Morgunblaðið - 19.05.2007, Síða 30
30 LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
FYRIR skömmu var kynnt ný
skýrsla um stöðu og framtíð-
armöguleika líf-
tækniiðnaðar á Ís-
landii. Þrátt fyrir ólík
efnistök eru nið-
urstöður skýrslunnar í
öllum meginatriðum
samhljóma nið-
urstöðum sem fram
koma í þremur
skýrslum sem unnar
hafa verið fyrir iðn-
aðarráðuneytið af sér-
fræðingum Háskólans
á Akureyri.[ii][iii][iv]
Almennt eru menn
sammála um að líf-
tæknin feli í sér mikla möguleika til
lengri tíma litið þrátt fyrir ýmsa
erfiðleika og skakkaföll sem líf-
tækniiðnaðurinn hefur mátt þola. Á
Íslandi eru möguleikarnir m.a.
fólgnir í beitingu líftækni til að
vinna ný verðmæti úr náttúrulegum
auðlindum landsins og einnig að
nýta lífupplýsingar til að auka
skilning okkar á samhengi hluta í
náttúrulegum kerfum frá minnstu
frumu til stórra vistkerfa. Þá eru
menn sammála um að til að leysa
þessa möguleika úr læðingi þarf að
móta stefnu og finna leiðir og úr-
ræði til að ná settu
marki.
Í góðri samvinnu við
iðnaðarráðuneyti,
menntamálaráðuneyti
og sjávarútvegsráðu-
neyti hefur Háskólinn
á Akureyri tekið hér
ákveðið og afgerandi
frumkvæði og hefur á
síðastliðnum þremur
árum byggt upp öfluga
rannsóknastarfsemi á
sviði líftækni sem hef-
ur verið fjármögnuð
með styrkjum úr Líf-
tæknineti iðnaðarráðuneytis og
rannsóknasjóðum RANNÍS, há-
skólasjóði KEA og erlendum
styrkjum bæði á vegum samstarfs
Norðurlanda og Evrópusambands-
ins. Þetta hefur leitt til aukins sam-
starfs milli vísindamanna og fyr-
irtækja, bæði innanlands sem og
erlendis. Þá er Háskólinn á Ak-
ureyri einn háskólinn á Íslandi sem
byggt hefur upp líftækninám, bæði
á bakkalár- og meistarastigi, sem er
sérstakt að því leyti að þar er flétt-
að saman raunvísindum og við-
skipta- og rekstrargreinum. Al-
mennt er það viðurkennt að ein
ástæða þess að líftækniiðnaður hef-
ur ekki náð að festa sig í sessi er sú
að frumkvöðlar á þessu sviði hafa
ekki haft næga viðskiptaþekkingu
til að meta markaðsgildi hugmynda
sinna. Verkefni þau sem Háskólinn
á Akureyri vinnur að á sviði líftækni
eru öll unnin með starfandi fyr-
irtækjum í greininni og hafa leitt til
stofnunar tveggja nýrra fyrirtækja.
Vert er að benda á að flest þessara
samstarfsfyrirtækja í líftækni eru
starfandi utan höfuðborgarsvæð-
isins.
Sú fjárveiting sem sett var í Líf-
tækninetið rennur út um næstu ára-
mót og er fyrirsjáanlegt að sú kröft-
uga starfsemi sem farin er af stað
líði mjög fyrir það ef ekkert komi í
staðinn. Það er því tillaga mín að
myndaður verði nýr sjóður, líf-
tæknisjóður, sem hefði það hlutverk
að styrkja rannsóknir fyrirtækja og
háskóla á sviði líftækni og reka önd-
vegissetur í auðlindalíftækni í nán-
um tengslum við Háskólann á Ak-
ureyri.
Hugmyndir um slíkt öndveg-
issetur voru settar fram árið 2003
en náðu þá ekki fram að ganga.
Hlutverk setursins yrði að skipu-
leggja, samhæfa, fjármagna og
stjórna rannsóknaverkefnum á
starfssviði sínu en einnig að taka
þátt í kennslu og miðlun upplýsinga
til fræðimanna, fyrirtækja og yf-
irvalda. Markmiðið yrði einnig að
vera uppspretta nýrra fyrirtækja
og nýsköpunar í atvinnulífinu, koma
á tengslum milli ólíkra verkefna,
sjónarmiða og atvinnugreina og
taka virkan þátt í fyrirtækjaneti
sprotafyrirtækja. Jafnframt yrði
markmiðið að vera leiðandi á heims-
mælikvarða á sínu sviði því það
myndi laða að sér utanaðkomandi
fjármagn frá rannsóknasjóðum,
fjárfestingasjóðum og fyrirtækjum,
auk þess að hafa samstarf við önd-
vegissetur annarra háskóla og
þjóða. Við öndvegissetrið starfi ráð-
gjafanefnd úr líftækniiðnaðinum,
sem hefði breiðan og traustan bak-
grunn og mikla faglega yfirsýn og
yrði stefnumarkandi varðandi verk-
svið og helstu áherslur.
Öndvegissetrið hefði eftirfarandi
að leiðarljósi sem stefnumarkandi
verksvið:
Lífefnaleit („Bioprospecting“) og
náttúruefni („natural products“)
Orkulíftækni
Fiskeldislíftækni
Lífupplýsingatækni („Bioinform-
atics“) og lífsýnabanki
Sprotafyrirtæki
Stjórnun, fræðsla og þróun hæfni
Gert er ráð fyrir að með þessu átaki
geti skapast 15 til 20 fjölbreytt há-
tæknistörf og gera má ráð fyrir
a.m.k. 20–40 öðrum störfum til
lengri tíma litið. Benda má á að inn-
an opinberra stofnana í dag er eng-
in stofnun með verksvið sem heitir
líftækni, þó svo að mörg áhugaverð
verkefni innan þessara stofnana séu
á sviði líftækni.
i Assessment of the Icelandic Biotech Sys-
tem, Steven C. Dillingham og Rune G.
Nilssen, 2007.
ii Möguleikar í sjávarlíftækni á Íslandi, Jó-
hann Örlygsson, 2002.
iii Öndvegissetur í sjávarlíftækni, Hjörleif-
ur Einarsson, 2003.
iv Líftækninet í auðlindanýtingu, Hólmar
Sveinsson, Hjörleifur Einarsson og Jó-
hann Örlygsson, 2004.
Uppbygging líftækni-
rannsókna – næstu skref
Þorsteinn Gunnarsson vill reka
öndvegissetur í auðlinda-
líftækni í nánum tengslum við
Háskólann á Akureyri
» Það er því tillaga mínað myndaður verði
líftæknisjóður sem hefði
það hlutverk að styrkja
rannsóknir fyrirtækja
og háskóla á sviði líf-
tækni.
Þorsteinn Gunnarsson
Höfundur er rektor
Háskólans á Akureyri.
EKKERT lát virðist á óhæfu-
verkum útlendinga á Íslandi.
Skemmst er að minnast þess þeg-
ar hingað til lands stefndi mikill
innrásarher grár fyrir nikkum og
hugðist taka upp á þeirri ósvinnu
að efna til hljóðfæraleiks á götum
úti. Ekki hafði árvökul löggæsla
fyrr bægt þeirri viðurstyggð frá
landi eins og kerúb með sveip-
anda sverði en að okkur steðja
nýjar ógnir: Pólverjar sem ætla
sér hvorki meira né minna en að
selja Ísfirðingum teikningar af
litlum kettlingum sem leika sér
með hnykla.
Það hlýtur að teljast mikill
léttir fyrir þjóðina að tekist hafi
að binda enda á þá þokkaiðju áð-
ur en drengurinn með tárið og
skipstjórinn með pípuna hrökkl-
uðust upp á háaloft eða annar og
jafnvel enn meiri skaði hlytist af.
Því eins og við vitum eiga útlend-
ingar það eitt erindi hingað til
lands að kúldrast í undirgöngum
á Kárahnjúkum þar sem mengun
er yfir hættumörkum, standa
daginn langan og tína orma úr
þorski á lægstu töxtum, híma í
húsgrunnum við naglhreinsun í
öllum veðrum og þrífa hús og
annast önnur heimilisstörf fyrir
okkur – því þetta fólk er svo þrif-
ið. Hafi hins vegar útlendingarnir
látið sér til hugar koma að þeim
standi til boða að stunda hér
kaupskap, fremja hér list eða
annað apaspil án sérlegrar vott-
unar Listahátíðar, jafnvel selja
kisumyndir án réttrar milli-
göngu, þá er brýnt að koma þeim
snarlega í skilning um að slíkt
framferði verður ekki liðið. Það
er með öllu ólíðandi að hingað
geti hver sem er komið og spilað
músík eða selt teikningar án þess
að Listahátíð, Listfræðinga-
félagið eða aðrar viðurkenndar
stofnanir hafi þar nokkuð að
segja svo að við fáum engar leið-
beiningar um það hvernig okkur
á að finnast þetta.
Guðmundur Andri Thorsson
Nikkuherinn
Höfundur er rithöfundur.
UNDANFARIÐ hafa íslenzk
fyrirtæki gert upp í evrum. Hvers
vegna? Íslenzka krónan er úrelt
fyrirbæri en erfitt að losna frá
henni. Sem betur fer ákvað fyrrv.
forsætisráðherra, Davíð Oddsson,
að taka ekki upp evru á Íslandi,
því að með því hefði þjóðin farið
inn í mjög erfitt ferli. Milliríkja-
samningar Evrópusambandsins
hefðu valdið Íslendingum meiri
vanda en ánægju. Fiskimið hefðu
verið í uppnámi og verðlag vænt-
anlega orðið það sömuleiðis.
Suður-Evrópuþjóðir hafa verið
mjög óhressar með vaxandi verð-
lag, t.a.m. Grikkir og Portúgalar.
Skv. Time Magazine, nýlega, hef-
ur ekkert gengið með risaþotu
Airbus, A-380, vegna ósam-
komulags innan aðildarþjóða.
Þannig hefur Aibus misst stóra
samninga til Boeing því að þar er
skipulagið einfaldlega betra.
Er þetta Evrópuskipulag það,
sem Samfylkingin ætlar að bjóða
Íslendingum. Ég bara spyr. Aðrir
vita betur.
Páll B. Helgason
Evran og íslenzka
krónan
Höfundur er fv. yfirlæknir.
Flestir geta verið sammála um
að íslenskt heilbrigðiskerfi sé
mjög gott og búi yfir mikilli þekk-
ingu og bjóði upp á þjónustu á
heimsmælikvarða. Það er í raun
stolt íslensks velferðarkerfis en ís-
lenskt heilbrigðiskerfi er þó bæði
ótrúlega miðstýrt og
mjög dýrt. Þrátt fyrir
hundruð verktaka-
samninga Trygg-
ingastofnunar ríkisins
við lækna hafa rík-
isstofnanir í heil-
brigðiskerfinu ekki
verið einkavæddar.
Nú stendur yfir
undirbúningur að
byggingu nýs risa-
stórs sjúkrahúss við
Hringbraut. Við skoð-
un á vinningstillögu
að hinum nýja spítala
dettur manni helst í hug að álver
eigi að rísa í suðurhlíðum Þing-
holtsins. Áformin ættu að valda
áhugamönnum um byggð í stíl við
101 Reykjavík í Vatnsmýrinni
áhyggjum.
Með nýjum spítala, sem kosta
mun milljarða króna, er ekki verið
að auka markaðsvæðingu í heil-
brigðisþjónustu heldur þveröfugt.
Áður en bygging spítalans hefst
ætti að koma spítala hér á landi í
sjálfstæðan einkarekstur, með það
fyrir augum að auka hagkvæmni,
framleiðni og samkeppni innan
heilbrigðiskerfisins. Í raun ætti að
fresta byggingu hins nýja spítala
og endurskipuleggja rekstur heil-
brigðiskerfisins til að skapa svig-
rúm fyrir einkarekinn spítala við
hlið ríkisspítalanna. Rekstr-
arformin á sjúkrahúsum á Íslandi
yrðu þannig tvö, ríkisrekstur og
einkarekstur, í stað eins rekstr-
arforms. Hægt er að gera þetta
með einni afmarkaðri aðgerð, sem
er að ríkið selji Landspítalann í
Fossvogi (Borgarspítalann) og
rekstur hans til einkaaðila. Hér er
ekki verið að tala um að einka-
væða hluta almannatryggingakerf-
isins. Fullkomin sátt er um að
sjúkrahúskostnað landsmanna
skuli greiða úr sameiginlegum
sjóðum og ekki hafa heyrst raddir
um að breyta því. Þegar minnst er
á einkarekstur í heilbrigðiskerfinu
koma upp ásakanir um það sem
ógn við velferðarkerfið sem feli í
sér að þeir efnaminni greiði fyrir
sjúkrahúsvist sína úr eigin vasa.
Einkarekstur í heilbrigðisþjónustu
(seljandi þjónustu) og einkavæðing
sjúkratrygginga (kaupandi þjón-
ustu) eru tvö aðskilin atriði sem
ætti að ræða sem slík. Nánast
engin umræða er um kosti einka-
rekstrar í heilbrigðiskerfinu og er
það miður.
Með sölu Borg-
arspítalans til einka-
aðila væri verið að
einkavæða rekstur
stórs spítala á Íslandi
sem myndi án nokk-
urs vafa hafa geysi-
mikil áhrif á íslenskt
heilbrigðiskerfi sem
atvinnugrein. Ríkið
myndi tryggja lág-
marks rekstr-
argrundvöll spítalans
með kaupum á þjón-
ustu með samningum,
jafnframt því að
tryggja samkeppni og jafnvægi við
hin ríkisreknu sjúkrahús. Í þjón-
ustusamningum ríkisins við spít-
alann væri tryggð jafngóð þjón-
usta við alla sjúklinga sem ríkið
greiddi þjónustu fyrir. Kjarninn í
starfsemi Borgarspítalans hf. væri
sala á þjónustu til ríkisins, sem
gæti keypt meiri þjónustu ef þörf
væri á, að öðru leyti aflaði hinn
einkarekni spítali sér verkefna er-
lendis. Sveigjanleiki og frumkvæði
einkareksturs fengi að njóta sín
við öflun nýrra verkefna. Hér skal
ítrekað að einungis er verið að tala
um einkarekstur á sjúkrahúsi,
ekki einkavæðingu sjúkratrygg-
ingakerfisins líkt og er í Banda-
ríkjunum, en oft er trygg-
ingakerfið þar notuð sem grýla í
umræðum um einkarekstur í heil-
brigðiskerfinu hér á landi.
Allir hafa orðið vitni að þeim
ótrúlega krafti sem leystur var úr
læðingi með einkavæðingu bank-
anna og þau tækifæri sem einka-
væðing opnaði íslensku bönkunum
á alþjóðamörkuðum. Einkarekstur
nýrra háskóla í landinu hefur einn-
ig fært ótrúlega grósku í háskóla
landsins en rekstur þeirra er að
hluta greiddur úr ríkissjóði. Óþarfi
er að minnast á einkareknar út-
varpsstöðvar í samkeppni við Rík-
isútvarpið, jafn sjálfsagðar og þær
eru í dag. Svo var hins vegar ekki
þegar Stöð 2 og Bylgjan hófu
starfsemi. Íslendingar hafa sannað
að þeir geta nýtt sér kosti al-
þjóðavæðingarinnar og EES með
góðum árangri. Dæmi um það eru
á fjármálamarkaði og vinnumark-
aði. Einkarekstur í heilbrigðiskerf-
inu með sölu Borgarspítalans til
einkaaðila er rökrétt framhald af
einkavæðingu bankanna og einka-
rekstri háskóla í landinu. Nú til
dags leitar fólk sér í auknum mæli
heilbrigðisþjónustu utan heima-
lands síns og er þá ekki bundið
slíkri þjónustu í eigin landi.
Reyndar er ekki nýtt að fólk leiti
sér lækninga eða hressingar til af-
skekktra landa þar sem umhverfi
er heilnæmt og má nefna Sviss hér
sem dæmi. Með því að færa stofn-
un líkt og Borgarspítalann í hend-
ur einkaaðila opnast gríðarleg
tækifæri til sölu á íslenskri heil-
brigðisþjónustu erlendis. Hér væri
einnig um raunveruleg tækifæri að
ræða fyrir fjárfesta. Einkarekin
heilbrigðisþjónusta á Íslandi sem
seldi hluta af þjónustu sinni til er-
lendra aðila gæti orðið á við nokk-
ur álver. Til þess að svo verði þarf
ekki að ná í nema örlítið brot af
þeirri eftirspurn sem er eftir heil-
brigðisþjónustu í nágrannalöndum
okkar. Á sama tíma værum við að
virkja enn frekar þann mikla
mannauð sem býr í íslensku heil-
brigðiskerfi. Með sölu á íslenskri
heilbrigðisþjónustu erlendis er
einnig verið að skapa og selja
ímynd af Íslandi sem er okkur vel
þóknanleg og félli vel að öðrum
verðugum verkefnum og mark-
miðum.
Borgarspítalinn hf.
Eyjólfur Ármannsson skrifar
um rekstur og byggingar
sjúkrastofnana í Reykjavík
»Einkarekstur í heil-brigðiskerfinu með
sölu Borgarspítalans til
einkaaðila er rökrétt
framhald af einkavæð-
ingu bankanna og einka-
rekstri háskóla.
Eyjólfur Ármannsson
Höfundur er lögfræðingur.
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn