Morgunblaðið - 19.05.2007, Síða 28
28 LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Einar Sigurðsson.
Styrmir Gunnarsson.
Forstjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjórar:
Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen.
Fréttaritstjóri:
Björn Vignir Sigurpálsson.
GRÆNN FLOKKUR
Það hefur verið fróðlegt aðfylgjast með því hvernigSteingrímur J. Sigfússon,
formaður Vinstri grænna, hefur
markvisst leitt flokk sinn til þess að
glutra niður hverju tækifærinu á
fætur öðru í aðdraganda kosning-
anna og eftir þær.
Í fyrsta lagi klúðruðu Vinstri
grænir kosningabaráttunni, senni-
lega með því að hætta að berjast og
trúa á skoðanakannanir. Það varð
til þess að stórsigur, sem allt
stefndi í, gekk þeim úr greipum þótt
þeir ynnu góðan sigur í kosningun-
um.
Í öðru lagi unnu forystumenn
Vinstri grænna skipulega að því að
útiloka vinstristjórn með aðild
Framsóknarflokksins. Það gerði
Steingrímur J. Sigfússon með því að
móðga framsóknarmenn stórlega
með því að krefjast þess í sjónvarpi
að Jón Sigurðsson, formaður Fram-
sóknarflokksins, legðist á hnén fyr-
ir framan sig og bæði sig afsökunar
á auglýsingu sem Framsóknarflokk-
urinn hafði birt í sjónvarpi og Stein-
grímur taldi móðgandi fyrir sig.
Í þriðja lagi héldu forystumenn
Vinstri grænna áfram með að úti-
loka vinstristjórn með því að bjóða
Framsóknarflokknum upp á þann
eina kost að vera utan stjórnar en
verja minnihlutastjórn Samfylking-
ar og Vinstri grænna vantrausti!
Í fjórða lagi hefur Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir upplýst að hún hafi
ekki talið möguleika á vinstristjórn
vegna afstöðu Steingríms J. Sigfús-
sonar til Framsóknarflokksins.
Í fimmta lagi sýnist Steingrímur
J. Sigfússon ekki hafa áttað sig á að
umtalsverður stuðningur var innan
Sjálfstæðisflokksins við samstjórn
með Vinstri grænum. Alla vega
gerði hann litla sem enga tilraun til
að nýta þá möguleika.
Þetta er langur listi mistaka hjá
formanni stjórnmálaflokks og raun-
ar alveg óskiljanlegt að svo reyndur
stjórnmálamaður sem Steingrímur
J. Sigfússon er skyldi láta þessi
mistök henda sig.
Vinstri grænir ætluðu ekki að láta
þetta gerast. Eftir að þeir misstu af
tækifærinu til að mynda meirihluta
með Sjálfstæðisflokknum í Reykja-
vík ætluðu þeir ekki að glutra niður
sama tækifæri í landstjórninni. En
það gerðist.
Nú hlýtur sú spurning að vakna
meðal vinstri grænna, hvort ekki sé
komið nóg af svo góðu. Forystusveit
Vinstri grænna hefur reynzt ófær
um að vinna úr góðum kosninga-
sigri. Það er augljóslega kominn
tími til breytinga.
Í hópi Vinstri grænna eru margar
ungar og efnilegar konur sem eru
fullfærar um að taka við forystu
flokksins. En jafnframt felast aug-
ljóslega sóknarfæri í því fyrir þenn-
an flokk að taka skrefið til fulls og
verða grænn flokkur án þess að skil-
greina sig til vinstri sem slíkur.
Með slíkri breytingu og nýrri for-
ystu mundi græni flokkurinn skapa
sér sterka vígstöðu í íslenzkum
stjórnmálum.
ÖRYGGIS- OG VARNARMÁL
RÆDD VIÐ ÞJÓÐVERJA
Svokallaðar forviðræður fóru frammilli Íslendinga og Þjóðverja í
gær um öryggis- og varnarmál.
Kveikjan að þessum viðræðum var
heimsókn íslenskra embættismanna
til Berlínar í vetur. Í frétt í Morg-
unblaðinu í dag kemur fram að víða
var komið við í viðræðunum og ekki
aðeins fjallað um varnir og hagsmuni
Íslands. Engin niðurstaða varð af við-
ræðunum í gær en gert er ráð fyrir að
þeim verði haldið áfram í haust og
næsti fundur verði í Þýskalandi.
Þess er ekki að vænta að gerður
verði samningur við Þjóðverja af
svipuðum toga og gerðir hafa verið
við Dani og Norðmenn. Það útskýrir
Ulrich Brandenburg, embættismað-
ur í þýska utanríkisráðuneytinu,
þannig að Þýskaland sé ekki hluti af
því svæði á Norður-Atlantshafi, sem
um sé að ræða. Þjóðverjar geri sér
hins vegar grein fyrir þeirri stöðu,
sem hér sé komin upp eftir að banda-
ríska varnarliðið hvarf á braut í
fyrrahaust.
Samskipti Íslands og Þýskalands
hafa löngum verið náin og milli land-
anna eru sterk menningarleg tengsl.
Heil kynslóð Þjóðverja ólst upp við
lestur Nonnabókanna og nú blasa
bækur Arnaldar Indriðasonar við í
öllum bókabúðum auk þess sem verk
fjölda nútímahöfunda hafa verið þýdd
á þýsku.
Mikill fjöldi þýskra ferðamanna
kemur til Íslands á ári hverju og Ís-
lendingar halda til Þýskalands bæði
til að ferðast og stunda nám. Við-
skiptin milli ríkjanna eru einnig mikil
og blómleg og hlaupa á tugum millj-
arða króna á hverju ári.
Þýskaland er öflugasta ríki Evrópu
um þessar mundir og þar er mikill
skriður á flestum sviðum. Þjóðverjar
hafa smátt og smátt látið meira að sér
kveða eftir lok kalda stríðsins og
sameiningu Austur- og Vestur-
Þýskalands og axlað aukna ábyrgð,
en ýmsir telja þó að þeir mættu fara
sér hraðar.
Augljóst er líka að þeir vilja hafa
áhrif í samræmi við stærð, til dæmis
með því að fá fast sæti í öryggisráði
Sameinuðu þjóðanna, þótt á það sé
ekki lögð þung áhersla þessa dagana.
Þýska hernum hefur verið beitt í
auknum mæli og gegnir hann hlut-
verki bæði á Balkanskaga og í Afgan-
istan, svo eitthvað sér talið.
Ísland tók upp stjórnmálasamband
við Vestur-Þýskaland árið 1952 og
hefur ávallt verið náinn samgangur
milli íslenskra og þýskra ráðamanna.
Þjóðverjar eru mikilvægur banda-
maður bæði í Atlantshafsbandalag-
inu og í samskiptum við Evrópusam-
bandið. Það er mikilvægt að rækta og
efla samskiptin við Þýskaland. Aukið
samstarf í varnarmálum er liður í því.
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/
FRÉTTASKÝRING
Eftir Agnesi Bragadóttur
agnes@mbl.is
Eindrægni, samhugur ogsamstaða eru ekki orðsem koma fyrst upp íhugann þegar lýsa á
andrúminu innan Framsókn-
arflokksins. Efst í huga framsókn-
armanna nú, eftir að stjórnarsam-
starfi við Sjálfstæðisflokkinn hefur
verið slitið, er mögnuð reiði í garð
Sjálfstæðisflokks. Merkilegt er að
reiðin snýr ekki fyrst og fremst að
Geir H. Haarde heldur miklu frem-
ur Sjálfstæðisflokknum sem slík-
um, og ef persónugera á reiði
Framsóknar í einni manneskju þá
beinist reiðin fyrst og fremst að
Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur,
menntamálaráðherra og varafor-
manni Sjálfstæðisflokksins.
Framsóknarmenn segja hana
hafa farið offari, í markaðs-
setningartilraunum fyrir sam-
stjórn Sjálfstæðisflokks og Sam-
fylkingar. Í raun hafi Sjálfstæði-
sflokkurinn verið þrískiptur frá því
að kosningaúrslit lágu fyrir á
sunnudagsmorgun: Einn hluti
Sjálfstæðisflokksins hafi átt í mikl-
um og heitum viðræðum við sam-
fylkingarfólk; annar og minni hluti
flokksins hafi átt í svipuðum við-
ræðum við vinstri græn og þriðji
hlutinn, Geir H. Haarde hafi átt í
viðræðum við Jón Sigurðsson, for-
mann Framsóknarflokksins.
Dapurlegur endir
Framsóknarmenn segja það dap-
urlegt að trúnaðarbrestur hafi orð-
ið milli flokkanna, eftir 12 ára far-
sælt stjórnarsamstarf. Vísa þeir til
þess að viðræður milli sjálfstæðis-
manna og samfylkingarfólks hafi
verið komnar vel á veg, á bak við
tjöldin, á meðan Geir H. Haarde
hafi enn átt í viðræðum við Jón Sig-
urðsson um áframhaldandi stjórn-
arsamstarf.
Segja þeir að yfirlýsingar Ingi-
bjargar Sólrúnar Gísladóttur í
fréttum RÚV á miðvikudag og aft-
ur í Kastljósi á uppstigningardag
staðfesti þetta. Framsóknarmenn
væna Geir H. Haarde þó alls ekki
um óheiðarleika eða tvöfeldni; þeir
trúa því miklu frekar að mun meiri
skriður hafi verið á viðræðum milli
sjálfstæðismanna og samfylking-
arfólks en Geir hafi verið kunnugt
framsóknarmenn telja að h
áform hafi ekki endilega te
af því hvað hentaði Framsó
heldur því hvað hentaði he
hagsmunum best.
Gengið er út frá því sem
Jón Sigurðsson, formaður
sóknarflokksins, muni segj
formennsku á miðstjórnarf
sem áætlað er að verði hald
síðar en um miðjan júní.
Jón á ekki hægt um vik a
áfram formennskunni eftir
Framsókn verður komin í s
arandstöðu því hann náði e
á þing og hefur þannig séð
vettvang sem formaður. H
ráðherra í fráfarandi ríkiss
þannig gegndi allt öðru má
stöðu hans þótt hann sæti e
heldur á þingi sem þingma
Því eru nú alls konar þre
hafnar innan Framsóknar
sitt sýnist hverjum. Siv mu
uð staðráðin í því að bjóða
til formanns, gegn Guðna Á
syni, þegar flokksþing verð
kallað saman og er þegar k
fleygiferð í þeim undirbúni
það liggur fyrir að þegar J
af sér á miðstjórnarfundi þ
um. Þeir eru þó þeirrar skoðunar
að Geir hafi haldið Jóni volgum
óhóflega lengi, miðað við það hver
gangur var á óformlegum við-
ræðum við Samfylkingu. Reiðin
undir niðri er því kraumandi í
mörgum framsóknarmanninum.
Erfitt en gerlegt
Framsóknarmenn telja að ef fullur
vilji hefði verið til þess að halda frá-
farandi stjórn áfram við völd, af
hálfu beggja flokka, hefði það í
sjálfu sér verið gerlegt. Þeir við-
urkenna að það hefði getað verið
mjög erfitt í framkvæmd því það
þurfi geysilegan aga og samstöðu
og mjög mikla skipulagningu til
þess að halda saman stjórnarmeiri-
hluta tveggja flokka sem byggi að-
eins á einum manni. Eru samt sem
áður sannfærðir um að það hefði
verið gerlegt.
Bjarni Harðarson, nýr þingmað-
ur Framsóknar í Suðurkjördæmi,
er annar tveggja þingmanna Fram-
sóknar sem ákveðnir framsóknar-
menn hafa sett spurningarmerki
við hvað það varðar að rekast í
flokki og lúta flokksaga, sem sé
frumskilyrði í ríkisstjórn sem
byggir líf sitt á eins manns meiri-
hluta. Bjarni var sjálfur mjög efins
um að rétt væri að halda stjórnar-
samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn
áfram með þennan nauma meiri-
hluta.
Framsóknarmenn staðhæfa þó
að þrátt fyrir nokkuð reglubundnar
yfirlýsingar Bjarna í spjallþáttum,
Silfri Egils og víðar, á undanförn-
um vikum, um að Framsókn ætti að
horfa til vinstri og huga að þátttöku
í félagshyggjustjórn, hafi Bjarni
verið búinn að gefa þannig yfirlýs-
ingar um hollustu við flokksforystu
Framsóknar ef niðurstaðan yrði
áframhaldandi samstarf við Sjálf-
stæðisflokk, að orðum hans hafi í
hvívetna verið treyst.
Efasemdir um Siv
Siv Friðleifsdóttir, 10. þingmaður
Framsóknar í Suðvesturkjördæmi,
sem var ýmist inni eða úti alla kosn-
inganóttina, er annar þingmaður
sem ákveðnir framsóknarmenn
hafa efasemdir um. Hún var að vísu
mjög eindreginn talsmaður þess að
fráfarandi ríkisstjórn héldi áfram
samstarfinu og gerði því allan tím-
ann skóna að hún héldi þannig
áfram í ráðherraembætti. Margir
» Jón SigurðssonFullvíst er talið að
Jón segi af sér for-
mennsku í Framsókn-
arflokknum á mið-
stjórnarfundi í júní.
» Guðni ÁgústssonHann er talinn hafa
styrkt stöðu sína fyrir
formannsslag í Fram-
sókn og stendur lík-
lega best að vígi.
» Siv FriðleifsdStaða hennar f
formannsslag er e
veginn jafnsterk o
hún var. Ætlar sa
berjast.
Allt í fári í F
Mikil reiði ríkir í Framsóknarflokknum í garð
samstarfsflokksins til 12 ára, Sjálfstæðisflokks-
ins, og talað er um trúnaðarbrest. Við blasa inn-
anflokksátök í Framsókn þar sem líklegt er að
þau Guðni Ágústsson og Siv Friðleifsdóttir
muni berjast um völdin.
Faðmlagið Hér faðmast þ
arflokksins. Ólíkleg verðu
Guðni Ágústsson tekur tímabundið við form
Búist við miklum átökum um formennskun