Morgunblaðið - 24.05.2007, Side 27
vítt og breitt
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 2007 27
Á ferð um Ísland
Ferðahandbókin „Á ferð um Ís-
land“ er nú komin út sautjánda árið í
röð og hefur aldrei verið stærri.
Bókin er gefin út af útgáfufélag-
inu Heimi á þrem-
ur tungumálum, ís-
lensku, ensku og
þýsku.
Ritunum er
dreift í níutíu þús-
und eintökum á alla
helstu ferða-
mannastaði lands-
ins sem eru um
fimm hundruð talsins. Í bókinni er
umfjöllun um hvern landshluta auk
þjónustulista og korta með gisti-
stöðum, tjaldsvæðum og sundlaug-
um. Kort eru einnig frá helstu þétt-
býlisstöðum landsins. Þá er einnig
að finna hálendiskafla með hálend-
iskorti og þjónustulistum.
Fremst í bókinni er síðan að finna
ýmsan fróðleik um land og þjóð, það
helsta sem er á döfinni í sumar, af-
þreyingu og margt fleira.
Handbókinni er dreift ókeypis, en
fjöldi ljósmynda skreytir bækurnar
og er hægt að kaupa myndirnar á
www.heimur.is.
Ritstjóri bókanna er Ottó
Schopka.
Ganga og jóga á Mallorka
Göngu-Hrólfur Úrvals-Útsýnar
efnir til gönguferðar um fjallastíga
Mallorka 4.–11. september í bland
við jógaiðkun úti í náttúrunni með
Ástu Arnardóttur kvölds og
morgna. Gengið verður á pílagríma-
stígum, í fótspor smyglara og eftir
einstaklega fagurlega lögðum stíg
sem erkihertoginn af Austurríki
lét leggja efst á fjallsbrúnunum svo
hann gæti riðið þar á hesti sínum og
notið útsýnisins. Gist verður í píla-
grímaklaustrinu Lluc og strandbæn-
um Puerto Soller sem er á norðvest-
urströnd eyjarinnar undir hæsta
fjalli hennar, Puig
Major, sem er í 1.450 metra hæð
yfir sjávarmáli. Lluc er helgasti
staður Mallorkabúa og lætur and-
rúmsloftið í klaustrinu fáa ósnortna.
www.gonguhrolfur.is
Fréttir á SMS
FERÐAFÉLAG Íslands hefur nú gefið út göngu-
ritið Gönguleiðir í Hvalfjarðarbotni. Ritið er hið
14. í röð smárita sem FÍ hefur gefið út um göngu-
leiðir og fróðleik þeim tengdan. Leifur Þor-
steinsson ritar um gönguleiðirnar og sem dæmi
um leiðir má nefna Síldarmannagötur, Leggj-
arbrjót, gönguleiðir að Glym og á Hvalfell sem og
gönguleiðir í Brynjudal.
Allt eru þetta dagsgöngur og bæði er um að
ræða gönguleiðir með litlum hæðarbreytingum
og meira krefjandi fjallgöngur. Áhersla er lögð á
leiðarlýsingar og að hjálpa til við að rata og meta
erfiðleikastig. Til að krydda tilveruna eru nokkr-
ir skemmtilegir fróðleiksmolar, bæði sögur og
ágrip af jarðsögu svæðisins. Til að auka á öryggið
eru GPS-punktar og kort af svæðinu í bækl-
ingnum. Gönguleiðir í Hvalfjarðarbotni fást á
skrifstofu FÍ.
Gönguleiðir í Hvalfjarðarbotni
Morgunblaðið/ÞÖK
Hvalfjörður Fjölda gönguleiða er þar að finna.
MIRALE
Grensásvegi 8
108 Reykjavík
sími: 517 1020
Vegna flutninga og stækkunar á verslun okkar þá höfum
við ákveðið að selja sýningareintök frá Alessi, Stelton, Lsa
og fleira með 20% afslætti.
Seljum sýningarsófa, borð,
stóla og margt fleira með allt
að 50% afslætti.
Opið
man.–föstud. 11-18
laugardag 11-16
www.mirale.is
Sýningareintök með
20% afslætti
Sýningareintök með
allt að 50% afslætti