Morgunblaðið - 19.05.2007, Síða 23
daglegtlíf
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur
join@mbl.is
Það er bæði líf og fjör íGarðabænum þessa dag-ana því í og við Hofsstaða-skóla eru saman komnir
650 söngelskir ungir Norður-
landabúar sem þanið hafa radd-
böndin í íslenskri vorblíðunni að
undanförnu. Ungmennin, sem eru
frá Grænlandi, Svíþjóð, Noregi,
Danmörk, Finnlandi og Íslandi,
taka þátt í árlegu norrænu barna-
kóramóti sem þjóðirnar skiptast á
að halda en þetta mun vera í átj-
ánda sinn sem mótið fer fram.
Mótið hófst með pomp og prakt
með opnunarhátíð síðastliðið
fimmtudagskvöld og því lýkur svo
með stórtónleikum klukkan 15.00 á
morgun, sunnudag í Mýrinni,
íþrótta- og tómstundaheimili Hofs-
staðaskóla og Fjölbrautaskóla
Garðabæjar. Tónleikarnir eru öllum
opnir og er aðgangur ókeypis.
Ungu söngfuglarnir eru á aldrinum
10 til 18 ára í 34 kórum, þar af eru
níu kórar frá Íslandi og Danmörku,
sjö frá Noregi, sex frá Svíþjóð,
tveir frá Finnlandi og einn frá
Grænlandi.
Langþráð heimsókn til Íslands
„Þetta er bara alveg rosalega
skemmtilegt og gefur okkur tæki-
færi til að eignast fullt af nýjum
vinum frá mörgum löndum. Svo er
líka alltaf gaman að heyra söng á
mismunandi tungumálum,“ sögðu
sexmenningarnir, sem Daglegt líf
ræddi við snemma í gærmorgun að
afloknum morgunverði og áður en
tekið var til við söng- og sam-
æfingar að nýju. Það var ekki laust
við að tilhlökkun lægi í loftinu því
fyrir lá ferðalag að Gullfossi og
Geysi auk þess sem hluti hópsins
hafði valið að baða sig í Bláa lóninu.
Þau Katriina Kanta frá Finn-
landi, Emelie Johnsson frá Svíþjóð,
Anna Kaltoff frá Danmörku, Asta
Petersen frá Grænlandi og Fredrik
Hana Voss frá Noregi voru að
koma til Íslands í fyrsta skipti, en
sögðust lengi hafa alið með sér
þann draum að heimsækja land og
þjóð.
Söngfuglarnir 650 tala auðvitað
mismunandi tungumál, en þurfa
þrátt fyrir það að tileinka sér
tungumál hver annars í söngnum.
Þegar spurt er hvaða tungumál sé
erfiðast, hefur íslenskan vinninginn
hjá Finnum, Svíum, Dönum og
Norðmönnum. Sænskan er hins
vegar tormeltust, að mati Astu frá
Grænlandi og Íslendingurinn Gunn-
ar Oddur Hafliðason, sem er í kór
Digranesskóla, segir að grænlensk-
an sé langerfiðust. „Ég hef sungið í
kórum frá sex ára aldri enda kem
ég úr mikilli kórafjölskyldu. Ég á
mér þó fullt af öðrum áhugamálum
því auk kórastarfsins er ég í hand-
bolta, fótbolta, skátunum og svo er
voða gaman að fara í eltingaleik í
skólanum,“ segir Gunnar Oddur.
Þegar aðrir viðmælendur eru
spurðir út í áhugamálin, er ekki
komið að tómum kofunum hjá þeim,
því auk kórastarfsins er Fredrik að
æfa sund, Emelie er í körfubolta,
Anna í leiklist, Katriina er með
einkakennara í popp- og djasssöng
og Asta hefur fengið marga verð-
launapeninga fyrir handbolta..
Þjóðsöguþema í Slæðingi
Tónmenntarkennarafélag Íslands
hefur veg og vanda af skipulagn-
ingunni hér heima. Mótið, sem er
haldið undir merkjum Norbusang,
ber yfirskriftina „Mystik og Musik“
og sækir þema sitt í íslenskar þjóð-
sögur.
Hildigunnur Rúnarsdóttir tón-
skáld hefur samið nýtt hátíð-
artónverk, sem hún nefnir Slæðing,
við texta Hannesar Hafstein og við
undirleik Sinfóníuhljómsveitar
áhugamanna og Blásarakvintetts
Garðabæjar. Verkið, sem byggt er
á íslenskum þjóðsögum, verður flutt
á lokatónleikum í flutningi allra
kóranna undir stjórn Bernharðs
Wilkinsonar. Á tónleikunum verða
einnig flutt íslensk og norræn kór-
verk sem stórkórinn hefur und-
irbúið, hver í sínu heimalandi.
Tónlistarstjórar mótsins eru þau
Þórunn Björnsdóttir, tónmennt-
arkennari og kórstjóri, Hilmar Örn
Agnarsson, tónmenntarkennari og
kórstjóri og Bernharður Wilkinson
hljómsveitarstjóri.
Barnamenning er
líka menning
Framkvæmdastjórn mótsins hef-
ur verið í höndum Hildar Jóhann-
esdóttur, tónmenntakennara í Hofs-
staðaskóla. „Þetta er heilmikill
viðburður því stundum vill það
gleymast að barnamenning er líka
menning. Auk æfinga og tónleika
hafa krakkarnir svo fengið tækifæri
til að ferðast aðeins um landið,“
segir Ásta Bryndís Schram kór-
stjóri sem hefur m.a. haft veg og
vanda af undirbúningi, en síðast var
mótið haldið á Íslandi árið 2000.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Stórkórinn Mikla samæfingu þarf til þegar 34 kórar frá sex löndum koma saman til að flytja heilt tónverk.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Söngfuglar Asta Petersen, Anna Kaltott, Fredrik Voss, Gunnar Hafliðason, Emelie Johnsson og Katriina Kanta.
Eignast
nýja vini
Sigmar Magnússon býr í pínu-
lítilli íbúð á Vesturgötunni þar
sem hver einasti fermetri er vel
notaður. » 26
lifun
650 norræn ungmenni í 34
kórum flytja saman tón-
verkið Slæðing eftir Hildi-
gunni Rúnarsdóttur á stór-
tónleikum í Mýrinni kl. 15
á morgun.
Magma/Kvika er sýning sem
opnuð verður í dag á Listasafni
Reykjavíkur-Kjarvalsstöðum á
Listahátíð í Reykjavík» 24
hönnun
|laugardagur|19. 5. 2007| mbl.is