Morgunblaðið - 24.05.2007, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 2007 47
NÍTJÁN heimildamyndir verða
frumsýndar á Skjaldborgarhátíð-
inni á Patreksfirði um helgina.
Einnig verður forsýning á Öðru
lífi Ástþórs, heimildamynd heið-
ursgests hátíðarinnar, Þorsteins
Jónssonar, og sex heimilda-
myndar sýndar eftir hann frá
áttunda áratugnum.
„Sýningarnar verða ókeypis
og öllum að kostnaðarlausu,“
segir Hálfdan Pedersen, skipu-
leggjandi hátíðarinnar. „Það geta
allir tekið þátt í þessari tveggja
daga hátíð, sem stendur frá laug-
ardegi til sunnudags.“
Auk þess verður boðið upp á
sjávarfangskvöldverð bæði
kvöldin. „Á sunnudagskvöld
verður löðrandi steinbítsgrill-
veisla með harmóníkuleik á
bökkum gömlu sundlaug-
arinnar,“ segir Hálfdan. „Einnig
munum við bjóða gestum upp á
sjóstangaveiði, sveitaball í félags-
heimilinu og skoðunarferðir um
svæðið, svo sem Rauðasand og
Látrabjarg.“
Veitt verða áhorfendaverðlaun
á sveitaballinu á sunnudagskvöld
og þær myndir sem keppa um
verðlaunagripinn eru:
Arabískar nætur
eftir Ara Alexander Ergis Magn-
ússon.
Bítlarnir
eftir Bjarna massa, Hafstein Gunn-
ar Sigurðsson og Henrik Linnet.
Buy Nothing Day
eftir Pál Grímsson.
Frank og fjölskylda
eftir Kristján Loðmfjörð.
Franska rívíeran
eftir Huldar Breiðfjörð.
Gas Station - Iceland
eftir Luc Vrydaghs.
Hugleikir
eftir Hugleik Dagsson.
Íslenski herinn
eftir Bjarna massa.
Kolaportið
eftir Arnar Jónasson og Bjarna
Einarsson.
Loðmundur syngur
eftir Bjarna massa.
Magnús Blöndal
eftir Ara Alexander Ergis Magn-
ússon.
Norðureyrarjarlinn
eftir Lýð Árnason.
Okkar skoðun
eftir Garðar Bachmann Þórðarson
og Hákon U. Seljan Jóhannsson.
Perfec T
eftir Huldar Breiðfjörð.
Sófakynslóðin
eftir Áslaugu Einarsdóttur og
Garðar Stefánsson.
19 frumsýningar,
grill og sveitaball
Bensínstöð Úr myndinni Gas Station Iceland sem frumsýnd verður á
Skjaldborgarhátíðinni.
TVÆR íslenskar heimildarmyndir
og fimm íslenskar stuttmyndir verða
frumsýndar á fimmtu Shorts & docs
kvikmyndahátíðinni sem hefst á
föstudag og lýkur á mánudag. Sýnd-
ar verða yfir tuttugu stuttmyndir og
heimildamyndir frá fjórtán mismun-
andi löndum.
Opnunarmyndin verður Fórn-
arlömb pólfaranna eftir Staffan Ju-
lén, en hún fjallar um feril Roberts
E. Peary, sem dvaldist 23 ár á norð-
urslóðum í tilraunum sínum til þess
að verða fyrstur á Norðurpólinn.
Stuðningsaðilar hans í New York
þrýstu á um að hann færði þeim dýr-
gripi úr norðrinu og brá hann á það
ráð að flytja sex inúita til Nátt-
úrugripasafns Bandaríkjanna í New
York. Í myndinni rannsakar alnafni
og barnabarn Pearys örlög þeirra.
Þeir verða viðstaddir opnunarsýn-
inguna og segja síðan frá gerð
myndarinnar í Reykjavíkuraka-
demíunni á laugardag kl. 15. Fund-
urinn er liður í verkefninu Ímyndir
norðursins og mun Sumarliði Ísleifs-
son sagnfræðingur stýra umræðum.
Á Reykjavík Shorts & Docs verða
sýndar eftirfarandi heimildarmyndir
og stuttmyndir:
Brosað á bardagasvæðum
eftir Simone Aaaberg Kaern og
Magnus Bejmar.
Fiðrildamaðurinn
eftir Samönthu Rebillet.
Andlit illskunnar
eftir Ove Nyholm.
Gleymdar
eftir Agnieszka Lukasiak.
Þær bjuggu til engla
eftir Astrid Bussink.
Sjanghæjað til sjós
eftir Margréti Jónasdóttur og
Magnús Viðar Sigurðsson.
Bláar buxur frá Kína
eftir Micha X. Peled.
Fórnarlömb pólfaranna
eftir Staffan Julén.
Annað líf Ástþórs
eftir Þorstein Jónsson.
7 alhliða leysiefni
eftir Daniel Conrad.
Alice
eftir Sophie Schoukenes.
Anna
eftir Helenu Stefánsdóttur.
Annar
eftir René Vilbre og Helenu Stef-
ánsdóttur.
Góðir gestir
eftir Ísold Uggadóttur.
Kókosbollurnar
eftir Charlotte Blom.
Lokahnykkur
eftir Sigtrygg Baldursson.
Martraðir
eftir Jan Forström.
Ólögleg
eftir Robert Cambrinus.
Ragnarök
eftir Elvar Örn Kjartansson.
Sam
eftir Önnu Maríu Jóakimsdóttur Hutri.
Takk fyrir Hjálpið
eftir Benedikt Erlingsson.
Yfir tuttugu myndir
frá fjórtán löndum
Stuttmynd Úr Góðir gestir.
Ársalir - fasteignamiðlun Ársalir - fasteignamiðlun
Björgvin Björgvinsson, löggiltur fasteignasali
Ársalir
FASTEIGNAMIÐLUN
Engjateigi 5 105 Rvk
533 4200
ÁRSALIR EHF - FASTEIGNAMIÐLUN
ef þú þarft að selja,
leigja eða kaupa fasteign,
mundu 533 4200 eða
senda okkur póst: arsalir@arsalir.is
Útimálning
Viðarvörn
Lakkmálning
Þakmálning
Gólfmálning
Gluggamálning
Innimálning Gljástig 3, 7, 20
Verð frá kr. 298 pr.ltr.
Gæða málning á frábæru verði
ÍSLANDS MÁLNING
Allar Teknos vörur eru framleiddar skv. ISO 9001 gæðastaðli.
Afsláttur af málningarvörum
20%
Sætúni 4 Sími 517 1500
Sérhönnuð málning fyrir íslenskar aðstæður.Sérhönnuð málning fyrir íslenskar aðstæður
Sætúni 4, S. 517 1500 - Skútuvogi 13, S. 517 101 við hliðina á Bónus
SUMARBÓKIN Í ÁR!
17 skemmtilegar
og spennandi
sakamálaþrautir
sem þú spreytir
þig á.
Nýr þáttur er kominn á mbl.is þar sem lands-
liðskokkarnir Ragnar og Bjarni sækja í smiðju
sigurvegaranna í matreiðslukeppni grunnskólanna
2007 og matreiða innbakaðan lax með matshuhisa
dressingu og peru- og eplamauki.
Þú sérð uppskriftirnar á Vefvarpi mbl.is
Kvikmyndahátíðir í
Reykjavík og á Patreksfirði