Morgunblaðið - 13.05.2007, Síða 49

Morgunblaðið - 13.05.2007, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. MAÍ 2007 49 FASTEIGNASALA STÓRHÖFÐA 27 Sími 594 5000 Halla Unnur Helgadóttir löggiltur fasteignasali. Sumarhús til sölu Gott 47,8 fm. Björt stofa með stórum gluggum, eldhús með góðum tækj- um og borðstofa. 2 svefnherb. og 20 fm svefnloft. Stór verönd. Stutt í alla afþreyingu. Leiguland. Vel staðsett eign. Verð 12,8 millj. Nánari upplýsingar hjá Ásdísi sölufulltrúa s. 898 3474. Sumarhús í Öndverðarnesi Skógivaxið land með útsýni. Eldhús og stofa með parketi. 2 svefnh. með auk svefnlofts. Snyrting með hand- klæðaofni. Stór ca 30 fm verönd. Nýtt brunnhús. Húsið stendur á 5.490 fm eignarlóð. Einnig er möguleiki að samliggjandi lóð geti fylgt 2745 fm, byggingarréttur fylgir. Verð 12 millj. Nánari upplýsingar gefur Ásdís sölufulltrúi s. 898-3474. Vel staðsett 44 fm sumarhús í landi Jarðlangsstaða í Borgarfirði Atvinnuhús ehf • Atli Vagnsson hdl., lögg. fasteignasali • Skúlagata 30 • 101 Reykjavík Sími: 561 4433 / 698 4611 • Fax: 561 4450 • atli@atvinnuhus.is Tunguháls 2.484 m2 Til sölu er hluti fasteignarinnar Tunguháls 10 Byggt ári› 2000 • Alls 2.484 m2 • Gó› lofthæ› Vöruhús vi› Sundahöfn 4000 m2 til leigu Til leigu 4.000 m2 í n‡ju vöruhúsi vi› Sundahöfn. Afhending vori› 2008. Topp fjárfesting! Vesturbær – verslun og fljónusta Til leigu allt a› 2000 m2 í væntanlegum n‡byggingum í nágrenni vi› BYKO í Fiskisló›. Skútuvogur – Til leigu lager og skrifstofur Lager samtals 1.350 m2 og skrifstofur 285 m2 Laust í sumar 1000–1500m2 Atvinnuhúsnæ›i me› gó›ri lofthæ› og útiplássi óskast til leigu e›a kaups. Nor›lingabraut 6: Stær› húss allt a› 4.200 m2 og ló› 6.076 m2 Nor›lingabraut 8: Stær› húss allt a› 4.800 m2 og ló› 6.813 m2 Nor›lingabraut 10: Stær› húss allt a› 5.500 m2 og ló› 7.995 m2 Auk fless eru áætla›ir bílakjallarar undir húsunum. Atvinnuhúsnæ›i vi› Rau›avatn Enn óseldar flrjár n‡byggingar fyrir atvinnu- húsnæ›i í Nor›lingaholti. 6 8 10 óskast í Ártúnshöf›a Sú umbreyting sem átt hefur sér stað á fasteignamarkaði á Íslandi frá opnun lánsfjármarkaðar á haust- mánuðum 2004 með 90% lánum hef- ur stuðlað að mikilli hækkun fast- eignaverðs. Fasteignaeigendum til heilla, en nýjum kaup- endum til mikillar skapraunar. Sam- keppni bankanna og Íbúðalánasjóðs á lána- markaði kynti undir hækkun íbúðaverðs með þeim afleiðingum að nú er orðið erfitt fyrir ungt fólk að hefja sinn búskap í eigin húsnæði. Góður ásetningur fylgdi þeirri ákvörðun að hækka lánshlutfall í 90% úr 65%. Þetta átti að auðvelda fólki að koma sér upp þaki yfir höf- uðið og þá sérstaklega þeim yngri sem ekki eru búnir að byggja upp mikið sparifé. Niðurstaðan varð hins vegar sú að þessi aukni aðgangur að fjármagni varð að eignaaukningu hjá þeim sem þegar áttu húsnæði. Nú vaknar því spurningin: „Hvaða leið dugir til að gera ungu fólki fært að festa kaup á húsnæði, án þess að því fylgi ófyrirséðar afleiðingar sem hækka íbúðaverð enn frekar?“ Þeir sem skilja hvernig markaðs- lögmálin virka vita að það er nokkuð sama hvernig reynt er að nið- urgreiða tiltekna vöru, að það er á endanum markaðurinn sjálfur sem ákveður verðið. Ef verð á fjármagni er lækkað, eykst eftirspurn eftir húsnæði og verð þess hækkar. Verð ákvarðast út frá framboði og eft- irspurn. Það eina sem mun vega á móti þeirri hækkun húsnæðis sem komin er fram er aukið framboð. Aukin lánafyrirgreiðsla til þeirra sem ráða ekki við kaup á tveggja her- bergja íbúð í dag, eins og t.d. 100% lánveiting, myndi trúlega hækka verð þeirra íbúða enn frekar. Það er því ekki góð leið til að styðja við bakið á unga fólkinu. En hvað er þá til ráða? Stóraukið framboð lóða til húsbygginga gæti leitt til almennrar lækkunar húsnæðis, en nú þegar hafa margir skuldsett sig verulega við kaup á dýru húsnæði. Hröð lækkun íbúðaverðs hefði þjóðhags- lega óhagkvæmar afleiðingar í för með sér og gjaldþrotahrina ein- staklinga gæti komið í kjölfarið. Við viljum ekki að ungt fólk hætti að flytja að heiman og því þarf prakt- íska lausn. Lausn markaðarins er að þeir sem minnst fjármagnið eiga hafi einungis kost á lélegasta hús- næðinu. Stór hópur ungra Reykvík- inga væri þá nú orðinn „fátækari“ en hann var áður í þeim skilningi að hann hefur ekki efni á sómasamlegu húsnæði. Eina raunhæfa lausnin hlýtur því að felast í auknu framboði húsnæðis fyrir þennan hóp. Það mætti sam- hliða sjá fyrir sér sérstaka lánafyr- irgreiðslu við þá sem kaupa ódýr- ustu íbúðirnar, í því skyni að allir eigi möguleika á mannsæmandi lifn- aðarháttum á Íslandi, en sú fyr- irgreiðsla má alls ekki teygja sig upp verðskalann og keyra verðlagið enn frekar upp. Til að draga lausnina saman þá felst hún í því að skipulagsyfirvöld sjái fyrir nægu framboði lóða til að tryggja að skortur á húsnæði nái ekki að keyra upp íbúðarverð. Lyk- ilatriðið hér er framboð. Óhjá- kvæmilega munu eignir á svæðum næst miðborginni vera áfram dýrar, því þar er síður hægt að byggja nýtt húsnæði, en ungu fólk gefst þá þó kostur á sæmilegum húsakosti í út- hverfum á skikkanlegu verði. Framhjá lögmálum framboðs og eft- irspurnar verður ekki siglt sama hve góður ásetningurinn er og það er dýrt spaug að gæla við leiðir sem ekki virka. Það ætti að vera fullsýnt að hærra lánshlutfall dugir ekki til að auðvelda ungu fólki fyrstu kaup húsnæðis. Villi, fleiri lóðir takk!! Hvernig tryggja má öllum húsnæði á viðráðanlegu verði Ólafur Kr. Valdimarsson skrif- ar um lóða- og lánamarkaðinn »Eina leiðin til aðgera ungu fólki auð- velt að kaupa húsnæði á viðráðanlegu verði er að tryggja nægt framboð lóða undir húsnæði. Ólafur Kr. Valdimars- son Höfundur er hagfræðingur og vinnur við lánastýringu.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.