Morgunblaðið - 19.05.2007, Side 37

Morgunblaðið - 19.05.2007, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2007 37 hjón er vart hægt að hugsa sér. Ég sé þau fyrir mér, komin í heimsókn til Reykjavíkur, hann við stýrið, hún hliðarsætisbílstjóri sem vísaði rétta leið. Orkan í þeim báðum. Margar heimsóknir á dag, að sjálfsögðu öll börnin heimsótt, barnabörnin og barnabarnabörnin, nánir ættingjar, fjarskyldir ættingjar og aðrir vinir. Mikill er missir hans tengdapabba. Við vorum svolítið heppin, við hjónin og okkar börn. Við bjuggum erlendis í mörg ár og þar var ekki mikið um aðra ættingja svo við feng- um að njóta þess vel að hafa þau í heimsókn. Þau þurftu ekki, eða rétt- ara sagt gátu ekki verið að æða strax af stað. Fyrir vikið áttum við nánar samverustundir með þeim og þessar samverustundir voru og eru ómetanlegar. Mikið ósköp hafa börnin mín notið þess að eiga Öddu sem ömmu. Áhuginn sem hún hefur sýnt þeim og því sem þau gera, og hvað hún hefur náð að fylgjast með. Amma alltaf svo hlý og góð. Það eru ófá pörin af vettlingum og leistum sem krakkarnir hafa fengið hjá ömmu. Hlýjustu vettlingarnir eru þeir sem amma prjónar. Þannig er það bara. Söknuður þeirra er mikill. Ósköp vorum við glöð að hún gat verið viðstödd ferminguna hans Úlf- ars Þórs í síðastliðnum mánuði. Við áttum ekki von á að hún gæti verið við athöfnina, kannski smástund í veislunni. En viti menn, viljinn var svo mikill; hún mætti í athöfnina og var líka í veislunni, heillengi. Það var alveg yndislegt og hún var sjálf svo ánægð að ná að vera með. Ég kveð tengdamóður mína með virðingu, söknuð og þakklæti í hjarta. Hún gaf mér og minni fjöl- skyldu svo ótal margt. Megi góður guð styrkja tengdapabba. Minning um mæta konu lifir í hjörtum okkar. Álfheiður Árdal. Adda mín, þá er komið að kveðju- stund. Það er margs að minnast þegar litið er til baka þau 34 ár sem leiðir okkar hafa legið saman. Efst í huga á þessari stundu er mér þakk- læti fyrir allt sem þið heiðurshjónin hafið verið mér og mínum. Þegar ég sem strákgemlingur hóf að venja komur mínar að Barkarstöðum var mér vel tekið og mér leið vel hjá ykkur. Það var oft mannmargt „heima“ enda hópurinn ykkar stór. Eftir átök vinnudagsins mættu síð- an allir á garðann þar sem alltaf var vel veitt. Við strákarnir gerðum okkar pantanir um pönnsur og kleinur sem gjarnan var orðið við. Hvert bakarí hefði verið stolt af því magni sem ofan í okkur rann. Fjölskyldan var þér allt, við börn- in og barnabörnin fengum að finna fyrir því. Umhyggja þín og Ragnars fyrir velferð okkar og barnanna verður seint fullþökkuð. Áhrif ykkar á börnin okkar eru þeim gott vega- nesti fyrir lífið. Enda bera þau ótak- markaða virðingu og hlýhug til allra stundanna með ykkur og hafa eng- um tækifærum viljað sleppa til að taka þátt í þeim stundum sem fjöl- skyldan hefur átt saman. Nú kemur þú ekki oftar til okkar í Fífuhjallann eða tekur á móti okkur fyrir norðan. Þessar stundir verða aldrei samar. En minning þín lifir með okkur og við yljum okkur við hana. Við munum einnig öll samein- ast í því að hugsa vel um kallinn þinn en aðdáunarvert hefur verið að fylgjast með þeirri virðingu og trygglyndi sem einkennt hefur hjónaband ykkar. Ragnar minn, missir þinn er mik- ill. En þú ert einnig ríkur maður, ríkur af góðum minningum og góð- um hópi barna og barnabarna sem bera fyrir þér ótakmarkaða virðingu og umvefja þig. Hvíl í friði, Adda mín, og takk fyr- ir allt. Þinn tengdasonur Jón. Ég vil minnast fyrrverandi tengdamóður minnar, Arndísar Pálsdóttur, eða Öddu eins og hún var alltaf kölluð. Fyrstu kynni mín af henni og Ragnari eftirlifandi eig- inmanni hennar voru haustið 1972, þegar ég kom í fyrsta sinn á heimili þeirra hjóna og naut gestrisni þeirra. Þá tók hún fagnandi á móti mér opnum örmum og bauð mig vel- komna. Það var eins og við hefðum alltaf þekkst. Strax tókst með okkur góður vinskapur sem varði alla tíð. Margt var rætt og spjallað og Adda miðlaði til mín af þekkingu sinni og reynslu. Hún sýndi öllu áhuga sem við fjölskyldan tókum okkur fyrir hendur og fylgdist vel með öllum, hvort sem það var í leik eða starfi. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Grátnir til grafar göngum vér nú héðan, fylgjum þér, vinur. Far vel á braut. Guð oss það gefi, glaðir vér megum þér síðar fylgja’ í friðarskaut. (Vald. Briem.) Nú er komið að leiðarlokum og vil ég þakka elsku Öddu minni fyrir all- an þann kærleik, vináttu og hlýhug sem hún sýndi mér og fjölskyldu minni alla tíð. Elsku Ragnar minn, ég votta þér og öðrum aðstandend- um mína innilegustu samúð. Guðmunda Björk Óskarsdóttir (Mummý). Það fyrsta sem kemur upp í huga mér við andlát Arndísar Pálsdóttur á Barkarstöðum í Miðfirði er stórt og mikið þakklæti fyrir yndisleg og ógleymanleg sumur sem ég átti hjá þeim hjónum Ragnari og Öddu, eins og hún var alltaf kölluð, og börn- unum þeirra. Einnig bjuggu á Bark- arstöðum þá foreldrar Ragnars, þau Benedikt og Jenny, yndisleg hjón, blessuð sé minning þeirra, ásamt barnabarni þeirra Benny sætu, frá Hafnarfirði. Þó að árin séu orðin nokkur síðan þetta var, þá eru þau í minningunni eins og nýafstaðin. Adda var mér mjög góð í alla staði. Hún var mér eins og besta móðir. Adda var einstaklega hress og glað- lynd kona, sem sagði skemmtilega frá og hafði smitandi hlátur. Adda var mjög minnug á alla skapaða hluti, og hafði svo hlýja og skemmti- lega nærveru. Hún var ákveðin og lá sjaldnast á skoðunum sínum, en allt- af svo sanngjörn og mild við alla. Það voru mikil forréttindi fyrir 13 ára ungling að vera undir hennar verndarvæng. Árið 1960 var ekkert rafmagn komið að Barkarstöðum. Adda þurfti ekkert rafmagn. Adda hafði sína olíu/kola-eldavél og bak- aði mikið og eldaði vel. Hún átti uppskrift að besta brauði í heimi. Alltaf mikið bakkelsi í öllum kaffi- tímum. Þær voru listakonur, Adda og Jenny tengdamóðir hennar á mörgum sviðum við að bjarga sér, t.d. við að sjóða niður kjöt í stórar glerkrukkur og loka með sínum hætti, til geymslu. Þetta var fyrir tíma frystikistnanna í sveitinni. Allt- af kallaði Adda á okkur út um eld- húsgluggann á gamla bænum á rétt- um tímum, að koma inn í kaffi eða mat. Það brást ekkert hjá Öddu. Alltaf þegar við Ragnar fórum eitt- hvað langt, t.d. að gera við girðingar eða slá með orfi og ljá uppi í Seli, vorum við alltaf vel nestaðir, með kaffi í flöskum með ullarsokka ut- anum og mikið af brauði og bakk- elsi, Adda sá um það. Ragnar bóndi, keypti ljósavél á Barkarstaði um þetta leiti, Lister Blackston Diesel. Mér þótti mikill heiður og traust þegar Adda bað mig um að setja ljósavélina í gang á haustkvöldunum og seinna um kvöldið að slökkva. Mér fannst ég vera orðinn vélstjóri. Adda var mikill stuðningsmaður Benedikts tengdaföður síns, um uppbyggingu skógræktarinnar niðri við Gil. Minnist ég orða gamla mannsins þegar hann kallaði til okk- ar krakkanna sem vorum að gróð- ursetja, og sagði: „Það skal vel til þess vanda sem lengi skal standa“. Nú sannast orð Benedikts um vand- aðan og fallegan skóg. Adda hvatti mig og Benny til að lyfta okkur upp alla sunnudaga, til að fara í útreiðar- túra um Miðfjörðinn og víðar. Ragn- ar lánaði mér alltaf besta hestinn, hann Hjalta sem var verðlaunahest- ur frá Hólum í Hjaltadal. Og Benny á Stóra-Brún sem amma hennar Jenny átti. Og heimilishundurinn Kola hljóp á eftir og fylgdist með. Þetta gaf mér mikið, við Benny er- um jafngömul og gátum talað mikið saman. Adda stjórnaði þessu öllu, Adda vildi bara að allir væru glaðir og liði sem allra allra best í sveitinni. Það var hennar takmark. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Blessuð sé minning yndislegrar konu, Öddu frá Barkarstöðum. Um leið og ég bið Ragnari guðs blessunar votta ég börnum þeirra og aðstandendum mína dýpstu samúð Magnús Þórir Pétursson. Það er komið vor. Farfuglarnir, þessir vinir okkar, sem flytja boð- skapinn um langa daga og bjartar nætur, syngja sinn dýrðarsöng og brumið á trjánum lætur á sér kræla þótt kuli stundum á norðurslóð. Það var í þessari umgjörð sem svilkona mín, Adda á Barkarstöðum, kvaddi okkar jarðlíf. Ég trúi því að okkur öllum sé af- mörkuð stund og jafnframt ætlað að nýta hana vel. Það er mín skoðun að Adda hafi gert það og hvergi dregið af sér. Í veikindum hennar kom það skýrt í ljós hvað hennar innri kraft- ur var ótrúlega mikill. Það er líka aðdáunarvert hvað Ragnar var henni umhyggjusamur og óþreyt- andi að sinna hennar þörfum. Það getur verið okkur mörgum til eft- irbreytni. Heimili þeirra hjóna hefur einnig borið vitni um gagnkvæmt traust og virðingu þeirra fyrir hvort öðru. Adda var heilsteypt kona, hafði ákveðnar skoðanir og lét þær í ljósi ef henni þótti ástæða til. Hún var fé- lagslynd, hafði yndi af samskiptum við fólk og sýndi einstaka ræktar- semi gagnvart vinum og vanda- mönnum. Afkomendahópurinn þeirra Öddu og Ragnars er orðinn stór og það er töluvert afrek að halda nánum tengslum við allan hópinn og þar eru börnin okkar ekki undanskilin. Samskipti okkar Barkar við þau hjón eru orðin löng og eigum við fjölskyldan stóran sjóð dýrmætra minninga sem aldrei bar skugga á, sjóð sem hvorki mölur né ryð fær grandað. Eftir að við fluttum hingað í sveit- ina kom sér vel hve stutt var á milli bæjanna, enda voru verkfæri lánuð og aðstoðað við byggingar. Það var sama hvers þurfti með, alltaf var hægt að leita til þeirra hjóna og allt- af leyst úr hverjum vanda. Svo komu sumarfríin. Ekki vika á Spáni eða Portúgal, kannski þrír dagar á Vestfjörðum eða tveir dagar til að fara Kjalveg. Börnunum og nestinu var troðið í Land Rover-bíl- ana og haldið af stað. Þessara daga var beðið með óþreyju og enn lifa minningarnar í hugum ferðalang- anna. Lengstu dagar ársins nálgast og kvöldsólin varpar sínum dýrðlega roða á byggðina okkar. Þá kemur margt í hugann, fyrst og fremst þakklæti fyrir að hafa átt samleið með Öddu. Hún kenndi mér margt, sem er mér mikils virði og vonandi kem ég einhverju af því áfram. Guð blessi minningu Öddu og styrki Ragnar og alla fjölskylduna þeirra. Sólrún K. Þorvarðardóttir. Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is Alhliða útfararþjónusta Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Þorbergur Þórðarson ✝ Hjartans þakkir fyrir hlýhug og auðsýnda samúð við andlát og útför móður, okkar tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐLAUGAR GUNNARSDÓTTUR, dvalarheimilinu Lundi, Hellu. Guð blessi ykkur öll. Gunnar Karlsson, Ásgerður Þórðardóttir, Guðrún D. Karlsdóttir, Sigurjón Magnússon, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, sonur og bróðir, GUNNAR TRYGGVI BERGSTEINSSON, Fífulind 13, Kópavogi, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 21. maí kl. 13.00. Valgerður Aðalsteinsdóttir, Bergsteinn Gunnarsson, Aðalsteinn Mar Gunnarsson, Aðalbjörg Jónasdóttir, Halla Bergsteinsdóttir, Jónas Bergsteinsson, Bjarni Bergsteinsson. ✝ Innilegar þakkir fyrir hlýhug og auðsýnda samúð við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, RÖGNU MARÍU SIGURÐARDÓTTUR, Hrafnakletti 4, Borgarnesi. Sérstakar þakkir færum við hjúkrunarfólki á 11 E Landspítala. Baldur Sveinsson og fjölskyldur. ✝ Elskuleg móðir, tengdamóðir, systir, föðursystir, mágkona og amma okkar, KRISTJANA SIGURÐARDÓTTIR SIGURZ, Skógarbæ, áður Dunhaga 21, Reykjavík, sem lést fimmtudaginn 10. maí, var kvödd í kyrrþey, að eigin ósk miðvikudaginn 16. maí. Færum hjúkrunarfólki og öðrum í Skógarbæ okkar bestu þakkir fyrir frábæra umönnun og hlýju. Guðrún Lárusdóttir Islandi, Christopher Bo Bramsen, Richard S. Islandi, Nanna Islandi, Áslaug Sigurz, Skúli Eggert Sigurz, Ingunn Þ. Jóhannsdóttir, Kittý Johansen og ömmubörn. ✝ Látin er HALLDÓRA MARGRÉT HERMANNSDÓTTIR frá Ysta-Mói í Fljótum, til heimilis á Hvanneyrarbraut 34, Siglufirði. Margrét Lára Friðriksdóttir, Arngrímur Jónsson, Agnes Einarsdóttir, Ævar Friðriksson, Hjördís Júlíusdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.