Morgunblaðið - 24.05.2007, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 2007 11
FRÉTTIR
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
KLÁMVÆÐINGIN á síðustu miss-
erum hefur alið af sér fleiri kynferð-
isbrot. Þetta virðist samdómaálit
þeirra fagmanna sem vinna með þol-
endur kynferðisofbeldis. Að sögn Ey-
rúnar Jónsdóttur, deildarstjóra á
Neyðarmóttöku nauðgana, virðist
sem ákveðin straumhvörf hafi orðið
um og upp úr árinu 2000, en þá hafi
aðgengi að klámi á Netinu aukist til
muna á sama tíma og tölvur hafi orðið
almenningseign í æ ríkara mæli.
„Sumir ungir strákar allt niður í 14
ára og upp í rígfullorðna menn
virðast vera að upplifa einhverjar
fantasíur sem eru undir beinum
áhrifum frá klámmyndum. Þeir halda
að stúlkur og konur séu alltaf til-
búnar að taka þátt í fantasíum þeirra
algjörlega gagnrýnislaust, en það er
auðvitað ofbeldi að þvinga aðra
manneskju til að taka þátt í athöfnum
sem hún vill ekki. Þegar konur koma
til okkar þá er búið að meiða þær
bæði andlega og líkamlega,“ segir
Eyrún.
Hópnauðganir undir beinum
áhrifum frá klámvæðingu
Að mati Eyrúnar þarf að auka
fræðsluna til muna í samfélaginu og
þurfi sú fræðsla að hefjast strax í
frumbernsku. „Börn þurfa að læra
hvað sé eðlileg snerting. Þau þurfa að
læra að bera virðingu fyrir öðrum,
innræta þarf þeim mannlega reisn og
það þarf að ræða siðferði kynlífs við
þau,“ segir Eyrún og tekur fram að
hér þurfi að vera um sífræðslu að
ræða sem byrji á heimilinu og haldist
upp skólakerfið.
Alls leituðu 146 einstaklingar til
Neyðarmóttökunnar á síðasta ári,
sem er fjölgun frá árinu á undan þeg-
ar 130 einstaklingar leituðu til mót-
tökunnar. Að sögn Eyrúnar var í 21
tilviki um fleiri en einn geranda að
ræða og í sjö tilfellum var grunur um
lyfjanauðgun. Áætla má að í um
þriðjungi tilvika séu þolendur ýmist í
áfengisdái eða í þannig ástandi að
þeir eiga erfitt með að sporna við of-
beldinu. „Í mörgum tilfellum vita þær
aldrei allan sannleikann, af því að
þær vita ekkert hvað var gert við
þær, þó þær gruni að eitthvað hafi
verið gert,“ segir Eyrún og bendir á
að í sumum tilfellum staðfestist þessi
grunur þegar þolendum er af hálfu
geranda hótað myndbirtingu af at-
burðunum. Bendir hún á að með
nýrri tækni, t.a.m. myndavélum í
flestum símum, sé slík hótun um
myndbirtingu raunveruleg ógn.
Að sögn Eyrúnar er fjölgun hóp-
nauðgana á síðustu árum undir bein-
um áhrifum frá klámmyndum. „Að
taka þátt í þessu og ætla það að ungar
stúlkur vilji taka þátt í svona athöfn-
um og geri það gagnrýnislaust er af-
skaplega skrýtið siðferði.“ Að mati
hennar er sú þróun að „normalísera“
klámvæðinguna í þjóðfélagi afar var-
hugaverð. „Klám er ekkert annað en
ofbeldi og niðurlæging.“
Eyrún segir nær alla þolendur eiga
það sameiginlegt að glíma við órök-
rétta skömm og sektarkennd í kjölfar
kynferðisofbeldis. „Sjálfsásakanir
eru partur af því að finna leið til að
lenda aldrei aftur í sömu aðstæðum.
Yfirleitt geta slíkar sjálfsásakanir
frekar leitt til hindrana og mann-
eskjan fer að lifa í tilveru þar sem
hún forðast allar aðstæður. Hún lend-
ir í raun í kreppu með sjálfa sig, því
fólk getur ekki lifað eins og eyland.“
Að mati Eyrúnar er afar mikilvægt
að þolendur kynferðisofbeldis leiti
sér aðstoðar og vinni úr reynslu sinni
á uppbyggilegan hátt. Reynslan sýni
að þeir þolendur sem ekki geri það
séu í mun meiri hættu á að verða fyrir
barðinu á kynferðisofbeldi aftur.
Ástæðuna segir hún þá að þolendur
kynferðisofbeldis, sem ekki hafi unn-
ið úr reynslu sinni, búi við lakari
sjálfsmynd en ella, þá skorti sjálfs-
virðingu og sjálfstraust sem þarf til
þess að geta sett sjálfum sér og öðr-
um eðlileg mörk.
Karlar, látið í ykkur heyra!
Eyrún segist mundu vilja sjá karl-
menn mun virkari í baráttunni gegn
kynferðisofbeldi. „Í dag er það því
miður þannig að baráttan gegn kyn-
ferðisofbeldi virðist vera einkamál
kvenna og lítils hóps meðvitaðra
karla. En kynferðisofbeldi er ekki
bara mál kvenna, því ofbeldið hefur
ekki bara áhrif á þolandann heldur á
alla fjölskylduna. Ég sakna þess að
feður, bræður, eiginmenn og synir
taki afstöðu gegn ofbeldinu og láti
meira í sér heyra.“
Morgunblaðið/ÞÖK
Deildarstjóri Eyrún Jónsdóttir á Neyðarmóttökunni á Borgarspítala.
Auka þarf fræðsluna í samfélaginu
Sífellt fleiri þolendur kynferðisofbeldis leita til Neyðarmóttökunnar á ári hverju
Í HNOTSKURN
»Á árinu 2006 leituðu 146einstaklingar sér aðstoðar
hjá Neyðarmóttöku nauðgana.
»Yngsti þolandinn sem leit-aði til Neyðarmóttökunnar
í fyrra var 14 ára og sá elsti á
sjötugsaldri. Í 21 tilviki voru
fleiri en einn gerandi.
»Grunur reyndist um lyfja-nauðgun í sjö af þeim 146
tilvikum sem leitað var til
Neyðarmóttökunnar í fyrra.
VOLDUGAR ríkisstjórnir og vopn-
aðir hópar magna af ásettu ráði upp
ótta meðal almennings í því skyni að
grafa undan mannréttindum og
valda sundrungu manna á meðal,
segir í nýrri ársskýrslu mannrétt-
indasamtakanna
Amnesty Interna-
tional sem kynnt
var í gær.
Segja samtökin
að stjórnmála-
menn sem ali á
ótta og fordómum
beri ábyrgð á því
að mannréttindi
séu fótum troðin.
Hið svonefnda
stríð gegn hryðju-
verkum og stríðið í Írak, þar sem
brotið hafi verið gegn mannréttind-
um í stórum stíl, hafi valdið sundr-
ungu og torveldað lausn deilumála.
Í skýrslunni segir að alþjóðasam-
félagið hafi í fyrra einkennst af van-
trausti og sundrungu. Tortryggnin
hafi leitt til þess að ekki tókst að
bregðast við neyðarástandi sem
skapaðist í mannréttindamálum, svo
sem í Tétsníu, Kólumbíu og á Srí
Lanka sem og í átökunum í Mið-
Austurlöndum.
Um alla Evrópu hafi Roma-fólk-
inu, öðru nafni sígaunum, verið mis-
munað og því í reynd úthýst úr sam-
félaginu. Í Afríku einni hafi hundruð
þúsunda karla, kvenna og barna ver-
ið borin út af heimilum sínum í nafni
framfara og hagþróunar og stjórn-
völd sjaldnast greitt fólkinu skaða-
bætur eða veitt aðra aðstoð.
Þá segir Amnesty að Darfur-hérað
í Súdan hafi verið og sé eins og blæð-
andi sár á samvisku heimsins. Sam-
tökin segja að vopnaðir hópar víða
um heim hafi gerst sekir um fjölda-
mörg og alvarleg brot gegn mann-
réttinda- og mannúðarlögum. Ríkis-
stjórnir heims verði að axla ábyrgð
sína og gera það sem í þeirra valdi
standi til að hindra slíka hópa í að
virða alþjóðlega viðurkennd mann-
réttindi og mannúðarlög að vettugi.
„Þarna er m.a. átt við Janjaweed-
hópana í Darfur,“ segir Jóhanna K.
Eyjólfsdóttir, framkvæmdastjóri Ís-
landsdeildar Amnesty. „Þetta geta
verið hryðjuverkasamtök, þetta geta
verið talíbanar, Skínandi stígur.
Margir þessara hópa gera tilkall til
ákveðins landsvæðis, vilja ná þar
völdum. Og það er engin spurning að
stjórnvöld í Súdan styðja Janjaweed-
hópana, ef þau vildu gætu þau tekið í
taumana og stöðvað þá.“
Ýtt
undir
óttann
Amnesty segir
alið á sundrungu
Jóhanna K.
Eyjólfsdóttir
Full búð af nýjum vörum
Mikið af frábærum tilboðum
Velkomin tilvonandi brúðhjón
16 gerðir af frábærum matar- og kaffistellum til sýnis á gjafadögum.
Mikið af nýjum stellum frá Rosenthal
Tilvonandi brúðhjón bjóðum ykkur hjartanlega velkomin að skrá óskalista ykkar.
Allir sem versla á gjafadögum lenda í lukkupotti dregið í lok maí.
Vinningar eru falleg og mjúk sængurföt.
Full búð af nýjum vörum á verði fyrir alla. Líttu á allt um GJAFADAGANA á www.tk.is
KRINGLUNNI - Sími: 568 9955
hönnunar-vörur
Útskriftargjafir í miklu úrvali
Gjafadagar
17-26 maí
Central park
www.tk.is
OPIÐ
TIL 9
allt í garðinn á einum stað!
Stekkjarbakka 6 - Sími 540 3300
ÞÚ FÆRÐ RÉTTU SLÁTTUVÉLINA GARÐHEIMUM
OG HÚN PASSAR BÆÐI FYRIR GRASFLÖTINA OG BUDDUNA
Fyrir grasflöt
yfir 1.200m2
5 hö B&S mótor
með drifi
60 ltr. grasjafnari
51 cm sláttubreidd
Vandaðar hjólalyftur
Stillanlegt handfang
3,5 hö B&S mótor
55 ltr. grasjafnari
46 cm sláttubreidd
Góðar hjólalyftur
Þæginlegt handfang
Fyrir allt að
1.200m2 grasflöt
www.gardheimar.is
VINSÆLASTA
RAFMAGNSSLÁ
TTUVÉLIN
Fyrir allt að
400m2 grasflöt
1000W rafmótor
27 ltr. grassafnari
33 cm sláttubreidd
Stillanleg sláttuhæð
RASER R350
12.980kr
TILBOÐ
VINSÆLASTA
BENSÍNSLÁTTU
VÉLIN
RASER R484-B
27.950kr
TILBOÐ
FYRIR HÚSFÉL
ÖG
OG STÓRAR LÓ
ÐIR
TREND 534 TR-B
54.950kr
TILBOÐ