Morgunblaðið - 19.05.2007, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 19.05.2007, Qupperneq 46
auk ævintýramyndarinnar Sahara. Kostnaður við myndina nemur að minnsta kosti 25 milljónum dollara, rúmlega 1,5 milljörðum íslenskra króna, og því ljóst að um stórt verk- efni er að ræða. Að sögn Mark Albela, eins af framleiðendum myndarinnar, er nú unnið að því að finna handritshöf- und og leikstjóra. Vísindaskáldsagan Cold Skin kom út árið 2003 og varð fljótt met- sölubók á Spáni. Hefur hún síðan verið þýdd á 29 tungumál. Albert Sanchez Pinol fæddist í Barcelona árið 1965, en Cold Skin er hans fyrsta skáldsaga. Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is KVIKMYNDIN Cold Skin, sem byggð er á samnefndri bók eftir katalónska rithöfundinn Albert Sanchez Pinol, verður líklega tekin hér á landi. Þetta kemur fram á vefsíðu bandaríska tímaritsins Var- iety. Framleiðsla myndarinnar er á byrjunarstigi, en það er kvik- myndafyrirtækið KanZaman sem framleiðir. Áður hefur fyrirtækið framleitt myndir á borð við King- dom of Heaven eftir Ridley Scott og Goya’s Ghosts eftir Milos Forman,Rithöfundurinn Albert Sanchez Pinol. Morgunblaðið/Ómar Kuldi Cold Skin er vísindaskáldsaga sem gerist á Suðurskautinu og því er Jökulsárlón líklegur tökustaður fyrir myndina. Stórmynd líklega tekin á Íslandi Á hverju kvöldi safnast fólk saman við rauða dregilinn til að sjá aðvífandi kvikmyndastjörnur … 49 » reykjavíkreykjavík Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is ÞAÐ ER snúið verkefni að smíða tölvuleiki, að svara þeirri kröfu að allt sé sem fullkomnast, út- lit eins og kvikmynd, persónur eins og lifandi og átök og atburðir sem næst því sem gerist í raun- veruleikanum. Það hefur reyndar gengið bæri- lega að uppfylla flest þessi skilyrði í skotleikjum svonefndum, þar sem sífellt fullkomnari leikir nýta afl sífellt fullkomnari tölva til hins ýtrasta. Ekki hefur tekist eins vel upp með leiki þar sem barist er með frumstæðari vopnum, en brátt er fundin lausn á því ef að líkum lætur, því danskt fyrirtæki með einn Íslending innanborðs, Pál Ragnar Pálsson, hyggst þróa og markaðssetja leik sem markar nýr spor á sínu sviði. Nýtt bardagakerfi Arena: League of Victors heitir leikurinn og á sér rætur í skólaverkefni Páls Ragnars og félaga hans í ITU tækniháskólanum í Kaupmannahöfn. Hann segir að þeir hafi byggt upp nýtt bardaga- kerfi í rannsóknarskyni og þá beint sjónum að kerfi fyrir bardaga með frumstæðum vopnum; sverði, spjótum og skjöldum, enda séu engin al- mennileg slík kerfi til í dag. „Þetta var fyrir ári og eftir prófið stungu ýms- ir upp á því að við myndum þróa þetta eitthvað lengra,“ segir Páll Ragnar. Félagarnir lögðu bar- dagakerfið, sem þeir kalla Direct Strike, því fyr- ir fagfólk úr danska tölvuleikjaheiminum og var eindregið ráðlagt að halda áfram að þróa það. Í framhaldi af því má segja að þeir hafi staðið frammi fyrir tveimur kostum; að selja kerfið eða stofna fyrirtæki um það og völdu síðari kostinn, „því okkur fannst skemmtilegast að láta reyna á það hvað við kæmumst langt með þetta, frekar en að selja það strax,“ segir Páll Ragnar. Leitað að fjármagni Hann segir að eftir að námi ljúki í haust hefj- ist vinna á fullu, en fram að því vinna hann og fé- lagar hans við þróun kerfisins meðfram námi, en alls starfa nú ellefu manns við verkið. „Við erum í viðræðum við fjárfesta og fram- leiðendur í leit að fjármagni og vorum um daginn á norrænni leikjaráðstefnu sem var ótrúlega gagnlegt,“ segir hann. Það tekur drjúgan tíma að vinna að svo metn- aðarfullum leik sem þeir félagar eru með í smíð- um, en Páll Ragnar segir að þeir stefni að því að hafa prufu tilbúna eftir ár sem verður þá hægt að sýna framleiðendum, en fullbúinn leikur yrði þá tilbúinn eftir tvö ár til ef allt gengur að ósk- um. Á annnarri öld eftir Krist Eins og nefnt er gerist leikurinn í fornöld, nánar tiltekið á annarri öld eftir Krists burð, á þeim tíma sem Rómaveldi var upp á sitt besta. Persónur í leiknum eru þeirrar gerðar að geta lært og verða því smám saman betri í bardaga- listinni, en Páll Ragnar segir að helsti gallinn við slíka leiki hingað til sé að ekki hafi verið til al- mennilegt kerfi til að túlka bardaga með lag- og stunguvopnum. Hann nefnir sem dæmi að í Co- unter Strike sé mjög fullkomið bardagakerfi byggt á skotvopnum, en ef menn draga fram hníf í þeim leik þá virki hann í raun eins og byssa með mjög litla drægni. „Til viðbótar má nefna að kerfið okkar er mjög skalanlegt, sem gerir okkur kleift að byrja eins stórt og efni og aðstæður leyfa og síðan getum við bætt við okkur,“ segir hann að lokum. Frekari upplýsingar má finna á vefsetri fyr- irtækis þeirra félaga, elysiumgames.com. Bardagamaður Páll Ragnar Pálsson og félagar hans undirbúa tölvuleik sem gerist á annarri öld eftir komu Krists. Stafræn stungu- og lagvopn FLUGFAR til Íslands er í verðlaun fyrir þann Bang Gang aðdáanda sem gerir besta „remixið“ af laginu „It́s Alright“ sem kom út á Bang Gang plötunni Something Wrong (From Nowhere). Það er bandaríska vefsíð- an CMJ.com sem greinir frá þessu. Barði Jóhannsson sjálfur velur sigurvegarann, sem mun fá tvo flug- miða til Íslands auk tveggja nátta hóteldvalar í Reykjavík í verðlaun. Frestur til að skila inn „remixi“ rann út í gær og hver hinn heppni Íslands- fari er verður tilkynntur á mánu- daginn. Barði verðlaunar með Íslandsferð Nánar um keppnina má sjá á: www.http://fanaticpromo- tion.blogspot.com/2007/05/win- trip-to-iceland-courtesy-of- bang.html. EINS og fram hefur komið kemur nýjasta plata hljómsveit- arinnar Mínus út á mánudaginn, en hún ber hið skemmtilega heiti The Great Northern Whale- kill. Þeir sem ekki geta beðið svo lengi eftir plötunni þurfa ekki að örvænta því hún verður til sölu í verslun Smekkleysu við Laugaveg 28 á milli kl. 12 og 16 í dag. Þeir fé- lagar í hljómsveitinni verða á staðn- um og munu jafnvel árita nokkur eintök fyrir hörðustu aðdáendurna. Þá verður platan einnig seld á sérstöku verði, 1.700 krónur, en hún mun svo kosta 2.000 krónur í almennri sölu frá og með mánudeg- inum. Forskot tekið á hvala- morð í Smekkleysu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.