Morgunblaðið - 19.05.2007, Síða 35

Morgunblaðið - 19.05.2007, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2007 35 brauðið af miklu listfengi. Bæði voru hávaxin, ljóshærð og björt yfirlitum en freknurnar, er sumarsólin kallaði jafnan fram, höfðu dofnað. Helga var málreifari og hláturmildari, kannski var hann ögn feimnari á öðrum bæ, bæði sungu þau fallega og það var gaman í Fjallsbaðstofu þetta kvöld. Pabbi fylgdi þeim á leið niður yfir Framanvötnin hjá Kringlu, þar sem farið var yfir á stiklum og niður á Fjallshóla, þá sáu þau ljósið í stofuglugganum heima hjá sér. Stjáni kom snemma að öllum verkum með föður sínum, kappsam- ur og óvílinn. Laxá rennur við túnfótinn og verður öllum hjartfólgin sem hana umgangast enda lærði hann fljótt að fara með bát, róa og ferja yfir, fara með stöng og net. Þar voru Hólma- vaðsmenn öðrum slyngari svo lands- frægt var og kunnu líka að gera að aflanum. Kristján fór til Akureyrar að nema bifvélavirkjun. Það nám reyndist honum haldgott þegar hann tók við búskap á Hólmavaði og nágrannar og sveitungar nutu góðs af þeirri kunnáttu og ekki held ég að allar þær vinnustundir hafi verið reiknaðar til fjár fremur en annar greiði sem Hólmavaðsfólk gerði öðr- um. Ég man eftir gleði foreldra minna yfir þeim fréttum að Stjáni tæki við búsforráðum á Hólmavaði enda reyndist hann ötull og traustur bóndi. Konuefnið fann hann í daln- um, Helgu Baldursdóttur. Þau eign- uðust fjögur börn, góð og mannvæn- leg. Og tíminn leið. Nú er allt í einu komin kveðjustund. Góðvinur, frændi og granni er kvaddur, gegn- heill og góðviljaður atorkumaður sem ekki mátti vamm sitt vita og skilaði dagsverki sínu með fullri sæmd. Ég á ekki aðra ósk betri til afkom- enda hans en að þeir mannkostir erfist um ókomna tíð. Við systkinin frá Ytra-Fjalli sem og okkar fólk þökkum fyrir okkur og sendum Helgu, börnum þeirra og systkinum Kristjáns innilegar samúðarkveðjur. Straumur þíns lífs er liðin út að sævi lengur ei entist það en heilsa og fjör. Þakka þér vinur, langa, iðna ævi ámælislausa gegnum misjöfn kjör. Svo skal þér fylgt að sæmdarmanni hæfi syngjandi Laxá verður með í för. Vaggi þér svefnljúft inn í æskudrauma ódáinskliður nýrra og fornra strauma. (I.Þ.) Ása Ketilsdóttir frá Fjalli. Kristján Benediktsson frá Hólma- vaði í Aðaldal, mikill sómamaður, hefur nú kvatt. Kristján setti mikinn svip á mannlíf í sveit sinni, sem hann þekkti manna best og unni. Hann var mikill aufúsugestur og eftirlæti hjá okkur veiðimönnum á bökkum veiðiperlunnar Laxár í Þingeyjar- sýslu og var sjálfur með slyngari stangaveiðimönnum. Hann lærði listina af föður sínum sem einnig þótti afburðamaður með stöngina; fór fimlega með gömlu bambus- stangirnar sem frægar voru á fyrri hluta síðustu aldar og var fiskinn. Það var hápunkturinn hjá veiði- mönnum þegar Kristján kom á bakkann til þeirra. Var þá gjarnan sett undir fallega hnýtt Night Hawk-fluga og Kristján tók eitt eða tvö köst í átt að hólmanum á stífl- unni. Fallegasta minning mín um Kristján er frá sjötta áratugnum þegar við Ingvi Hrafn sáum hann leiðbeina Jóni Sigtryggssyni pró- fessor glíma við 19 punda hæng á Suðureyrinni. Það var góð kennslu- fræðilexía! Spjallið við Kristján gerði veiðiferðina að ógleymanlegu ævintýri. Hann var náttúruunnandi af guðs náð, miðlaði af þekkingu sinni, ræddi um lífríki árinnar af innlifun og einurð og þeirri þekk- ingu sem áratuga reynsla skapar. Ætt Kristjáns kom að Hólmavaði á 19. öld og þar var farið að tað- reykja lax. Kristján hafði lært vel til verka og var svo sannarlega í essinu sínu í reykhúsinu. Það leið ekki á löngu þar til gæði reykta laxins frá Hólmavaði urðu víðfræg. Kristján kunni líka manna best að verka há- karl og gjarnan var þeginn hjá hon- um gómsætur biti af vænni beitu sem ævinlega hékk í búri eða skemmu á Hólmavaði. Hróður Hólmavaðs nær langt út fyrir land- steinana. Fyrir nokkrum árum, á ráðstefnu í Wales, kom þar til mín eldri maður og sýndi mér úr minn- ingakorni föður síns þar sem hann skrifar um veiðiferð í Laxá árið 1929. Þar var farið fallegum orðum um Benedikt föður Kristjáns sem tók við jörðinni af föður sínum árið 1920. Kristján sat lengi í stjórn veiði- félags Laxár og tók virkan þátt í að móta þær reglur og hefðir sem ein- kenna veiðiskap í Laxá í Aðaldal. Hann var ætíð í forystu um ræktun og velferð árinnar. Kristján var samferðamaður Laxárfélagsins í meira en sextíu ár og lagði mikið af mörkum við að treysta vináttubönd við Laxárfélaga sem nú kveðja þennan mikla öðling. Samskipti við Kristján voru ætíð heiðarleg og ánægjuleg og á heimili hans vorum við allir ætíð velkomnir. Í eldhúsinu á gamla Hólmavaði, hjá Helgu eig- inkonu Kristjáns, voru gjarnan borðaðar bestu kleinur landsins og málin rædd í þaula og menn skemmtu sér vel; stundum var stjarna í staupi. Nú er komið að kveðjustund. Horft er til liðinna ára með hlýhug. Benedikt og Elín eru tekin við jörð- inni, stjórna nú Hólmavaði af sama myndarskap sem svo lengi hefur einkennt staðinn. Laxárfélagar sakna vinar í stað og þakka Krist- jáni langt og farsælt samstarf sem aldrei bar skugga á. Helgu og ást- vinum hans öllum sendum við sam- úðarkveðju. Orri Vigfússon. Kristján Benediktsson, bóndi á Hólmavaði í Aðaldal, vinur minn og frændi, er látinn eftir langa og stranga sjúkdómslegu. Segja má að andlát hans hafi ekki komið á óvart eins og komið var, en nú saknar maður vinar og minningar frá liðinni samferð hrannast upp. Hann var af traustu þingeysku bergi brotinn í ættir fram og góður fulltrúi forfeðra sinna og formæðra. Hann ól allan sinn aldur á Hólma- vaði og á unga aldri tók hann við föðurleifð sinni, en ásamt konu sinni Helgu Baldursdóttur frá Fagrane- skoti bætti hann jörðina og byggði svo best sem mátti vera. Hann var vinmargur enda dreng- skaparmaður, hjálpsamur og greið- vikinn í besta lagi, hagur í höndum, ákafur og afkastamaður til verka eins og best gerist. Hólmavað stendur á bökkum Lax- ár og var hún einn stærsti kapítuli í lífi Kristjáns. Hann var snjall veiði- maður og óþreytandi að leiðbeina veiðimönnum við ána og veita þeim hvers konar fyrirgreiðslu. Á bökk- um Laxár tókst ævilöng vinátta með honum og mörgum veiðimönnum hvaðanæva af landinu. Hann elskaði ána sína, enda lá hann ekki á liði sínu í sambandi við fiskirækt og bætta aðstöðu við hana. Kristján var samstarfsmaður minn í stjórn Veiði- félags Laxár um 20 ára skeið og þá jafnan heilshugar og ósérhlífinn í því samstarfi sem ég kann honum bestu þakkir fyrir. Margt áttum við saman að sælda auk þessa, þó eink- um þegar við ásamt öðrum voru að byggja upp Norðurlax hf. en í því var hann góður liðsmaður sem ann- ars staðar. Glaðsinna var hann og jafnan hrókur alls fagnaðar þar sem fólk kom saman og vó það þungt hversu músíkalskur og söngvinn hann var, einnig dansmaður með afbrigðum og naut þess oft vel. Aðalsmerki hans voru drengskapur, hreinskilni og trygglyndi. Nú hefur hann lagt upp í sína hinstu för, en ég óttast ekkert um hann því svo vel þekkti ég lífsskoðanir hans að hann hafði landsýn yfir hið bráða haf sem að- skilur lifendur og látna. Nú að leiðarlokum þakka ég Kristjáni kærar stundir og kynni góð. Við á Laxamýri sendum öllum hans aðstandendum hugheilar sam- úðarkveðjur. Vigfús B. Jónsson. Elsku afi Stjáni. Þær eru margar minningarnar sem eftir sitja. Við systkinin nutum þeirra for- réttinda að búa svona stutt frá ykk- ur ömmu og stundirnar sem við átt- um saman voru því margar. Þú sagðir mér oft frá því þegar ég, „ponta litla“ eða „Íra píra“ eins og þú kallaðir mig svo oft, var tveggja ára og labbaði til þín upp í reykhús og fékk hákarl hjá þér. Þér þótti það góð minning og þó svo að ég muni ekki eftir því þá er frásögn þín orðin góð minning hjá mér. Það var gott að eiga þig að, þó svo að stundum hafi ég komið heim með tár í augum eftir smalamennsku. Hjartað var ekki alltaf stórt þegar þú nýttir raddstyrk þinn til fulls til að segja okkur til í smöluninni. En það risti ekki djúpt og innan skamms var ég komin í kjöltu þér í gott spjall. Takk fyrir yndislegar stundir í gegnum árin og ég veit að nú getur þú fylgst með okkur sem þér þykir vænst um frá stað þar sem þér líður vel. Ég hef hér í lokin vísuna um smaladrenginn sem þú söngst svo oft með mér og ég syng mikið fyrir dætur mínar. Út um græna grundu gakktu, hjörðin mín. Yndi vorsins undu. Eg skal gæta þín. Sól og vor ég syng um, snerti gleðistreng. Leikið, lömb, í kringum lítinn smaladreng. Steingrímur Thorsteinsson Elsku amma mín, guð styrki þig á erfiðri stund. Þín, Íris Helga. Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, THEODOR JOHANNESEN, lést á Hrafnistu í Reykjavík mánudaginn 7. maí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki Hrafnistu fyrir góða umönnun. Kolbrún Theodórsdóttir, Birgir Valdimarsson, Sóley Theodórsdóttir, Helgi Guðmundsson, Dögg Theodórsdóttir, Valur Kristinsson, Úlfar Theodorsson, Ágústína Eiríksdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, ÓLAFUR AUÐUNSSON frá Ysta-Skála, til heimilis að Stuðlaseli 15, lést á Landspítalanum í Fossvogi fimmtudaginn 17. maí. Áslaug Ólafsdóttir, Guðrún Ólafsdóttir, Auður Ólafsdóttir, Guðmundur Tryggvi Sigurðsson, Ólafur Haukur Ólafsson, Sigrún Konráðsdóttir, Þorri Ólafsson, Guðný Gísladóttir og barnabörn. ✝ Ástkær faðir okkar, sonur, tengdafaðir og afi, RÓBERT KÁRASON, Frostafold 6, Reykjavík, áður til heimilis í Ásgarði á Svalbarðsströnd, lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut þriðjudaginn 15. maí. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn 24. maí kl. 13:00. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Hjartavernd. Hlíf Harpa Róbertsdóttir, Arna Vala Róbertsdóttir, Elías Már Hallgrímsson, Páll Róbertsson, Auður Sólmundsdóttir, Heiðdís Ellen Róbertsdóttir, Arnfríður Róbertsdóttir og barnabörn. ✝ Elskulegur sambýlismaður minn, faðir, tengdafaðir, bróðir, afi og langafi, ODDGEIR HALLDÓRSSON, Ferjubakka, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut föstudaginn 11. maí. Jarðarför fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 22. maí kl. 13.00. Sigurbjörg Guðvarðardóttir, Hörður Oddgeirsson, Kristín Hafsteinsdóttir, Hanna Halldórsdóttir, Rúna Halldórsdóttir, Oddur Halldórsson, Guðrún Halldórsdóttir og afabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐNI A. ÓLAFSSON, Núpalind 2, Kópavogi, andaðist á Landspítala háskólasjúkrahúsi Fossvogi miðvikudaginn 16. maí. Útförin verður auglýst síðar. Valgerður Á. Blandon, Ingibjörg Unnur Guðnadóttir, Ragnar Sigurðsson, Valgerður Selma Guðnadóttir, Guðbjörn Björgólfsson, Þorbjörg Guðnadóttir, Helgi S. Reimarsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur sambýlismaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BRYNLEIFUR JÓHANNESSON, bílamálarameistari, Stekkjargötu 81, Njarðvík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þriðjudaginn 15. maí. Jarðarförin verður auglýst síðar. Lilja Markúsdóttir, Jón Axel Brynleifsson, Ingunn Sigurðardóttir, Brynja Brynleifsdóttir Mallios, Phillip Mallios, Jóhann Brynleifsson, Sigríður Garðarsdóttir, Karl Brynleifsson, Jónína Skaftadóttir, Tobías Brynleifsson, Margrét Jónsdóttir, Jósep Brynleifsson, Melanie Brynleifsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.