd
um Súpermann árið 1978 var seld-
ur á Hollywood-uppboði nýlega á
115.000 Bandaríkjadollara.
Á uppboðinu voru seldir mundir
og búningar úr kvikmyndum og
sjónvarpsþáttum, þar með talin
handrit og plaköt.
Búist var við að Súpermannfötin
færu á helmingi lægra verði en þau
gerðu.
Súpermann Búningur hetjunnar.
Súpermann
selur
SURI, dóttir Toms Cruise
og Katie Holmes, fer viku-
lega í klippingu. Suri, sem
ekki er orðin eins árs, hef-
ur víst hitt stílista reglu-
lega til að hafa stjórn á
hinu mikla hári sem hún
fæddist með.
Sagt er að Tom og Katie
séu með sérstakar kröfur
um hárið á Suri og um-
gengni við barnið, sem er
víst alltaf nakið og ekki má
tala í kringum það. Hár Suri er sannarlega hárprúð.
Vikulega í
klippingu
STRÁKAR, róið ykkur því Scarlett
Johansson er ekki að leita að nýjum
kærasta. Hin 22 ára leikkona, sem
var seinast að hitta leikarann Josh
Hartnett, heldur því fram að hún
nenni ekki að eiga kærasta og sé
mjög hamingjusöm á lausu.
Hún sagði í viðtali við tímaritið
Seventeen: „Þegar ég er á lausu er
ég ekki að reyna að finna einhvern,
ef ég á kærasta fær hann athygli
mína en ég er ekki með athyglina á
strákum ef ég á ekki kærasta. Svo
eru þeir hvort sem er aldrei nærri
þegar þú vilt þá.“
Scarlett viðurkennir að allir fram-
tíðarmakar verði miðaðir við fyrstu
ástina sem hún átti í framhaldsskóla.
„Ég átti frábæran kærasta í fram-
haldsskóla og ég hélt að við yrðum
saman að eilífu.“
Sæt Scarlett Johansson vill ekki
kærasta.
Er ekki að
leita að
kærasta