Morgunblaðið - 19.05.2007, Qupperneq 50
50 LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
- Kauptu bíómiðann á netinu
Sími - 462 3500 Sími - 551 9000Sími - 564 0000
Miðasala í Smárabíó og Regnbogann
Prentaðu sjálf(ur) út bíómiðann - Engar biðraðir
ÍSLEN
SKT
TAL
STURLAÐ STÓRVELDI
NÝJASTA ÞREKVIRKIÐ FRÁ MEISTARA DAVID LYNCH.
eeee
„Marglaga listaverk...
Laura Dern er mögnuð!“
K.H.H, FBL
eeee
„Knýjandi og
áhrifaríkt verk!”
H.J., MBL
eeee
L.I.B., TOPP5.IS
GOÐSÖGNIN UM ÍSLENSKU VÍKINGANA LIFIR GÓÐU
LÍFI Í ÞESSARI KYNGIMÖGNUÐU HASARMYND!
Í KJÖLFAR 300 KEMUR PATHFINDER
TVEIR HEIMAR
EITT STRÍÐ
LOKAORUSTAN
ER HAFIN!
ATH: EKKERT HLÉ OG MIÐASÖLU LÝKUR ÞEGAR SÝNING MYNDAR HEFST
eee
L.I.B, Topp5.is
eee
FGG - FBL
eee
T.V. - kvikmyndir.is
Frábær gamanmynd um strák og stelpu og stelpu og strák!
Með Samaire Armstrong úr O.C. og Kevin Zegers úr Dawn of the Dead
Hann reynir að kom-
ast úr nærbuxunum
hennar... ekki í þær!
kevin
zegres
samaire
armstong
sharon
osbourne
Fracture kl. 8 - 10.10 B.i. 14 ára
It’s a Boy Girl Thing kl. 2 - 4 - 6
Spider Man 3 kl. 4 - 7 - 10 B.i. 10 ára
25.000 MANNS
Á AÐEINS 10 DÖGUM!
Fracture kl. 5.30 - 8 - 10.30 B.i. 14 ára
It’s a Boy Girl Thing kl. 1.30 - 3.45 - 5.50 - 8 -10.10
Spider Man 3 kl. 2 - 5 - 8 - 10.50 B.i. 10 ára
Spider Man 3 LÚXUS kl. 2 - 5 - 8 - 10.50
Pathfinder kl. 8 - 10.15 B.i. 16 ára
TMNT kl. 2 - 4 - 6 B.i. 7 ára
Úti er Ævintýri m/ísl. tali kl. 2 - 3.45 * Gildir á allar
sýningar í
Regnboganum
merktar með rauðu
450
KRÓNUR
Í BÍÓ
*
Painted Veil kl. 3 - 5.30 - 8 - 10.30
It’s a Boy Girl Thing kl. 3 - 5.50 - 8 - 10.10
Spider Man 3 kl. 3 - 6 - 9 B.i. 10 ára
Inland Empier kl. 5.45 - 9 B.i. 16 ára
Úti er Ævintýri kl. 3
FRUMSÝNING
ATH: EKKERT HLÉ OG MIÐASÖLU LÝKUR ÞEGAR SÝNING MYNDAR HEFST
MAGNAÐUR SÁLFRÆÐITRYLLIR
Ef þú rýnir
nógu djúpt
sérðu að
allir hafa
veikan blett
Þau skipta óvart um líkama og nota
tækifærið til að hefna sín á hvort öðru!
TÓNLIST
Nasa
Oumou Sangaré og Tómas R. Einarsson
Fimmtudagskvöldið 17. maí 2007.
VORBLÓT, eða Rite of Spring, hófst
á fimmtudaginn var með tónleikum
hinnar afrísku Oumou Sangaré og
Tómasar R. Einarssonar þar sem þau
komu fram ásamt hljómsveitum sín-
um. Sangaré þessi er tæplega fertug
að aldri, kemur frá Malí og hefur
fengist við söng meira eða minna alla
ævi.
Í tónlist hennar blandast saman
áhugaverðar stefnur – fornar malískar
tónlistar hefðir í bland við vestræn
áhrif. Hljómsveit hennar er í grunninn
mjög hefðbundin – gítar, trommur og
bassi en síðan eru auka-ásláttarleik-
arar sem berja bumbur og einhver
sérkennileg afrísk hljóðfæri sem und-
irritaður kann ekki mikil skil á. Auk
þess má finna þarna flautuleikara og
bakraddasöngkonur sem sjá líka um
áslátt.
Það var áhugavert að heyra hvernig
þessar ólíku stefnur rekast á. Oumou
hefur verið nefnd „Söngfugl Was-
soulou tónlistarinnar“, en svo heitir
hin suður-malíska tónlistarstefna, og
ég er ekki í neinni aðstöðu til að
draga það í efa. Fluttningurinn var
frábær – söngurinn sérlega vandaður
og allur hljóðfæraleikur til fyr-
irmyndar. Það sem stóð upp úr voru
afrísku hljóðfærin og að heyra þau
blandast við kunnuglegri vestrænni
tóna fyrir utan hversu gaman það var
að fylgjast með spilagleðinni sem
greinilega var mikil á sviðinu.
Fyrir minn smekk voru lögin þó oft
á tíðum of löng, sólókaflarnir sömuleið-
is og sífellt verið að endurtaka sömu
kaflana. En það er víst það sem þessi
tegund tónlistar gengur að miklu leyti
út á. Best var bandið undir lokin þegar
allt var gefið í botn og hver hljóðfæra-
leikarinn farinn að spila ofan í annan.
Þá var enn skemmtilegra að fylgjast
með hljóðfæraleikurunum sem voru
allmargir á sviðinu auk þess sem
áhorfendur tóku betur við sér.
Þegar á allt er litið voru þetta hinir
skemmtilegustu tónleikar og finnst
mér að mér beri skylda til að taka
fram að framlag Tómasar R. Ein-
arssonar og félaga var ekki til að
draga úr því. En fyrst og fremst ber
að fagna því að þetta fyrirbæri – Vor-
blót – sé búið að vinna sér sess. Hátíð-
in hefur aukið enn frekar á fjölbreytn-
ina í íslensku tónleikahaldi og gefið
aðdáendum svokallaðrar heimstónlistar
tækifæri til að sjá fyrsta flokks tónlist-
armenn úr þeim geira flytja tónlist
sína á sviði. Ég fagna fjölbreytninni.
Ágúst Bogason
Vorblót fer vel af stað
Morgunblaðið/Eggert
Oumou Sangaré „Í tónlist hennar blandast saman
áhugaverðar stefnur – fornar malískar tónlistar
hefðir í bland við vestræn áhrif.“
Tómas „Þegar á allt er litið voru þetta hinir
skemmtilegustu tónleikar og finnst mér ég bera
skilda til að taka fram að framlag Tómasar R. Ein-
arssonar og félaga var ekki til að draga úr því.“