Morgunblaðið - 19.05.2007, Side 47

Morgunblaðið - 19.05.2007, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2007 47 Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is VEGUR Anders Trentemøller sem tónlistarmanns hefur vaxið með ógnarhraða á undanförnum tveim- ur árum. Sjálfur dæsir hann meira að segja yfir velgengninni. „Já. Hlutirnir hafa gerst mjög hratt undanfarin tvö ár, svo ekki sé nú meira sagt,“ segir hann brosandi og hristir hausinn. Trentemøller var svo gott sem óþekktur árið 2005 en er í dag einn eftirsóttasti plötusnúður heims auk þess sem raftónlist hans hefur vakið mikla athygli, eink- anlega platan The Last Resort sem kom út í október á síðasta ári. Upphaflega var það stuttskífan Physical Fraction sem kom honum á kortið árið 2005 en endur- hljóðblandanir fyrir listamenn á borð við Röyksopp, The Knife, Moby og Pet Shop Boys þeyttu honum síðan á toppinn með undra- skjótum hætti. Landar hans hafa t.a.m. keppst við að hlaða hann verðlaunum og áðurnefnd breið- skífa hefur fengið lofsamlega dóma. Trentemøller leikur á Gauknum í kvöld en á þegar að baki tvær uppákomur í þessari heimsókn, þar sem hann lék á MH balli á fimmtudaginn („líklegast yngstu áheyrendur sem ég hef fengið“) og í gær var hann á Kaffibarnum. Leystist upp Ferill Trentemøllers er giska langur en hann hóf ferilinn í rokk- sveitum og áhrifavaldarnir nýrokk- sveitir eins og Smiths og Cure. „Ég varð á endanum leiður á því stússi. Leiddist að hanga í sveitt- um bílskúrum og bíða eftir því að trymbillinn næði loksins rétta taktinum eða hvað það nú var. Það eru samt ýmsir kostir við það að vera í hljómsveit; það er nærandi að skapa eitthvað með öðrum og þetta er gott upp á félagsskapinn.“ Trentemøller, sem við skulum eftirleiðis kalla Anders, segir að hann hafi einhverju sinni gengið inn á „drum’n’bass“ klúbb og sýn hans á tónlist hafi breyst í kjölfar- ið. Hann stofnaði „house“-sveitina Trigbag árið 1995 og ferðaðist víða með hana en hún leystist svo upp árið 2000. Tveimur árum síðar gaf hann út sitt fyrsta lag undir nafn- inu „Trentemøller“, lag sem hann hafði átt á harða diskinum sínum í nokkur ár. Eftir fjölda tólftomma og endur- hljóðblandanir ákvað Anders að breyta aðeins út af laginu og gera plötu sem fólk gæti allt eins hlust- að á inni í herbergi og á dansgólf- inu. Afraksturinn var áðurnefnd The Last Resort, plata sem hefur verið hampað sem miklu meist- araverki. „Ég varaði útgáfuna mína (Po- ker Flat Recordings) við því að platan yrði alls ólík því sem þeir væru vanir að fá frá mér. Sem bet- ur fer virðist ég kominn í þá stöðu að geta farið mínu fram. Annars væri enginn tilgangur með þessu, ég verð að geta fylgt eigin sann- færingu í þessu stússi. Svo ég fengi örugglega algeran frið fengu þeir ekki að heyra neitt fyrr en ég var búinn að fullklára plötuna.“ Band Anders hefur sett saman þriggja manna band sem mun fylgja The Last Resort eftir með tónleikum í sumar. Viðkomustaðir eru m.a. Glastonbury, Hróarskelda og svo verður farið til Kína í haust. „Næsta plata er svona að skríða saman jafnt og þétt í hausnum á mér,“ segir Anders að lokum. „Ég hef ýmsar hugmyndir, ég væri til í að lóðsa inn söngvara; nota hljóð- færi og jafnvel strengjakvartett. En þetta kemur allt í ljós. Ég ætla fyrst að klára að fylgja þessari fyrstu plötu minni eftir.“ Varð leiður á rokkinu Trentemøller treður upp á Party Zone kvöldi á Gauknum í kvöld Ákveðinn „Sem betur fer virðist ég kominn í þá stöðu að geta farið mínu fram. Annars væri enginn tilgangur með þessu, ég verð að geta fylgt eig- in sannfæringu í þessu stússi.“ Nánari upplýsingar á www.pz.is Ármúla 42 · Sími 895 8966 mánudaga - föstudaga 10-18 laugardaga og sunnudaga 11-18Opið Fjölbreytt úrval af nýrri gjafavöru 30-50% afsláttur af pottum og vösum GÓÐIR krimmar eru fáséðir þó framboðið sé risavaxið, ekki aðeins á hvíta tjaldinu, heldur eru þeir með vinsælasta efni í sjónvarpi og á met- sölulistum bókabúða og fjölmiðlar eru allajafna undirlagðir af glæpa- málum. Engu líkara en við fáum aldr- ei nóg af dásemdum afbrotaheimsins. Hoblit hefur gert fáar og misjafnar myndir þar sem Primal Fear (’96), stendur talsvert upp úr, og nýja myndin er ekki óþekk að mörgu leiti. Hún segir af sérstæðu morðmáli þar sem fórnarlambið er eiginkona þess grunaða, Crawfords (Hopkins). Roskins auðmanns og klækjarefs sem viðurkennir afdráttarlaust að hafa skotið ótrúa konu sína, sem er flutt milli heims og helju á sjúkrahús. Crawford ákveður að verja sig sjálfur en sækjandinn, Willy (Goslin), er ungur lagarefur á uppleið. Hann virðist eiga auðvelt verk fyrir hönd- um, að sanna sekt á roskinn sérvitr- inginn, sem var staðinn að verki. Öðru nær, Crawford er ekki allur þar sem hann er séður, skyndilega er unnið mál og glæsileg framtíð Willys í uppnámi. Fracture er haglega upp- sett gildra, þar sem viðfangsefnið er hinn fullkomni glæpur og Hoblit og handritshöfundarnir koma með frá- bæra aukafléttu sem er persóna Wil- lys. Áhorfandinn fer fljótlega að velkjast í vafa um hæfni og bakland þessarar rísandi stjörnu réttarsal- anna. Áhorfendur hafa nóg fyrir stafni, handritið er óvenju vel samið, ekki síst þegar haft er í huga að við smíði morðgátu og lausn verða allir þættir að ganga upp á ásættanlegann hátt og myndin heldur okkur lengst af fremst á stólbríkinni. Það koma krók- ar á móti brögðum og ekki má á milli sjá hvor hefur betur fyrr en á loka- sprettinum, eins og vandlátur krimmaaðdáandi vill hafa framvind- una. Dálítil rómantík gerir ekki mikið fyrir heildarmyndina né gam- alkunnug togstreita á milli einkageir- ans og embættismanna í lög- mannastétt vestra. En fléttan, viðskipti og samtöl Willys og Craw- fords eru skynsamleg, fyndin og út- smogin eins og skák á milli tveggja stórmeistara. Annars vegar situr gamall refur sem kann flest fyrir sér og með leikina úthugsaða að máti, hinn ungur, óútreiknanlegur og til alls vís. Leikaravalið er óaðfinnanlegt. Gosling sýnir á sér þveröfuga hlið en þá sem hann flaggaði eftirminnilega í dópistanum og hugsjónamanninum fyrrverandi í Half Nelson, og Sir Ant- hony er í sínum hálasta Hannibals- ham. Þeir eru mögnuð skemmtun saman og valið í aukahlutverkin er ekkert síðra. Gömlu refirnir Stratha- irn og Ginton bæta hverja mynd og þau Burke, Pike og Curtis gera góða mynd enn þéttari. Síðasta hálmstráið KVIKMYNDIR Háskólabíó, Smárabíó, Borg- arbíó Akureyri Leikstjóri: Gregory Hoblit. Með Anthony Hopkins, Ryan Gosling, David Strathairn. 110 mín. Bandaríkin 2007. Brotalöm/Fracture  Stórleikarinn „Fracture er haglega uppsett gildra, þar sem viðfangsefnið er hinn fullkomni glæpur.“ Sæbjörn Valdimarsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.