Morgunblaðið - 24.05.2007, Side 1
Í HNOTSKURN
»17. maí. Geir Haarde og Jón Sigurðsson tilkynna að 12 árastjórnarsamstarfi Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks sé
lokið. Geir lýsir yfir vilja til stjórnarmyndunarviðræðna við
Samfylkinguna.
»18. maí. Forseti Íslands felurGeir Haarde umboð til stjórn-
armyndunar Sjálfstæðisflokks og
Samfylkingar. Sama dag hefjast
formlegar viðræður flokkanna og
standa þær fram yfir helgi.
»22. maí. Flokksstofnanir flokk-anna tveggja samþykkja mynd-
un nýrrar ríkisstjórnar.
»23. maí. Tilkynnt um myndunnýrrar ríkisstjórnar og stefnuyfirlýsing flokkanna birt.
»24. maí. Meirihlutastjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingartekur við völdum kl. 14.
RÍKISSTJÓRN Sjálfstæðisflokks
og Samfylkingar tekur til starfa í
dag. Ríkisráðsfundur fráfarandi
ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks hefst á Bessa-
stöðum klukkan 10.30 en að þeim
fundi loknum býður Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti Íslands, ráðherr-
um og mökum þeirra til hádegis-
verðar á Bessastöðum. Ríkisráðs-
fundur nýrrar ríkisstjórnar
Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar
hefst síðan klukkan tvö.
Geir H. Haarde, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, og Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir, formaður Samfylk-
ingarinnar, skrifuðu undir
stefnuyfirlýsingu hinnar nýju rík-
isstjórnar á Þingvöllum í gær-
morgun. Fyrr um morguninn hafði
Geir farið á fund forseta Íslands og
kynnt honum nýja ráðherraskipan
og stefnuyfirlýsingu stjórnarinnar.
Áhersla lögð á aukinn jöfnuð
Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar
Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar
kemur fram að flokkarnir hafi „ein-
sett sér að mynda frjálslynda um-
bótastjórn um kraftmikið efna-
hagslíf, öfluga velferðarþjónustu,
bættan hag heimilanna og aukna
samkeppnishæfni atvinnulífsins“. Í
yfirlýsingunni segir að árangur og
hagsæld undanfarinna ára hafi
skapað tækifæri til enn frekari
framfara og Ísland eigi að vera
áfram í fararbroddi þeirra þjóða
sem við best lífskjör búa. Málefni
yngstu og elstu kynslóðanna verði
forgangsmál ríkisstjórnarinnar
sem leggja muni áherslu á aukinn
jöfnuð með því að bæta kjör þeirra
sem höllum fæti standa í samfélag-
inu. | 4 og miðopna
Ný ríkisstjórn tekur
við völdum í dag
Málefni yngstu
og elstu kynslóð-
anna sett í forgang
Morgunblaðið/Sverrir
STOFNAÐ 1913 140. TBL. 95. ÁRG. FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Epli, gulrætur
og enginn viðbættur sykur!
Nýtt
bragð!
Aðeins 46 hitaeiningar í 100 g
ANDLIT STÍNU
KRISTÍN BIRGITTA SYNGUR LÖG
JÓHANNS G. INN Á PLÖTU Í KANADA >> 46
FÁBROTNAR AÐSTÆÐUR
ÆVINTÝRAMANNS
HAMINGJAN
VINDMYLLA&KAMÍNA >> 22
FRÉTTASKÝRING
Eftir Agnesi Bragadóttur
agnes@mbl.is
FLESTUM ber saman um að Ingibjörgu
Sólrúnu Gísladóttur, formanni Samfylking-
arinnar, hafi tekist vel upp við ráðherraval
flokksins, þótt að sjálfsögðu sitji einhverjir
eftir með sárt ennið og án ráðherradóms.
Ingibjörg Sólrún þurfti að velja ráð-
herraefnin með jafnræði kynjanna að leið-
arljósi; hún þurfti að gæta þess að lands-
byggðin fengi sína fulltrúa og hún sýndi
ákveðið pólitískt þor þegar hún valdi Þór-
unni Sveinbjarnardóttur, vegna sérfræði-
þekkingar hennar á umhverfismálum, í
stól umhverfisráðherra. Þórunn var í
þriðja sæti Samfylkingarinnar í Kraganum
en þar var Gunnar Svavarsson í fyrsta sæti
og Katrín Júlíusdóttir í öðru sæti. Þau
munu ekki vera mjög ánægð með niður-
stöðuna.
Gætur á bandamönnum
Össur Skarphéðinsson hefur oft verið
svilkonu sinni óþægur ljár í þúfu, frá því að
hann beið lægri hlut fyrir henni í for-
mannskjörinu. Nú verður hann iðnaðar-
ráðherra. Sá sem hefur stutt hann með
ráðum og dáð og verið hans nánasti vinur
og samherji í þingflokki Samfylkingar er
Björgvin G. Sigurðsson, sem vann góðan
kosningasigur á Suðurlandi og verður nú
viðskiptaráðherra. Það þykir klókt hjá
Ingibjörgu Sólrúnu að gera þessa banda-
menn að ráðherrum, því í ríkisstjórn getur
hún haft á þeim góðar gætur.
Auk þess gætti formaðurinn þess að
taka tvo landsbyggðarþingmenn inn í rík-
isstjórnina, því Kristján L. Möller, oddviti
Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi,
verður samgönguráðherra.
Val formannsins á Jóhönnu Sigurðar-
dóttur í velferðarmálin er nánast óumdeilt
og margir samgleðjast Jóhönnu og segja
hennar tíma kominn!
Sárastur er líkast til varaformaður Sam-
fylkingarinnar, Ágúst Ólafur Ágústsson,
sem ekki hlaut ráðherrastól. Ugglaust er
það búsetan ein sem gerði það að verkum
að hann varð ekki fyrir valinu, því hann var
í öðru sæti á lista Samfylkingar í Reykja-
vík suður. Samfylkingin mátti ekki við því
að bæta við enn einum ráðherranum af
suðvesturhorninu. Ágúst Ólafur verður þó
ekki verkefnalaus á kjörtímabilinu, því lík-
ast til mun innra flokksstarf hvíla mjög á
herðum hans þar sem formaðurinn sest í
stól utanríkisráðherra.
Morgunblaðið/Golli
Glöð Össur og Þórunn voru ánægð með
ráðherraval formannsins.
Sýndi póli-
tískt þor
Ráðherraval Samfylk-
ingar mælist vel fyrir
ÞAU voru glaðbeitt á svip, Geir H.
Haarde og Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, þegar þau höfðu und-
irritað stefnuyfirlýsinguna í gær.
Ingibjörg sagði Samfylkingu og
Sjálfstæðisflokk nú hefja sögulegt
samstarf í frjálslyndri umbóta-
stjórn. Sögulegar sættir flokk-
anna endurspegluðust í því að
lögð yrði áhersla á sátt í þjóð-
félaginu milli ólíkra sjónarmiða
og hópa. Ný stjórn mundi leggja
áherslu á jafnrétti í reynd og að
Ísland yrði áfram í fararbroddi
þeirra þjóða sem búa við mesta
velferð og jöfnuð þjóðfélagshópa.
Sögulegt
samstarf
Í ÁRSLOK 2006 var samanlagt tæplega helmingur heildareigna sam-
stæðna viðskiptabankanna þriggja í erlendum dótturfélögum þeirra,
eða um 45%. Þetta hlutfall var svipað í árslok 2005, enda einkenndist
árið 2006 að stærstum hluta af samþættingu starfsemi bankanna hér á
landi og erlendis eftir mikil kaup þeirra á erlendum fjármálastofn-
unum, sérstaklega á árunum 2004 og 2005. Heildareignir erlendra
dótturfyrirtækja Kaupþings banka námu liðlega 2.500 milljörðum
króna á síðustu áramótum. Hjá Glitni námu eignir dótturfyrirtækj-
anna um 800 milljörðum og rúmlega 500 milljörðum hjá Landsbank-
anum. Samanlagt námu heildareignir erlendra dótturfyrirtækja við-
skiptabankanna því um 3.800 milljörðum króna á síðustu áramótum. Í
nýlegri skýrslu Seðlabanka Íslands um fjármálastöðugleika hér á
landi er sérstaklega tekið fram að það sé jákvætt að bankarnir hafi
fylgt ólíkri stefnu í útrásinni. Það hafa þeir einmitt gert, eins og fjallað
er um í Viðskiptablaði Morgunblaðsins í dag. | Viðskipti
3.800 milljarða
eignir erlendis