Morgunblaðið - 19.05.2007, Síða 18
18 LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
TIL harkalegra
orðaskipta kom í
gær á fundi full-
trúa Rússlands
og aðildarríkja
Evrópusam-
bandsins sem
haldinn var í
sumardval-
arstaðnum
Volshkí Útjos, að
sögn BBC.
Angela Mer-
kel, kanslari
Þýskalands, lýsti
áhyggjum sínum af því að and-
ófsmenn, þ. á m. skákmeistarinn
Garrí Kasparov, skyldu hafa verið
handteknir er þeir ætluðu að fara
til Volshkí Utjos til að mótmæla
mannréttindabrotum stjórnar
Vladímírs Pútíns forseta. Forsetinn
svaraði með því að fullyrða að
stjórnvöld í Eistlandi ofsæktu þjóð-
arbrot Rússa í landinu. Sagði Pútín
m.a. að eistneska lögreglan hefði
beitt allt of mikilli hörku og hrein-
lega drepið einn
af þátttakendum
í mótmælum ný-
lega gegn flutn-
ingi á umdeildu
minnismerki um
rússneska her-
menn.
Forseti fram-
kvæmdastjórnar
ESB, Jose Manu-
el Barroso, var-
aði Rússa við því
að ef þeir gripu
til að refsiað-
gerða gegn einu aðildarríki yrði lit-
ið á það sem aðgerð gegn samband-
inu öllu.
Markmiðið með fundinum var að
reyna að bæta samskipti Rússa við
vestræn ríki en það virðist alls ekki
hafa tekist. Meðal mála sem eitrað
hafa samskiptin eru deilur um
framtíð Kosovohéraðs, Rússar and-
mæla hugmyndum um sjálfstæði
þess frá Serbíu. Einnig er deilt um
viðskipti og orkusölu.
Misheppnaður sáttafundur
Rússa og ESB-ríkja
Reuters
Ósammála Vladímír Pútín (t.h.) og
Angela Merkel á fundinum.
Genf. AP. | Karlar í San Marino verða allra
karla elstir, þeir geta átt von á því að ná 80
ára aldri. Sem fyrr eru lífslíkur kvenna þó
enn betri, í Japan geta konur vænst þess að
verða 86 ára gamlar. Ísland er ofarlega á
listanum yfir hæstu og lægstu lífslíkur
þjóða, sem Alþjóðaheilbrigðisstofnunin
(WHO) sendi frá sér í gær, en íslenskir karl-
ar geta vænst þess að verða 78 ára gamlir
og konur 83 ára.
Ungbarnadauði algengur í Afganistan
Á eftir San Marino koma Ástralía, Ísland,
Japan, Svíþjóð og Sviss með 79 ár; en hjá
konum kemur Mónakó næst með 85 ár og svo Andorra, Ástralía, Frakk-
land, Ítalía, San Marino, Spánn og Sviss með 84 ár. Á hinum enda kvarðans
kemur fram að karlar í Afríkuríkinu Sierra Leone geta aðeins vænst þess
að verða 37 ára gamlir. Konur í Swazilandi verða einnig að jafnaði 37 ára
gamlar, en þær eru í neðsta sæti kvenna megin. Barnadauði er mestur í
Afganistan, þar deyja 165 ungbörn af hverjum 1.000 sem fæðast; en
minnstur í Singapore og á Íslandi en þar deyja aðeins tvö ungbörn af hverj-
um 1.000. Í skýrslu WHO kemur fram að lönd neðarlega á þessum listum
um lífslíkur eyddu mun minna í heilbrigðismál en önnur.
Hvergi minna um smábarna-
dauða en á Íslandi
Morgunblaðið/RAX
Heilbrigði Gott á Íslandi.
Moskvu. AFP. | Stjórnvöld í Rúss-
landi hafa höfðað mál gegn banka í
Bandaríkjunum og segja hann hafa
verið notaðan við peningaþvætti er
kostað hafi Rússa 22,5 milljarða
dollara, um 1400 þúsund milljónir
ísl. kr.
Forsaga málsins er að 1998 hóf
lögregla vestanhafs rannsókn á
þvætti á sjö milljörðum dollara þar
sem reikningar í umræddu fyrir-
tæki, Bank of New York (BNY),
voru notaðir. Kom í ljós að fyrrver-
andi stjórnarformaður BNY, hin
rússneskættaða Lucy Edwards,
hafði ásamt eiginmanni sínum, Pet-
er Berlin, opnað reikning árið 1996
og var hann notaður til að þvætta
milljarðana frá Rússlandi.
Árið 2000 hófu Svisslendingar
síðan rannsókn á öðru hneyksli í
bankanum. Var um að ræða meint
svindl í tengslum við lán frá Al-
þjóðagjaldeyrissjóðnum, um 4,8
milljarða dollara. BNY samþykkti
árið 2005 að ljúka þvættismálinu
með 38 milljóna dollara sekt. Hjón-
in viðurkenndu síðar brot sín,
greiddu bætur og sættu stofuvarð-
haldi í sex mánuði.
Rússar krefjast skaðabóta
vegna peningaþvættis
STARFSMENN bandarísks björg-
unarfyrirtækisins hafa fundið 17
tonn af gull- og silfurpeningum í
skipsflaki á botni Atlantshafs.
Verðmæti fjársjóðsins er talið vera
um hálfur milljarður dala, jafnvirði
nærri 32 milljarða króna.
Fundu fjársjóð
MIKIÐ uppnám varð í dýragarð-
inum í Rotterdam í Hollandi þegar
górillan Bokito birtist skyndilega
meðal gesta í matsalnum og hafði
sloppið úr búri sínu. Þrír slösuðust í
hamaganginum sem varð og ein
kona, sem Bokito hrifsaði til sín og
dró stutta vegalengd. Bokito var
síðar skotinn með deyfibyssu.
AP
Slapp úr búri sínu
LEIT að Madeleine McCann, fjög-
urra ára stúlku, sem var rænt í Alg-
arve í Portúgal 3. maí, hefur engan
árangur borið. Vefsíða (www.find-
madeleine.com) var opnuð til að að-
stoða við leitina og hafa meira en
65 milljónir heimsótt hana.
65 milljón gestir
TEDRYKKJA þykir of tímafrek í
Terengganu í Malasíu og hafa yfir-
völd ákveðið að banna opinberum
starfsmönnum að fara út í te í
vinnunni. Þess í stað verða settir
upp tekrókar í öllum opinberum
byggingum.
Te tímafrekt
VOPNAÐIR Hamas-liðar við útför
á Gaza í gær, átökin á svæðinu
valda því að fáir mæta nú við útfar-
ir þar sem fólk óttast að verða skot-
mark. Stöðugt berast fréttir af
blóðugum átökum milli Hamas- og
Fatah-manna á svæðinu, auk þess
sem Ísraelar hafa gert mann-
skæðar loftárásir síðustu daga til
að hefna fyrir flugskeytaárásir á
Ísrael. „Þetta er nóg, nóg,“ hvíslaði
10 ára drengur, Majid Fajja og
þrýsti lófunum að eyrum sér. „Ég
vil ekki heyra meiri skothríð...Hún
kemur frá aröbum og gyðingum“.
Reuters
Vopnuð útför á Gaza
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
NÝKJÖRINN forseti Frakklands,
Nicolas Sarkozy, samþykkti í gær
ráðherralista forsætisráðherra síns,
Francois Fillons, og skipa konur sjö
af 15 ráðherraembættum. Mesta at-
hygli vakti skipun sósíalistans Bern-
ard Kouchners í embætti utanríkis-
ráðherra og einnig tekur nú
afkomandi innflytjenda frá Norður-
Afríku í fyrsta sinn sæti í ríkisstjórn
í Frakklandi. Þykir nú ljóst að Sar-
kozy vilji reyna að efna loforð sín um
að sameina þjóðina.
Sósíalistar fóru hörðum orðum um
Kouchner og sögðu hann vera að
svíkja lit, þeir sögðust líta svo á að
hann væri nú genginn úr flokknum.
„Hann útilokaði sig sjálfur,“ sagði
talsmaður Sósíalistaflokksins, Beno-
it Hamon. Kouchner, sem er 67 ára,
læknir og heimsþekktur baráttu-
maður fyrir mannréttindum, var eitt
sinn ráðherra í stjórn sósíalistans
Lionel Jospins.
Kouchner stofn-
aði ásamt öðrum
samtökin Læknar
án landamæra ár-
ið 1971. Hann var
æðsti fulltrúi
Sameinuðu þjóð-
anna í Kosovo
1999-2000.
Kouchner er
afar umdeildur á vinstrivængnum,
ekki síst vegna þess að hann þykir
mjög hlynntur Bandaríkjunum og
studdi innrásina í Írak 2003. Var það
ekki síst vegna samúðar með mál-
stað Kúrda sem voru ofsóttir í í Írak.
Sagðist hann ekki mæla almennt
með hernaðarlausnum en óhjá-
kvæmilegt væri að koma harðstjór-
anum Saddam Hussein frá völdum.
Hinn 61 árs gamli Alain Juppé,
fyrrverandi forsætisráðherra, fær
nú uppreisn æru en hann hlaut árið
2004 skilorðsbundinn dóm fyrir fjár-
málaspillingu og var jafnframt úti-
lokaður frá þátttöku í stjórnmálum í
eitt ár. Juppé verður nú ráðherra
umhverfismála en Sarkozy leggur
þunga áherslu á þann málaflokk.
Rachida Dati, sem er 41 árs, tekur
við embætti dómsmálaráðherra.
Hún varð landsþekkt þegar hún varð
aðaltalsmaður Sarkozy í kosninga-
baráttunni. Hún á ættir að rekja til
Marokkó og Alsír en fólki með slíkan
bakgrunn hefur gengið afar illa að
kveðja sér hljóðs í stjórnmálum
Frakklands þótt það skipti milljón-
um í landinu.
Michele Alliot-Marie verður ráð-
herra innanríkismála en hún var
varnarmálaráðherra í ríkisstjórn
fráfarandi forsætisráðherra, Dom-
inique de Villepin.
Við varnarmálunum tekur Hervé
Morin.
Ráðherrum fækkar úr 30 í 15 og
hlutfall kvenna í ríkisstjórn hefur
aldrei fyrr verið svo hátt. Þess má
geta að aðeins um 14% þingsæta í
Frakklandi eru skipuð konum.
Konur nær helmingur
ráðherra Sarkozy
Bernard Kouchner
Eftir Svein Sigurðsson
svs@mbl.is
PAUL Wolfowitz, yfirmaður Al-
þjóðabankans, mun láta af því emb-
ætti 30. júní næstkomandi. Kveðst
hann gera það með hagsmuni bank-
ans í huga en hann er sakaður um að
hafa brotið siðareglur hans með því
að hygla ástkonu sinni og veita henni
mikla launahækkun.
Síðustu daga hefur bankastjórnin
eða framkvæmdastjórarnir 24 reynt
að finna leið til að auðvelda Wolfo-
witz afsögnina og felst hún í því að
bankinn viðurkennir að hafa veitt
honum óljós og illa ígrunduð ráð er
málefni ástkonu hans, Shaha Riza,
komust fyrst í hámæli.
Wolfowitz varð yfirmaður Al-
þjóðabankans í júní 2005 og skömmu
síðar veitti hann Riza verulega
stöðu- og launahækkun. Hér var að
sjálfsögðu um að ræða mikinn hags-
munaárekstur og vegna þess var
Riza flutt í starf í bandaríska utan-
ríkisráðuneytinu. Alþjóðabankinn
greiddi þó áfram launin hennar,
nærri 200.000 dollara, 12,6 milljónir
íslenskra kr.
Bankastjórnin fer að öðru leyti
fögrum orðum um störf Wolfowitz
og nefnir ýmislegt, sem áunnist hafi.
Í yfirlýsingu frá starfsmannafélagi
bankans kveður hins vegar við ann-
an tón og þar er Wolfowitz gagn-
rýndur fyrir að hafa sýnt yfirgang
og hroka.
Vangaveltur um eftirmann
Evrópuríki beittu sér mest fyrir
því, að hann segði af sér en Banda-
ríkjastjórn studdi hann til loka.
Talsmaður George W. Bush Banda-
ríkjaforseta sagði í gær, að hann
harmaði þetta mál allt en myndi
fljótlega tilnefna annan mann sem
yfirmann Alþjóðabankans. Hafa
nokkrir menn verið nefndir sem lík-
legir eftirmenn Wolfowitz, þar á
meðal Robert Zoellick, fyrrv. við-
skiptafulltrúi Bandaríkjanna,
Robert Kimmitt aðstoðarfjármála-
ráðherra og Paul Volcker, fyrrv.
seðlabankastjóri.
Paul Wolfowitz á förum
Reuters
Starfslok Paul Wolfowitz fer frá
húsi sínu í Washington í fyrradag.
Í HNOTSKURN
» Sem aðstoðarvarnarmála-ráðherra var Wolfowitz
einn helsti hvatamaður innrás-
arinnar í Írak.
» Ekki síst þess vegna varalla tíð mikil andstaða við
skipan hans sem yfirmanns Al-
þjóðabankans.