Morgunblaðið - 12.08.2007, Side 72
72 SUNNUDAGUR 12. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Það er
ÞAÐ ER viðtekin skoðunhér á landi að frændurokkar á hinum Norð-urlöndunum geti ekkert í
rokkinu; kunni að vísu að gera
grípandi stuðpopp, en þegar kemur
að framsækninni og spennandi
músík þá séu danskar, norskar eða
sænskar hljómsveitir ekki á vetur
setjandi, en sitt hvað skemmtilegt
hafi þó borist frá Finnlandi. Við
nánari skoðun sést að þetta er
hrein della því meðal frændþjóð-
anna leynast fjölmargar for-
vitnilegar sveitir og óskiljanlegt
hvers vegna ekki er meira sam-
neyti milli norrænna listamanna.
Tvö prýðileg dæmi um fram-
úrskarandi og frumlegar norrænar
rokksveitir eru danska sveitin The
Kissaway Trail og norska sveitin
Bræðurnir Ljónshjarta, The
Lionheart Brothers, sem heita ein-
mitt eftir bókinni góðu eftir Astrid
Lindgren. Báðar sveitirnar sendu
frá sér breiðskífur í vor og þær
hafa báðar vakið nokkra athygli,
verðskuldaða, utan heimalandsins.
Þær fara ólíkar leiðir í tónlist sinni,
fyrrnefnda sveitin stendur föstum
fótum í amerísku tilrauna-
menntamannarokki síðustu ára-
tuga, minnir ekki svo lítið á Flam-
ing Lips á köflum, en hin leitar
lengra aftur og í lögum hennar
heyrist bergmál frá Brian Wilson
og sólbökuðu Kaliforníupoppi.
The Kissaway Trail
Kissaway Trail kemur frá Óðins-
véum og er ekki svo ýkja gömul því
grunnur var lagður að sveitinni
2004 þegar þrír félagar, Søren
Corneliussen, Thomas Fagerlund
og Rune Pedersen, stofnuðu hljóm-
sveit sem þeir kölluðu Isles. Sú
sendi frá sér plötu, We Have Deci-
ded Not To Die, sem kom út 2005,
en síðan breyttist sveitin svo mjög
að ákveðið var að skipta um nafn.
Helsta breytingin var sú að í henni
urðu mannaskipti en einnig byrjaði
Thomas Fagerlund að syngja og
varð höfuðlagasmiður sveitarinnar
með Søren Corneliussen sér til
halds og trausts.
Fyrsta breiðskífa endurreistrar
sveitar kom svo út í apríl síðast-
liðnum og fékk fína dóma heima
fyrir og ekki síðri dóma ytra; til að
mynda lýsti gagnrýnandi Indep-
endent því yfir að hér væri komin
besta frumraun ársins. Eins hefur
sveitinni verið vel tekið á tónleikum
og mat NME það svo að hún hefði
verið ein af fimm bestu hljómsveit-
unum á tónlistarkaupstefnunni
miklu SXSW í Austin í Texas fyrr
á árinu. Airwaves-stjórar taki eftir!
Bræðurnir Ljónshjarta
Ein af bestu hljómsveitum Norð-
manna undanfarin ár er Serena
Maneesh sem sendi frá sér frábæra
skífu samnefnda fyrir hálfu öðru
ári. Önnur skemmtileg hljómsveit
þaðan er svo 120 Days sem hélt
eftirminnilega tónleika á Airwaves
á síðasta ári. Því eru þessar sveitir
tíndar til sögunnar að þær tengjast
að ýmsu leyti Bræðrunum Ljóns-
hjarta, hafa deilt mannskap, en
eiga þó fátt sameiginlegt þegar
tónlistin er annars vegar.
Bræðurnir Ljónshjarta urðu til
sem samstarf þeirra Audun Storset
hljómborðsleikara og Marcus Fors-
gren gítarleikara og söngvara. Þeir
sendi frá sér stuttskífu 2004, Cont-
rast Context, sem var vel tekið í
Noregi, en ákváðu síðan að breyta
eilítið um stefnu og fjölga um leið
mannskap. Þeir bættu við sig
bassaleikara, Frantz Andreassen,
trommuleikara, Peter Rudolfsen og
öðrum gítarleikara og þannig skip-
uð fór sveitin um Noreg endilang-
an.
Þegar þeir félagar voru búnir að
spila sig vel saman fóru þeir í
hljóðver á síðasta ári að taka upp
breiðskífuna Dizzy Kiss sem kom
svo út í vor eins og áður er getið.
Þeim hefur ekki verið síður tekið
en Kissaway Trail og skemmst að
geta þess að gagnrýnandi The Gu-
ardian sagði sveitina steypa saman
Slowdive og Brian Wilson með
einkar góðum árangri.
Meira stuð
Fjölmargar sveitir aðrar má
nefna sem vert er að kynnast nán-
ar. Danir eiga til að mynda Under
byen, sem er ein skemmtilegasta
hljómsveit Norðurlandanna í dag,
Figurines og Mew. Frá Noregi
kemur sú ágæta sveit Youth Pict-
ures of Florence Henderson og
eins 120 Days, Kings Of Conveni-
ence-klíkan og Ralph Myerz & the
Jack Herren Band. Svíar státa af
fjölda hljómsveita og skemmst að
minnast Loney Dear, sem er vænt-
anlegur á Airwaves, José González,
sem lék á Airwaves 2005, Jens
Lekman, sem lék einnig Airwaves,
2006, en hann hljóp þá í skarðið
fyrir annan fína sænskan lista-
mann, Jenny Wilson, sem er vænt-
anleg í ár. Dungen er líka sænskur
og Love is All, The Knife, hin frá-
bæra Meshuggah, Stina Nordens-
tam og The Concretes. Ekki þarf
að fjölyrða um Finnana, þeir kunna
þetta.
Frábærir frændur
»Ein af bestu hljóm-sveitum Norð-
manna undanfarin ár
er Serena Maneesh
sem sendi frá sér frá-
bæra skífu samnefnda
fyrir hálfu öðru ári.
Efnileg Danska sveitin The Kissaway Trail.
arnim@mbl.is
TÓNLIST Á SUNNUDEGI
Árni Matthíasson
Sólbakaðir Norska sveitin Bræðurnir Ljónshjarta.
Fyrir einhverjar sakir
eru Íslendingar ragir
við að hlusta á tónlist
frá hinum Norðurlönd-
unum. Þar er þó að
finna fjölmargar frá-
bærar sveitir og gott ef
þær eru ekki jafnbetri
en það sem gerist í
Bretlandi til að mynda.