Morgunblaðið - 19.05.2007, Side 10
10 LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Nei, nei, þetta er ekkert svoleiðis, Nonni minn, þetta eru bara strikamerkingar.
Friðjón R. Friðjónsson | 18. maí 2007
Ný stjórn
Ég hef þrjár óskir, sú
fyrsta ætti að vera öll-
um ljós sem lesið hafa
þetta blogg, hvern ég
vil sjá áfram í ráð-
herrastóli, eftir at-
burði undanfarinna
daga þá snýst það um trúverð-
ugleika Sjálfstæðisflokksins að
Björn verði áfram ráðherra. Önnur
er sú að Sjálfstæðisflokkurinn
skipti upp ráðuneytunum, losi sig
við einhver og taki heilbrigðisráðu-
neytið.
Meira: fridjon.blog.is
Kolbrún Baldursdóttir | 17. maí 2007
Fyrirsætustörf
Lalla Johns
Ég vil taka undir með
þeim sem finnst þetta
ósmekklegt því sjálfri
finnst mér þetta óvið-
eigandi og óheppilegt.
Ekki er erfitt að
ímynda sér hver viðbrögðin væru ef
t.d. dæmdur nauðgari birtist á aug-
lýsingaplakati sem hefði þann til-
gang að hvetja konur til að fara var-
lega að næturlagi eða forðast
ákveðin skuggasund.
Meira: kolbrunb.blog.is
Helga Vala Helgadóttir | 17. maí
Ný ríkisstjórn part tú!
Þórunn Sveinbjarnar-
dóttir hefur mun
meiri reynslu en
Katrín – og þess
vegna setti ég hana
inn frekar en Kötu.
Það er ekkert á Kötu
hallað þó að ég setji Þórunni inn,
sem að mínu áliti er algjör þunga-
vigtarstjórnmálamaður og gæti í
raun hvort sem er sinnt utanríkis-
sem umhverfisráðuneyti. Það mun
þó aldrei eða ólíklega verða svo að
tveir ráðherrar komi úr Krag-
anum. Mér finnst það ólíklegt
a.m.k.
Meira: helgavala.blog.is
Jón Valur Jensson | 18. maí 2007
Ný stjórn
velkomin en...
„Ráðabrugg og klókindi, svik við
vinstrabandalag, samið við höfuð-
óvininn (á hvorn veginn sem er), ver-
ið að ýta Sólrúnu til
áhrifa í stað þess að
halda henni nógu lengi
í skugganum til þess að
hún yfirgefi stjórnmál-
in,“ – þannig heyrist
talað í kringum þessa
stjórnarmyndun. En vilja menn
frekar veika stjórn með Vinstri-
grænum, sem um margt eru ger-
ólíkir Sjálfstæðisflokknum?
Hve lengi héldi sú stjórn, og væri
hún farsæl til að koma reglulegri
skipan á okkar varnarmál? Kannski
með því að gera Steingrím J. að ut-
anríkisráðherra?!
Annar kostur í stöðunni var að
taka Frjálslynda inn, og ég hefði
stutt það, en slík stjórn hefði naum-
ast gert Framsókn neitt gott. Þrátt
fyrir augljósa gremju Guðna í Kast-
ljósi í gær yfir því, hvernig fór, hygg
ég flokk hans komast betur frá
þessu til langframa með því að
sleikja sárin og byggja sig upp. Það
telja meiri reynsluboltar en sá, sem
þetta ritar, s.s. Ingvar Gíslason, fv.
menntamálaráðherra.
Ég hef lýst því áður, að ESB-
aðildin verði lítið mál fyrir þessa
verðandi stjórn: á því er einfaldlega
enginn áhugi, málið allt óraunhæft á
kjörtímabilinu. Samfylkingunni er
það miklu meira kappsmál að fá
loksins að verma valdastólana en
svo, að hún fari að gera slíka sér-
vizku sumra talsmanna sinna að
neinu ágreiningsmáli við Sjálfstæð-
isflokkinn.
Veitum þessari stjórn aðhald með
jákvæðum hætti, fylgjumst með því,
hvaða stefnu hún tekur upp í stór-
iðjumálum, styðjum áherzlur á bætt
kjör og aðstæður aldraðra og ör-
yrkja, fátækra og annarra sem
stuðning þurfa í þjóðfélaginu.
Hætt er við, að þetta verði afar
bleik stjórn, með mikilli áherzlu á
tilbúin, en að sumu leyti nauðsynleg
kvennamál, en von mín og bæn er
sú, að það verði ekki til að frysta alla
möguleika á því, að dregið verði úr
fósturdeyðingum – og hafa mega
femínistarnir í báðum flokkum í
huga, að annað hvert ófætt barn,
sem hér lætur lífið, er meybarn.
Meira: jonvalurjensson.blog.is
VEÐUR
Úrill viðbrögð framsóknarmannavegna stjórnarslitanna fara
þeim illa. Og að uppnefna hugs-
anlega samstjórn Sjálfstæðisflokks
og Samfylkingar „Baugsstjórn“ er
asnalegt. Því fyrr sem framsóknar-
menn hætta að láta svona þeim
mun betra fyrir þá sjálfa. Með því
að láta svona eins og þeir gera
missa þeir sjálfsvirðingu sína.
Það hefði veriðbetra fyrir
Framsóknar-
flokkinn að end-
urnýja flokkinn í
ríkisstjórn. Nú
bendir allt til
þess, að svo
verði ekki og þá
eiga þeir að ein-
beita sér að upp-
byggingu flokksins í stjórnarand-
stöðu.
Yfirgnæfandi líkur eru á aðGuðni Ágústsson taki við
flokknum af Jóni Sigurðssyni. Það
er góður kostur fyrir Framsókn-
arflokkinn. Guðni mun beina sjón-
um flokksins að uppruna hans og
rótum á landsbyggðinni. Guðni er
stjórnmálamaður, sem höfðar til
hinnar jákvæðu þjóðerniskenndar í
brjóstum Íslendinga. Hann mun ná
til fólks. Hann er „folketaler“.
Ef samstjórn Sjálfstæðisflokks ogSamfylkingar gengur of langt í
að auka innflutning á landbúnaðar-
afurðum mun Guðni sópa fylgi að
Framsóknarflokknum á lands-
byggðinni. Það verður varasamt
fyrir þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins á landsbyggðinni.
Ef Sjálfstæðisflokkurinn lætur
undan Samfylkingunni í ESB-
málum mun Guðni fara um sjávar-
þorpin og spyrja, hvort Brussel,
Grimsby og Hull eigi að komast
upp með að stjórna nýtingu auð-
lindarinnar við Íslands strendur.
Framsóknarflokkur GuðnaÁgústssonar á marga leiki í
stöðunni og á að hætta þessu væli.
STAKSTEINAR
Guðni Ágústsson
Framsóknarflokkur Guðna
SIGMUND
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
! ""#
! ""#
!""!
"$
!""!
:
*$;<
!"
# $ %
& *!
$$; *!
% & '
&
$
( )(
=2
=! =2
=! =2
%$ '"!*"#+,!("-
>
62
.(
"
/
) ( !&
0
!/
(""""#
;
1(
'!
!#
!""!
/ " (
"""#
0
- 2
*
%"
('!
/3 +
&
""# " '!&"#(""
42"(55! !"
("""6!&
"
"#"(
0
!
72!!
(55
"!( 8 (
(*"#
3'45 ?4
?*=5@ AB
*C./B=5@ AB
,5D0C ).B
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/ /
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
BLOG.IS
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá Gesti
Jónssyni, formanni landskjörstjórn-
ar:
„Í Viðskiptablaðinu 18. maí er við-
tal við Björn Bjarnason, dómsmála-
ráðherra, þar sem hann lætur í ljós
skoðanir á auglýsingum Jóhannesar
Jónssonar, kaupmanns í Bónus, sem
skoraði á kjósendur Sjálfstæðis-
flokksins í kjördæmi ráðherrans að
strika yfir nafn hans á kjörseðlinum.
Í því samhengi er haft eftir ráðherr-
anum:
„Athygli hefur verið vakin á því að
Gestur Jónsson höfuðlögmaður
Baugs er formaður landskjörstjórn-
ar. Jón Steinar Gunnlaugsson sagði
af sér sem formaður yfirkjörstjórn-
ar þegar Ólafur Ragnar Grímsson
var í kjöri vegna orða, sem hann
hafði látið falla um Ólaf. Gestur
Jónsson telur hins vegar eðlilegt, að
hann sitji sem formaður landskjör-
stjórnar. “
Mér er gert óþarflega hátt undir
höfði þegar ég er titlaður „höfuðlög-
maður Baugs“. Hið rétta er að ég
hef verið skipaður verjandi Jóns Ás-
geirs Jóhannessonar í málum
ákæruvaldsins gegn honum. Ég get
því miður ekki hreykt mér af því að
hafa sem lögmaður átt þátt í glæsi-
legri uppbyggingu Baugs á undan-
förnum árum. Mér finnst afleitt að
ráðherrann dragi nafn Jóns Steinars
Gunnlaugssonar, hæstaréttardóm-
ara, inn í umræðuna með þessum
hætti. Ráðherrann veit vel að hlut-
verk landskjörstjórnar í alþingis-
kosningum er gjörólíkt hlutverki yf-
irkjörstjórna í forsetakosningum. Í
forsetakosningum eiga kjósendur
val á milli fárra einstaklinga en í al-
þingiskosningum er kosið á milli
stjórnmálaflokka þar sem frambjóð-
endur skipta hundruðum. Yfirkjör-
stjórnir annast alla framkvæmd
kosninganna, þ.m.t. talning atkvæða
og útstrikana. Landskjörstjórn tek-
ur síðan við skýrslum frá yfirkjör-
stjórnum hvers kjördæmis, m.a. um
atkvæðatölur hvers lista og fjölda
útstrikana einstakra frambjóðenda.
Landskjörstjórn úthlutar þingsæt-
um á grundvelli þessara upplýsinga
og gefur síðan út kjörbréf til þeirra
sem kosningu hlutu.
Mér finnst það vera áhyggjuefni
að dómsmálaráðherra skuli gefa það
í skyn í opinberu viðtali að staða mín
sem verjanda Jóns Ásgeirs Jóhann-
essonar geri mig vanhæfan sem for-
mann landskjörstjórnar.
Gestur Jónsson hrl,
formaður landskjörstjórnar.“
Athugasemd
vegna viðtals við
dómsmálaráðherra