Morgunblaðið - 19.05.2007, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 19.05.2007, Qupperneq 6
6 LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Á ANNAÐ hundrað einstaklingar höfðu í gær kolefnisjafnað farartæki sín og fjöl- mörg fyrirtæki spurst fyrir um Kolvið, að- eins þremur dögum eftir að vefur verkefn- isins var vígður í Grasagarðinum á þriðjudag. „Þetta er glænýtt og fólk þarf að melta þetta,“ segir Soffía Waag Árna- dóttir, framkvæmdastjóri Kolviðar, um þessa nýjung í umhverfismálum. „Fólk hefur tekið þessu mjög vel. Þetta er ekki átak, heldur verkefni. Þetta er langtíma- verkefni og markmiðið að fá alla Íslend- inga til að fara á vefinn og kolefniskvitta útblástur samgöngutækja sinna.“ Spurð um áhuga fyrirtækja segir Soffía að bílaleigur, bílaumboð, flugfélög, fisk- útflytjandi, og ýmis fyrirtæki, stór og smá, hafi lýst yfir áhuga á að kolefnisjafna akst- ur og flugferðir á sínum vegum. Hún segir nýjar útfærslur á kolefnisjöfnun vera að koma fram og að fyrirtæki muni eiga þess kost að nýta sér hana í markaðsstarfi. Kaupþing hefur þegar kolefnisjafnað akstur um 1.300 einkabíla á vegum starfs- manna bankans sem og að meðaltali sex flugferðir á dag, alls 2.195 ferðir á ári. Við þetta bætist á þriðja tug bíla á vegum stjórnarráðsins en frá og með nýársdegi 2008 verður skylt að kolefnisjafna akstur allra bifreiða og flugferðir starfsfólks ráðuneyta og ríkisstofnana. Þá hefur Orkuveitan lagt fram stofnframlag sem hljóðar upp á nokkrar milljónir króna. Mikið spurt um Kolvið Náttúruverndarsamtök Íslands, NSÍ, hafa sent Paul Watson, leiðtoga Sea Shepherd samtak- anna, bréf þar sem þau segja að það væri ekki málstað hvalfrið- unarsinna til fram- dráttar ef Sea Shep- herd gripu til aðgerða gegn íslenskum hval- veiðum undir yfirskrift- inni „Ragnarök“. Er jafnframt skorað á Watson að hætta við að senda skip Sea Shepherd til landsins í sumar. Árni Finnsson, formaður NSÍ, segir að- gerðir af því tagi, sem Sea Shepherd hafa staðið fyrir, muni ekki efla málstað nátt- úruverndar á Íslandi, hættan sé frekar að sá málstaður skaðist. Í bréfi NSÍ segir að afar ólíklegt sé að um frekari langreyð- arveiðar verði að ræða á árinu vegna þess að enginn markaður sé í útlöndum fyrir kjötið. Þá verði vísindaveiðum á hrefnu að mestu lokið þegar Farley Mowat, skip Sea Shepherd, er væntanlegt á miðin í sumar. NSÍ skora á Sea Shepherd Paul Watson Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is RÍKIR Rússar og sífellt ferðaþyrstari Kínverj- ar eru meðal þeirra hundraða þúsunda ferða- manna sem heimsækja Ísland í sumar og eru horfurnar góðar fyrir íslenska ferðaþjónustuna sem velti 50 milljörðum króna á síðasta ári og sló þar með tekjumet. Nú stefnir í annað met og er gert ráð fyrir 10% tekjuaukningu fyrir árið 2007. Fyrstu þrír mánuðir þessa árs lofuðu strax mjög góðu og jókst ferðamannastraum- urinn töluvert. Framboð á flugsætum hefur ver- ið aukið, fjárfestingar í gistingu nýtast betur, lækkun virðisaukaskatts á hótelgistingu og veit- ingum hefur góð áhrif, þótt á hinn bóginn sé gengi krónunnar ekki sem hagstæðast, auk þess sem mannekla er í greininni. Ársæll Haraldsson, forstöðumaður markaðs- sviðs Ferðamálastofu, segir duglegan kipp hafa komið í ferðamennskuna í vetur og sé það gíf- urlega mikilvægt til að unnt sé að nýta fjárfest- ingu í ferðaþjónustunni sem best. „Og það er enn verið að auka framboð á flugsætum, sér- staklega á Evrópumarkaði,“ bendir hann á. „Við sjáum því ekki annað en áframhaldandi aukn- ingu. Það hefur verið fjárfest mikið í hótel- og gistiþættinum um land allt. T.d. í Reykjavík verða turnarnir á Grand Hóteli opnaðir bráð- lega og nú er verið að byggja Tónlistar- og ráð- stefnuhús sem verður tilbúið eftir eitt og hálft ár og við erum byrjuð að markaðssetja af fullum krafti.“ Kippur á landsbyggðinni Ársæll segir einnig mikið að gerast á lands- byggðinni þar sem ferðaþjónustan hefur verið að ná vopnum sínum. „Það eru alltaf fleiri og fleiri fyrirtæki sem eru að verða nægjanlega stór til að geta sinnt öflugu markaðsstarfi og vöruþróun. Við erum því mjög bjartsýn á gang mála á landsbyggðinni. Almennt lítur því sum- arið mjög vel út, það þarf ekki annað en að líta á hótelbókanir til að sannfærast um það.“ Og hvað gera ferðamennirnir síðan þegar hingað er komið? Mjög mismunandi er eftir hverju þeir sækjast og atferli þeirra er jafn- fjölbreytt og þeir eru margir. „Fyrir utan jeppa- og jöklaferðir eru hestaferðir og flúða- siglingar vinsælar auk fjórhjólaferða, seglhjóla- ferða í Viðey, hvalaskoðunarferða, Gullfoss- Geysishringsins og margs annars,“ segir Ár- sæll. Hann bendir á að hvalaskoðunarferðir hafi ekki skaðast vegna hvalveiða Íslendinga. „Það sem kemur mér alltaf á óvart er hversu margir ferðamenn koma til landsins utan há- annatímans. Það er alveg stórkostlegt hvað vetrartúrisminn vex ár frá ári og Ísland virðist hafa aðdráttarafl fyrir Breta, Bandaríkjamenn og Norðurlandabúa. Það sama er ekki að segja um Miðevrópumarkaðinn að þessu leyti. Asíumarkaðurinn er að vakna til lífsins. Taív- anbúar hafa verið hér fjölmennir um nokkurt skeið og nú er kínverskum ferðamönnum að fjölga. Þá koma efnaðir Rússar hingað í nokkr- um mæli og verja talsverðum fjármunum í land- inu. Þeir sækjast eftir dýrum og fallegum hlut- um, t.d. íslenskri hönnun og eru nokkuð frábrugðnir Asíubúunum. Þeir ferðast í smærri hópum, velja dýrari flutningsmáta og við- urgjörning en Asíubúarnir ferðast á hinn bóg- inn í stærri hópum, stoppa stutt á hverjum en vilja sjá sem mest. Þeir vilja „safna“ stöðum og fara að Gullfossi, Geysi og Þingvöllum en einn og einn hópur er farinn að skila sér lengra, s.s. norður í land og austur. En ferðamynstrið gengur út á að fara hratt yfir og snúa sér síðan að næsta landi.“ Enn eitt metárið er í kortunum Morgunblaðið/RAX Stefnir í meira en 50 milljarða veltu í ferðaþjónustunni Í HNOTSKURN »Mikið vatn hefur runnið til sjávar fráárinu 1949 þegar 5 þúsund erlendir gestir létu sjá sig hér. Árið 2005 var gestafjöldinn kominn í tæp 400 þúsund og eyddu þeir um 25 milljörðum króna í landinu. Ríflega 12 þúsund gistirými stóðu þeim til boða. ♦♦♦ Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is ÓLAFUR Ragnar Grímsson, for- seti Íslands, hefur falið Geir H. Haarde, forsætisráðherra og for- manni Sjálfstæðisflokksins, umboð til að mynda nýja ríkisstjórn Sjálf- stæðisflokks og Samfylkingar. Geir gekk á fund Ólafs Ragnars á Bessastöðum í gærmorgun og baðst lausnar fyrir sig og ráðu- neyti sitt. Fundur þeirra Geirs og Ólafs Ragnars stóð í rúman hálf- tíma og að þeim tíma loknum til- kynnti Ólafur Ragnar að hann hefði fallist á lausnarbeiðni Geirs eftir ítarlegar viðræður þeirra. Sagðist hann jafnframt hefðu ósk- að eftir því að ráðherrar í hinni frá- farandi ríkisstjórn störfuðu áfram í svokallaðri starfsstjórn þar til ný ríkisstjórn hefði tekið við. „Ég hef einnig ákveðið í ljósi þeirra viðræðna sem við höfum hér átt, að fela formanni Sjálfstæðis- flokksins að mynda nýja ríkis- stjórn og geri það sérstaklega í ljósi þess vilja sem fram hefur komið af hálfu forystu Sjálfstæð- isflokksins og Samfylkingarinnar að þessir tveir flokkar gangi nú þegar til viðræðna um myndun meirihlutastjórnar,“ sagði Ólafur Ragnar. Sagðist hann ekki hafa sett neinn sérstakan tímafrest á þær viðræður, en tók fram að hann hefði lýst þeirri skoðun sinni að æskilegt væri að niðurstaða feng- ist í stjórnarmyndunarviðræðum innan næstu sjö til tíu daga. Vonast til að niðurstaða liggi fyrir innan nokkurra daga Aðspurður sagðist Geir gera ráð fyrir að sá tími myndi duga sér og formanni Samfylkingarinnar, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, til að mynda nýja ríkisstjórn. „Ég geri alveg ráð fyrir því, en það er ekki hægt að fullyrða neitt um það fyrirfram,“ sagði Geir og tók fram að vonandi þyrftu þau Ingibjörg Sólrún þó ekki marga daga til að komast að niðurstöðu. Sagðist hann myndu setja sig í samband við Ingibjörgu Sólrúnu strax að fundi sínum loknum með forsetan- um og taldi hann allar líkur á því að ríkisstjórn þá skilar hann um- boðinu til forseta á nýjan leik. En það er engin ástæða til að ræða slíkt fyrr en ef og þegar til slíks kemur.“ Í viðtölum við blaðamenn upp- lýsti Geir að hann hefði á þing- flokksfundi í gærmorgun, fyrir fund sinn með forsetanum, farið yfir stöðuna sem nú væri komin upp. „Þingflokkurinn endurnýjaði fullt umboð til mín til að klára þetta mál,“ sagði Geir. Spurður hvort þingflokkurinn hefði tekið vel í þá hugmynd hans um að fara í viðræður við Samfylkinguna svar- aði Geir því játandi. Spurður hvort hann hefði verið búinn að ræða við Ingibjörgu Sólrúnu fyrir kosning- ar líkt og framsóknarmenn hafa haldið fram svaraði Geir því neit- andi og sagði það af og frá. Borin voru undir Geir þau ummæli Ingibjargar Sólrúnar að líklega gæti mesti ágreiningur flokkanna tveggja orðið í kringum stóriðjumálin. Spurður hvernig sáttin yrði þar sagðist Geir ekki geta samið um það fyrirfram. stuðla að því að þeir flokkar, sem líklegir væru til að geta myndað meirihlutaríkisstjórn, gætu rætt saman um myndun nýrrar ríkis- stjórnar á farsælan og árangurrík- an hátt og sem mest á eigin for- sendum. „Það er ekki hlutverk forsetans að fara hverju sinni hringferð í viðræðum við forystu- menn allra flokka, nema það sé nauðsynlegt,“ sagði Ólafur Ragnar og tók fram að það væri sitt mat að það væri ekki nauðsynlegt miðað við núverandi kringumstæður þar sem hann mæti það sem svo að málið lægi ljóst og skýrt fyrir. „Það er afdráttarlaust mat mitt að skynsamlegt sé og rétt við þessar aðstæður að fela formanni Sjálf- stæðisflokksins umboð til þess að ganga til slíkra viðræðna.“ Inntur eftir því hvað myndi ger- ast næðu forystumenn Sjálfstæð- isflokks og Samfylkingarinnar ekki að mynda ríkisstjórn á næstu tíu dögum vísaði Ólafur Ragnar til sögunnar. „Ef formaður Sjálfstæð- isflokksins kemst að þeirri niður- stöðu að hann geti ekki myndað þau myndu hittast í Ráðherrabú- staðnum síðdegis í gær. Sú varð raunin. Taldi ekki nauðsynlegt að ræða við aðra forystumenn Aðspurður sagðist Ólafur Ragn- ar ekki mundu eiga neinar viðræð- ur við aðra forystumenn flokk- anna. „Formaður Sjálfstæðisflokksins hefur greint mér frá viðræðum sem hann hefur átt við formann Samfylkingarinn- ar og í ljósi þeirrar frásagnar og hvernig ég met stöðuna, m.a. í ljósi upplýsinga sem fram hafa komið á opinberum vettvangi, þá tel ég ekki nauðsynlegt að eiga viðræður við aðra forystumenn, hvorki for- mann Samfylkingarinnar né aðra. Ég tel að málið liggi að því leyti ljóst fyrir. Það er yfirlýstur vilji forystumanna Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins að ganga til þessara viðræðna,“ sagði Ólafur Ragnar og minnti í framhaldinu á að hann hefði ávallt lýst þeirri skoðun sinni að markmið forsetans við þessar kringumstæður væri að Geir Haarde falið að mynda nýja ríkisstjórn Morgunblaðið/RAX Umboð Geir H. Haarde, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, gekk á fund Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, í gær til að biðjast lausnar og falast eftir endurnýjuðu umboði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.