Morgunblaðið - 26.04.2007, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2007 23
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur
ben@mbl.is
VINSÆLIR inniskór hafa verið
bannaðir sjúkrahúsi í Noregi og rætt
er um að banna þá á sjúkrahúsi í Sví-
þjóð. Ástæðan er sú að töfflurnar
hafa verið tengdar uppákomum þar
sem mikilvæg læknistæki hafa slegið
út og hætt að virka. Skórnir, sem eru
af gerðinni Croc’s, eru fáanlegir hér-
lendis og eru vinsælir, bæði innan
heilbrigðisgeirans sem og annars
staðar. Að sögn Aðalsteins Pálssonar,
framkvæmdastjóra tækni og eigna
Landspítalans, hefur þó ekki orðið
vart rafmagnstruflana inni á spít-
alanum vegna þeirra.
Að sögn sænska heilbrigð-
isfréttaritsins Dagens Medicin virka
töfflurnar, sem eru úr plastefni, eins
og einangrun sem veldur því að fólkið
sem klæðist þeim afrafmagnast ekki
svo spennan sem þeir bera getur far-
ið í allt að 25 þúsund volt. „Þetta hef-
ur í för með sér alvarlega hættu fyrir
sjúkrahús því þar eru fjölmörg við-
kvæm rafmagnstæki,“ segir Björn
Löfqvist við Blekinge-spítalann í
Karlskrona í Svíþjóð.
Hættunnar varð fyrst vart á vöku-
deild sjúkrahússins þar sem tveir fyr-
irburar lágu í hitakassa og önduðu
með aðstoð öndunarvéla. Í báðum til-
fellum slokknaði skyndilega á tækj-
unum sem endurræstu sig og byrjuðu
að keyra á öndunarkerfi sem var fyr-
irfram skilgreint í vélunum. Hvorugt
barnanna beið skaða.
Skemmdi þriggja milljóna tæki
Grunur beindist strax að Croc’s-
inniskóm sem hafa slegið í gegn með-
al heilbrigðisstarfsfólks. Löfqvist
setti í gang rannsóknarverkefni til að
kanna hvort rafmagnstruflanirnar
væru Croc’s-töfflunum að kenna og
sama dag birtust fréttir þess efnis að
sjúkrahús í Noregi hefði bannað þær.
Um svipað leyti urðu rafmagns-
truflanir á röngtendeild Blekinge-
spítalans þegar hár einnar hjúkr-
unarkonunnar straukst lítillega við
vélknúna sprautu sem kostar um
þrjár milljónir íslenskra króna með
þeim afleiðingum að hún eyðilagðist.
Það var lán í óláni að atvikið átti sér
ekki stað meðan á meðhöndlun stóð.
Í framhaldi af því setti tæknideild
sjúkrahússins upp nokkrar tilraunir
þar sem ólíkt skótau kom við sögu.
„Allir hlaðast rafmagni en venjulega
afrafmagnast þeir aftur í gegnum skó
eða annað,“ útskýrir Löfqvist en þeg-
ar fólk var í Croc’s-töfflum var annað
uppi á teningnum. „Spennan steig og
steig og hvarf ekki. Þess vegna erum
við nokkuð öruggir á að skórnir virki
eins og einangrun sem hleypi raf-
magninu ekki út aftur.“
Nær öll læknatæki eiga að þola
spennu upp í 8.000 volt að því er fram
kemur í grein Dagens Medicin. „En
ef haft er í huga að töfflurnar geta or-
sakað þrefalt þá spennu er ekki
skrýtið að eitthvað gefi sig,“ segir
Löfqvist. „Við munum mæla með því
að banna þessa skó á sjúkrahúsinu,“
bætir hann við. „Það hafa eflaust orð-
ið fleiri slík atvik, bæði hér og á öðr-
um sjúkrahúsum, án þess að menn
hafi tengt þau notkun þessara
tafflna.“
Sérstaklega spennujöfnuð rými
Að sögn Aðalsteins Pálssonar,
framkvæmdastjóra tækni og eigna
Landspítala – háskólasjúkrahúss,
hefur ekki orðið vart rafmagnstrufl-
ana á spítalanum sem tengdar eru
ofangreindum skóm. Hann og starfs-
menn hans fylgist hins vegar grannt
með umræðunni sem er um þá á
Norðurlöndum. „Ég veit þó ekki al-
veg hvort þessir skór eru orðnir jafn
vinsælir hjá okkar starfsfólki og þeir
virðast vera í Svíþjóð,“ segir hann.
Hann bendir á að öll aðgerðarrými,
gjörgæslurými, þræðingarstofur og
önnur rými þar sem viðkvæm starf-
semi fer fram, séu sérstaklega
spennujöfnuð. „Þá myndast ekki
þetta statíska rafmagn t.d. þegar ein-
hver keyrir hjólaborð á nælonhjólum
á undan sér. Allajafna hleður það upp
spennu í viðkomandi sem síðan losnar
við það að við gefum frá okkur neista.
Það getur skaðað fíngerðar æðar og
taugar, t.d. þegar búið er að opna
sjúkling á skurðarborði og því eru
rýmin spennujöfnuð til að koma í veg
fyrir þetta. Á móti kemur að skótauið
á ekki að vera einangrandi heldur
þannig að þegar fólk gangi um eigi
þessi spennuútjöfnun sér stað.“
Hann segir aðallega talað um áhrif
sem slík spenna geti haft á sjúk-
lingana sjálfa því sjúkrahústækin séu
yfirleitt öll jarðtengd og þoli því
spennuna. „Hingað til höfum við ekki
litið á þetta sem vandamál. Hins veg-
ar er ljóst að við þurfum að skoða
hvort einhver breyting hafi orðið þar
á og hvort þessir skór séu verri en
aðrir í þessu sambandi. Yfirleitt hefur
fólk gengið í sérstökum skóm fyrir
sjúkrastofnanir en svo kemur einhver
vara á markaðinn sem öllum líkar vel
við og kemst í tísku. Þá getur verið
ástæða til að bregðast við.“
Vinsælir inniskór
bannaðir á
sjúkrahúsum
Morgunblaðið/Ásdís
Vinsælir Croc’s-inniskórnir hafa slegið í gegn á Íslandi og í Svíþjóð.